Fréttablaðið - 13.06.2001, Side 22
HRAÐSOÐIÐ
SIGRÚN CORA BARKER
hjúkrunarfræðingur
Fylgjandi
dauðarefsingu
HVAÐ finnst þér um aftöku Tímothy
McVeigh?
Mér fannst hún sanngjörn. Lögin
höfðu ekkert að gera með hans
ákvörðun. Ef menn eins og hann
kjósa að taka líf annarra þá finnst
mér að lög geti kveðið á um að taka
beri hans líf. Því miður verð ég að
teljast sammála dauðarefsingu. Því
miður segi ég því hér í Dallas lifir
maður og hrærist í þessu umhverfi
„auga fyrir auga, tönn fyrir tÖnn“.
HVER er réttlætingin?
Hún er sú að fólk getur ekki tekið
aðra manneskju af lífi og ætlast síðan
til þess að borin sé virðing fyrir þeir-
ra eigin Iífi.
HVERNIG þótti þér framganga Ge-
orge Bush í dómsmálum meðan hann var við
völd í Texas?
Sum ríki fella dauðadóma yfir seku
fólki en framfylgja því síðan aldrei.
Það kostar peninga að hafa fólk í
fangelsi og George Bush var mjög
harður á að framfylgja þeim dómum
sem féllu í Texas á hans valdatíma.
Þetta eru engar skyndiákvarðanir því
að það tekur 8-9 ár að komast að
þessari niðurstöðu á meðan viðkom-
andi situr í fangelsi og á þessum tíma
er verið að kafa ofan í allar hugsan-
legar hliðar málsins.
HVERJAR eru hugsanlegar ástæður
fyrir þvi að aðstandendur fórnarlamba krefjist
dauðarefsingar þess seka?
Það var viðtal við aðstandendur
Timothys í sjónvarpinu í gær þar
sem þeir telja líðan sína geti verið
betri nú þegar þeir hafa vitneskju um
að morðinginn sé látinn. Þetta tel ég
ekki rétt. Dauði ástvinar er ekki
bærilegri þó sá sem hafi orðið valdur
að honum sé látinn deyja líka. Þannig
að tilfinningalega er aftaka eins og
þessi ekki endilega rétt ákvörðun þó
hún sé það að mínu mati út frá sjón-
armiðum dóms, laga og réttlætis.
Sigrún Cora Barker starfar sem hjúkrunarfræð-
ingur á skurðdeild Medical City Hospital (Dallas
og hefur verið búsett ytra sl. 12 ár. Hún varð
margfaldur Islands og bikarmeistari í knatt-
spyrnu með Val og körfuknattleik með KR, ayk
þess að leika með fslenska landsliðinu í báðum
greinum.
22
FRÉTTABLAÐIÐ
13. júní 2001 MIÐVIKUDAGUR
Andstæðingar gagnrýna Blair
40% launahækkun að
loknum kosningum
tONDON. ap. Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, sætti harðri gagn-
rýni andstæðinga sinna í gær. Ástæð-
an er ákvörðun hans um að aflétta
hömlum á launahækkunum ráðherrra
og hækka hans eigin laun um 40% í
kjölfarið, úr 116.000 ísl. kr. árslaun-
um, andvirði 16,7 milljónum punda, í
163.000 punda árslaun, andvirði 23,4
milljóna ísl. kr. Ráðherralaunin
hækka úr tæpum 100.000 pundum,
andvirði 14,4 milljóna ísl. kr. í 117.000
pund, andvirði 16,8 milljóna ísl. kr.
Blair ákvað á nýafstöðnu kjör-
tímabili að frysta ráðherralaunin en í
samræmi við ráðleggingar breska
kjaradómsins sem skilaði skýrslu um
málið í vetur verður þeirri stefnu
hætt nú.
Leiðtogar verkalýðsfélaga og
stjórnmálaflokka segja tímasetningu
ákvörðunarinnar vera afar slaka.
„Þar fór auðmýktin sem forsætisráð-
herra lofaði í upphafi kosningabarátt-
unnar, um leið og hann hafði náð kjöri
þá tekur gamli hrokinn við,“ sagði
Michael Ancram, framvæmdastjóri
íhaldsflokksins.
EKKI Á FLÆÐISKERI STÖDD
Leo Blair, yngsti sonur Tony og Cherie, í faðmi foreldranna sem samanlagt eru með um
400.000 pund í árstekjur, andvirði 57,5 milljóna ísl. kr.
Sérfræðingar í breskum launa-
rannsóknum benda hins vegar á að
laun forsætisráðherra séu miklu
lægri en tíðkist meðal framkvæmda-
stjóra í einkageiranum. Ráðherrar í
ríkisstjórn Blair, sem hafa þrýst á
Blair um skeið að hækka launin, sner-
ust hækkunum til varnar í gær. „Er
ástæða til að gagnrýna að laun hafa
ekki verið hækkuð í fjögur ár,“ sagði
John Reid, ráðherra Norður-írlands í
viðtali við BBC í gær. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Talsvert gengisfall hefur orðið á
flestum íslenskum stjórnmála-
mönnum samkvæmt könnun DV í
takt við fall ís-
lensku krónunnar,
minnkandi afla-
kvóta og efna-
- m hagslægð í kjölfar
jk 7 y; • Æ góðæris: Þeir eru
' V hættir að skaffa! í
^ | Bretlandi hefur
hins vegar ekki
verið nein efna-
hagslægð en samt eru stjórnmála-
menn þarlendir með TonyBlairí
broddi fylkingar ekki í hávegum
hafðir ef dæma má eftir kosninga-
þátttöku í nýafstöðnum þingkosn-
ingum. Kosningaþátttan í Bret-
landi náði ekki 60 % og er það í
sjálfu sér falleinkunn fyrir bresk
stjórnmál. Enn þá alvarlegra verð-
ur málið þegar skoðuð er kosn-
ingaþátttaka eftir aldurshópum.
Ekki nema þrjátíu prósent ungs
fólks á aldrinum 18-25 ára sá
ástæðu til þess að mæta á kjör-
stað. Þeir sem eru á aldrinum 25 -
35 ára voru undir meðaltalinu í
kjörsókn, en það er ekki fyrr en
menn eru komnir yfir 35 ára aldur
sem kosningaþátttakan fer yfir 60
%. Þeir sem elstir eru mæta svo
best. Hvað er að verða um þátt-
tökulýðræðið?
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
stjórnaformaður Landsvirkjun-
ar, lýsti því yfir snöfurlega í
morgunfréttum
sjónýarps að það
væri ekki ofvaxið
getu Landsvirkj-
unar að byggja í
einu Búðárháls-
virkun, Norðlingá-
öldulön og risa-
framkvæmdina
Kárahnjúkavirkj-
un, sem er dæmi upp á 150 - 200
milljarða króna. Ástæðan er ein-
föld: Landsvirkjun fær ríkisá-
byrgð á þeim lánum sem þarf til
frmavkvæmdanna og svo eru
starfsmenn fyrirtækisins vanir
menn í virkjunum og láta sér ekki
allt fyrir brjósti brenna. Það er
auðvelt að bera sig mannalega
þegar hægt er að sækja í digra
sjóði landsmanna ef illa fer. End-
anlegur mælikvarði á væntanlega
hagkyæmni framkyæmdanna
Þorp á Vatnajökli
Ein umfangsmesta auglýsingagerð erlendra aðila hérlendis fór fram upp á
Vatnajökli um hvítasunnuna.
kvikmynpagerð íbúatala Vatnajökuls
margfaldaðist um hvítasunnuhelg-
ina síðustu þegar um 60 íslenskir
og erlendir kvikmyndagerðarmenn
settu upp búðir á Skálafellsjökli.
„Village Tahoe“ voru búðirnar kall-
aðar, en hópurinn sem var frá
bandaríska framleiðslufyrirtækinu
Flying Tiger Films og íslensk-
grænlenska framleiðslufyrirtæk-
inu Location Greenland-Iceland,
vann við kvikmyndatökur fyrir
sjónvarpsauglýsingu um Chevy
Tahoe frá General Motors. Hluti
auglýsingarinnar var svo kvik-
myndaður í framhaldinu á Græn-
landi og fór hluti starfsliðsins af
Vatnajökli með þangað.
„Yfirleitt höfum við haldið til í
byggð og ekið upp á jökla í svona
verkefnum, en í þessu tilviki krafð-
ist verkið mikillar viðveru á jöklin-
um. Því var ákveðið að láta á það
reyna að setja upp „þorp“ nálægt
tökustaðnum með rafmagni og til-
heyrandi, búa í fellihýsum og tjald-
vögnum allan tímann. Búnað og
tæki settum við í gáma, kerrur og
tjöld og ekki má gleyma baðað-
stöðu og heitum nuddpotti! “segir
Vilborg Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri verksins hjá
Location Greenland-Iceland.
FJÖLÞJÓÐALIÐ í fSHEIMUM
Um 60 manns dvöldu helgariangt ( þessu þorpi á Vatnajökli við gerð auglýsingar fyrir
Chevrolet Tahoe jeppann
Auglýsingagerðin á Vatnajökli
er örugglega með umfangsmeiri
erlendu verkefnum í auglýsinga-
gerð hérlendis. Starfsliðið var
mjög fjölþjóðlegt. Auk íslendinga
og Bandaríkjamanna voru tveir
Bretar, tveir Grænlendingar, einn
ítali og einn Belgi í hópnum að
sögn Vilborgar.
Fyrirtækið hefur á undanföm-
um sex árum sérhæft sig fram-
kvæmd og skipulagningu kvik-
myndatöku á jöklum og í heim-
skautalandslagi fyrir erlendar
sjónvarpsauglýsingar og starfað
fyrst og fremst á Grænlandi.
„Þessi framkvæmd á Vatnajökli nú
tókst í alla staði vel, þrátt fyrir
leiðindaveður á brottfarardegi.
Reyndar vorum við svo algerlega
sjálfbjarga að það þurfti ekki nema
einu sinni að fara á Höfn eftir nýju
brauði. En svona framkvæmd
gengur heldur ekki upp nema með
margra vikna skipulagningu og
samhentum hópi,“ segir Vilborg. ■
fengist hins vegar þá fyrst ef inn-
lendir og erlendir aðilar vildu
hætta fé sínu í framkvæmdina í
skiptum fyrir framtíðarágóða.
rúverandi ríkisstjórn hefur það
I á stefnuskrá sinni að draga úr
ríkisumsvifum og
selja ríkisfyrir-
tæki sem eru í
samkeppni á fram-
leiðslu- og þjón-
ustumarkaði. í ný-
k. legri skýrslu Sam-
« keppnisstofnunar
J||l kemur á hinn bóg-
inn fram að ríkis-
umsvif hafa aukist í tíð ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar. Það
skýrist af því að öflug ríkisfyrir-
tæki eru í þeim geirum atvinnu-
lífsins sem hafa þanist hvað mest
út, svo sem á orku-,fjarskipta- og
fjármálasviði. Nægir þar að nefna
Símann og ríkisbankana, Lands-
banka og Búnaðarbanka. Hægt
gengur að einkavæða þessi fyrir-
tæki enda þótt það sé á stefnuskrá,
m.a. vegna þess að illa árar á
hlutabréfamarkaði um þessar
mundir. Þó má ætla að fyrir næstu
kosningar verði einkavæðing Sím-
ans og bankanna afstaðin að hluta.
En einkavæðingarmenn verða
ekki lengi í paradís. Fari svo
að Jóhannesi Geir verði að ósk
sinni um ríkisábyrgðir vegna þrig-
gja virkjana samtímis, Káran-
hjúkavirkjunar, Búðarhálsvirkjun-
ar og Norðlingaöldulóns, verður
um mestu aukninga ríkisumsvifa
að ræða sem um
getur í sögunni.
Einkavæðing á
hlutum í Símanum
og ríkisbönkunum
verður hreint
krækiber miðað
við risa -ríkisá-
byrgðir vegna
Kárahnjúkavirkj-
unar. Því gæti svo farið að sjálfur
einkavæðingarflokkurinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn, gengi til kosn-
inga sem mesti ríkisumsvifaflokk-
ur sögunnar. Og ekki er þá annað
við hæfi en að Friðrik Sophusson,
fyrrverandi varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins og fjármálaráð-
herra, sem á sínum yngri árum
mótaði kjörorðið „Báknið burt“
standi fyrir metinu í ríkisumsvif-
um.
ÞRÚÐA
ríinmpil
númn
/
Utsala á hljóðfœrum
11. - ló.júní
Við eigum 1 árs afmæli.
Af því tilefni bjóðum við afslátt sem
um munar, einnig á nýjum vörum.
20 - 50 % afsláttur
Tónlistafólk komið og gerið góð kaup.
„Pabbi, ég hef alltaf
sagt að mér finnst þú
vera góður faðir.
Hvernig fyndist þér að
vera Frábær faðir?"