Fréttablaðið - 22.05.2001, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
22. maí 2001 ÞRIÐJUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
ÚTGJÖLD HINS OPINBERA hafa vaxið
mikið síðustu ár. Stærsti hluti útgjaldanna
fer f samneyslu, sem er ýmis þjónusta hins
opinbera. Umfang þessarar þjónustu hefur
aukist ívið meira en landsframleiðslan í
heild á hagvaxtarskeiðinu undanfarín ár.
ALLAR UPPHÆÐIR
I MILUÖRÐUM KRÓNA
HEIMILD: PJÓÐHACSSTOFNUN
STYTTA AF MANNI MEÐ
SPORÐDREKAHJÁLM
Ýmsir munir hafa verið grafnir upp undan
þekktum fornleifum í Maya-borginni Chac
sem benda til þess að menning þar hafi
staðið í blóma undir lok fornaldar.
Ævaforn Maya-borg:
Fyrri aldurs-
kenningum
kollvarpað
fornleifar. Þeir fjölmörgu íslending-
ar sem ferðast hafa til Mexíkó og
skoðað forn Maya-mannvirki gætu
þurft að endurskoða þær upplýsing-
ar sem þeir fengu um aldur rúst-
anna. Vísindamenn hafa lengi talið
að hápunktur menningar Mayanna
hafi verið um 800 til 1000 eftir Krist,
en nýjar rannsóknir við borgina
Chak á Yucatan-skaga benda til þess
að borgin hafi staðið í blóma á þriðju
öld eftir krist, og kollvarpar það
fyrri aldursgreiningum. Notaði
fornleifafræðiprófessorinn Michael
P. Smyth kolefnisaðferð við grein-
ingu á ýmsum munum í hinni fornu
menningarborg. Þá hafa rannsókn-
irnar leitt í Ijós að meiri tengsl voru
á milli byggða á Ycatan-skaga og
byggða inni í Mexíkó en áður hafði
verið ætlað. Borgin Chac var að
miklu leyti lögð í rúst af trúarlegum
ástæðum seint á áttundu öld, segir
Smyth. ■
Norðurhluti Makedóníu í gær:
Hörð átök hers og
uppreisnarliðs
Ríkisherinn í
Makedóníu lenti í átökum við upp-
reisnarmenn af albönskum uppruna í
norðurhluta landsins í gærmorgun.
Þúsundir óbreyttra borgara eru þar
fastir í þorpum sem uppreisnarmenn
hafa tekið á sitt vald, en átökin voru
við þorpin Slupcane og Vaksince.
Talsmaður makedónska hersins, Bla-
goja Markovski, segir að uppreisnar-
mennirnir hafi gert árás í dagrenn-
ingu og því hafi herinn orðið að
bregðast við. Engar fregnir bárust af
mannfalli, en átökin héldu áfram
fram eftir degi. Lagði Makovski
áherslu á að uppreisnarmennirnir
notuðu borgara á svæðinu enn sem
vörn og því væri erfiðleikum bundið
að svara árásum þeirra. Rauði kross-
inn hefur á undanförnum vikum flutt
hundruð borgara burtu af svæðinu.
Makedóníustjórn lét undan al-
þjóðlegum þrýstingi um að ráðast
ekki af fullum krafti gegn uppreisn-
armönnum eftir að frestur stjórnar-
innar rann út sl. fimmtudag. Telur
Markovski að uppreisnarmenn hafi
notað hlé á bardögum yfir heigina til
MÁLSVARI ÓBREYTTRA BORGARA
Bíll frá Rauða krossinum hleypir skriðdreka
stjórnarhersins framhjá, en mannúðarsam-
tökin hafa á undanförnum vikum flutt
hundruð borgara burt af svæðinu.
að endurskipuleggja sig og taka sér
nýjar stöður. Óttast margir að nái
stríðið að magnast frekar í Makedón-
íu muni það breiðast út til fleiri ríkja
Balkanskaga. ■
Fangauppreisn:
26 fangar
brunnu inni
santiaco, ap. Fangar kveiktu í dýnum og
sængurfötum í fangelsi norður af
Santiago, höfuðborg Chile á sunnudag.
Eldurinn barst í svefnskála og brunnu
26 fangar inni, en aðallega var um að
ræða unga afbrotamenn sem afplán-
uðu í fyrsta sinn refsingu. Lögregla
varð að nota táragas gegn aðstandend-
um sem reyndu að komast inn í fang-
elsið til að leita upplýsinga. 32 fangar
voru vistaðir á staðnum og komust því
aðeins 6 lífs af. Ástæður uppþotsins
eru ekki ljósar, en einn þeirra sem
komst lífs af sagði varðmenn hafa
komið illa fram við vistmenn. Dóms-
málaráðherra Chile, Jose Gomes, mun
hann hafa umsjón með rannsókninni. ■
Taktlaus stjórn slær ekki
Sinfóníuna út af laginu
Fulltrúi starfsmanna í stjórn Sinfóníunnar hunsaður og hljóðfæraleikurum tilkynnt
um starfslok Saccanis á miðjum tónleikum.
sinfónIan Hljóðfæraleikurum í Sin-
fóníu íslands var illa brugðið þegar
þeim var tilkynnt um starfslok
Ricos Saccanis aðalstjórnanda
hljómsveitarinnar á miðjum tónleik-
um á fimmtudagskvöldið. Gréta
Guðnadóttir, önnur fiðla í hljóm-
sveitinni, segir að það sé því ekki
rétt sem haft er eftir Þorkeli Helga-
syni, formanni stjórnar Sinfóníunn-
ar, í Fréttablaðinu í gær að tilkynnt
hafi verið um málið eftir tónleikana
og að starfsmenn hafi engin sérstök
viðbrögð sýnt.
^ Gréta segir að
Þröstur Ólafsson,
Gréta Guðnadóttir framkvæmdastjóri
segist hissa á að Sinfóníunnar, hafi í
framkvæmda- hlénu lesið yfirlýs-
stjórinn hafi ingar stjórnar Sin-
hunsað beiðni fóníunnar og
fulltrúa starfs- Saccanis um
manna í stjórn starfslokin. Þögn
Sinfóníunnar hafi slegið á hópinn
um að bíða þar enda hafi mönnum
til eftir tónleik- verið brugðið því
ana með yfirlýs- þó brotthvarf
ingarnar Saccanis hafi legið
—. í loftinu hafi eng-
inn átt von á endan-
legri staðfestingu þess í miðju tón-
leikahaldi. Hljóðfæraleikararnir
hafi síðan þegjandi og hljóðalaust
komið sér fyrir á sviðinu að nýju til
að flytja fimmtu sinfónínu
Tchaikovskys sem var síðust á efn-
isskránni. Gréta segir að þrátt fyrir
allt hafi það ekki verið að heyra á
leik hljóðfæraleikaranna að þeir
hefðu látið framkvæmdastjórann
slá sig út af laginu.
„Það var ótrúlegt og algert tak-
leysi sem hefði getað orðið stórmál
og til þess að einhver hefði ekki
treyst sér til að spila á tónleikunum.
ÓÁNÆGJA MEÐ
FRAMKVÆMDA-
STJÓRANN
Þröstur Ólafsson
nýtti hléið á tón-
leikum Sinfónlunnar
á fimmtudags-
kvöldið til að skýra
hljóðfæraleikurunum frá starfslokum
Ricos Saccanis.
Við erum hins vegar mjög sjóuð í
þessum efnum og ýmsu vön auk
þess sem við vorum við með frábær-
an stjórnanda svo tónleikarnir héldu
áfram eins og ekkert hefði í skorist,"
segir Gréta, sem er hissa á að fram-
kvæmdastjórinn hafi hunsað beiðni
fulltrúa starfsmanna í stjórn Sinfón-
íunnar um að bíða þar til eftir tón-
leikana með yfirlýsingarnar: „Hann
hafði beðið um að yfirlýsingarnar
yrðu ekki lesnar fyrr en eftir tón-
STÓRFRÉTT f HLÉINU
Hljóðfæraleikararnir voru að búa sig undir
að leika fimmtu sinfóníu Tjækovskys fyrir
fullan sal af áheyrendum þegar þeim var
tilkynnt að aðalstjórnandinn væri hættur
störfum.
leikana og formaður starfsmannafé-
lagsins stóð í þeirri trú að aðeins
yrði skýrt frá því í hlénu að yfirlýs-
inga væri að vænta eftir tónleik-
ana.“
gar@frettabladíd.is
Eggert Haukdal:
Dæmdur fyrir eitt
atriði af þremur
pómur Eggert Haukdal, fyrr-
verandi oddviti í Vestur-Land-
eyjahreppi, segir að eftir dóm
Hæstaréttar sé ljóst að hann
hafi aðeins verið dæmdur fyr-
ir eitt þriggja ákæruatriða, og
þar sé um að ræða atvik, sem
rekja megi til færslu endur-
skoðanda.
í frétt f blaðinu á föstudag
var ranglega sagt að Eggert
hefði verið sakfelldur fyrir um-
EGGERT
HAUKDAL
Með dómi var
ósannað að auðgunarásetning-
úr "hefði þar legið að baki
gjörðum Eggerts.
Eggert var hins vegar sak-
felldur fyrir fjárdrátt, þar
sem Hæstarétti þótti ljóst að
500.000 kr. bókhaldsfærslur
vegna vegagerðar hefðu leitt
til lækkunar á skuld hans við
hreppinn. Sem oddvita hafi
honum hlotið að vera kunnugt
um þennan frágang reikninga
boóssvik með því að gefa út hann sýknaður af 0g ekki geta dulist hver áhrif
skuldabréf í nafni hreppsins. en^sakfélTdur'fvr'ir nans væru- Vegna þessa var
Hann var sýknaður af þeim en sa urtYnr hanndæmdurítveggjamánaða
tveimur ákærum
hans væru. Vegna þessa var
ákærulið og af ákæru um að
hafa skaðað hreppinn fjárhagslega
meó ábyrgðaryfirlýsingum í tengslum
við jarðakaup enda taldi rétturinn
skilorðsbundið fangelsi. Eggert
sagði í samtali við Fréttablaðið að
endurskoðandi hefði borið ábyrgð á
færslunni. ■
INNLENT
Afkoma bæjarsjóðs Snæfells-
bæjar var 57 milljónum betri
en gert var ráð fyrir í fjárhagsá-
ætlun fyrir árið 2000. Helstu skýr-
ingar eru að útsvarstekjur og
greiðslur úr jöfnunarsjóði voru
hærri en áætlað var. Þá voru ýmsir
gjaldaliðir mun lægri en miðað var
við, meðal annars fræðslumál og
framkvæmdir við íþróttahús. Tekj-
ur af málaflokkum voru hins vegar
lægri en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir.
Skýrslu um kynferðislegt ofbeldi
gegn þroskaheftum hefur verið
stungið undir stól. Með skýrslunni
voru lagðar fram tillögur um aukna
fræðslu þroskaheftra og að rann-
sakað yrði umfang kynferðislegs
ofbeldis ggagnvart þeim. Þær hafa
ekki verið framkvæmdar nema að
litlu leyti. Skýrsluhöfundar komust
að þeirri niðurstöðu að talsvert sé
um að þroskaheftir hér hafi orðið
fyrir kynferðislegri áreitni og of-
beldi.