Alþýðublaðið - 22.03.1960, Qupperneq 2
C'ígeíandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
—. Rítstjórar: Gisli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi
rltstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson.
— Simar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíini 14 906 — Að-
TOtur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10. —
Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði.
.
Átök í Sósiaíistaflokknum
i EINS og Alþýðublaðið hefur skýrt frá áttu sér
stað mikll átök á flokksþingi kommúnista nú um
helgina. Svokallaðir hægri kommúnistar gerðu til
• raun til þess að ná yfirtökum í flokknum en
. Moskvukommúnistar vörðust vasklega. Þetta er
ekki fyrsta tilraunin, sem gerð er til þess! að
hnekkja völdum Moskvumannanna í Sósialista-
flokknum. En það fór með þessa tilraun eins og hin
ar fyrri. Hún rann út í sandinn.
Hægri kommúnistar höfðu undirbúið að ná
meirihluta í miðstjórn Sósialistaflokksins og var
; búizt við spennandi kosningum á flokksþinginu.
En er til kom runnu þeir og gengu að samkomulagi
; við Moskvumenn og ekki kom einu sinni tii kosn-
. inga. Er því sýnt, að Moskvukommúnistar munu
, halda völdum í Sósialistaflokknum eins og verið
hefur. Hins vegar verður Alþýðu'bandalagsábreið-
; an sjálfsagt notuð áfram þar, sem henta þykir.
| Alla daga síðan Sósialistaflokkurinn var stofn-
: aður 1938 eða réttara sagt síðan nafninu á komm-
únistaflókknum gamla var breytt, hafa kommún-
istar haft uppi ýmsa tilburði til þess að leyna sínu
rétta eðli. Nafnabreytingunni 1938 var ætlað að
slá ryki í augu fólks og telja því trú um, að nú væri
enginn kommúnistaflokkur til hér lengdur aðeins
„Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkur-
inn“. En gömlu kommúnistaforingjarnir héldu völd
um í hinum „nýja“ flokki og stefnan breyttist ekki.
Arið 1956 var enn rækilegri tilraun gerð til þess að
breiða yfir hið rétta eðli kommúnistaflokksins og
Alþýðubandalagið stofnað. Ekki var þó Sósialista-
flokkurinn lagður niður. Og nú er ástandið þannig
að Sósialistaflokkurinn markar stefnuna, en Al-
þýðu'bandalagið fylgir henni, enda hefur Alþýðu-
foandalagið sjálft enga lýðræðislega uppbyggingu.
Þetta eru höfuðlínur þeirra átaka, sem áttu
sér stað um helgina, þótt margt annað kæmi til
greina. Niðurstaðan er sú, að „gömlu mennirnir”
— Bymjólfur Bjamason og Einar Olgeirsson, halda
enn öllum völdum í flokknum. Það verður fróð-
legt að sjá, hvernig fram vindur málum hinnar
;. klofnu fylkingar kommúnista hér á landi.
Hin árlega kaupstefna og iðnsýning í
I HANNOVER
J fer fram 24. apríl til 3. maí.
Upplýsingar og aðgönguskírteini hjá okkur.
f
Efnt verður til hópferðar á kaupstefnuna,
FEKÐASKRIFSTOFA BIKISINS. Sími 1-15-40.
er trygging fyrir alla fjölskylduna.
Skrifið eða hringið eftir nánari upplýsingum.
S AAÍMIVh M fNHnr IRATÍB (BIIM(EMAIK
’ Sambandshúsinu. Sími 17080.
Umboð hjá næsta kaupfélagi.
Mögnurum og tilheyrandi
Höfum úrval
af
sjónvarps-lofitielum
Veltusundi 1. — Sími 19-800.
.22. marz 19.60 — Aljiýðp.bl^ðið