Fréttablaðið - 29.06.2001, Side 10
10
i£^46LAE>ffi
29. júní 2001 FÖSTUD/\CUR
Fyrrverandi
eiturlyfj afræðingur:
Akærð fyrir að
byrla manni
sínum eitur
SAN pieqo,.ap- Fyrrverandi eiturlyfja-
fræðingur á rannsóknarstofu lík-
skoðara hefur verið ákærður fyrir
að byrla eiginmanni sínum eitur.
Maðurinn fannst látinn í rúminu sínu
undir hrúgu af rósakrónum, alveg
eins og sjá má í einu atriði kvik-
myndarinnar vinsælu „Amerísk feg-
urð.“ Fyrst var talið að maðurinn
hafi framið sjálfsmorð, en nú gæti
eiginkona hans, sem er 24 ára, hins
vegar átt yfir höfði sér dauðadóm
fyrir morðið eftir að hafa verið
handtekin á mánudag. ■
Rafiðnaðarsamband Islands:
Launaliður laus við
Samtök verslunarinnar
verkalýðsmAl Rafiðnarsamband ís-
lands telur að launaliður kjarasamn-
ings þeirra við Samtök verslunarinn-
ar sé laus. Það sé m.a. vegna þess að
Samtökin telja sig ekki vera bundna
af handsöluðu samkomulagi um að
félagsmenn RSÍ mundu fá samsvar-
andi breytingar á sínum kjörum ef
endurskoðunarnefnd ASÍ og Samtaka
atvinnulífsins mundi ákveða breyt-
ingar á almenna samningnum. Sem
kunnugt er þá ákvað nefndin að
hækka orlofs- og desemberuppbót
um 16.400 krónur við endurskoðun
samninga í mars sl.
Guðmundur Gunnarsson formað-
ur RSÍ segir að menn séu „grautfúl-
ir“ út í þessa afstöðu Samtaka versl-
unarinnar. Hann segir að menn muni
sækja þessa hækkun á vinnustöðum
sínum hjá fyrirtækjum innan SV,
enda fátt sem bendir til annars en
það gangi upp. Hann segir að þótt
menn telji að launaliður samningsins
sé laus þá muni það ekki koma að sök,
enn sem komið er. Það kunni hins
vegar að geta sagt til sín seinna meir
ef fram fer sem horfir um endur-
skoðun samninga í byrjun næsta árs.
Haukur Þór Hauksson formaður
Samtaka verslunarinnar segist ekki
kannast við neitt handsalað sam-
komulag í þessum efnum, auk þess
sem það kemur þeim ekkert við það
sem Samtök atvinnulífsins gera við
sína viðsemjendur. Aðspurður hvort
hann óttist ekki áhrifin af þessu í
samskiptum þeirra við RSI segir
hann að ef menn séu eitthvað fúlir, þá
verði þeir einfaldlega að eiga það við
sjálfan sig. ■
JjHÍJJ JjHJ'íJ íUJjJJU/jfi
jjJíhjjjjjj'ÍjJhxj/íj
Kælibox 12 v.
24. litra.
10800;
FL 095
NR 611431
Kælibox 12 v.
22. litra. með aukaloki
Vatnsketill 12 volt.
Inniljósl2 volt.
í hjólhýsið
/ bátinn
Formúla 1
bílabón
+ spray
á mæla-
borðið og dekkin
Bílasápa
m/bóni 575 ml.
FL 095'^~~
NR 425410
FL 095
NR 425413
12.520;
FL095
NR 611310
FL095
NR 611439
■■■■
Valeo
Þurrkublöð
APA
þvottakústai
og sköft
Komdu
í Bílanaust
naust
Það er komið
\ sumar! á
Tilboðin gilda út júlí
Betra útsýni
meira öryggi -
Speglar meö frammlengingu
fyrir fellihýsi, hjólhýsi o.fl.
2.496,-
FL095
NR 330941
REYKJAVÍK HAFNARFJÖRÐUR AKUREYRI KEFLAVlK EGILSSTAÐIR HORNAFJÖRÐUR
Borga_rtúni_26 | Blldshöfða 14_ | Skeifunni 2 | Baejarhrauni 6 | palsbrautJ A jGrófin 8 | Lyngás 13 | (780) Asjauparvei
garvegur
Sími: 535 9000 Simi: 567 2900 Sími: 535 9070 Sfmi: 565 5510
Simi: 461 5522 Sími: 421 7510 S
1244 Sími: 478 1490
MAKEDÓNÍUMENN LÍTT HRIFNIR AF VESTURLÖNDUM
Sérsveitir makedónísku lögreglunnar með albanska, bandaríska og evrópusambandsfán-
ann í Aracinovo en albanskir uppreisnarmenn voru reknir þaðan á mánudag.
Varað við ferðalögum til Makedóníu:
NATO undir-
býr aðgerðir
skopíe. ap. Bandaríkin, Þýskaland og
Bretland vöruðu í gær ríkisborgara
sína við því að ferðast tii Makedóniu.
Andúð gegn afskiptum Vesturlanda
hefur aukist í Makedóníu en slav-
neskir íbúar landsins segja þau draga
taum albanska minnihlutans. í yfir-
lýsingu bandaríska utanríkisráðu-
neytisins segir að bandarískir ibúar
landsins hafi orðið fyrir auknu áreiti
í kjölfar þessa.
Viðvörunin kemur nokkrum dög-
um eftir uppþotin i Skopje. Þau fyl-
gdu í kjölfar aðstoðar Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) sem hjálpaði til
við að leysa upp umsátur albanska
skæruliða um nágrannabæ Skopje.
NATO hélt í gær áfram undirbún-
ingi áætlunar um að senda 3.000
manna liðsstyrk til Makedóníu til að
aðstoða við afvopnun skæruliðanna.
Bandaiagið vonast til þess að aðildar-
ríki þess samþykki aðgerðina á
morgun. Að sögn embættismanns
sem ekki vildi láta nafn síns getið þá
verður ekkert gert nema algert
vopnahlé sé komið á i Makedóníu og
vilji makedónískra stjórnmálamanna
til friðsamlegra lausna á málinu liggi
ljós fyrir. ■
I RETTARSALNUM
Estrada (t.h.) og verjandi hans Andres Narvasa
Filippseyjar:
Estrada ákærður
manila. AP. Joseph Estrada, fyrrum
forseti Filippseyja, var í gær sakaður
um meinsæri, glæp sem getur varðað
allt að sex ára fangelsi. Þúsundir lög-
reglumanna voru í viðbragðsstöðu í
Manila en allt eins var búist við því
að óeirðir brytust út. Þær áhyggjur
voru þó ástæðulausar því eingöngu
nokkrir tugir manns mættu til að
mótmæla því að Estrada yrði dregin
fyrir dómstól.
Estrada var fluttur í réttarsal frá
herspítalanum þar sem hann hefur
dvalið. Réttarhöld í málinu hefjast 2.
ágúst. Kvikmyndastjarnan fyrrver-
andi er fyrsti forseti Filippseyja sem
ákærður er fyrir glæp. Honum var
steypt af stóli í janúar síðastliðnum.
Estrada brosti og veifaði er hann
kom að dómshúsinu, Hann var þó öllu
alvarlegri er hann hlýddi á dómar-
ann. Estrada neitaði því að svara
ákæruatriðum þannig að dómsstóll-
inn gerði það fyrir hans hönd og hélt
fram sakleysi hans.
Einungis tvær vikur eru þangað
til Estrada þarf að mæta fyrir rétti
næst en þá verður hann ákærður fyr-
ir að hafa dregið að sér fé og þegið
mútur í embættistíð sinn. ■