Fréttablaðið - 01.08.2001, Síða 7
MIÐViKUDACUR 1. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Guðmundur Halldórsson á Bolungarvík:
Gegn öllum
miðlunartillögum
SMÁBÁTAR „Mér líst mjög illa á
þetta,“ segir Guðmundur Hall-
dórsson, formaður Eldingar á
Bolungarvík, og á þar við miðlun-
artillögur Árna Mathiesens um
frjálsa steinbítsveiði á næsta
fiskveiðiári og aukningu á ýsu-
kvóta um 1.800 tonn. Hann segir
hefð hafa myndast um frestun
gildistöku laganna um kvótasetn-
ingu smábáta. Menn hafi verið
farnir að miða fjárfestingar sín-
ar við óbreytt ástand, en með
gildistöku verði fótunum kippt
undan strandbyggðum um allt
land.
„Varðandi frjálsar stein-
bítsveiðar þá vitum við að menn
hafa verið að landa tómum hæng
og eyðileggja með því hrygning-
arslóðina," segir Guðmundur og
bendir á að Fiskistofa fylgist
ekkert með og dæmi séu um eyði-
leggingu stofna vegna slíkra
veiða. Þá gefur Guðmundur lítið
fyrir miðlunartillöguna sem lýt-
ur að auknum ýsuafla. „Árni er
að tala um að bæta við 1.800
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON
Það er Ijóst að kvótakerfið hefur reynst
okkur illa. Við erum að veiða minna nú en
fyrir 17 árum, segir formaður Eldingar á
Bolungarvík.
tonna kvóta en það yrði samt sem
áður 100% aflaniðurskurður frá
því sem verið hefur i ýsunni. Það
er verið að tala um að afskrifa
landsbyggðina með svokölluðum
miðlunartillögum," segir
Guðmundur. ■
stjórnmál Eftirlaun Árna
hækka á hverjum degi þar
sem hann hefur ekki sagt af
sér enn þá. Árni hefur setið
á þingi í samtals 14 ár, fyrst
frá 1983 til 1987 og svo frá
1991 til dagsins í dag. Sam-
kvæmt lögum um eftirlaun
þingmanna skulu þingmenn
fá 40 prósent af þingfarar-
kaupi sínu eftir að hafa set-
ið á Alþingi í 12 ár eða
129.600 krónur af 324.000
króna þingfararkaupi.
„Eftir 12 ár fá menn 40
prósent af þingfararkaupi
en eftir 15 ár fá menn 50
prósent. Falli menn þarna
Á hverjum degi
hækka eftirlaun
Árna þannig að
því lengur sem
hann dregur að
segja af sér, því
meira hefur
hann i eftírlaun.
hvers staðar á milli er það
reiknað hlutfallslega,“
sagði Karl Kristjánsson,
fjármálastjóri Alþingis.
Bíði Árni með það að
segja af sér til dagsins í dag
mun hann einnig fá laun
fyrir ágústmánuð en sam-
kvæmt lögum um laun þing-
manna greiðist þingfara-
kaup mánuði fram í tímann.
Ákveði Árni að bíða með að
segja af sér fram í janúar
mun hann hækka eftirlaun-
in sín um 10 prósent sem
þýðir að hann muni fá
162.000 krónur á mánuði frá
ein- 65 ára aldri.
Eftirlaun Árna Johnsen:
Hækka á hverjum degi
Ekkert að frjálsum steinbítsveiðum
Skil ekki afstöðu þeirra Vestfirðinga sem hafa brugðist ókvæða við þessu, segir Kristinn Pétursson á Bakkafirði. Einfalt að
leysa málið með svæðalokunum. Sú staðreynd að Hafró hefur týnt 600.000 tonnum af þorski á tveimur árum ætti að gefa
stjórnvöldum nægt tilefni til að flýta sér hægt í kvótasetningu smábáta.
smábátar „Ég er á þeirri skoðun að
betra væri að fresta gildistöku
laga um kvótasetningu smábáta
að sinni,“ segir Kristinn Péturs-
son, framkvæmdastjóri Gunnólfs
á Bakkafirði og fyrrverandi al-
þingismaður, og tekur fram að
einu faglegu og vitrænu rökin í
málinu séu að engin ástæða sé til
að skella á kvótakerfi sem byggist
á röngum upplýsingum frá Haf-
rannsóknarstofnun. Stærra málið
sé að kvótakerfið hafi í heild sinni
brugðist hvað varðar uppbygg-
ingu fiskistofna og þVí engin
ástæða til að hlaupa upp til handa
og fóta núna varðandi kvótasetn-
ingu smábáta. Hann bendir á að
enginn viti hvað muni koma út úr
MW' M KRISTINN PÉTURSSON
fiskveiðistjórnun síðustu ára byggir á vísindalegum kenningum sem
m, . H hafa reynst hæpnar. Timi er kominn á aðrar aðferðir, segir fram-
B||i I' H kvæmdastjóri Gunnólfs á Bakkafirði.
þeirri endurskoðun sem nú fer sem gefi sér niðurstöðuna fyrir-
fram á vinnuaðferðum Hafró, fram.
nema ef vera skyldi einhverjir „Hafró hefur nýlega týnt
600.000 tonnum þorski og það er
aðalatriði þessa máls. Þeir hafa
farið með rangt mál og stefna þeir-
ra hefur mistekist. Af þeirri
ástæðu einni er full ástæða til að
fresta gildistökunni," segir Krist-
inn.
Þá segist hann segist ekki skilja
kollega sína á Vestfjörðum sem
talað hafa gegn frelsi í stein-
bítsveiðum á næsta fiskveiðiári.
Einstrengingsleg afstaða þeirra í
málinu hjálpi ekki málstað þeirra
gegn kvótakerfinu.
„Ég hef oft verið sammála mál-
flutningi Vestfirðinga, en ég skil
ekki afstöðu þeirra varðandi stein-
bítinn, þeir ættu að þakka fyrir
þetta. Þeir eru að tala um að þeir
vilji ekki það sem þeir vilja þegar
þeir fá þetta upp í hendurnar," seg-
ir Kristinn, en setur þann fyrir-
vara að beita verði svæðalokunum
þar sem það eigi við, enda sé sú að-
ferð sé betur fallin til fiskveiði-
stjórnunar á grunnslóð heldur en
kvótakerfið. „Það er hugsanlega
hægt að ganga nærri steinbítnum
með einlægum ásetningi þar að
lútandi, en auðvelt væri að koma í
veg fyrir það með svæðalokun-
um,“ segir hann og spyr að lokum:
„Af hverju eigum við að taka
ákvarðanir núna rétt áður en nið-
urstöður koma úr endurskoðun
Hafró sem gætu breytt forsendum
sem áður lagu til grundvallar?"
mattiafrettabladid.is
UTSALA
UtsöluDAGAR
Merkjavara og tískufatnaður á
Verðdæmi
Bull Boxer
X-18
Noname
Destroy
Bassotto
skór
sandalar
skór
skór
skór
Levis
Diesel
Amazing
Morgan
Kookai
Kookai
In Wear
Matinique
oakkaföt
Draktir
gallabuxur 3.500
gallabuxur 3.500
gallabuxur 1.900
skyrtur 1.900
toppar 990
bolir 1.900
jakkar 5.900
bolir 990
12.500
5.800
Gerðu góð kaup!
OUTLET
Opið
mán. - fös. 12-18
laugardag 11-16
FAXAFEN110
Ekki er greitt fyrir ódýrustu flíkina