Fréttablaðið - 10.05.2001, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 10. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
MYNDBRHYTTUR BOTTICELLI
Ekki er öllum sama hvernig jógúrt er auglýst.
eyrisþega. Miðinn gildir einnig í hin hús
safnsins. Sýnigarnar standa til 1. októ-
ber.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Cerðubergi. í vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar ailt sem segja þarf.
Sýningin stendur til 2. júní.
MYNPLIST______________________________
Ropi er yfirskrift myndlistarsýningar sem
opnuð hefur verið í Nýlistasafninu. [
SÚM sal er Anna Líndal að velta fyrir
sér gjaldföllnu gildismati, í Gryfju safns-
ins sýnirólöf Nordal skúlptúr og gagn-
virk myndverk og í Forsal safnsins sýnir
Valka (Valborg S. Ingólfsdóttir) leirstyttur
og vatnslitamyndir.
Hlíf Ásgrímsdóttir hefur opnað sýning-
una Innivera í Galleríi Sævars Karls. A
sýningunni eru vatnslitamyndir, Ijós-
myndir og skúlptúr. Petta er fimmta
einkasýning Hlífar. Sýningin stendur til
23. maí.
Hrafnkell Sigurðsson hefur opnar sýn-
ingu á verkum sínum í galleríi i8, Klapp-
arstíg. Sýnd verða nýjustu verk Hrafnkels
af tjöldum í íslensku vetrarumhverfi. Sýn-
ingin er opin þriðjudaga til laugardaga kl.
13-17 ogstendurtil 16. júní.
Jón Gunnarsson, listmálari, hefur opn-
að sýningu á olíu- og vatnslitamyndum í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón er þekktur
fyrir sjávarmyndir sínar þar sem hann
sýnir störf við fiskveiðar og - vinnslu. Á
undanförnum árum hefur Jón í auknum
mæli sótt efnivið sinn í íslenskt landslag,
ekki síst í uppland Hafnarfjarðar. Sýning-
in er opin milli kl. 11 og 17 alla daga
nema þriðjudaga og lýkur 14. maí nk.
í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg hefur
Kristján Jónsson opnað sína 6. einka-
sýningu. Öll verkin á sýningunni eru
unnin á þessu ári og sérstaklega með
rými Stöðlakots í huga. Sýningin er opin
alla virka daga nema mánudaga kl. 14-
18 og lýkur 13. maí.
Jean Posocco sýnir í Sverrissal, Hafnar-
borg. Yfirskrift sýningarinnar er Stemm-
ing eða „Ambiance". Á sýningunni eru
vatnslitamyndir, flestar unnar á þessu
ári. Posocco stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskóla (slands 1985-1989 og
er þetta 5. einkasýning hans. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga kl. 11-
17 og henni lýkur 14. maí.
í Norræna húsinu sýna fimm myndlist-
armenn frá Svíþjóð Rose-Marie Huuva ,
Erik Holmstedt, Eva-Stina Sandling,
Lena Ylipaa og Brita Weglin. Norður-
botn er á sömu norðlægu breiddargráð-
um og (sland og að flatarmálí helmingi
stærra þó íbúar séu þar álíka margir og
á [slandi. Sýningin stendur til 13. mai.
í Listasafninu á Akureyri stendur yfir
sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta
franska Ijósmyndara Henri Cartier-
Bresson, en líklega hefur enginn átt
meiri þátt í því að gera Ijósmyndun að
viðurkenndri listgrein. Opið 14-18. Sýn-
ingin stendur til 3. júní.
i gallerí@hlemmur.is stendur yfir
sýning Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin
„Here, there and everywhere". Á
sýningunni leika þau Erla og Bo sér að
því að breyta Reykjavík í fjölþjóðlega
borg með aðstoð stafrænt breyttra Ijós-
mynda. Opið 14-18. Sýningin stendurtil
6. júní.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning
norska listmálarans Odds Nerdrums,
sem baðst nýverið afsökunar á því að
hafa siglt undir fölsku flaggi með því að
kalla sig listamann. Sýningin er opin 10-
17 en til kl. 19 miðvikudaga. Sýningin
stendur til 27. maí.
Sjö olíumálverk er á sýningu Kristinar
Geirsdóttur í Hallgrímskirkju. I
verkunum er lögð áhersla á krossinn,
þríhyrninginn og litinn en verkin voru
gerð sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 9-17.
Sýningin stendur til 20. maí.
„Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti
sýningar sem lýsir með myndrænum
hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-
íslendingsins Vilhjálms Stefánssonar.
Sýningin er um leið kynning á umhverfi,
menningarheimum og málefnum
norðurslóða, en hún er í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og er opin
10-17. Sýningin stendurtil 4. júní.
„Á meðan eitthvað er að gerast hér, er
eitthvað annað að gerast þar" nefnist
sýning á vekum Bandarlkjamannsins
John Baldessari sem stendur yfir I
Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Hann er eitt af stóru nöfnunum I samtí-
malistasögunni og hefur verið nefndur
Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagurfræði
og húmoristi hversdagsleikans. Sýningin
er opin 11-18 og fimmtudaga til kl. 19.
Sýningin stendur til 17. júní.
Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur
opnað sýningu á Mokka-kaffi við
Skólavörðustíg. Sýninguna nefnir lista-
maðurinn Eitt andartak og þrjár sam-
ræður og fjallar hún um hreyfingu og
rými. Ljós og skugga. Sambandið á milli
mynda og samræðna og þau áhrif sem
hlutirnir hafa á rýmið.
[ Listasafni Sigurjón Ólafssonar er
sýning á verkum Sigurjóns sem spanna
30 ára tímabil í listsköpun hans. Sýndar
eru Ijósmyndir og verk í eigu safnsins,
raunsæisverk, andlitsmyndir og abstrakt
verk. Fram til 1 júní er safnið opið lau-
gardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17.
Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma.
Sýningin stendur til 1. júní.
Ásdís Kalmanheldur sýningu í
Listasalnum Man, Skólavörðustíg, á
abstrakt-málverkum sem hún hefur gert
á sl. tveimur árum. Þetta er hennar 4.
einkasýning.
Flórens á Ítalíu:
Osæmileg
auglýsing?
mynplist Antonio Paolucci er for-
stöðumaður Lista- og sögusafnsins í
Flórens á Ítalíu. Þar í miðbænum
hafði jógúrtframleiðandi nokkur sett
upp þessa auglýsingu í þeirri von að
fleiri myndu freistast til þess að
gæða sér á framleiðslu hans. Pa-
olucci var hins vegar ekki par hrif-
inn, því á auglýsingunni getur að líta
hluta af hinu ódauðlega málverki
„Venus“ eftir Sandro Botticelli, nema
hvað myndinni hefur verið breytt
með tölvu. Hann kærði jógúrtfram-
leiðandann fyrir vísvitandi afskræm-
ingu á listaverki Botticellis. Kærunni
fylgir krafa um 500 milljón lírur. ■
VEITINGAHÚS
Toppstaður
Sommelier við Hverfisgötu er
einn besti veitingastaður borg-
arinnar. Þar fer saman fyrsta
flokks matur og þjónusta. Fusion-
eldhúsið er aðalsmerki staðarins
þannig að óvæntar blöndur verða
gjarnan á vegi braðlaukanna.
Þetta átti svo sannarlega við bæði
um súpu og kjúklingabringur sem
smakkaðar voru á dögunum.
Matseðillinn á Sommelier er til
fyrirmvndar þar sem mælt er nteð
nokkrum víntegundum sem fara
vel með hverjum rétti. Þjónustan
er fyrsta flokks, formleg eins og
hæfir veitingastað í þessum verð-
flokki en um leið afar glaðleg.
Steínunn Stefánsdóttí
Hverfisgötu 46
Verðlag: Hátt, meðalverð aðalrétta 2800 kr.
Umhverfi: Einstaklega notalegt, fallegur
borðbúnaður og fyrsta flokks vínglös.
Matur: í hæsta gæðaflokki.
Hverjir koma: Áhugafólk um mat og vín
auk þess sem útlendingar virðast vera búnir
að uppgötva staðinn.
Kostir: Hér er hægt að ganga að því besta.
Gallar: Engir nema auðvitað það að geta
ekki leyft sér að borða þarna oftar.
Réttí veitingastaðurinn fyrir
þá sem ætla að gera sér
regiulegan dagamun.
BIRGIR ANDRÉSSON OG BENEDIKT GESTSSON
Til þess að standa vörð um þjóðlegar hneigðir og forn gen sem leynst gætu
með íslenskum myndlistarmönnum var ákveðið að veita viðurkenningu þeim
myndlistarmanni sem ræktar hvað frumlegast slíkan arf í myndsköpun sinni.
Gallerí Áhaldahúsið veitir viðurkenningu:
Myndlistarmönnum
á Islandi alltaf kalt
viðurkenning Birgi Andréssyni mynd-
listarmanni hefur verið formlega
veitt staðfestingarskjal þess efnis að
hann er handhafi ullarvettlinga Gall-
erí Áhaldahússins fyrir árið 2001 en
viðurkenningin er nú veitt í fyrsta
sinn. Afhendingin fór fram við lát-
lausa en hátíðlega athöfn á horni
Klapparstígs og Grettisgötu. Fyrr á
árinu voru honum afhentir ullarvett-
lingarnir við enn látlausari og hátíð-
legri athöfn. Ástæður þess að ákveð-
ið var að hafa viðurkenninguna ullar-
vettlinga er eftirfarandi: í fyrsta lagi
er það hráefnið sjálft sem fengið er
af reifi sannanlega landnámsrollu, í
annan stað vegna hins grípandi
forms vettlinganna, í þriðja lagi
vegna þeirrar vísunar sem prjóna-
skapur hefur til list- og handmennta
á íslenskum baðstofuloftum allt til
vorra daga. Síðast en ekki síst vegna
þess að myndlistarmönnum á íslandi
hefur alltaf verið kalt. ■
Ritaskrá Einars Ólafs
Svéinssonar:
Afkastamikill
fræðimaður
b.íkur Komin er út Ritaskrá Ein-
ars ðlafs Sveinssonar sem var gerð í
100 ára minningu Einars Ólafs Sverr-
issonar þann 12. desember 1999. Ein-
ar ólafur var einn afkastamesti og
þekktasú fræðimaður þjóðarinnar á
sinni tíð. Hann naut mikillar virðing-
ar sem vísindamaður og var vinsæll
af alþýðu, ekki síst fyrir upplestur
sinn á fornsögum í útvarp. Eftir hann
hafa komið út 16 frumsamdar bækur
sem hafa verið þýddar, ýmis á dön-
sku, norsku, ensku, frönsku eða kín-
versku og sumar frumsamdar á er-
lendu máli. Ólöf Benediktsdóttir tók
saman. Bókin er 88 blaðsíður.
Jassklúbburinn
Múlinn:
Tena Palmer
og félagar
tónleikar Jassklúbburinn Múlinn
stendur fyrir tónleikum hvert
fimmtudagskvöld í
Húsi Málarans. í
kvöld á jasssöng-
konan Tena Palmer
að koma fram. Með
Tenu koma fram
gítarleikararnir
Hilmar Jensson og Pétur Hallgríms-
son, Kjartan Valdimarsson á píanó og
Matthias Hemstock á trommur. Tena
segist ætla að flytja á tónleikunum
eitthvað sem hún kallar „elect-
roaccoustic-groove-poetry“. ■
Fyrirlestur í Hugvísindastofnun:
Þögnin flókin og
ekki falleg saga
Tónskóli Sigursveins:
Fagnar 10 ára
afmæli
bókmenntaumræða Dagný Kristjáns-
dóttir ræðir bók Vigdísar Grímsdótt-
ur Út úr þögninni kl.12.05 í stofu 301
í Nýja Garði. Þögnin er ef til vill
flóknasta skáldsaga Vigdísar Gríms-
dóttur hingað til og „falleg" er þessi
saga ekki.
Ein persóna hennar er rússneska
tónskáldið Pytor Ilyich Tchaikovsky
og mögnuð tónlist hans leikur ólítið
hlutverk í byggingu textans. Eins og
Tchaikovsky fjallar Vigdís í list sinni
um grundvallarspurningar.
Hún fjallar meðal annars um til-
finningar manna, tengsl og aðskilnað
og ást sem verður of mikil, of lítil eða
fer á annan hátt á skjön við allt og
alla. ■
tónleikar í tilefni þess að Árbæjar-
deild Tónskóla Sigursveins er 10 ára
á þessu ári eru sérstakir hátíðartón-
leikar í Árbæjarkirkju í kvöld kl. 20.
Þetta er jafnframt lokaátakið í af-
mælishátíðarhöldunum en í vetur
hefur þess verið minnst með ýmsum
hætti þ.á.m. með tónleikum víðs veg-
ar um hverfið og í Árbæjarskóla.
Ráðstefna um tilíinningagreind:
Ert þú framúrskarandi
einstaklingur?
ráðstefna Ráðstefnan Tilfinninga-
greind verður haldin í dag kl. 9-12 á
Hótel Sögu. Á ráðstefnunni verður
fjallað um hlutverk tilfinninga í ár-
angri. Fyrirlesari á ráðstefnunni er
Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusál-
fræði, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
hjá Þekkingarsmiðju IMG.
Rannsóknir sýna að það er tilfinn-
ingagreind sem aðgreinir framúr-
skarandi einstaklinga frá hinum. Til-
finningagreind fjallar um getu til að
skilja sjálfan sig, stjórna eigin til-
finningum og færn í að skilja og
vinna með öðru fólki. Allt frá því
fyrsta bók Daníels Golemans um til-
finningagreind kom út í Bandaríkj-
unum árið 1995 hefur umræðan um
hlutverk tilfinninga í árangri verið
að aukast. í nýjustu bók sinni Work-
ing With Emotional Intelligence tek-
ur Goleman fyrir árangur fólks í
starfi. Rannsóknir hans á frammi-
stöðu framúrskarandi starfsmanna í
181 starfi í alls 121 fyrirtæki hafa
leitt í ljós að tilfinningagreind skýrir
um 70% af frammistöðu þeirra. Fag-
leg geta og vitsmunagreind til sam-
ans virðast ekki skýra meira en um
30% af muninum milli framúrskar-
andi einstaklinga og þeirra sem stan-
da sig ekki eins vel. ■
MAÐUR OG BRAUÐ
Ofimoto bindur brauð við höfuð á sjálfboðaliða i London.
Japönsk list:
Brauðmaður-
inn ógurlegi
listamenn Japanski listamaðurinn
Tatsumi Orimoto lætur sér ekki
nægja að snæða sitt daglega brauð,
heldur finnst honum ógurlega snið-
ugt að festa brauðhleifa utan á höfuð
fólks. Orimoto er einn virtasti lista-
maður Japans.
Hann hefur ferðast um allan heim
í hlutverki lifandi listaverks sem
hann kallar „Breadman", eða Brauð-
manninn. Hvar sem Brauðmaðurinn
kemur er skipulögð skrúðganga, og
um síðustu helgi var hann staddur í
London þar sem hann gekk í farar-
broddi skrúðgöngu eftir Oxford-
stræti. ■