Alþýðublaðið - 22.03.1960, Page 10
Sigrar Ármann
í kvennafiokkil
ÞAÐ VAR lítill spenningur
að Hálogalandi á sunnudags-
kvöldið, er •handknattleiksmót-
ið hélt áfram. Aðeins einn leik-
ur gat haft töluverða þýðingu,
en það var barátta KR við að
sigi’a Fram með sem mestum
mun, svo að KR-stúlkurnar
Frá leik KR og ÍR í 2. fl.
hefðu möguleika á íslands-
meistaratitlinum 1960. Fram-
liðið lék allvel og sigur KR var
ekki stærri en 16:9. Eru marka
hlutföll Ármanns nú mun betri
en hjá KR og þær síðarnefndu
verða að sigra Ármann með ca.
10 marka mun til að hafa mögu
leika.
' Af þrem kvennaleikjum léku
fyrst Þróttur—FH og var leik-
urinn daufur og tilþrifalítill.
Honum lauk með öruggum sigri
FH 10:6. í liði FH bar mest á
Sigurlínu og Sylvíu eins og áð-
úr, þær eru báðar vel spilandi
og fundvísar á glufur í vöm
andstæðinganna. Lágskot Syl-
víu er oft mjög hættuleg og
erfitt fyrir markvörð að verja
þau. —: Katrín Gústavsdóttir er
bezt og reyndust í liði Þróttar,
en Erla skoraði flest mörkin að
þessu sinni. Dómari var Heinz
Sjtginmann og dæmdi mjög vel.
^ÍSTæst hlupu Ármanns og Vík-
ihgs stúlkur í salinn og þar barð
ist Ármann við að ná sem mest-
um yfirburðasigri. Það leit vel
út fyrir Ármann, sem var kom
inn í 7:1 rétt fyrir .hlé, en Vík-
ingsstúlkurnar hertu sig síð-
ustu mínútur hálfleiksins, sem
lauk með 8:3.
Síðari hálfleikur var mun
jafnari, Brynhildur Erla skor-
ar fyrst fyrir 'Víking. Sirrý tví-
vegis og Þuríður ísólfs einu
sinni fyrir Ármann, en þá skora
Rannveig og Ásrún fyrir Vík-
ing. Sirrý hin skotharða, er
ekki af baki dottin og þrívegis
sendir hún knöttinn í netið, en
Víkingsstúlkurnar eiga síðasta
mark leiksins, sem endaði 14:7
fyrir Ármann.
Fjörugasti kvennaleikurinn
var milli KR og Fram. Það var
greinilegt, að KR-stúlkurnar
lögðu sig allar fram um að ná
sem stærstum sigri og oft léku
þær með miklum ágætum, sér-
staklega Perla, sem skoraði
stundum af hreinni snilld (sjá
mynd). Einnig léku Gerða og
Inga Magnúsdóttir prýðilega.
En það dugði ekki, Framstúlk-
urnar gáfust ekki upp og sóttu
sig er leið á leikinn.
Nýútskrifaðir dómarar, þeir
Sveinn Kristjánsson og Eyjólf-
ur, dæmdu tvo síðustu leiki
með ágætum.
í 3. flokki karla (b-lið) sigr-
aði Víkingur KR 18:1 og Valur
Ármann 15:3.
KR, átti prýðisgóðan leik
gegn Fram á sunnudags-
kvöldið. og þarna sézt hún
skora glæsilega.
tMUMMtMMMUHUimMMV
ÚRSLIT Á LAUGARDAG:
3. fl. karla (B) FH ÍBK 11:9,
3. fl. karla (A) ÍBK Þróttur 16:
7 og ÍR Ármann 7:7. ÍR-ingar
hafa nú sigrað í sínum riðli og
eru komnir í úrslit.
í 2. flokki karla (A) gjörsigr-
aði Þróttur ÍBK með 26:5 og
ÍR vann KR 15:11.
Á skólamótinu í frjáls-
íþróttum innanhúss um
helgina bar það helzt til
tíðinda, að Jón Pétursson,
KR, sem keppti sem gest-
ur í þrístökki án atrennu,
stökk 10,01 m., sem er að-
eins 2 sm. lakara en ís-
landsmet Vilhjálms Ein-
arssonar. f hástökki með
atrennu stökk Kristján
Stefánsson, Hafnarfirði,
1,78 m. mjög léttilega, en
hann er sérstaklega fjöl-
hæfur og efnilegur íþróttai
maður.
Þróttur gersigraði Keflavík í 3. flokki á laugardag, myndin
C~XT VI V tf 1' A f olr/wn
Silfurmaburinn 3.
OSLO, 20. marz (NTB). Norð-
menn voru sigursælir mjög á
síðasta degi Holmenkollenmóts
ins. Það var aðeins Svíinn
Bengt Eriksson, sem gat veitt
þeim einhverja keppni í nor-
rænni tvíkeppni, en sigurveg-
ari var Gunder Gundersen, sem
einnig vann í fyrra. Hann halut
því konungsbikarinn. 'Veður
var dásamlegt, sól og blíða, og
áhorfendur um 50 þús. Bæði
norsku og sænsku konungshjón
in voru viðstödd keppnina og
var fagnað gífurlega, er þua
komu.
Gundersen hlaut 450.100 stig,
annar varð Arne Larsen, 444.
833 st., Tormod Knutsen, 442,
733, Fageraas, 440,933, Sverre
Stenersen, 431,033, Bengt E-1
riksson, Svíþjóð, 430,000 stig. I
Norðmenn í fimm fyrstu sæt-
unum.
í 50 km. göngu sigraði Sverre
Stensheim, Noregi, 3:08,7 klst.,
Oddmund Jensen, Noregur, 3:
13,04, Ingemund Holtaas, Nor-
egi 3:13,35, Rolf Rámgard, Sví- ~
þjóð, 3:15,18, Kalevi Ookarain-
en, Finnland, 3:15,52, Reidar
Andreason, Noregur, 3:16,33,
Hallgeir Brenden, 3:20,00, Ein-
ar Skaaren, Noregi, 3:21,57,
Martin Stokken, 3:23,27, Artur
Vigmo, Noregi, 3:23,49.
Af 61 keppenda, sem hóf
gönguna, luku 37 keppni.
STAVANGER, 20. marz (NTB).
Keppnistím'abil knattspyrnu-
manna í Rogalandi hófst á laug
ardaginn í Nærboe og þá sigr-
I aði Nærboe Víking með 1:0.
NUT SIGRAÐI
ÞRÁNDHEIMI, 20. marz, NTB.
Á alþjóðlegu skautamóti, sem
lauk her í dag, var Knut Jo-
hannesen langbeztur keppenda.
Hann varð þrefaldur sigurveg-
ari og langbeztur í samanlögðu.
Áhorfendur voru 1200 á laug-
ardag og 5000 í dag.
Helztu úrslit urðu þau, að
Roald Aas sigraði í 500 m á 44
sek., en í öðru og þriðja sæti
voru 5‘i'nn Thoresen og Solberg
á 45 sek. Knut fékk tímann 45,1
sek. Og varð fjórði, en Cassidy,
Ástralíu fimmti á 45,2 sek.
Knut sigraði í 3000 m á 4:56,9
mín., Aas 4:57,9 og Seierstein
4:58,2. í 1500 m sigraði' Knut á
2:17,2, Aas 2:20,8 og Soliberg
2:23,5. Loks var keppt í 5000 m
og sigraði Knut á 8:37,9 mín.,
Seierstein 8: 46,8 og Aas 8:55,9
mín.
Úrslit í samanlögðu: Knut
Johannesen 192.106 stig, Roald
Aas 194.173 st., Seierstei'n
195.447 st.
í keppni kvenna sigraði Jean- ^
ette McNail, Ástralíu í 500 m
á 51,8 sek., Groven, Noregi í
1000 m á 1:49,9.
• !
FRÉTTAMANNI íþrótta- {
síðunnar barst það til !
eyrna að Hálogalandi á ;
sunnudaginn, að Sig- !
urður Helgason væri ;
2,08 á hæð, en ekki 2,07, !
eins og skýrt var frá í Al-
þýðublaðinu á sunnudag-
inn. Þetta leiðréttum við
hérineð, því að okkur er
bæði skylt og Ijúft iað hafa
það sem sannara reynist.
MmMMUmUMUUUHMMt
22. marz 1960 — Alþýðublaðið