Fréttablaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 MIÐVIKUPAGUR
SPURNINC DACSINS
Finnst þér réttlætanlegt
að heimila marjúana í
læknisfræðilegum tilgangi?
Já ég er hlynnt þvf. Ópíum og ýmis kanna-
bisefni hafa lengi verið notuð í læknis-
fræðilegum tilgangi og síðan var þetta
bannað eftir heimsstyrjöld, þegar farið var
að skilgreina þetta sem eiturlyf. Það er nóg
framleitt af þessu, mörg lönd velta milljörð-
um á því að framleiða þetta og fyrst hægt
er að nota þetta i þessum tilgangi þá því
ekki að gera það?
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir vinnur hjá Markaðsnetinu
Morgunblaðið og
Skjár Einn:
Fréttamönn-
um sagt upp
fjölmiðlar „Við höfum tekið
ákvörðun um að ráða ekki í þær
stöður sem losna. Svo erum við að
íhuga fleiri uppsagnir en það er
ekki endanlega frágengið," sagði
Hallgrímur Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Árvakurs, sem gef-
ur út Morgunblaðið. Hann sagði
þetta snerta flestar deildir blaðs-
ins en ritstjórnin sé sú stærsta og
útgjaldafrekasta.
„Rekstrargjöldin hafa aukist,
bæði í kjölfar kjarasamninga og
lækkun krónunnar, og tekjuaukn-
ingin hefur ekki fylgt þessu. Þar
hefur helst orðið samdráttur í
auglýsingatekjum,“ sagði Hall-
grímur um ástæður þessara að-
gerða.
„Það var öllum fréttamönnum
sagt upp störfum frá og með deg-
inum í dag á fundi með fjármála-
og sjónvarpsstjóra Skjás Eins,“
sagði Sólveig Kr. Bergmann,
fréttastjóri stöðvarinnar, í gær.
Hún sagði að samningaviðræður
væru við aðra miðla um fréttaöfl-
un og lestur í fréttatíma Skjás
Eins. Engin frekari fréttavinnsla
verði á stöðinni. ■
—♦—
20% samdráttur í sölu
geisladiska í Danmörku:
Ekki
sama hér
TÓNLIST Ekki má búast við miklum
samdrætti í sölu á geisladiskum á
þessu ári segir Steinar Berg, for-
stöðumaður tónlistardeildar Skíf-
unnar. I Danmörku var sala á
geisladiskum 20%
minni á fyrri helm-
ingi ársins í ár en á
sama tíma í fyrra og
telja talsmenn út-
gáfuaðila í samtali
við Berlingske
tidende það einkum
vera vegna aukn-
ingar í afritun á
diskum og niður-
hleðslu tónlistar af
Netinu.
Steinar bendir á
að sölutölur liggi
enn ekki fyrir. Hans
tilfinning sé að e.t.v.
hafi dregið úr sölu á
fyrrihluta ársins en sölutölur séu
ekki marktækar fyrr en í árslok.
„Það er von á gríðarlega sterkum
plötum með haustinu sem hafa
munu áhrif á heildarsöluna,“ segir
Steinar sem telur ekki líklegt að ný
tækni eigi eftir að hafa mikil áhrif
á sölu tónlistar í heildina. „Þetta
eru að sumu leyti svipaðar raddir
og heyrðust þegar kassetturnar
komu á markaðinn." Steinar segir
að vissulega séu sveiflur á tónlist-
armarkaðinum. „Það seldist minna
af tónlist á síðasta ári en árið á
undan. Það skýrist hins vegar að
mínu mati af því að í fyrra voru
engar mjög sterkar íslenskar plöt-
ur á markaðnum, sölulega séð.“ ■
STEINAR
8ERG
„Það er von á
gríðarlega sterk-
um plötum
með haustinu
sem hafa munu
áhrif á heildar-
söluna."
Bandarísk rannsókn:
Gamalmenni misnotuð á 1
af hverjum 3 elliheimilum
heilsa. Bandarískir vísindamenn,
sem á vegum stjórnvalda rann-
sökuðu líkamlegt og kynferðis-
legt ofbeldi á elliheimilum í tvö
ár, fundu út að í meira en 10 þús-
und tilfellum á meira en þriðjungi
elliheimila í landinu, átti slíkt of-
beldi sér stað. í skýrslunni sem
birt var í gær kemur í ljós að til-
kynningar um alvarlegt líkam-
legt, kynferðislegt og andlegt of-
beldi voru fjölmargar á tímabil-
inu. Á meðal þess sem íbúarnir á
elliheimilunum kvörtuðu undan
var legusár sem það fékk enga
meðferð við, léleg heilsugæsla,
vannæring, slys sem hefði verið
hægt að koma í veg fyrir og slæm
hreinlætisaðstaða.
í 1.601 tilfelli olli hin slæma
meðferð því að íbúarnir lentu í
mikilli lífshættu eða hættu á að
slasast alvarlega.
„Þetta eru sláandi niðurstöð-
ur,“ sagði Henry Waxman, leið-
togi nefndarinnar sem hafði um-
sjón með rannsókninni, í viðtali á
fréttavef ABC.
í sumum tilfellum voru starfs-
menn á elliheimilunum sakaðir
um líkamlega eða kynferðislega
misnotkun og í öðrum var starfs-
liðið sakað um að hafa ekki
verndað fólk nægjanlega vel frá
ofbeldi sem þeir voru beittir af
öðrum íbúum. ■
LÖGRECLUFRÉTTIR
Lögreglan á Siglufirði sagði ró-
legt yfir öllum og fólk vera að
búa sig undir næstu helgi en þar
verður útihátíðin Síldarævintýrið
haldið. Sagði talsmaður lögregl-
unnar aukinn mannskap bætast
við lögregluliðið því gert er ráð
fyrir auknum umsvifum. Sagði
hann forsvarsmann hátíðarinnar
bjartsýna á þátttökufjölda en á
síðasta ári komu í kringum þrjú
þúsund manns á hátíðina.
—♦—
Lögreglan í Vík hafði afskipti
af ökumann í fyrrinótt grun-
aðan uni ölvun við akstur. Þá
slitnaði háspennukapall í fyrra-
kvöld og var rafmagnslaust í
Landbroti og í Meðallandi í um
tvo tíma. Hafði bílpallur rekist í
línuna sem slitnaði við álagið.
S S slátrar sem aldrei fyrr
SS býr sig nú undir að slátra 50 prósent meira heldur en áður. Mun ekki hafa áhrif á gjaldskrá
okkar, segir framleiðslustjóri SS. Segja bændur hafa staðið við bakið á SS og það við bak þeirra.
AUKIÐ FRAMBOÐ
Sláturfélag Suðurlands ætlar að auka slátrun hjá fyrirtækinu um allt að 50 prósent og er það tilkomið vegna þess að fjöldi bænda neitar að slátra hjá Goði. Þessi aukning mun þýða að
sláturtíðin verður lengd fram í desember og fjöldi sláturfjárs hjá SS verður um 150 þúsund.
lanpbúnaður Sláturfélag Suður-
lands býr sig nú undir 50 prósent
aukningu í slátrun frá því í fyrra
og er það vegna þess að fjöldi
bænda mun ekki ætla að slátra
sínu fé hjá Goða. Undanfarið
hefur styr staðið um rekstur
Goða og bændur eru æfir vegna
þess að Goði býður þeim verð 15
og 25 prósentum undir viðmiðun-
arverði; getur ekki greitt fyrir
innlagða dilka fyrr en í janúar og
október á næsta ári.
Sláturfélag Suðurlands býst
við því að taka inn til sín fleiri
dilka frá þeirra starfssvæði, en
það nær frá Lómagnúpi í austri
að Hvítá í Borgarfirði.
„Við höfum verið að sækja fé
vestur í Dali og væntanlega kom-
um við til með að sækja fé í Ör-
æfasveit austan Skeiðarársands.
Það er þó alveg ljóst að við ráð-
um aldrei við að slátra öllu því fé
sem að Goði hefur verið að slátra
á landsvísu," sagði Guðmundur
Svavarsson, framleiðslustjóri
hjá Sláturfélaginu. Hann bætti
því við að þó svo að fyrirtækið
ætlaði að taka til sín meira slát-
urfé en áður myndi fyrirtækið
hækka verð sitt til bænda á milli
ára.
Aðspurður af hverju Sláturfé-
lagið gæti boðið betra verð en
Goði svaraði Guðmundur því til
að Sláturfélagið væri vel rekið
fyrirtæki og það hefði fram-
kvæmt ákveðnar skipulagsbreyt-
ingar á sínum sláturhúsum fyrir
nokkrum árum.
„Við erum vel fjárhagslega
stæðir og bændur hafa staðið vel
við bakið á okkur og við við bak-
ið á bændum. Við erum ekki að
kaupa dilkinn of háu verði. Verð-
ið ræðst af því verði sem við
fáum fyrir afurðirnar í smá-
sölu,' agði Guðmundur.
Sláti un er hafin hjá Sláturfé-
laginu og mun fyrirtækið slátra
12-14 þúsund fjár í ágúst. í sept-
ember mun fyrirtækið hefja
slátrun 10 til 20 dögum fyrr en
verið hefur. Þannig mun fyrir-
tækið lengja sláturtíðina umtals-
vert og verður einnig slátrað í
nóvember og desember eftir
þörfum.
omarr@frettabladid.is
Verslunarmannahelgin:
Flestir til Eyja og á Eldborg
VERSLUNARMANNAHELGIN Útihátíðir
eru haldnar víðs vegar um landið
um næstu helgi. Má telja víst að
langmesta aðsóknin verði á Þjóð-
hátíðina í Vestmannaeyjum og á
útihátíðina Eldborg. Samkvæmt
upplýsingum frá mótshöldurum
Eldborgar fór forsala miða á Eld-
borgarhátíðina langt fram úr
björtustu vonum en um 3200 mið-
ar hafa verið seldir í forsölu á Vis-
ir.is.
Að sögn starfsmanns Bifreið-
arstöðvar íslands, sem sjá um að
selja pakkaferðir til Eyja með
Herjólfi, er næstum uppselt í
ferðir bæði fimmtudag og föstu-
dag og mikið um fyrirspurnir um
ferðir á Eldborgarhátíðina.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugfélagi íslands er uppselt í
margar áætlaðar ferðir til Vest-
FRÁ ÞJÓÐHÁTÍÐ f EYJUM
Telja má nokkuð Ijós að mesta aðsóknin verði til Eyja og á Eldborg.
mannaeyja en að sögn talsmanns skylduhátíðin Ein með öllu verður
Flugfélagsins hefur mikið verið haldin og stöðug aukning sé á
pantað til Akureyrar þar sem fjöl- pöntunum á flugi til Egilsstaða. ■
Vestmannaeyjar:
Fjórir
handteknir
lögreglumál Lögreglan í Vest-
mannaeyjum handtók fjóra menn
í fyrrinótt grunaða um fíkniefna-
misferli. Við húsleit fundust hjá
mönnunum nítján e-töflur, eitt
gramm af amfetamíni, tvö grömm
af hassi og ýmis áhöld til fíkni-
efnaneyslu. Einnig fundust við
sömu húsleit vopn og má þar telja
rafmagnskylfu, byssur, hnífa og
sverð.
Að sögn talsmanns lögreglunn-
ar voru gerðar tvær húsleitir
þessa sömu nótt í kjölfar undan-
genginnar rannsóknar á mönnun-
um. Þrír þeirra gista nú fanga-
geymslur lögreglunnar og bíða
þess að verða yfirheyrðii’.
Talsverður ófriður var í Eyjum
í fyrrinótt en mikið var um ölvun
og óspektir. ■