Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTABLAÐIÐ
ío.maí 2001 FIMMTUDACUR
HVERNICFER?
14
3. leikur Milwaukee Bucks
og Charlotte Hornets?
GUÐJÓN SKÚLASON,
KÖRFUKNATTLEIKS-
LEIKMAÐUR:
„Milwaukee hefur verið
mjög sterkt og virmur.
Leikmenn bera viðrðingu
fyrir þjálfaranum George
Karl. Sam Cassell skorar
meira í þessum leik en i
þeim síðasta. Charlotte
klórar svo í bakkann en Bucks vinnur 3:1."
GUÐBJÖRC NORÐ-
FJÖRÐ, KÖRFUKNATT-
LEIKSLEIKMAÐUR:
„Þrétt fyrir að vera 2:0
undir mun Charlotte
vinna og hafa sigur í ein-
viginu við Bucks. Jamal
Mashburn og P.J. Brown
verða sterkastir í liði
Charlotte sem gæti jafn-
vel farið enn lengra í
úrslitakeppninni.
SÖNN ÁST
Þeir P.J. Brown, leikmaður Charlotte
Hornets, og Jason Caffey, leikmaður
Milwaukee Bucks, vita það að það er ástin
sem skiptir mestu máli þegar ganga á vel
á vellinum.
NBA-deildin í kvöld:
Svitaböndin hert
að hausunum
nba Milwaukee Bucks fpr í heim-
sókn til Charlotte Hornets í kvöld.
Charlotte fagnar því eflaust að
spila á heimavelli þar sem
Milwaukee komst yfir, 2-0, í einvígi
liðanna á þriðjudagskvöld. Það
vann leikinn mjög naumt, með 91
stigi gegn 90. Félagarnir Ray Allen
og Glenn Robinson voru stigahæst-
ir í liði Milwaukee, Allen með 28
stig og Robinson með 19. David
Wesley var hinsvegar stigahæstur í
liði Charlotte með 19 stig. Svita-
böndin verða því hert í kvöld þegar
það er að duga eða drepast fyrir
Charlotte.
Af hinum leik þriðjudagskvölds-
ins er það að segja að hinn risavaxni
Shaquille O’Neal virðist enn vera
óstöðvandi. Maðurinn skoraði 43 stig
og tók 20 fráköst þegar Los Angeles
Lakers unnu sinn annan sigur í röð á
Sacramento Kings. Hollívúddstjörn-
urnar fjölmenntu á völlinn og hylltu
sína menn, sem unnu 96-90. Kobe
Bryant skoraði 27 stig fyrir Los Ang-
eles. Þá var Chris Webber var at-
kvæðamestur leikmanna Sacramento
með 22 stig og 18 fráköst en Pedrag
Stojakovic skoraði 20 stig. ■
SKIPULAGT KAÓS
Það var hart barist á Ólympíuleikvanginum
i Miinchen í gær. Bayern Munchen tók á
móti Real Madrid í Meistaradeildinni.
Bayern sigraði með tveimur mörkum gegn
einu og mætir því Valencia f San Siro 24.
maí.
KR, Grindavík og
Fylkir í toppbaráttunni
Ráðgjafar Fréttablaðsins spá KR titlinum. Þá segja þeir erfitt sumar framundan hjá Val og Fram.
1 MOLAR
Fylkir vann Val í úrslitum Reykja-
víkurmótsins í knattspyrnu á
þriðjudagskvöld. í fyrri hálfleik
sýndi markvörður Vals, Þórður Jó-
hannsson, góða
takta. Hann varði
vítaspyrnu frá
Pétri Birni Jóns-
syni og stöðvaði
boltann frá Stein-
grími Jóhann-
essyni, sem komst
einn á móti honum. Það stöðvaði þó
ekki Steingrím, sem skoraði fyrir
Fylki í seinni hálfleik. Matthías Guð-
mundsson jafnaði fyrir Vai undir lok
leiksins þannig að leikurinn fór í
markalausa framlengingu. Þá tók
vítaspyrnu keppni við. Fylkir skor-
aði úr fjórum vítaspyrnum en Valur
úr tveimur. Þá var lítið eftir fyrir
Fylki en að lyfta bikarnum.
Sundkappin’n Örn Arnarson er
bjartsýnn á að ná inntökuprófi i
bandarískan há-
skó'la sem hann
þreytti um helgina.
Skólinn sem um
ræðir er í Suður-
Kaliforníu en þar
hyggst Örn æfa
undir stjórn banda-
ríska þjálfarans Mark Schubert. „Ég
tók próf í ensku óg stærðfræði og
þetta var nokkuð strembið. Til að ná
prófinu þarf ég að ná 850 stigum af
1600,“ sagði Örn. Hann fær niður-
stöðui-nar 18. maí. DV greindi frá.
Arnar Gunnlaugsson skoraði fal-
legasta mark Leicester á tíma-
bilinu, að mati stuðningsmanna fé-
lagsins. Það var mark Arnars gegn
Aston Villa í bikarkeppninni sem
varð fyrir valinu. Um leið var
Robbie Savage útnefndur leikmaður
ársins af stuðningsmönnunum.
Mbl.is greindi frá.
Leeds töpuðu aldeilis Valencia á
þriðjudagskvöld. Spánverjarnir
unnu leikinn með þremur mörkum
gegn engu. Juan Sanchez skoraði
mark í fyrri hálfleik. Hann undir-
strikaði það þegar seinni hálfleikur
var rétt að byrja með öðru marki.
Gaizka Mendieta skoraði síðan þrið-
ja mark Valencia. Þar með eru Evr-
ópudraumar Leeds úr sögunni en
bjartsýnisyfirlýsingar höfðu komið
úr herbúðum liðsins fyrir leikinn.
Valencia spilar á móti Bayern
Múnchen í San Siro 24. maí.
Af Bayern Múnchen er það annars
að frétta að liðið hefur ákveðið
að fara á hlutabréfamarkað. íþrótta-
vöruframleiðandinn Adidas hefur
þegar tryggt sér 10% hlut í félaginu.
Ekki er vitað um verðmæti félagsins
en Borussia Dortmund, sem er eina
þýska félagið á hlutabréfamarkaðn-
um er metið á 93 milljónir punda.
DV greindi frá.
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri West Ham, hefur sagt upp
störfum eftir sjö ára setu í stjóra-
stóli liðsins. Gengi West Ham síðari
hluta tímabilsins hefur verið slakt
og sagði Redknapp það vera aðalá-
stæðuna. „Síðustu mánuðir hafa ver-
ið erfiðir og kannski er kominn tími
til breytinga," sagði Redknapp sem
þykir nú líklegur til að taka við Sout-
hampton. DV greindi frá.
knattspyrna. Nú eru aðeins fimm dag-
ar í að Símadeildin hefjist. Opnunar-
leikurinn er á milli KR á Fylkis og fer
fram í Árbæ næstkomandi þriðjudag.
Fréttabiaðið fékk nokkra fyrrum
knattspyrnumenn til að spá í spilin
fyrir komandi leiktíð.
Sævar Jónsson, fyrrum leikmaður
Vals segir deildina hafa verið í nokk-
urri lægð undanfarin ár en vonar að
sumarið verði skemmtilegt og „engin
flatneskja.” „Mörg lið virðast svipuð
að styrkleika, en líklega verða KR,
Fylkir og Grindavík í toppbarátt-
unni.“ Vonar hann að tvö síðarnefndu
liðin geti veitt meisturunum keppni.
„Spennan verður þó meiri við botn-
inn, þar verða hugsanlega Fram,
Keflavík, ÍBV og Breiðablik, en allt
getur gerst og ég vil ekki spá neinu
liði falli... Vonandi birtir til á Hlíðar-
enda en Valsliðið lítur mjög vel út,
hefur gengið vel undanfarið og nýir
menn, til dæmis rúmenski leikmað-
urinn sem von er á, styrkja liðið ...
Valur verður í efri hluta deildarinn-
ar,“ segir Sævar.
Guðmundur Steinsson, fyrrum
leikmaður Fram er á sama máli varð-
andi efstu lið er ekki alveg jafn bjart-
sýnn varðandi Valsara sem hann spá-
ir fallbaráttu. „Króatarnir tveir hjá
Fram styrkja liðið verulega, en það
er mjög ungt og óreynt eins og
reyndar fleiri Iið. Ekki er ástæða til
að ætla annað en að Fylkismenn stan-
di sig vel eins og í fyrra en liðið virð-
ist ekki hafa veikst... ÍA er með ungt
lið og verður í neðri hlutanum. Allt
annað en fall hjá Fram verður plús,“
segir Guðmundur og bætir við að
deildin verði jöfn.
Grindvíkingurinn Hjálmar Hall-
grímsson er bjartsýnn fyrir hönd
sinna manna og spáir þeim að sjálf-
sögðu toppsæti. „Þeir sönnuðu það í
fyrra að liðið er engin loftbóla. Það er
kominn tími á þá á toppnum, liðið
spilar góðan bolta og þjálfararnir eru
að gera góða hluti.“ Telur hann Fylk-
ismenn ennþá ferska og spáir þeim
öðru sæti. „Það getur allt gerst með
KR, liðið er kornungt en þegar gömlu
refunum er hleypt inn á fer allt í
gang.“ Hjálmar telur að toppbaráttan
verði tvísýn í ár, nokkur lið muni
safnast saman heyja harða baráttu.
„Breiðablik verður í botnbaráttunni
en allt annað en það verður mikill
plús fyrir liðið." Spáir Hjálmar botn-
baráttu hjá ÍBV og Val og falli hjá
Fram. „Eitthvað lið verður að falla og
það er alltaf leiðinlegt.”
Skagamaðurinn Alexander
Högnason er á því að KR séu með
„yfirburðalið." „Ef það vinnur ekki
mótið er það algjört slys af þeirra
hálfu ... Fylkir og Grindavík eiga eft-
ir að veita þeim einhverja baráttu en
það mun ekki duga til,“ segir Alex-
ander. „Þetta liggur ljóst við þegar
maður skoðar mannskapinn og kapít-
alið sem KR hefur úr að spila ... Lið
sem getur sent 2. flokk í úrslit deild-
arbikars og sigrað er líklega ósigr-
LOKASTAÐA SÍMADEILDAR 2000
Sæti Stig
1. KR__________________________ 37
2. Fylkir ____________________ 35
3. Grindavtk .................. 30
4. IBV________________________ 29
5. lA.......................... 26
6. Keflavik.................... 19
7. Breiðablik_____........._ 18
8. Fram ...................... 17
9. Stjarnan____________________ 17
10. Leiftur ____________________ 16
andi.“ Segir Alexander þetta sjást
best á því að FH, sem margir ætla
sæmilegt gengi, hafi ekki sigrað 2.
flokk KR. „Annars lýst mér betur á
FH en Val. Það eru margir útlending-
ar að spila í Val sem eru enn óskrifað
blað ... Breiðablik hefur verið vetrar-
lið undanfarin ár, mér sýnist engin
breyting vera á því. Spáir Alexander
Breiðabliki erfiðleikum en að ÍA, FH
og Keflavík sigli lygnan sjó.
Sæbjörn Guðmundsson tannlækn-
ir og KR-ingur er á því að von sé á
góðu knattspyrnusumari. „Miðað við
það sem ég héf séð útundan mér eru
flest lið vel undirbúin og til alls vís ...
Ekkert lið á eftir að hafa yfirburði í
sumar, keppnin verður jöfn og spenn-
andi.“ Telur Sæbjörn að Fylkismenn
verði jafnvel sterkari en í fyrra og
veiti KR keppni um titilinn. „Þó að
liðið hafi misst Gylfa þá eru komnir
öflugir strákar í staðinn, t.d. Pétur og
Steingrímur." Spáir Sæbjörn að ÍA
verði í toppbaráttu en ÍBV eru „hulin
ráðgáta."
Breiðablik er „vetrarlið" að mati
Sæbjörns og gæti misst móðinn þeg-
SPA SPEKINGANNA FYRIR 2001
Sæti Stig
1. KR__________________________ 48
2. Fylkir_____________________ 45
3. Grindavik__________________ 41
4. lA......................... 28
5. Keflavík_________________ 26
6. IBV______________________ 25
7. FH......................... 20
8. Breiðablik................. 16
9. Valur.................... 14
10. Fram ...................... 11
Stigin eru reiknuð úl frá spám viðmælenda biaðs-
ins. Fyrsta sæti gaí 10 stig, annað sæti 9 stig o.strv.
STEMMNING Í STÚKUNNI
Boltinn fer brátt að rúlla og þjálfarar liða í
meistarflokki birta sína spá seinna í dag.
ar líður á sumarið. „Þrátt fyrir gott
gengi á Reykjavíkurmótinu gæti Val-
ur lent í vandræðum þegar á líður,“
segir Sæbjörn. ■
MOLAR
Evander Holyfield mætir John
Ruiz aftur í ágúst. Don King er
að skipuleggja bardagánn sem fer
fram í Peking í Kína. Þetta er þriðji
bardagi risanna á einu ári. Þeir
mættustu fyrst í ágúst s.l. Þá vann
Holyfield á stigum. Þegar þeir
mættust í mars vann Ruiz örugg-
lega. Ekki er búið að ákveða ná-
kvæma dagsetningu en lítill fugl
hvíslaði 4. ágúst að fjölmiðlum ytra.
Mike Tyson er búinn að fresta
bardaganum við David Izon
sem átti að fara
fram 2. júní. Allt
virðist vera komið
í hönk í samninga-
viðræðum milli
hans, heimsmeist-
arans Hasim Ra-
hman og Lennox
Lewis. Týson, sem
fór nýlega í mál til
að þröngva bar-
daga við Rahman í gegn, er á samn-
ingi hjá sjónvarpsstöðinni Showtime
en Lewis hjá HBO. Gylliboðunum
rignir því yfir Hasim Rahman, sem
sér fram á að berjast í best launað-
asta bardaga fyrr og síðar.