Fréttablaðið - 17.07.2001, Page 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
17. júlí 2001 ÞRIÐJUDAGUR
SPURNINC DACSINS
Hvað finnst þér um mál Árna
Johnsen?
Alveg hroðalegt og kannski meira barna-
legt. Bæði framkvæmdín upphaflega og
sfðan hvernig hann bregst við eftir hana.
Það er barnalegt hvernig hann hegðar sér
sem þingmaður, þó enginn krakki gæti hag-
að sér svona asnalega. Hann á bara að
fjúka af þingi, ég trúi ekki öðru en að Sjálf-
stæðisflokkurinn setji hann út, því þetta
hlýtur að stórspilla fyrir flokknum.
Örn Stefánsson ellilffeyrisþegi
Viðskipti byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins
við BM-Vallá:
Skilagjald
greitt á reikn-
ing Arna
stjórnsýlsa Stefán Baldursson,
Þjóðleikhússtjóri, fór í gær fram
á skrifleg svör frá BM-Vallá varð-
andi viðskipti Árna Johnsens við
fyrirtækið á undanförnum vikum
og mánuðum í nafni bygginga-
nefndar Þjóðleikhússins.
í svari fyrirtækisins, sem und-
irritað er af Guðmundi Benedikts-
syni forstjóra, segir að óðalsstein-
ar hafi verið pantaðir í reikning
byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins fyrir rúm 160 þúsund krónur
11. maí s.l. Sagt er að Árni hafi
sótt vörurnar og pantað utanað-
komandi vörubíl til að flytja þær.
Einnig kemur fram í svarinu að
vegna skila á umbúðum utan af
steinunum 28. maí s.l. hafi Árna
verið endurgreiddar 12 þúsund
krónur á sinn reikning.
„Það er mjög skýrt í stjórn-
sýslulegu skipuriti að það er
Framkvæmdasýsla ríkisins sem á
að annast allt reiknishald og eftir-
lit með framkvæmdum á vegum
byggingarnefndarinnar og við
treystum að ekkert færi úrskeið-
is,“ segir þjóðleikhússtjóri. Hann
vill ítreka að fjármál byggingar-
nefndarinnar eru aðskilin rekstri
Þjóðleikhússins.B
Forseti Alþingis vegna
Arna Johnsen:
Ríkisendur-
skoðun sent
bréf Gísla
stjórnmál „Ég veit lítið um þetta
mál nema þaö sem ég hef heyrt í
fréttum sem er stopult af því ég
hef verið í fríi,“ sagði Halldór
Blöndal, forseti Al-
þingis, spurður um
mál Árna Johnsen.
„Ég átti stuttan
fund með ríkisend-
urskoðanda og hef
sent honum bréf
Gísla Einarssonar
til meðferðar."
Aðspurður um
áhrif þinghelgi á
meðferð málsins,
sagði Halldór: „í 49. gr stjórnar-
skrár segir að meðan Alþingi er
að störfum megi ekki setja neinn
alþingismann í gæsluvarðhald eða
höfða mál á móti honum án sam-
þykkis þingsins nema hann sé
staðinn að glæp. Á hinn bóginn má
auðvitað rannsaka mál sem snerta
alþingismenn og hefur hvað eftir
annað verið gert. Dæmi eru um að
mál hefur verið höfðað gegn al-
þingismanni í þinghléi en nú er sú
breyting að Álþingi starfar allt
árið. Þá geta komið upp álitamál,
sem ég þori ekki að segja um að
óathuguðu máli.“ ■
Formaður Frjálslynda flokksins:
Gísli S. Einarsson vill Ama burt:
Þetta mál er gróf-
lega dapurlegt
stjórnmál Formaður Cy W|| að ég sleppi því, en þetta
Frjálslynda flokksins, fc ú* mál er gróflega dapur-
Sverrir Ilermannsson, K M legt. Fyrst að það er svo
sagði að rétt hefði verið K ■ að hann játar að hafa sagt
af Árna Johnsen að segja H -- H ósatt þá finnst mér það
af sér formennsku í bygg- eðlilegt að hann segi af
ingarnefnd Þjóðleiks- ÚÚ- sér. Allt er málið hið
hússins en vildi þó ekki tófeV.. vandræðalegasta og dap-
segja til um hvort rétt urlegasta," sagði Sverrir
væri af Árna að segja af vandræðalegt 0g bætti því við að hann
sér þingmennsku vegna Sverri pykv málið afar jgjjjj kurj myn(ju
málsins. van ræ aeg koma til grafar í stjórn-
„Það verða nógu margir til sýsluúttekt Alþingis á störfum
þess að dæma Árna Johnsen þótt nefndar. ■
Kallar á afsögn
stjórnmál Gísli S. Einarsson,
þingmaður Samfylkingarinnar og
nefndarmaður í fjárlaganefnd Al-
þingis, segir að Árni Johnsen eigi
að segja tafarlaust af sér og geri
hann það ekki eigi formaður þing-
flokks hans, Davíð Oddsson, að
óska eftir því að hann víkji sæti.
„Ef ég lenti í svipaðari stöðu
og hann væri ég búinn að segja af
mér og ef ég hefði ekki gert væri
formaður míns þingflokks búinn
að segja mér að víkja. Það gengur
ekki upp að Árni Johnsen segi
þjóðinni ósatt og taki vörur ófr-
jálsri hendi - það er þjófnaður,"
sagði Gísli.
Það ferli sem Gísli hefur nú
sett af stað innan stjórnkerfisins
- að óska eftir stjórnsýslu- og
bókhaldsúttekt á störfum bygg-
ingarnefndar Alþingis - getur
leitt til þess að Árni verður kærð-
ur fyrir þjófnað af ríkissaksókn-
ara.
„Virðingu Alþingis setur niður
við þetta og almenningur gerir
kröfu til þess að þingið hreinsi sig
af þessu hið fyrsta. Forsætisráð-
herra ætti að gefa yfirlýsingu
vegna málsins - bæði sem ráð-
herra og þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins - ekki sein-
na en í dag,“ sagði Gísli. ■
KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
„Málið lítur skelfilega út eins og það hefur
komið fram í fjölmiðlum," segir þingmaður
VG.
Rannsakar allar ,,snert-
ingar“ Arna við kerfið
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir rannsókn stofnunarinn-
ar, sem fram fer á málum Arna Johnsen, fyrstu rannsóknina sem bein-
ist sérstaklega að þingmanni.
RÍKISENDURSKOÐUN Rannsókn á
embættisfærslu Árna Johnsen er
fyrsta rannsókn Ríkisendurskoð-
unar sem beinist sérstaklega að
þingmanni. Halldór Blöndal for-
seti Alþingis sendi ríkisendur-
skoðenda beiðni Gísla S. Einars-
son um úttekt á stjórnsýslu og
bókhaldi byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins án frekari fyrirmæla.
í framhaldi af þvi ákvað Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi að
efnt yrði til rannsóknar á embætt-
isfærslu Árna Johnsen sem for-
manns byggingarnefndar. „Við
höfum tekið sjálfstæða ákvörðun
um rannsókn og munum kanna
allt sem lýtur að bygginganefnd-
inni og það sem upp kann að koma
eftir því sem rannsókninni vindur
fram“, sagði Sigurður Þórðarson.
„Við munum kanna allar snerting-
ar þingmannsins við opinbera
kerfið, ef svo má segja, og að
sjálfsögðu taka viðtöl við fólk og
ráðamenn."
Mál sem snerta embættis-
færslu og fjárreiður hjá stofnun-
um á vegum ríkisins eru eitt til
þrjú á ári til jafnaðar. Þeim lýkur
annað hvort með því að viðkom-
andi starfsmaður hættir og greið-
ir til baka það sem hann hefur
misfarið með, ef um minniháttar
upphæðir er að tefla, en sé stór-
fellt misferli á ferðinni er málum
vísað frá Ríkisendurskoðun til
lögreglurannsóknar. Stærsta mál-
ið sem Ríkisendurskoðun hefur
fengið til meðferðar á síðustu
árum var Landsbankamálið svo-
kallaða þar sem bankastjórar
voru sakaðir um að hafa gefið
rangar og villandi upplýsingar. ■
Kolbrún Halldórsdóttir:
Öllum
steinum
verði velt
stjórnmál „Það er dapurlegt að
fyrstu viðbrögð þingmannsins
skuli hafa verið að segja ósatt.
Maður er dapur yfir því að einn
svartur sauður skaðar heildarí-
myndina," segir Kolbrún Hall-
dórsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna, um fréttir af embættis-
ráðstöfunum Árna Johnsen. Hún
bendir á að hann hafi í áraraðir
sinnt mörgum ábyrgðarstöðum á
vegum þings og ríkisstjórna og
notið víðtæks trúnaðar æðstu
ráðamanna.
„Þeir sem treysta þingmanni
fyrir störfum af þessu tagi ættu
að vera fyrstir til að fara fram á
að hann geri reikningsskil, öllum
steinum verði velt við í orðsins
fyllstu merkingu" segir Kolbrún,
á þar við meðal annars við Davíð
Oddsson, forsætisráðherra, og
Björn Bjarnason, menntamálaráð-
herra. „Því má heldur ekki gley-
ma að um er að ræða fyrsta þing-
mann Suðurlands. Einnig er at-
hyglisvert að útboðsreglum skuli
ekki vera fylgt,“ segir Kolbrún. ■
Vestmannaeyjar:
Bæjarbú-
ar slegnir
stjórnmál Sigrún Sigurgeirsdóttir
forseti bæjarstjórnar í Vest-
mannaeyjabæ segir að bæjarbúar
séu slegnir yfir máli Árna John-
sen þingmanns. Svo væri einnig
þótt aðrir ættu í hlut. Hún telur að
þetta mál muni eflaust bera á
góma meðal sjálfstæðismanna í
bæjarpólitíkinni í Eyjum. Að öðru
leyti vildu hún ekki tjá sig um
þetta mál.
Eyjamenn eru nokkuð varkárir
í umfjöllun sinni um málefni þing-
mannsins á meðan niðurstaða
liggur ekki fyrir í þeirri opinberu
rannsókn sem búið er að fara
fram á. Sumir hverjir viðurkenna
þó að þeir séu heldur aumir yfir
VESTMAN N AEYJAR
Margir sjálfstæðismenn I Eyjum eru heldur
aumir yfir því hvernig komið er fyrir þing-
manni þeirra Árna Johnsen.
öllum þeim álitshnekki sem Árni
hefur orðið fyrir í þessu máli.
Meðal stuðningsmanna Árna er
talað um málið hafi þróast á mjög
alvarlegt stig þegar Ijóst var að
hann hafði sagt ósatt um steina
Þjóðleikhússins sem hann notaði í
eigin þágu. ■
Fyrsti varaþingmaður Árna:
Sallarólegur og nóg
að gera í garðyrkju
stjórnmál Kjartan Ólafsson for-
maður Samtaka garðyrkjubænda
er fyrsti varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi og
sá sem mundi taka sæti Árna
Johnsen á Alþingi ef mál skyldu
þróast með þeim hætti að Árni
yrði að láta af þingstörfum. Kjart-
an segist ekkert vera farinn að
huga að hugsanlegri þingsetu,
enda segist hann hafa alveg nóg
að gera og hugsa í starfi sínu sem
garðyrkjubóndi. Hann segist því
persónulega vera alveg sallaró-
legur og því ekki með neinn æðu-
bunugang út af því.
Hann segist hins vegar ekkert
geta tjáð sig um málefni Árna og
ber við að hann hafi lítið getað fyl-
gst með því.
Hann leggur þó
áherslu á að
það verði upp-
lvst sem fyrst.
Á meðan niður-
staða sé ekki
komin í þá
rannsókn sé
ekki hægt að
vera með ein-
hverja dóma.
Aftur á móti sé
því ekki að
leyna að þetta
hefði komið sér á óvart. Þá sé við-
búið að flokksmenn muni ráða
ráðum sínum þegar öll kurl verða
komin til grafar í þessu máli. ■
KJARTAN ÓLAFS-
SON
Segist ekkert vera
farinn að huga að
hugsanlegri þingsetu