Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 10. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ ís HVERN STYÐUR ÞÚ VÆNI? Þau eru orðin döpur augun sem sjá ekki með hvaða knattspyrnuliði þessi spræki (tali heldur. Daglega þeysir hann um götur Rómar á gulu og rauðu vespunni sinni og heldur uppi merkjum AS Roma. Barsmíðar á HM 1998: Fótboltabulla mætir fyrir rétt knattspyrna Þýska knattspyrnubullan Markus Warnecke fór fyrir rétt í Frakklandi í gær. Warnecke, sem er 30 ára gamall húðflúrari, er að gjalda gjörða sinna þegar hann barði franskan lögreglumann á Heims- meistarakeppninni í knattspyrnu árið 1998. Lögreglumaðurinn Daniel Nivel var í dái í sex vikur. Hann hlaut einnig miklar taugaskemmdir fyrir lífstíð. Ef Warnecke hlýtur fulla refsingu þarf hann að dúsa í steininum í 15 ár. Hann var forsprakki hóps nauðrak- aðra Þjóðverja sem réðust að Nivel og börðu hann með járnrörum og við- arkylfum eftir að þýska landsliðið spilaði við Júgóslavíu í Lens í Norð- ur-Frakklandi. Kona Nivel, Lorette, er honum til stuðnings við réttarhöld- in og segir hann ekki muna neitt eft- ir árásinni. Fjórir aðrir Þjóðverjar sem tóku þátt í árásinni voru dæmdir í Þýskalandi fyrir tveimur árum í 10 ára fangelsi. Vitni segja að Warnecke hafi skellt stóru skilti ofan á höfuð Nivel á meðan hinir spörkuðu í hann. Einn sló hann svo fast með járnröri að það fór í tvennt. Hundruðir Þjóð- verja voru í Lens að horfa á leikinn, sem var uppselt á. Þrátt fyrir mikinn fjölda lögreglumanna, sem reyndu eftir fremsta megni að halda friðinn, brutust út mikil slagsmál eftir leik- inn, sem endaði þó með jafntefli, 2-2. Þegar lögregluhersingin gekk á móti óaldarseggjunum fór einn hópur inn í hliðargötu þar sem Nivel var stað- settur. Daginn eftir kom mynd af honum liggjandi í blóðpolli á götunni í dagblöðum heimsins. Helmut Kohl kanslari sagði í tilefni af þessu að Þýskaland skammaðist sín fyrir hegðun Warnecke og félaga. ■ NAUÐRAKAÐUR HÚÐFLÚRARI Markus Warnecke skellti stóru skilti á höfuð lögreglumannsins Daniel Nivel. Al-hringurinn: Heimavöllur Heidfeld formúla Ökumenn Sauber, Nick Heid- feld og Finninn Kimi Ráikkönen, eiga það sameiginlegt með Mika Hákkinen og David Coulthard að horfa björtum augum til helgarinn- ar. Um helgina á að bæta stöðu Sauber, sem er í fimmta sæti í keppni bílasmiða. „Ég kann vel við Al- hringinn. Það er braut fyrir mig,“ sagði Heidfeld á blaðamannafundi í vikunni. „Þetta er einskonar heimavöllur fyrir mér og ég næ í stig um helgina." Ráikkönen bætti við: „Þetta er enn önnur brautin sem ég er að keyra í fyrsta skipti. Ég tel mig hinsvegar hafa sannað það að nýjar brautir vefjast ekki fyrir mér.“ Menn eru bjartsýnir í Formúlunni þessa dagana. ■ McLaren menn bjartsýnir Sjötta Formúlu 1-helgi ársins framundan á Al-hringnum í Austurríki. Hakkinen bjartsýnn en Schumacher ekki. formúla i Félagarnir og ökumenn McLaren David Coulthard og Mika Hakkinen eru rólegir fyrir baráttu helgarinnar. Kappaksturinn lítur vel út fyrir þá félaga. Þeir lentu í fyrsta og öðru sæti 1998 og 2000 og voru fremstir í upphafinu bæði 1999 og 2000. í fyrra setti David Coulthard nýtt tímamet á brautinni þegar hann fór hring á einni mínútu og 11.783 sek- úndum. Coulthard er í öðru sæti í keppn- inni um heimsmeistaratitil ökumanna með 28 stig á meðan Hakkinen er í tí- unda sæti með fjögur stig. Staða hans væri betri ef kúplingin hefði ekki bil- að þegar kappaksturinn á Spáni var rétt að enda. „Þó svo að endirinn á Spánarkappakstrinum hafi verið svekkjandi trúi ég því ennþá að ég geti unnið heimsmeistarakeppni öku- manna. Ég hlakka til að keppa í Aust- urríki," segir Hakkinen. „Undanfarin þrjú ár hefur mér gengið vel á Al- hringnum, þrisvar staðið á verðlauna- pallinum, þar af tvisvar sem sigurveg- ari. Ég nýt þess að keyra brautina. Hún lýkist Go-kart braut að vissu leyti, hún er stutt með þröng horn og býður upp á mörg tækifæri til fram- úraksturs,*1 segir Hakkinen bjartsýnn. Það ríkir ekki jafn mikil bjartsýni í búðum Ferrari. Al-hringurinn er eina brautin sem Michael Schumacher hef- ur aldrei unnið á. Besti árangur hans á henni var þriðja sæti árið 1998. Hann var í sjötta sæti árið 1997, lenti í árek- stri á fyrsta hring í fyrra og þurfti að sleppa kappakstrinum árið 1999 þegar hann uppgötvaði fótbrotið eftir Silver- stone. „Öheppnin hefur elt okkur í Austurríki," segir Schumacher. ■ ( SVAKA STUÐI Finninn Hakkinen er kannski ekki sikátur en hann tók þvi nokkuð vel að tapa í Katalóníu. Hér erum við

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.