Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 10. maí 2001 FIMMTUDAGUR Glinton hittir Kínaforseta: Komu Zemin mótmælt í HUGLEIÐSLU Meðlimir Falun Gong náðu að slaka vel á í hugleiðslu i gærmorgun, áður en þeir héldu mótmælum áfram. 1 MENNTAMÁL | Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra, hefur skipað Yngva Pét- ursson, konrektor, í embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík til fimm ára frá 1. ágúst 2001 að telja. Tvær umsóknir bárust um embættið sem sendar voru skólanefnd Menntaskól- ans í Reykjavík til umsagnar og til- lögugerðar . Skólanefndin mælti í umsögn sinni til menntamálaráð- herra einróma með því að Yngva Péturssyni yrði veitt embættið. Hinn umsækjandinn var Pétur Rasmus- sen, konrektor við MS. Samtök iðnaðarins: Þeir kvarta sem síst skyldi HúSflSMiÐiR Samtök iðnaðarins telja að það skjóti skökku við að Meistarafé- lag húsasmiða skuli hafa áhyggjur af námskeiðum vegna löggildingar iðn- meistara. Sérstaklega þegar haft sé í huga að félagið hefur haft mest áhrif á reglugerðina um námskeiðin og á jafnframt fulltrúa í verkefnisstjórn þeirra. Samtökin árétta jafnframt að námskeiðsgjöld vegna þessara nám- skeiða renna ekki til þeirra heldur til Menntafélags byggingariðnaðarins. Hinsvegar séu samtökin aðili að Menntafélaginu eins og Meistarafé- lag húsasmiða. ■ honc kong. flp. Ráðstefna leiðtoga úr fjármálaheiminum sem nú stendur yfir í Hong Kong hefur fallið mjög í skuggann á mótmælum vegna komu Kínaforseta, Jiang Zemin. Trúar- hreyfingin Falung Gong efndi til mótmæla í gær vegna komu Kínafor- seta til borgarinnar. Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, átti fund með Zemin í gærmorgun. Clinton lagði áherslu á að hann væri í einkaerindum í Hong Kong. Talið er að Zemin og Clinton hafi ætlað að ræða tengsl ríkjanna á meðan Clinton var í embætti en hann leitaðist við að bæta samskipti ríkjanna. Talsmenn Falung Gong gagnrýndu ráðamenn í Hong Kong harðlega í gær. Þeir halda því fram að allt að 100 meðlimum hreyfingarinnar hafi ekki verið hleypt inn í landið síðustu daga en þeir ætluðu sér að taka þátt í mót- mælum gegn komu Jiang Zemin. Því vísa stjórnvöld á bug og segjast ekki hafa gripið til sérstakra ráðstafana. Falung Gong hreyfingin er bönnuð á meginlandi Kína en ekki í Hong Kong. Ráðamenn Hong Kong gera sér vonir um að viðskipti við landið aukist í kjölfar ráðstefnunnar. ■ BT Reykjanesbæ - S:421-4040 • BT Akureyri - S:461-5500 • BT Egilsstöðum - S:471-3880 HLJÓÐNEMI LAGFÆRÐUR Kardinálarnir fylgjast með þegar hermaður á Möltu lagfærir hljóðnema fyrir Jóhannes Pál páfa á Möltu í gær. Páfi lýkur ferð sinni á Möltu: I fótsporum Páls postula VALLETTA. MÖLTU, flp „Ég er kominn aft- ur til ykkar í fótspor Páls postula," sagði Jóhannes Páll páfi við messu á eyjunni Möltu í Miðjarðarhafinu í gær, en þar rak skip Páls postula á land í ofviðri á sínum tíma. Á Möltu er lokaáfangi í ferð páfa um Biblíu- slóðir, en hann heldur aftur heim í Páfagarð í dag. Hugur hans var í gær bundinn við ófriðinn fyrir botni Miðjarðarhafs og sagði hann nauð- synlegt að biðja fyrir friði þar. Nærri 98% íbúa á Möltu eru róm- versk-kaþólskrar trúar, og þar eru skilnaðir og fóstureyðingar ólögleg- ar. Páfinn hefur átt við þreytu að stríða á ferðalagi sínu, en hann er orðinn áttræður. ■ Bandaríkjaþing: Hótar Samein- uðu þjóðunum BANDftRlKiN Jafnt Demókratar sem Repúblikanar í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings samþykktu í gær að halda eftir greiðslum til Sameinuðu þjóð- anna ef Bandaríkin endurheimta ekki sæti sitt í Mannréttindaráði S.Þ. á næsta ári. Bandaríska dagblaðið New York Times sagði frá þessu í gær. Fulltrúadeildin samþykkti að greiða þær 582 milljónir dollara sem Bandaríkjunum ber að greiða á þessu ári, en hóta því að 244 milljónir verði ekki greiddar á næsta ári. Colin Powell utanríkisráðherra sagði að það hefði óneitanlega komið banda- rískum stjórnvöldum á óvart að Bandaríkin skyldu ekki ná kosningu í Mannréttindaráðið, og ekki hafi bætt úr skák að Bandaríkin skyldu einnig tapa kosningu í alþjóðlega Fíkniefna- eftirlitinu. Nokkur ríki sem ekki eru beinlín- is þekkt fyrir fögur afrek í mannrétt- indamálum voru kosin í Mann- réttindaráð S.Þ. í síðustu viku, þar á meðal Súdan og Líbía. ■ COLIN POWELL Hreint ekki sáttur við málalok i Mann- réttindaráðinu. KOMDU MEÐ AUGLÝSINGUNA OG ÞÚ FÆRÐ 10% AFSLÁTT* OXFORD STREET ‘AFSLÁTTUR GILDIR TIL 15 MAÍ AP/MASSIMO SAMBUCETTI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.