Fréttablaðið - 10.05.2001, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
10. maí 2001 FIMMTUDAGUR
Hollow man:
Ohugnaður á
rannsóknarstofu
2. sæti Myndin Hollow Man er annar
söluhæsti DVD diskur landsins.
Myndin fjallar um starfsfólk rann-
sóknarstofu sem
rekin er af banda-
ríska hernum.
Rannsóknarfólkið
kemst á snoðir
um geislavirkt
efni sem gerir
dýr og fólk ósýni-
legt. Efnið hefur
hinsvegar ýmsar
aukaverkanir í
för með sér.
Eitt af því sem hefur aukið vin-
sældir DVD diska er að oft er að
finna ýmislegt auka efni á DVD
diskunum. Hollow Man diskurinn
hefur til dæmis að að geyma slatta af
heimildamyndir, sýnt er bak við
tjöldin, ónotaðar senur og viðtöl við
leikara.
PVD LISTI~[
Söluhæstu DVD diskamir
I verslunum Skífunnar
|LOSER
ný á lista
0 HOLLOW MAN
ný á lista
A TERMINATOR
úr 1. sæti
#1 X-MEN
^ úr 2. sæti
0 INDEPENDENCE DAY (ID4)
w úr 3. sæti
Me, Myself & Irene:
Geðklofagrín
i. sæti Fjórða stærsta mynd síðasta
árs er komin á sölumyndband og
trónir á toppnum á sölulista Skífunn-
ar.
Jim Carrey leik-
ur Charlie, lög-
reglumann sem
er geðgóður og
greiðvikinn mað-
ur og er afar annt
um syni sína
þrjá. Því miður
er Charlie líka
geðklofi og ef
hann hættir að
taka lyfin sín nær Hank, hinn þer-
sónuleikinn, yfirhöndinni.
Hank er kjaftfor og orðljótur
slagsmálahundur og eiga þeir
Charlie og Hank eiga ekkert sameig-
inlegt nema Irene (Renée
Zellweger) sem þeir eru báðir ást-
fangnir af og þar kemur að þeir
verða að takast á um hylli hennar.
MYNDBANPALISTI 1
Söluhæstu myndböndin
í verslunum Skífunnar
A ME, MYSELF & IRENE
óbreytt
Q 8UENA VISTA SOCIAL CLUB
ný á lista
0 TITAN A.E. (MEÐ ÍSLENSKU TALI)
úr 2. sæti
(0 MAN ON THE MOON
i ný á llstð
(0 COYOTE UGLY
úr 4. sæti
HÁSKÓLABÍÓ
HACATORCI, SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
[TRAFFIC kl. 10
fÍHIRTEEN DAYS kl. 7 og 10
Ibilly ELLIOT ki. 8
llfHEGÍFT kl. 5.45
STATil
MAlð
SLAOE RUNNER kl. 10.30
LALLIJOHNS kl. 6
VILLIUÓS kl. 8
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
FlLIVUiNDUR_____
múm spilar á
hugsj ónar tónleikum
Margar frægustu hljómsveitir landsins spila í kvöld til stuðnings stríðshrjáðum
Palestínumönnum.
tónleikar í kvöld verða haldnir
styrktartónleikar í Hátíðarsal
Menntaskólans við Hamrahlíð í
þágu stríðshrjáðra Palestínumanna.
Hljómsveitirnar sem hafa
ákveðið að leggja baráttunni lið eru
múm, Vígspá,
X Rottweilerhundar, Andlát og
raftónlistarmaðurinn Skurken.
Félagið Ísland-Palestína, í sam-
starfi við Listafélag MH, sér um
skipulagningu tónleikanna. Féiagið
hefur verið starfrækt í fjórtán ár en
m.a. markmiða þess er að vinna
gegn hverskonar þjóða- og kyn-
þáttaandúð, kynna baráttu Palest-
ínumanna og stuðla að því að ís-
lendingar leggi sitt af mörkunum til
að réttlát og friðsamleg lausn finn-
ist í deilu þjóðanna tveggja sem
gera tilkall til Palestínu.
Að sögn Eldars Ástþórssonar,
varaformanns félagsins, hefur fólk
allsstaðar að úr heiminum risið upp
gegn hernámi ísraelsmanna og yf-
irgangsstefnu stríðsglæpamanns-
ins Ariels Sharon. „Sharon hefur
ávallt staðið gegn friðarsamningum
ísraela við nágrannalönd sín og
Palestínumenn. Undanfarin misseri
hefur hann þverbrotið friðarsamn-
inga fyrri ríkisstjórna" segir Eldar.
„Hljómsveitirnar vilja leggja sitt af
mörkunum til að styðja við bakið á
þjóðfrelsisbaráttu Palestínumanna
og kröfu þeirra um sjálfsögð rétt-
indi. Allir sem koma fram á tónleik-
unum gefa því vinnu sína. „Ágóði
tónleikanna rennur til kaupa á
sjúkragögnum og til stuðnings við
KOMIN ÚR TÓNLEIKAFERÐ UM DANMÖRKU
múm spilar í kvöld til stuðnings við þjóðfrelsisbaráttu Palestínumanna.
starfsemi UPMCR, sem reka
sjúkrahús á herteknu svæðum
Palestínu.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21.00 og standa fram til miðnættis.
Miðaverð er einungis 600 krónur en
400 krónur fyrir meðlimi Nemenda-
félags MH. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hversu raunverulegt er raun-
veruleikasjónvarpið? Mark
Burnett, framkvæmdastjóri Survi-
vor-þáttanna, viður-
kenndi nú í vikunni
að sum atriði í þátt-
unum væru „endur-
leikin" til þess að
þau kæmu betur út
í sjónvarpi og að
staðgenglar væru
notaðir til þess að
leika þátttakendur í
þáttunum í sumum af þessum „end-
urtökum". Burnett segir að sér stan-
di fullkomlega á sama þótt einhverj-
um finnist slíkt ekki samræmast
markmiði þáttanna. „Ég er að búa til
frábært sjónvarp," segir hann
kotroskinn í viðtalið við New York
Times.
Bandaríski leikarinn John Lith-
gow á það víst til að taka lagið
stöku sinnum. Hann kom nú síðast
fram með Boston
Pops hljómsveit-
inni, sem sérhæfir
sig í sykursætri
vellu, og lét sér
ekki muna um að
sprikla eins og vit-
laus maður í leið-
inni. Meðal annars
hoppaði hann um
eins og kengúra meðan hann söng
Iag eftir sjálfan sig, „Marsipual
Sue“, en lagið fjallar um kengúru
sem þjáist af krónískum hausverkj-
um og bakverkjum.
Leikkonan og eróbikfrömuðurinn
Jane Fonda, var heiðruð fyrir
leiklistarferil sinn af Film Society of
Licoln í New York.
Film Society ákvað
að heiðra hana fyrir
heillandi og ástríðu-
fullan leik gegnum
árin. Hún vann Ósk-
arsvérðlaunin árið
1971 fyrir leik sinn
í myndinni Klute og
aftur sjö árum sein-
na í myndinni Coming Home. Fonda,
sem er 63 ára, lýsti því yfir að hún
ætlaði ekki að snúa sér aftur að leik-
listinni. Hún hefur sótt um skilnað
við Ted Turner en þau giftu sig árið
1991 og entist sambandið næstum
því í tíu ár. Aðrír sem fengu verð-
laun á hátíðinni voru Sean Connery,
AI Pacino, Audrey Hepbúrn, Clint
Eastwood og Bette Davis.
Nicole Kidman,
fyrrum eigin-
kona Tom Cruise,
hefur farið þess á
leit við dómstóla
aö Matthew
nokkrum Hooker
verði bannað að
koma nálægt heimil
an heidur því fram að maöurinn.
sem segist vera
ljóðskáld og hand-
ritshöfundur, hafi
hangið fyrir utan
heimili hennar til
þess eins að berja
hana augum. IJann
hefur auk þess
reynt að ná sambandi við hana í
gegnum umboðsskrifstofu sem fer
með hennar mál. Kornið sem fyllti
mælinn var bréf sem hann sendi
henni þar sem hann lýsti ást sinni
á henni og skrifaði m.a. „Þú finnur
ekki yndislegri mann, sálufélaga
eða betri eiginmann en mig. Þó að
þú eigir tvö börn eru þau engin
fyrirstaöa. Ég mun ganga þeim í
föðurstaö." Kidman kærir sig víst
ekkert um góðmennskuna.
hennar. Kidn