Alþýðublaðið - 30.03.1960, Qupperneq 5
GENF, 29. marz. Fundum var
í dag haldið áfram á landhefgis
ráðstefnunni í Genf og tóku níu
fulltrúar til máls, meðal þeirra
aðalfulltrúi Breta, John Hare
landbúniaðar- ojr fiskimálaráð-
herra. Á fundi, sem hann hélt
með blaðamönnum í dag, sagði
hann að Bretar hefðu hvað eftir
annað reynt að ná slamltomulagi
við íslendinga í fiskveiðideiU
Unni, en sagði að ósennilegt
væri að saman gengi. Hann vék
fsér undan að svara þeirri spurn-
ingu hvort Bretiar mundu aftur
senda herskip á Islandsmið ef
ekki næðist neitt samkomulag á
yfirstandandi ráðstefnu.
John Hare landbúnaðar- og
íiskimálaráðherra hélt fram
hinum venjulegu sjónarmiðum
Breta varðandi landhelgi og
fiskveiðilögsögu. Hann sagði m.
B. að reglan um þriggja mílna
landhelgi væri hin éina, sem
væri í samræmi við alþjóðarétt
og vísaði á bug skilningi þjóð-
f éttarnefndarinnar á málinu, en
hún komst aðþeirri niðurstöðu,
að strandríkjum væri heimilt,
að ákveða landhelgi sína allt að
12 sjómílum, „En allir verða að
vera fúsir til að slá nokkuð af.
Ikröfum sínum ef samkomulag
á að -nást og Bretar styðja til-
lögu Bandaríkjamanna,“ sagði
John Hare. Hann fuilyrti að það
væri engin vernd í því á vorum
tímum þótt landlhelgi yrði á-
kveðin 12 sjómílur og benti á
að kostnaður við gæzlu slíkrar
landhelgi væri miklu meiri en
við gæzlu sex mílna landhelgi.
Hann sagði enn fremur, að allt-
ef væri hætta á að strandríki
íiotuðu réttindi sín til þess að
leggja hömlur á ferðir skipa og
það skapaði aukna hættu fyrir
siglingar ef skip yrðu að halda
Eig iengra frá landi vegna víkk-
Unar landhelgi.
Því næst svaraði John Hare
kröfum ýmissa landa um aukna
fiskveiðilandhelgi, sem ætluð
Væri til þess að vernda fisk-
Btofna og sagði að þessar kröfur
væru ekki í samræmi við óskir
Jieirra um að auka fiskveiðar
sínar.
„Mörg fjölmenn ríki hafa
þörf fyrir miklar veiðar á fjar-
lægum miðum og stendur það í
engu sambandi við heimsvalda-
stefnu eða nýlendusjónarmið
þótt þess sé krafizt að fá rétt-
indi til fiskveiða innan 12 mílna
marka, sem gert er ráð fyrir í
tillögu Kanadamanna. Ef hún
nær fram að ganga mundi það
þýða minnkandi afla og hafa
hættulegar afleiðingar fyrir
matvælaframleiðs'luna í heim-
jnum,“ sagði Joihn Hare. „Ef svo
færi mundu þúsundir manna á
einn eða annan hátt missa at-
vinnu sína og miki.ll 'hluti mann
kynsins verða að þola mikinn
niðurskurð á fiskneyzlu sinni.“
Fulttrúi Hollands prófessor
Writ'hagen, sagði að land sitt
styddi tiliögu Bandaríkjamanna
vegna þess að þar væri viður-
kennt að ríki hefðu rétt til að
veiða þar, sem iþau hafa stundað
veiðar um langan aldur..Hann
vfsaði á bug tillögunum um 12
sjómílna landhelgi eða veita
strandríkjum einkarétt til fisk-
veiða á vissum svæðum. Hann
sagði, að hollenzkir sjómenn
hefðu öldum saman stundað síld
veiðar við England og væru
jafnháðir þessum veiðum og aðr
ar þjóðir, sem krefjast vernd-
unar á fiskveiðum innan 12
mílna.
Fulltrúi Burma kvaðst styðja
tillöguna um 12 mílna land-
helgi. Fúlltrúi Grikkja studdi
tillögu Bandaríkjamanna, Kol-
umbia 'styður kanadisku t.illög-
una og Venezuela tillögu Sovét
ríkjanna um 12 mílna landhelgi.
omu
WASHINGTON, 29. marz. —
(NTB.) Viðræðum Eisenhowers
Bandaríkjaforseta ög Macmill-
ans forsæíisráðherra Breta í
Camp David lauk í dag. Eftir
fundinn var gefin út sameigin-
leg yfirlýsing um viðræðurnar
og segir þar meðal annars, að
þeir hafi rætt ástandið á þrí-
veldiaráðstefnunni um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn,
sem haldin er í Genf.
,,Það er innileg ósk Bánda-
ríkjanna og Bret’lands að náð
verði alþjóðlegu samkomulagi
um bann við tilraunum m$ð
hvers- konar kjarnorku- eða
vetnisvopn og komið á raun-
hæfu eftMiti með því að því
verði framfylgt. Er Genfarráð-
stefnan hófst fyrr 17 mánuðum
var ástæða til þess að ætla, að
ekki væri ógerlegt með nýjustu
tækjum að fylgjast með ölíum
kjarnorkutilraunum. En það
sýndi sig brátt að við mörg
vandamál var að glíma við að
setja upp alþjóðlega eftirlits-
stofnun. En það er von Breta
og Bandaríkjamanna, að kjarn-
orkuveldin þrjú geti á tiltölu-
lega stuttum tíma fundið leiðir
til þess að koma á fullkomnu
eftirlitskerfi."
Eisenhower og Macmillan
telja, að það væri stórt skref í
rétta átt ef samið verði um ýmis
vandamál, t. d. hve margar eft-
irlitsferðir árlega eru nauðsyn-
légör til eftirlits. Leggja þeir
til að þríveldin gefi yfirlýsing-
ar um að þau hætti öllum kjarn
orkutilraunum neðanjarðar,
sem eru svo kraftlitlar að þær
koma ekki fram á jarðskjálfta
mælum.
Viðstaddir fund Eisenhowers
og Macmillans voru sérfræðing
ar þeirra í kjarnorkumálum,
Nixon varaforseti Bandaríkj-
anna, Herter utanríkisráðherra
og Caccia, sendiherra Breta í
Washington.
Hagerty blaðafulltrúi Eisen-
howers sagði, að frönsku stjórn-
inni hefði verið tilkynnt jafn-
óðum um gang viðræðnanna.
Háttsettur bandarískur emb-
ættismaður sagði eftir viðræð-
urnar að búast mætti við sam-
komulagi ef'tir þrjá mánuði á
ráðstefnunni í Genf.
ítalski .fulltrúinn sagði, að ít-
alía hefði alltaf haft sex mílna
landhelgi, en viðurkenndi ekki
viðbótarbelti þar, sem strand-
ríki hefðu einkarétt til fiskveiða
og kvað 40 prósent af fiskiflota
ítala mundu þá verða að hætta
veiðum og 400 000 manns senni
lega missa atvinnuna í landinu
og milljónir annars staðar í
heiminum. Hann kvað ítölsku
stjórnina styðja tillögu Banda-
ríkjanna, en ekki fallast á neitt
viðbótarbelti ef hún yrði felld.
Perúfulltrúinn sagði, að
stjórn sín viðurkenndi ekki
neinn sögulegan rétt til fisk-
veiða. Hann sagði að fiskveiðar
væru aðalatvinnuvegur þeirra,
sem búa við ströndina, en væri
þó vannærðir. Fjöldi fiskiðju-
vera blómgaðist nú í Perú.
Fulltrúi Tékkóslóvakíu benti
á að mörg ríki hefðu fært út
landhelgi sína Og sum fiskveiði
landhelgina eins og ísland og
mundi ekkert geta stöðvað
þessa þróun mála.
Á morgun munu taka til máls
fulltrúar Brazilíu, Póllands, Jú-
góslavíu og Vestur-Þýzkalands.
Ensk-a blaðið Sunday Times
sagði í fyrradag, að ísland hefði
í mörg ár verið hinn mikli
þrándur í götu fyrir sanngjarnri
lausn fiskveiðivandamála, Og
virtust íslendingar enn stað-
ráðnir í að hleypa engum á mið
sín.
Guðmundur I. Guðmundsson
u'tanríkisráðherra mun taka til
máls á fimmtudag af hálfu ís-
lands.
I Japan!
§ - ■ *
TÖKYO, 29. marz. NTB-
AFP. — Til óeirða kom í<;
tiámubæ skammt frá Tokyo
í dag oíí lét- eiiin verkalýðs-í
foiingi lífiS en 20 verká-;
menn særSust mikið. Lög-Si
reglan var send á vettvang;;
og gat stillt til friðar.
Óeirðirnar hófust er á-;
hangendur annarra verka-;
lýðsfélags komu vopnaðiii
hnífum og réðust á verkfalls;
menn við námuna og reyndu^
að fremja verkfallsbröt. —
Verkfallsforingi einn var
?tunginn til hana, Yfirvöldisi; >
áttast að óeirðir þessar kunsii
"ð breiðast út.
HÖFÐINGLEG
GJÖF
ÓSKAR JÓNSSON útgelð-
armaður 0g kona hans, Mikka-
lina Sturludóttir, hafa stofnað
sjóð til minningar um hjónirt.
Margréti Magnúsdóttur Ijcs-
móður, Þingeyri, og Jens |A,
Guðmundsson kaupmann,
sama stað. Stofnfé sjóðsins-er*
20 þús. kr. Hefur það veri5
afhent fæðingardeild Sólvangs
í Hafnarfirði. Tilgangur sjóðs-
ins er að styrkja efnalitíar
mæður, sem leggjast inn ffi
fæðingardeild Sólvangs. Út-
hlutun úr sjóðnum fer fram
20. desember árlega og í fyrst.a
sinn 20. des. 1960. Sjóðsstjórn-
ina skipa samkvæmt skipulags
skrá forstjóri Sólvangs, yfir-
iæknir sömu stofnunar og yfir
liósmóðir fæðingardeildar Sól
vangs. Forstjóri Sólvangs, Jó-
hann Þorsteinsson, hefur beðið^
blaðið að flytja gefendum
beztu þakkir.
rosturi
HÖFÐABORG, Jóhannesarborg
29. marz (NTB). — Þúsundir
blökkumanna héldu áfram mót-
mælaverkfalli því, sem hófst x
gær áfram í dag en ekki kom til
eins alvarlegra átaka og undan-
farið. Óttast er að til blóðugra
óeirða kunni að koma á næst-
unni. Al-afríkanska sambandið
(víðtæk samtök falökkumanna)
hafa sett stjórn Suður-Afríku
þá úrslitakosti að nema vega-
bréfslögin úr gildi innan 12
klukkutíma, ella verði hafin ný
barátta gegn þeím.
Ettn er ekki vitað hve margir
létu lífið í óeirðunum í gær, en
átta lögreglumenn, allir svartir,
féllu. Hús f jölmargra þeldökkra
lögreglumanna voru brennd til
ösku í gær.
Aðalfúlltrúi Suður-Afríku
hjá Sameinuðu þjóðunum,
Brand Fourie, kom til New
York í dag og hefur hann skip-
un frá stjórn sinni um að reyna
að hindra að öryggisráðið ræði
atburðina í Suður-Afríku.
Margir telja að fundir örygg-
isráðsins um þetta mál, sem
halda á morgun, verði storma-
samir Fulltrúi Suður-Afríku
krefst þess að fá að sitja fund-
inn og eins afa Indland og Gha-
na beðið um að fá að segja þar
álit sitt. Ekki er vitað hvaða af-
stöðu Bretar og Frakkar taka í
málinu, en hingað til hafa þéir
talið að kynþáttastefna stjórn-
arinnar í Suður-Afríku værí
innanríkismál.
Mikið verðfall hefur orðið i
kauphöllinni í London á verð-
bréfum frá Suður-Afríku, eiok-
um í gullfyrirtækjum.
Ríkisstjórnin í Snður-Af«
ríku er sögð hafa í undirbíin-
ingi frumvarp um aS banna
tvö fjöhnennustu samtöls
blökkumanna í landinu. (>
Álþýðublaðið — 30. marz 1960