Fréttablaðið - 22.05.2001, Qupperneq 2
KJÖRKASSINN
2
FRÉTTABLAÐIÐ
22. maí2001 ÞRIÐJUDAGUR
TRILLURNAR
I KVÓTAKERFIÐ
Meirihluti Netverja
telur rétt að
fella smábátana
undir kvótakerfið
Á að fresta því að setja smá-
báta undir kvótakerfið?
Niðurstöður gærdagsins
á www.vlsir.is
44%
Nei
Spurning dagsins í dag:
Velur Keikó frelsið frekar en
fiskabúrið?
Farðu inn á vlsi.is og segðu I
þlna skoðun I
ÚRSLITUM FAGNAÐ
Ivo Sanaderformaður HDZ og Vladimir
Seks varaformaðúr voru kampakátir að
loknum kosningum
Króatía;
Óvænt úrslit í
kosningum
zagheb. flp. Lýðræðisbandalag Króa-
tíu, HDZ, flokkur Franjo heitins
Tidjraaijs.Tyrrverandi forseta, vann
óvæntán sigur í kosningunum sem
fram fóru á sunnudag. Flokkurinn
hlaut meirihluta atkvæða í 14 af 21
héraði í Króatíu. Skoðanakannanir
höfðu ekki spáð flokknum miklu
fylgi. HDZ er flokkur þjóðernissinna
sem hefur verið við stjórnvölinn í
mörgum sveitastjórnum í Króatíu.
Að margra mati er flokkurinn ein
helsta hindrun framfara í Iandinu.
Talið er að andstæðingar HDZ muni
taka höndum saman til að koma í veg
fyrir að flokkurinn nái yfirhöndinni í
sveitastjórnum héraðanna 14 en úr-
slitin þykja sýna fram á að ekki er
hægt að afskrifa HDZ. ■
Colin Powell:
I STUTT
Bandaríkin leysa ekki vandann
WASHINGTON. NEW YOBK. DAMASKUS, AP
Colin Powell utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hvatti í gær ísraels-
menn og Palestínumenn til þess að
rjúfa vítahring ofbeldisins og studdi
eindregið tillögur nefndar undir for-
ystu George Mitchell, fyrrverandi
öldungadeildarþingmanns í Banda-
ríkjunum, en skýrsla nefndarinnar
kom opinberlega út í gær.
Powell tilnefndi jafnframt Willi-
am Burns í embætti fulltrúa Banda-
ríkjanna í málefnum Austurlanda
nær og fól honum að reyna að endur-
vekja viðræður milli fsraelsmanna
og Palestínumanna.
Mitchell-nefndin hvetur ísraels-
menn til þess að stöðva allt landnám
og Palestínumenn til þess að reyna
betur að koma í veg fyrir árásir á
ísraelsmenn. Nauðsynlegt sé að byg-
gja upp að nýju gagnkvæmt traust
milli þeirra.
Powell sagði í gær að nú væri aug-
ljósara en nokkru sinni fyrr að engar
hernaðarlausnir væru til á þessum
átökum. „Skýrsla nefndarinnar er
uppbyggileg og jákvæð tilraun tii
þess að rjúfa vítahring ofbeldisins,"
sagði hann. „Á endanum er það ekki
nokkuð sem Bandaríkin geta komið
á,“ heldur verði leiðtogar fsraels-
manna og Palestínumanna að „grípa
til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar
eru til þess að rjúfa vítahring ofbeld-
isins.“ ■
ARIEL SHARON
Colin Powell, Kofi Annan og Javier Solana
hvöttu í gær Israelsmenn og Palestinu-
menn til.þess að rjófp vítahring ofbeldisins.
Urvalsvísitalan hækkaði lítillega á
Verðbréfaþingi íslands í gær,
fór í 1095 stig, og námu heildarvið-
skiptin 1.245 milljónum króna. Bréf í
Þormóði Rammi-Sæberg hækkuðu
mest, eða 5,8%, en mesta lækkunin
varð 3,7% hjá Húsasmiðjunni. Nas-
daq-vísitalan á Wall Street skaust
upp um rúmlega 4,85% en Dow Jo-
nes fór aðeins lítillega upp. Þá
hækkuðu evrópskir hlutabréfamark-
aðir einnig almennt í gær.
—♦—
Harður árekstur varð á Selfossi í
gær þegar fólksbíll ók í veg fyr-
ir vegmerkingarbíl. Að sögn lög-
reglu urðu engin slys á fólki, en
fólksbíllinn er gjörónýtur og búnað-
ur á vegmerkingarbílnum skemmd-
ist.
ÓTTAST EKKERT
Þroskaþjálfarafélag Islands er ungt félag með aðeins um 200 þúsund krónur í verkfallssjóði. Verkfallsstjórn segir að það hafi ekki dregið þrótt úr félagsmönnum
og að verkfallið muni standa yfir eins lengi og til þarf.
Þroskaþj álfar telja verk-
fall brotið á leikskólum
Sex leikskólar hafa ekki sent fötluð börn heim. Samningamenn hengja sig í prósentuhækkun og líta fram hjá
krónutölu. Neyðarástand í uppsiglingu.
1 lögreglufréttir]
Níu nagladekkjum var stolið í
Breiðholti um helgina. íbúi í
fjölbýlishúsi hafði verið að taka til í
geymslu og sett nagladekkin út fyrir
geymsluna í stutta stund.
—4----
Farið var inn í fyrirtæki í Brautar-
holti og þaðan stolið fartölvu um
helgina.
—♦—
Uppgjöri dagsins var stolið úr
veitingastað í Grafarvogi á laug-
ardagskvöld. Lögreglan vinnur að
rannsókn málsins.
verkfall „Eins lengi og til þarf,“ kvað
verkfallsstjórn Þroskaþjálfarafélags
íslands við í einum róm þegar spurt
var hversu lengi félagið myndi end-
ast í verkfalli. í verkfallsstjórninni
eru þær Jóhanna K. Jónsdóttir, Jar-
þrúður Einarsdóttir, Siggerður Á.
Sigurðardóttir og Elva Ösp Ólafs-
dóttir. Stjórnin bendir á að þroska-
þjálfarar eru að fara fram á að
grunnlaun þroskaþjálfa verði hækk-
uð úr 100.001 krónu í 150.000 krónur.
Að þeirra sögn hengja samninga-
menn sig á prósentuhækkun.
„Þegar litið er á krónutöluna sér
það hver maður að þarna er ekki um
að ræða mikinn pening. Hins vegar
finnst samningamönnum að pró-
sentutalan sé of há,“ sagði Jóhanna.
Frá því að verkfallið skall á hafa
þroskaþjálfar hist á hverjum morgni
í höfuðstöðvum sínum í Hamraborg
1 í Kópavogi þar sem stálinu er
stappað í fólk, farið yfir daginn sem
er í vændum og hvað skuli gera. Síð-
an halda félagsmenn út í verk-
fallsvörslu og í lok dagsins koma
þeir saman aftur og gefa skýrslu. En
hefur eitthvað verið um verkfalls-
brot? Það segir verkfallsstjórn fé-
lagsins vera deilumál, að þeir telji
eina fimm leiksskóla vera að brjóta á
sér verkfallsréttinn með því að
senda ekki börn sem hingað til hafa
verið í umsjá þroskaþjálfara heim á
meðan verkfallinu stendur.
„Við erum að vinna að því að
leysa [þennan ágreining] í samvinnu
við þá leikskólastjóra sem um ræðir
... Þetta eru sex leikskólar sem túlka
þetta atriði á annan hátt en við og
fimm leikskólar sem túlka það á
sama hátt og við,“ sagði Elva Ösp
Ólafsdóttir. Þeir 297 meðlimir sem
Þroskaþjálfarafélagið telur óttast að
neyðarástand skapist semjist ekki
fyrir 1. júní - daginn sem þroska-
þjálfarar í vinnu hjá ríki og bæjum
leggja niður vinnu.
„Vonandi semst fyrir þann tíma ...
það eru mörg börn sem eru rosalega
mikið fötluð og þurfa á sérmenntuðu
fólki til þess að annast það - það eru
þessi börn sem munu líða fyrir verk-
fallið," bætti Jarðþrúður Einarsdótt-
ir við að lokum. ■
íslensk Auðlind
L æ k j a r t o r g i
Hafnarstræti 20. 2h
101 Reykjavík
www.audlind.is
Fatahreinsun
Erum með á söluskrá okkar öfluga fatahreinsun sem rekin er með miklum mynd-
arbrag á stór Reykjarvíkursvæðinu. Fyrirtækið er vel tækjum og búnaði búin og
með fína viðskiptavild.
Kaffi og Matsölustaður
Vorum að fá á söluskrá okkar góðan kaffi og matsölustað sem rekinn er í leigu-
húsnæði miðsvæðis i Reykjavík. Staðurinn tekur um 70 manns í sæti og er vel
tækjum og búnaði búinn. Vínveitngaleyfi.
Öflug Lúgusjoppa
í úthverfi Reykjavíkur vorum að fá á söluskrá okkar öflugan söluturn með grilli,
myndböndum og bilalúgum. Fyrirtækið er í góðum rekstri í dag og með mikla
veltuaukningu milli mánaða.
Seljendur - Kaupendur
Vegna mikilla sölu undanfarið vantar okkur allar gerðir af fyrirtækjum á skrá.
Einnig er mikil eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Erum með stóran hóp af traustum
og öflugum kaupendum.
Fyrirtækjasala I Fasteignasala I Leigumiölun I Lögfræðiþjónusta
Ráðning rektors Skálholtsskóla:
Skólaráð endurtekur sig
menntamAl. Skólaráð Skálholtsskóla
komst að þeirri niðurstöðu í gær að
það skyldi styðja Guðmund Einars-
son í starf rektors Skálholtsskóla...
aftur. Skólaráð hafði áður komist að
sömu niðurstöðu, en þar sem Kirkju-
ráð hafði farið fram á það að lág-
marksmenntun væntanlegs rektors
væri háskólamenntun var skólaráð
beðið um að endurskoða ákvörðun
sína og gera nýja tillögu um rektor.
Umsækjendur voru sex: áðurnefndur
Guðmundur Einarsson sem var ekki
talinn uppfylla menntunarskilyrði og
fimm aðrir sem uppfylltu skilyrðin.
Fimm skólaráðsmenn munu hafa
stutt Guðmund en tveir studdu Bern-
harð Guðmundsson. Sigurður Sigurð-
arson, vígslubiskup í Skálholti og
einn skólaráðsmanna, sagði í gær-
kvöld að ráðið hefði ákveðið að tjá sis
ekkert um ákvörðunina að öðru
en að hún hefði verið tekin og
henni fylgdi nýr rökstuðningur.
rökstuðningurinn var fékkst ekki
upp gefið né hverjir þeir voru er
studdu ráðningu Bernharðs. Skólaráð
bætti því við að til vara styddi það
Árna Svan Daníelsson. ■
NÝR RÖKSTUÐNINGUR
Meirihluti skólaráðsmanna styðja ráðningu
Cuðmundar Einarssonar í stöðu rektors
Skálholtsskóla en minnihluti séra Bernharð
Guðmundsson.