Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 6
6 FRÉTTABLAÐIÐ 10. mai 2001 FIMMTUDAGUR Getnaðarvarnarplástur: Jafn öruggur og pillan Fellaskóli: Skólahandbók á údensku chicago. flp. Heimsins fyrsti getnaðar- varnarplástur er, samkvæmt rann- sókn væntanlegs framleiðanda, jafn öruggur og pillan. Plásturinn er til skoðunar hjá embættismönnum rík- isstjórnar Bandaríkjanna en hún mun taka ár. Plásturinn, sem er á stærð við eldspýtustokk, gefur frá sér hormónin estrógen og progestin og á, líkt og pillan, að koma í veg fyr- ir egglos. Irannsókninni voru bornar saman 812 konur sem notuðu plástur- inn í a.m.k sex tíðarhringi og 605 sem tóku pilluna. Fimm konur með plás- tra urðu óléttar en sjö sem voru á pillunni. Munurinn er ekki talinn marktækur. ■ skólamAl Skólahandbók Fellaskóla verður þýdd á fimm tungumál og er markmiðið að stuðla að árang- ursríkum samskiptum við fjöl- skyldur sem hafa annað móðurmál en íslensku. Ekki skýrist fyrr en i haust á hvaða tungumál verður þýtt. „Þetta eykur líkur á góðri sam- vinnu skóla og heimila og dregur einnig úr kostnaði vegna túlkaþjón- ustu. Tilgangurinn er að bjóða nýja nemendur og forráðamenn þeirra velkomna og stuðla þannig að far- sælu samstarfi heimila og skóla,“ segir Sigurlaug HrundSvavarsdótt- ir, umsjónarmaður nýbúamála og nýbúakennari við Fellaskóla, sem ásamt Hrönn Baldursdóttur náms- ráðgjafa hefur umsjón með verk- efninu, sem hlaut 200.000 króna styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla Reykjavíkui'. í handbókinni verða hagnýtar grunnupplýsingar um skólastarfið, þar á meðal mikilvæg símanúmer, þjónusta sem veitt er í skólanum, skóladagatal, skólareglur, félags- starf og tómstundir. Að sögn Kristínar Jónsdóttur forstöðumanns þróunarsviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur er styrkurinn fyrst og fremst veittur vegna frumkvæðisins en ekki FELLASKÓLI ■ Nemendur Fjöldi nemenda 552 Fjöldi nýbúa 40 (7%) ■ Bekkiardeildir Fjöldi bekkjardeilda 28 Fjöldi bekkjardeilda með nýbúum 21 (70%) vegna handavinnunnar sem feist í að þýða handbókina. Þarna er, að mati Kristínar, veriö að ríða á vaðið og sýna að þetta er hægt. ■ FARSÆLT SAMSTARF HEIMILA OG SKÓLA ( Fellaskóla er litið þannig á að fjölbreyti- leiki auðgi skólastarf og að allir nemendur eigi jafnan rétt á þjónustu. Danmörk: Nýnasistar reknir út pómstólar íbúar bæjarins Nðrresundby á N-Jótlandi fögnuðu ákaft í gær þegar héraðsdómsstóll komst að þeirri niðurstöðu að erfða- skrá sem arfleiddi nýnasista að húsi í bænum væri ógilt plagg. Það var gamall danskur nasisti, Gunnar Gram, sem arfleiddi flokksbræður sína að húsinu. Hálfsystir hans gerði hins vegar tilkall til eigninnar og ógilti dómstóllinn erfðaskrána í kjöl- farið. Vafasamt þótti að einn af vott- um skrárinnar var meðlimur í Nas- istaflokknum en hann hafði augljósa hagsmuni af því að húsið félli þeim í skaut og stangast það á við dönsku erfðalögin. íbúar bæjarins hafa staðið fyrir mótmælum fyrir utan húsið sl. tvö ár og fögnuðu úrskurð- inum. ■ —♦— Útlendingahatur: Sendinefnd til S-Afríku kynpAttamisrétti Ríkisstjórnin hefur falið félagsmálaráðuneyti að undir- búa för sendinefndar á þing Samein- uðu þjóðanna um kynþáttamisrétti og útlendingahatur sem haldinn verður í Durban í S-Afríku um mánaðamótin ágúst-september n.k. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu er ekki enn vitað hversu margir verða í þess- ari sendinefnd né heldur hverjir verða í henni. Undirbúningur að því er í þann veginn að hefjast. Hinsveg- ar er talið að íslendingar geti lært mikið af því að sækja þingið og lært af biturri reynslu annarra þjóða í þessum efnum. ■ —♦— Forstjóri Amazon selur hlutabréf: Vissi hann um lækkun? viðskipti. Sala Jeff Bezoz, forstjóra og aðaleiganda Amzon.com, á bréf- um í fyrirtækinu hefur vakið grun- semdir hjá Bandaríska verðbréfa- eftirlitinu, SEC, að því er Reuters geinir frá. Með nokkurra daga millibili í febrúar síðastliðnum seldi Bezos 800 þúsund hluti í inter- netfyrirtækinu rétt áður en verð- bréfafyrirtækið Lehman Brothers lækkaði mat á fyrirtækinu. Grun- semdir eftirlitsins beinast að því hvort líklegt hafi verið að Bezos hafi vitað af fyrirhugaðri lækkun Lehman og því gripið til sölunnar. Forstjórinn fékk tæplega 12 millj- ónir dollara fyrir bréfin þegar hann seldi þau, en verðgildi þeirra minnkaði umtalsvert eftir að Lehman breytti afstöðu sinni nokkrum dögum síðar. „Þeir hafa beðið okkur um ýmsar upplýsingar og við munum glaðir hjálpa þeim á allan þann hátt sem við getum,“ sagði talsmaður Amazon. ■ Verslunarráð óttast kreppu Stórtæk aðgerðaáætlun til að endurvekja efnahagslegan stöðugleika. efnahagsmál . Framkvæmdastjórn Verslunarráðs íslands telur nauðsyn- legt fyrir stöðugleika efnahagslífsins að stjórnvöld bregðist skjótt við mik- illi og óvæntri lækkun á gengi ís- lensku krónunnar sem geti haft í för með sér að hraðar og meira hægi á efnahagsstarfseminni en vonast hafi verið til. Framkvæmdastjórnin setti í gær fram tilllögur sínar um það hvernig stjórnvöld geti komið í veg fyrir samdrátt í atvinnulífinu. f fyrsta lagi er lögð til lækkun tekju- og eignaskatta á fyrirtæki og afnám stimpilgjalds til að skapa at- vinnulífinu sóknarfæri og treysta skattalega samkeppnisstöðu íslands. í öðru lagi er að Seðlabankinn lækki vexti og stuðli þannig að al- mennum vaxtalækkunum til að styrkja atvinnulífið og gengi krón- unnar. í þriðja lagi er lagt til að ríkis- stjórnin taki erlent lán til að styrkja eiginfjárstöðu Seðlabankans og auka þannig framboð af erlendu fjármagni inn á gjaldeyrismarkaðinn og styrkja Seðlabankann. í fjórða lagi að ríkissjóður gangi á inneign sína í Seðlabankanum og greiði innlendar skuldir og noti fé sem fæst við einkavæðingu til að greiða niður innlendar skuldir til að styrkja gengið. Þá er lagt til að einkavæðingu rík- SÓKN GEGN SAMDRÆTTI Þingmennirnir Einar K. Guðfinnsson og Guðjón A. Kristjánsson voru á morgunverðarfund- inum þar sem Verslunarráð kynnti tillögur sínar um úrbætur í efnahagsmálum. isbanka og Landssímans verði hraðað og að þeim fengnir erlendir fjárfestar til að auka fjárstreymi til landsins. Ennfremur að stjórnvöld hafi forystu um að auka eigið fé fjármálafyrir- tækja til að styrkja eiginfjárhlutföll TILLÖGUR VERSLUNARRÁÐS 1. Skattar á fyrirtæki verði lækkaðir. 2. Seðlabankinn lækki vexti. 3. Ríkið taki erlent lán til að styrkja Seðlabankann. 4. Ríkið noti inneign sína í Seðlabankanum til að greiða niður innlendar skuldir sínar. 5. Einkavæðingu verði hraðað og fengnir erlendir fjárfestar. Rikið gangist fyrir styrkingu eigin- fjárstöðu fjármálafyrirtækja. 6. Fyrirtæki þurfi ekki að gera ársreikninga I islenskum krónum. 7. Drifið verði i uppbyggingu virkjana og stóriðju með uppbyggingu Norðuráls og álvers í Reyðarfirði. þeirra og koma í veg fyrir samdrátt í útlánum. í sjötta lagi er lagt til að íslenskum fyrirtækjum verði heimilað að setja fram ársreikninga sína og gera upp til skatts í erlendum gjaldmiðlum og hætta notkun verðbólgureiknings- skila. Að lokum leggur Verslunarráð til að sem fyrst verði gengið frá samn- ingum um frekari uppbyggingu stór- iðju og virkjana með stækkun Norð- uráls og nýju álveri í Reyðarfirði. gar@frettabladid.is Umberto Eco um Berlusconi: Segir einveldi í uppsiglingu HALLDÓR BJÖRNSSON VARAFORSETI ASÍ Segir að seiglan í sér sé alveg ótrúleg. Ársfundur ASÍ: Halldór er að hugsa verkalýðshreyfing Halldór Björnsson varaforseti ASÍ segist ekki vera bú- inn að gera það upp við sig hvort hann gefur kost á sér til til endur- kjörs á ársfundi sambandsins sem haldinn verðurl seinnihluta mánað- arins. Hann leggur þó áherslu á að sem formaður Starfsgreinasam- bandsins eigi hann að sitja í mið- stjórn fari svo að hann gefi ekki áfram kost á sér í embætti varafor- seta. Halldór sem er á áttræðisaldri var kosinn varaforseti ASÍ á þingi þess í nóvember sl. Áður hafði hann látið af störfum sem formaður Efl- ingar sökum aldurs. Töluverðar þreifingar eiga sér stað innan verkalýðshreyfingarinnar vegna ársfundarins og óvissu um framtíð Halldórs sem varaforseta. Aðspurður hvort það sé ekki lýjandi að standa í eldlínunni segir hann að það sé alveg ótrúlegt hvað seiglan í sér sé mikil. Hann segist þó reyna að vinna þetta eins létt og mögulegt er, enda með góða samstarfsmenn bæði innan ASÍ og Starfsgreinasambands- ins. ■ Róm, ap ítalski rithöfundurinn Um- berto Eco hvetur landa sína til þess að líta á þingkosningarnar á sunnudag- inn sem eins konar „siðferðilega at- kvæðagreiðslu" og greiða atkvæði gegn Silvio Berlusconi. Eco skrifaði í dagblaðsgrein í gær að sigri fjölmiðlakóngurinn Berlusconi í kosningunum verði í raun ríkjandi einveldi á Ítalíu, því svo mikil völd væru komin á hendur þessa eina manns að „ekki einu sinni englar" gætu staðist freistingarnar sem af því hlytust. Lýðræði á Ítalíu er í hættu, að mati Ecos. Berlusconi ræður yfir fjölmiðla-, fjármála- og íþróttaveldi sem metið er á nærri 1.200 milljarða íslenskra króna. Meðal annars ræður hann yfir stærstu einkareknu sjónvarpsstöð- inni á Ítalíu, og sem forsætisráðherra hefði hann yfirráð yfir ríkissjónvarp- inu að auki. Berlusconi hefur ekki ljáð máls á því að losa sig við eitthvað af eignum sínum hljóti hann kosningu, en hann segist ætla að leggja fram frumvarp um hagsmunaárekstra á fyrstu 100 dögum sínum í embætti. Berlusconi er spáð miklum sigri í kosningunum á sunnudag, en helsti andstæðingur hans er Francesco Rutelli, fyrrverandi borgarstjóri í Róm. Andstæðingum hans hefur ekki BERLUSCONI HINN MIKLI Silvio Berlusconi kom fram í sjónvarps- þætti á þriðjudaginn, en honum er spáð sigri I kosningunum á sunnudag. tekist að sameinast undir einni „regn- hlíf“ og sundrung þeirra hefur óneit- anlega komið Berlusconi til góða. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.