Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
10. maí 2001 FIMMTUDAGUR
Fjölbreyttur listi:
Mest af
skáldsögum
metsölubækur Þegar rýnt er í met-
sölulista Amazon.com er greinilegt
að smekkur þeirra sem kaupa bæk-
ur á netinu er hreint ekki einsleitur.
Á listanum er að finna allt frá lítilli
bænabók í pólitíska lesningu meðal
annars með viðkomu í skáldsögum,
ferða- og matreiðslubók og sjálfs-
hjálparbók.
Efsta bókin á listanum, The
Prayer of Jabez, er lítil bók um bæn-
ir og í öðru sæti er heldur viðameiri
bók, saga verðlaunahests frá folaldi
til frægðar, Seabisquit: An Americ-
an Legend. í þriðja sæti er reyfari
eftir höfundinn vinsæla Mary Higg-
ins Clark. Þetta er dularfull spennu-
saga í hennar anda, sú 24. í röðinni
og flestar hafa bækur hennar verið á
metsöluslistum.
Bandaríkjamenn eru enn að gera
upp forsetakosningarnar í vetur og í
fjórða sæti metsölulistans á Amazon
er pólitísk bók, greinilega rituð af
andstæðingi A1 Gores.
Bókin Hollywod Moms er nýkom-
in út og er myndabók með frægum
H o 11 y w o o d -
stjörnum sem
ýmist eru ljós-
myndaðar með
mæðrum sínum
eða dætrum.
Þessi bók hefur
runnið út sfem
mæðradagsgjöf
French Lessons er ferða, matar-
og vínbók í senn og hefur höfundur
hennar áður gefið út bók um matar-
gerð í Próvence héraðinu franska.
Death in Holy orders er ellefta
bókin um Adam Dalgliesh, lögreglu-
manninn breska
sem við íslend-
ingar þekkjum
bæði úr sjón-
varpinu og bók-
um sem hafa
komið út í Kilju-
klúbbi Máls og
menningar.
Bækur P.D
James standa
alltaf fyrir sínu
ef menn eru fyrir góða krimma á
annað borð.
Bók Anne Tyler, Back When We
Were Grownups er skáldsaga þar
sem söguhetjan, Rebecca 57 ára ætt-
móðir í teygjufjölskyldu, gerir upp
líf sitt. A Common Life, sömuleiðis
skáldsaga er 6. bókin í flokki sem
Nefnist The Mitford Years og fjallar
um prest nokkurn, ævi hans og ástir
og í tíunda sæti er sjálfshjálparbók
þar sem boðað er að taka beri breyt-
ingum í lífinu sem tækifæri til að
gera enn betur.
D/EATH
IN
HOLY
OR’DERS
R D. JAMES
METSÖLUBÆKUR
TOPP 10 Á AMAZON.COM
Qt David Kopp, Bruce H. Wilkinson:
THE PRAYER OF JABEZ
Laura Hillenbrand:
SEABISQUIT
M Mary Higgins Clark:
ON THE STREET WHERE
YOU LIVE
fþ Bill Sammon
AT ANY COST: HOW AL
GORE TRIED TO STEAL THE
ELECTION
^ Joyce Ostin (myndir)
og Carrie Fisher (texti)
HOLLYWOOD MOMS
Daniel Goleman:
TILFINNINGAGREIND
fþ P.D. James:
DEATH IN HOLY ORDERS
íj Anne Tyler:
BACK WHEN WE WERE
GROWNUPS
(01 Jan Karon:
A COMMON LIFE: THE
WEDDING STORY
Spencer Johnson og
Kenneth H. Blanchard:
WHO MOVED MY CHEESE?:
AN AMAZING WAY TO DEAL
WITH CHANGES IN YOUR
WORK AND IN YOUR LIFE
Platanof í Hafnarfjarðarleikhúsinu:
Holdið sá möndull
sem allt snýst um
leiklist Hafnarfjarðarleikhúsið og
Listaháskóli íslands sýna í kvöld eitt
af sígildu verkum leikbókmenntana,
P1 í leikgerð Péturs Einarssonar og
Kjartans Ragnarssonar.
Leiksýningin, sem er fyrsta út-
skriftarverkefni leiklistarnema við
nýjan Listháskóla, fjallar um einstak-
linga úr efri stéttum rússnesks sam-
GÍSLI ÖRN GARÐARSSON
Þótt vettvangur leikritisins sé hjá
rússneskum aðli fyrir um öld siðan
gæti samkvæmið eins hafa átt sér
stað í Reykjavík í gær.
félags í upphafi síðustu aldar. Hópur
fólks hittist að vori á óðalssetri til að
gera sér glaðan dag (og nótt) og
fagna komandi sumri. En eins og
vænta má á fallegu vori tekur til-
hugalífið óvænta stefnu og áður en
dagur rís hefur þetta annars dyggð-
um prýdda fólk farið um víðan völl í
tilfinninga og tilhugalífi þar sem
holdið er sá möndull sem allt snýst
um.
Næstu sýningar eru á morgun,
laugardag og sunnudag. Miðaverð er
aðeins 700 kr. eða á sama verði og
einn bíómiði. ■
FIMMTUDAGURINN
10. maT
Styrktartónleikar
í Hlaðvarpanum:
Hjálpa
börnum á
Indlandi að
mennta sig
styrktartónleikar Félagið Vinir Ind-
land standa fyrir styrktartónleikum
í Hlaðvarpanum í kvöld kl. 20 en fé-
lagið er liður í starfi Húmanista-
hreyfingarinnar. Tónleikarnir í
kvöid er liður í f jársöfnun til stuðn-
ings verkefnum sem hópar sjálf-
boðaliða í hreyfingunni eru að vinna
að í S-Indlandi s.s. menntun barna,
stuðningur við munaðarleysingja-
heimili o.fl.
Að sögn Kjartans Jónssonar,
eins af stofnendum félagsins, stuðl-
ar söfnunin að aukinni menntun
barna sem koma frá fjölskyldum
sem eru um og undir fáfæktarmörk-
um. „Við hófum starfsemina síðasta
haust og gengu þá inn í starf sem
þegar var verið að vinna úti. Starf-
semin var ekki mjög öflug, en mjög
skipulögð, og varð innkoma okkar
til þess að hún efldist til muna.“
Kjartan sagði að stöðugt væri verið
að safna peningum úti og kæmi
framlagið héðan sem mótframlag
FJÖLDI BARNA ÞARFNAST AÐSTOÐAR
Börnin á Munaðarleysingjahæli í Chinnai sem Vinir Indlands
styðja við. Á myndinni má sjá glitta í Kjartan Jónsson í bakgrunni.
og virkaði þetta því sem mikil
hvatning. „Við viljum að ábyrgðin
sé í höndum þeirra úti“.
Listafólkið og þeir sem taka þátt
í skipulagningu tónleikanna, gefa
vinnu sína þannig að hver króna
mun renna óskipt til verkefna á
Indlandi. Miðverð er 1.500 kr.
Þeir sem koma fram eru Sigrún Eð-
valdsdóttir, fiðluleikari, Gunnar
Eyjólfsson, leikari, sem verður með
upplestur, Jóhanna Linnet, söng-
kona, Jóhann Friðgeir Valdimars-
son, tenór og Ólafur Albert Vignis-
son, píanóleikari. Einnig verður
Kjartan með stutta kynningu á
starfinu. Kynnir verður Hallfríður
Þórarinsdóttir. Miða má panta í
Kaffileikhúsinu eða kaupa við inn-
ganginn, ■
FUNDUR_____________________________
12.05 Dagný Kristjánsdóttir fjallar um
skáldsöguna Þögnina eftir Vigdísi
Grímsdóttur í dag á hádegisfyrir-
lestri í Hugvisíndahúsi, stofu 301
í Nýja Garði.
12.30 Fræðslufundur verður í dag að
Keldum Þar mun Sigríður
Björnsdóttir, dýralæknir Hólum,
tala um „Spatt í íslenskum hest-
um". Fræðslufundurinn er haldinn
á bókasafni Keldna.
16.15 Þórunn Rafnar ónæmisfræðingur
flytur í dag erindi í málstofu í
læknadeild. Erindið nefnist: Bólu-
setningar gegn krabbameini? og
fer fram ( sal Krabbameinsfélags
íslands, efstu hæð.
16.15 Sven Þ. Sigurðsson prófessor
flytur erindi í dag, sem nefnist:
Reiknað í sjóinn. Fjallað verður
um ýmis reiknifræðileg úrlausnar-
efni við hönnun á reiknilíkani fyrir
grunnsjávarstrauma. Lýst verður,
hvernig slikt líkan tengist reiknilík-
önum af göngum fiska, sem verið
er að þróa á reiknifræðistofu
Raunvísindastofnunar. Fyrirlestur-
inn er á vegum fslenzka stærð-
fræðafélagsins og verður fluttur í
stofu 157 í húsi verkfræði- og
raunvísindadeilda Háskólans á
Hjarðarhaga 6.
20.00 í kvöld verður haldinn opinnum-
ræðufundur um sorgina á veg-
um Nýrrar dögunar, samtaka
um sorg og sorgarviðbrögð.
Þessi siðasti fundur vetrarins verð-
ur haldinn á fundarstað samtak-
anna í Safnaðarheimili Héteigs-
kirkju í Reykjavík og stendur til
kl. 22. Fundarstjóri er sr. María
Ágústsdóttir. Öllum er frjáls þátt-
taka.
TÓNLEIKAR__________________________
20.00 í tilefni þess að Árbæjardeild
Tónskóla Sigursveins er 10 ára á
þessu ári verða sérstakir hátíðar-
tónleikar i Árbæjarkirkju í kvöld.
Á tónleikunum munu nemendur
deildarinnar ásamt nokkrum gest-
um frá kennslustöðum skólans
við Hraunberg og Engjateig flytja
fjölbreytta efnisskrá. Allir vel-
komnir.
22.00 Hljómsveitin Dead Sea Apple
verður með tónleika á Gauknum
í kvöld.
SKEMMTANIR_________________________
22.00 Groove Improve klúbbakvöld
fara fram hvert fimmtudagskvöld
á Rex og þar má heyra nokkra
fremstu plötusnúða þjóðarinnar
spinna grúvaða húsog fönk mús
ík. Stundum er boðið upp á lif-
andi spilamennsku samhliða
plötunúningnum. Enginn að-
gangseyrir.
22.00 Dj. Árni Sveins sér um tónlistina
á Café Ozio í kvöld.
LEIKLIST_____________________________
20.00 í Þjóðleikhúsinu er sýning á
Syngjandi í rigningunni eftir
Comden, Green, Brown og Fred.
Á sýningunni er dansað, steppað
og sungið af hjartans lyst. Við
erum stödd i Hollywood þegar
fyrsta talmyndin lítur dagsins Ijós.
Þöglu myndirnar hverfa á auga-
bragði og gömlu stjörnurnar fá
skyndilega málið.
20.00 Píkusögur eftir Eve Ensler eru
sýndar í kvöid í Borgarieikhús-
inu. Leikarar eru Halldóra Geir-
harðsdóttir, Sóley Elíasdóttir og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
20.00 Nemendaleikhúsið og Hafnar-
fjarðarleikhúsið sýna í kvöld
Platanof eftir Tsjekhov. Miðinn
kostar 700 kr.
22.00 Þeir félagar Karl Ágúst Úlfsson
og Örn Arnason sprella og grín-
ast í Leikhúskjallaranum i kvöld.
Húsið opnar kl. 20 fyrir matar-
gesti.
SÝNINGAR___________________________
( Borgarskjalasafni Reykjavík, stendur
yfir sýning á skjölum og Ijósmyndum
tengdum verkalýðsbaráttunni í Reykjavík
á fyrri hluta 20. aldar. Á sýningunni eru
skemmtilegar og sjaldséðar Ijósmyndir
af fyrstu kröfugöngunni í Reykjavík,
þann 1 maí 1923. Margir nafngreindir
þekktir (slendingar sjást á myndunum,
en Pétur Pétursson, þulur hefur unnið
að rannsóknum á Ijósmyndunum. Sýn-
ingin er á 6. hæð Grófarhúss, Tryggva-
götu 15 og er aðgangur ókeypis. Hún er
opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10-
20 og föstudaga til sunnudaga 13-17.
Sýningin stendur til 21. maí.
Sýningin World Press Photo er haldin í
Kringlunni. Þar er að finna fjölda Ijós-
mynda sem unnu til verðlauna í ólíkum
flokkum. Samhliða sýningunni er Ijós-
myndasýning Morgunblaðsins þar gef-
ur að líta úrval Ijósmynda fréttaritara og
Ijósmyndara blaðsins á landsbyggðinni.
Sýningin er liður í samkeppni um bestu
Ijósmynd fréttaritara frá árunuml999-
2000. Sýningin stendur til 14. maí.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulif
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í vikingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu sem heitir „Skullsplitter" á frum-
málinu, þar má sjá beinagrind og haus-
kúpur víkinga sem féllu í bardögum. Á
sýningunni eru raunverulegar líkamsleif-
ar sem geta valdið óhug. Sýningin er
opin alla daga frá 13-17, kostar 300
krónur, frítt fyrir börn, unglinga og ellilíf-
Ný dögum:
Búa syrgj-
endur undir
sumarið
fundur Opinn umræðufundur um
sorgina verður haldinn í kvöld kl. 20
á vegum Nýrrar dögunar, samtaka
um sorg og sorgarviðbrögð. Aðalá-
herslan verður á samtal um sorgina
og viðbrögð við henni. Einnig verður
stutt fræðsla um slökun og heilsu-
samlegt líferni sem hjálp í sorgar-
vinnunni. Markmið fundarins er að
safna saman þráðum vetrarins og
búa syrgjendur undir sumarið sem
framundan er. Fundurinn verður
haldinn í Safnaðarheimili Háteigs-
kirkju í Reykjavík. ■
FRÁ FERÐ EINARS TIL YANGTZE
Fyrirlesturinn er haldinn í minningu Magnúsar Ólafssonar Ijósmyndara
sem fæddist 10. mai 1862.
Fyrirlestur:
Opnar upp
dagbók sína
mynpasýning Einar Falur Ingólfsson,
ljósmyndari, heldur fyrirlestur í
kvöld um ferðalagamyndir sínar og
dagbók í myndum. Fyrirlesturinn er
liður í fyrirlestraröð sem Ljós-
myndasafn Reykjavíkur heldur ár-
lega í minningu Magnúsar Ólafsson-
ar ljósmyndara. Hann er haldinn kl.
20 í Listasafni Reykjavíkur - Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu 17.
Einar Falur Ingólfsson er fæddur
árið 1966. Hann lauk prófi í bók-
menntafræði frá Háskóla íslands
árið 1991 og MFA-gráðu í ljósmyndun
frá School of Visual Arts í New York
árið 1994. ■