Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 7
FIMMTUDAGUR 10. maí 2001
FRETTABLAÐIÐ
7
Hátíðarhöld á Rauða torginu:
56 ár frá stríðslokum
moskva. ap. Mikið var um dýrðir á
Rauða torginu í Moskvu í gær þegar
Rússar héldu upp á 56 ára afmæli sig-
ursins yfir þýsku nasistahreyfing-
unni. Vladimir Pútín, forseti Rúss-
lands, hélt ræðu fyrir framan bygg-
inguna sem hýsir lík Leníns og sagði
sigurinn mikilvægan fyrir land og
þjóð. „Sigurinn gerði okkur kleift að
lifa saman í friði, vinna að skapandi
verkefnum og gerði ríki okkar sjálf-
stætt og stolt,“ sagði forsetinn.
Hermennirnir sem börðust í stríð-
inu voru viðstaddir, en þurftu nú í
fyrsta sinn ekki að taka þátt í her-
göngu um torgið af aldursástæðum.
„Ég tala ávallt við skólabörn á þess-
um degi, svo að börnin viti hvað stríð
SIGURSINS MINNST
Aldnir hermenn úr síðari heimsstyrjöldinni
þurftu nú í fyrsta skipti ekki að fara í her-
göngu á hátíðisdaginn.
er ... til þess að þau geti haldið frið-
inn,“ sagði fyrrum hermaðurinn Mik-
hail Rugarkov, 85 ára. ■
Þróun tekna af útflutningi:
Alið eykst en ekki fiskur
ÚTFiUTNiNCUR. Þekkingariðnaður, ferða-
þjónusta og áliðnaður verða uppistað-
an í vexti útflutnings á næstu tíu
árum, að því er kom fram í máli Þórð-
ar Friðjónssonar forstjóra Þjóðhags-
stofnunar á fundi Verslunarráðs í
gær. Til þess að halda hér lífskjörum á
við samanburðarþjóðir okkar þarf að
vera 3 % árlegur hagvöxtur á þessu
tímabili, og til þess að svo megi verða
þarf vöxtur útflutningsverðmæta að
vera 4-6% á ári. Þjóðhagsstofnun spá-
ir því að ferðaþjónusta og þekkingar-
iðnaður, sem er að hluta inn í flokkn-
um önnur þjónusta og að hluta í
flokknum aðrar vörur í grafinu sem
fylgir fréttinni, muni halda 5% árleg-
SPÁ UM SKIPTINGU ÚTFLUTNINGS |
I Spó um skiptingu útflutnings 2000 og 2010.
2000 2010
Ferðaþjónusta 15% 15%
Önnur þjónusta 20% 20%
Aðrar vörur 10% 13%
Ál 12% 20%
Sjávarafurðir 43% 32% Heimild Þjóðhagsstofnun
um vexti, en hlutdeild áls í útflutn-
ingsverðmætum mun aukast úr 12 í
20% . Hlutur sjávarafurða minnkar á
hinn bóginn úr 43% í 32%. Spáin er
miðuð við að tvö álver og tengdar
virkjanir komi til á tímabilinu. ■
STUTT
Hugbúnaðarfyrirtækið Kögun hf.
skilaði 44 milljóna króna hagn-
aði á síðari helmingi rekstrarárs fyr-
irtækisins en það er frá 1. október
til 30. september. Rekstrartekjur fé-
lagsins jukust verulega miðað við
sama sex mánaða tímabil á síðasta
rekstrarári, fóru úr 329 milljónum
króna í 566 milljónir. Rekstrargjöld
jukust einnig mikið eða í 475 millj-
ónir króna miðað við 282 milljónir
áður. Hagnaður félagsins eftir skatta
var 44 milljónir króna.
—♦—
Fjárkláðamaur hefur nú greinst á
nítján bæjum í Víðidal í Húna-
þingi. Kostnaðurinn við að útrýma
honum hleypur á tugum milljóna
króna. RÚV greindi frá.
Velferð mæðra lykilatriði:
Sænskar mæður
hafa það best
washington. ap Samkvæmt skýrslu al-
þjóðlegu samtakanna Bjargið börn-
unum (Save the Children) hafa
sænskar mæður það best í heimi. í
skýrslunni voru ýmsir þættir er
varða mæður og börn könnuð, svo
sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu,
notkun og fræðsla um getnaðarvarn-
ir, læsi og þátttaka í stjórnmálum. 94
lönd voru tekin til athugunar. Næst á
eftir Svíþjóð komu Noregur, Dan-
mörk og Finnland, þá Holland, Sviss,
Kanada, Austurríki, Ástralía og Bret-
land. Verst var ástandið í Gíneu
Bissau, Burkina Faso, Eþíópíu og
Mali.
Samkvæmt skýrslunni er aðgengi
að læknisþjónustu á meðgöngu og í
fæðingu auk aðgengi að nútímaleg-
um getnaðarvörnum lykilatriði er
kemur að velferð kvenna. Aukin
tækifæri til menntunar eru mjög
mikilvæg auk varna gegn HIV
veirunni og ofbeldi. Velferð mæðra
skilar sér í aukinni velferð barna
sagði formaður samtakanna í gær.
í Eþíópíu t.d. þar sem eingöngu
2% kvenna nota getnaðarvarnir og
MÓÐIR SYRGIR
Palestínskar mæður hafa oft þurft að syrg-
ja börn sín undanfarna mánuði
eingöngu 10% kvenna fá læknisað-
stoð við fæðingu deyja nær 12%
barna á fyrsta ári. í Svíþjóð deyja
0,3% barna á fyrsta ári. Þar eru nær
allar fæðingar undir eftirliti lækna
og hjúkrunarfólks og 71% kvenna. ■
UTANDAGSKRÁR umræður um efnahagsmál A alþingi
Davið Oddsson forsætisráðherra segir þýðingarmikið að menn átti sig á því að breytingar á gengisþróuninni undanfarið eigi ekki rætur
að rekja til efnahagslegra aðstæðna á Islandi. Steingrímur J. Sigfússon sagði Davíð hafa eignað sér góðærið á sínum tíma en
firra sig nú allri ábyrgð á efnahagsþróuninni.
Ráðherrar segja hag-
kerfið 1 góðu jafnvægi
Hart deilt um gengisþróun krónunnar á Alþingi. Stjórnarandstaðan
óttast vaxandi verðbólgu.
efnahacsmál. Hart vat deilt um efna-
hagsmál og gengisþróun krónunnar í
utandagskrárumræðum á Alþingi í
gær. Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að 6% lækkun krónunnar mið-
vikudaginn 2. maí væri nú öll gengin
til baka og að þýðingarmikið væri að
menn áttuðu sig á því að þær breyt-
ingar sem orðið hefðu á gengisþróun-
inni í síðustu viku ættu ekki rætur að
rekja til efnahagslegra aðstæðna á fs-
landi.
Davíð gagnrýndi stjórnarandstöð-
una fyrir að hafa hlaupið upp til handa
og fóta í síðustu viku og líkja miðviku-
deginum við blóðugasta dag krónunn-
ar, því nú liti út fyrir að blóðið væri
aftur runnið inn í æðarnar og því virt-
ist sem meira flökBt væri í stjórnar-
andstöðunni í þessu máli en genginu.
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, sagði tíma til
kominn að forsætisráðherra liti upp
úr sandkassanum. Hann sagði að
samkvæmt greinargerðum fjár-
málastofnana kæmi í ljós að menn
óttuðust mjög að vaxandi verðbólga
færi að bíta fast í afkomu fyrir-
tækja þegar líða tæki á árið og að
það skapaði hættu á hækkandi
verðlagi sem myndi bitna á almenn-
ingi.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, gagnrýndi
forsætisráðherra, sem hann sagði
hafa eignað sér góðærið á sínum
tíma, fyrir að firra sig nú allri
ábyrgð á efnahagsþróuninni og
koma henni á Seðlabankann. Hann
sagði viðbrögð stjórnarandstöðunn-
ar í síðustu viku hafa verið rétt því
öll skilaboð, sem komið hefðu úr ís-
lenska hagkerfinu, bentu til þess að
óstöðugleiki væri að aukast og að
mikil óvissa ríkti um framtíðina.
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, var harðorð-
ur í garð ríkisstjórnarinnar, sem
hann sagði hafa misst öll tök í geng-
ismálum. Hann sagði hrollvekju
blasa við í íslensku efnahagslífi því
áfram væri verið að kynda undir
þenslu.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði að í grundvallaratriðum
væri hagkerfið í góðu jafnvægi og
efnahagsstaða landsins sterk. Þó út-
lit væri fyrir minni hagvöxt í ár en
síðustu ár væru engar sérstakar
líkur á því að lendingin yrði hörð. ■
Álfasala SÁÁ
dagana
10.-13. maí
-w-
Sölufólk athugið
Skráning og afhending álfa fyrir sölufólk
á höfuðborgarsvæðinu
hefst í dag kl 16:00 að Ármúla 18
• Góð sölulaun
• Góð skemmtun
• Gott málefni
Leggðu þitt af mörkum til að
hjálpa öðrum í dag
www.firmaskra.is
Upplýsingar um íslensk fyrirtæki á netinu
éröafélagar ehf
FERÐffl FYHlH FATlAÖA
Spánn og Portúgal
fyrir þroskahefta
Ennþá eru örfá sæti laus í ferðir okkar fyrir
þroskahefta til Spánar og Portúgal í sumar.
Gamla verðið gildir ef greitt er fyrir 15. maí.
Við svörum í síma alla daga til kl. 10 á kvöldin
nema laugardag og sunnudag til kl. 17.
Uppl. gefur Sveinn í síma 564-4091 og 899-4170.