Fréttablaðið - 01.08.2001, Síða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
Friðrik Þór Guðmundsson:
Steinar í götu
rannsóknar
skerjafjarðarslysid Að sögn Friðriks
Þórs Guðmundssonar hefur það tafið
starf erlendu sérfræðinganna frá
Cranfield sem nú eru að rannsaka
flugslysið í Skerjafirði að skort hefur
á samstarfsvilja hérlendra aðila.
„Rannsókninni miðar ágætlega ef frá
er talin tregða sem upp er komin frá
hendi flugslysanefndarinnar og Flug-
málastjórnar að eiga við Bretana
snurðulausa samvinnu þrátt fyrir lof-
orð ráðherra um annað. Meðal annars
virðast flugslysanefndin hér á landi
hafa sigað norrænum kollegum sín-
um á þá Frank Taylor og Bernie
Forward sem annast rannsóknina, að
því er ég tel í því skyni að hindra þá í
störfum," segir Friðrik. ■
FÓRNARLAMBS MINNST
Vínkona Cavin Bretts, sem talið er að hryðju-
verkamenn úr hópi mótmaelanda hafi myrt,
leggur blóm að staðnum þar sem hann var
myrtur á mánudag. Brett var 18 ára.
Oeirðir á Norður-Irlandi:
Öfgafullir
mótmælend-
ur ábyrgir
belfast. ap. David Ti’imble, leiðtogi
Sambandsinna Ulster á Norður-ír-
landi, segir öfgafulla mótmælend-
ur bera ábyrgð á óeirðum í
Belfast undanfarna daga. Þeir séu
að reyna að koma í veg fyrir að
írski lýðveldisherinn, IRA, hefji
afvopnun, sem er eitt skilyrða
friðarsamkomulags á Norður-ír-
landi.
Slagsmál brutust út í fyrrinótt
á milli kaþólskra íbúa og mótmæl-
enda í norður Belfast. íbúar hver-
fa andstæðra fylkinga kenna
hvorir öðrum um átök undanfar-
inna daga í Belfast. „Við getum
ekki haldið áfram svona. Börnin
eru ekki örugg,“ sagði Jean Coult-
er, íbúi í hverfi mótmælenda.
Fulltrúar lögreglu og breskra
stjórnvalda héldu viðræðum um
lausn á óeirðum á götum Belfast
áfram í dag. Á morgun er búist
við því að lögð verði fram tillaga
Breta og íra um hvernig vernda
megi friðarsamkomulagið á N-ír-
landi en það hefur verið í hættu
síðan David Trimble sagði emb-
ætti sínu sem forsætisráðherra
lausu, vegna tafa IRA á því að
uppfylla skilmála friðarsam-
komulagsins. ■
Frakkland:
Atvinnu-
leysi eykst
parís. ap. Atvinnuleysi jókst um
tæp 9% í Frakklandi í júní ,fór úr
0,1% í 8,8%. í>að er mesta aukn-
ing í nær þrjú ár og þykir benda
til þess að minnkandi hagvöxtur
muni skila sér út í atvinnulífið.
Tölurnar birtast á slæmum
tíma fyrir Lionel Jospin, forsæt-
isráðherra, sem ætlar sér að
vinna forsetakosningarnar á
næsta ári með því að vísa f gott
efnahagsástand. Hagfræðingar
segja að búast hafi mátt við
hækkuninni, vinnumarkaðurinn
hafi átt eftir að laga sig að snar-
minnkandi atvinnuleysi í Frakk-
landi undanfarin tvö ár. ■
Indland:
Vajpayee dregur
afsögn til baka
nýja delhi. ap. Atal Bihari Vajpayee,
forsætisráðherra Indlands, bauðst í
gær til að segja embætti sínu lausu
vegna erfiðleika í samstarfi ríkis-
stjórnarflokkanna. Að sögn þing-
málaráðherrans, Pramod Mahajan,
sannfærðu þungavigtarmenn í flokki
Vajpayees, Bharatiya flokknum, hann
um að draga afsögn sína til baka.
Þrýstingur hefur aukist á forsæt-
isráðherrann undanfarna daga. Ráð-
herrar í ríkisstjórn hans og starfsfólk
hans hefur verið sakað um að bera
beina ábyrgð á fjárhagskröggum
stærsta opinbera sjóðs Indlands. Þar
fyrir utan hefur árangursleysi við-
ræðna Vajpayees og forseta Pakistan
verið harðlega gagnrýnt.
Mahajan sagði þó að málefni
sjóðsins, United Trust of India, hefðu
ekki borið á góma. Fyrr í mánuðinum
voru stjórnarformaður og tveir fram-
kvæmdastjórar sjóðsins handteknir.
Meðlimir í samstarfsflokki Vajpa-
yees í ríkisstjórn, Shiv Sena flokkn-
um, hafa sakað starfsmenn forsætis-
ráðherrans um að hafa átt þátt í
slæmum fjárfestingum sjóðsins. ■
Hagkaupsfjöl-
skyldan áberandi
Eiríkur Sigurðsson fyrrverandi eigandi 10-11
greiðir hæstu gjöldin yfir landið. Ekkja Pálma í
Hagkaup efst í Reykjavík og börn hennar og
tengdabörn ofarlega á listum. Eigendur báta
og kvóta eir
skattar Skattakóngur íslands
þetta árið er Eiríkur Sigurðsson
kaupmaður á Seltjarnarnesi og
fyrrverandi eigandi 10-11 keðj-
unnar. Opinber gjöld hans fyrir
síðasta ár eru rúmar 93 milljónir
króna sem að mestu eru til komin
vegna söluhagnaðar. Hagkaups-
fjölskyldan er áberandi meðal
hæstu skattgreiðenda. Skatta-
drottning Reykjavíkur er Jónína
5. Gísladóttir ekkja Pálma Jóns-
sonar í Hagkaup. Jónína greiðir
rúmar 37 milljónir í opinber gjöld.
Börn hennar og tengdabörn eru
áberandi á listum yfir hæstu
skattgreiðendur. Ingibjörg S.
Pálmadóttir er áttundi hæsti
skattgreiðandi í Reykjavík með
tæpar 15 milljónir í opinber gjöld.
Bróðir hennar Jón Pálmason er í
6. sæti á Reykjanesi með um 13
milljónir í opinber gjöld. Hjónin
Lilja S. Pálmadóttir og Baltasar
Kormákur eru meðal hæstu greið-
enda sérstaks eignaskatts með
tæpar 10 milljónir samtals. Sig-
urður Gísli Pálmason og kona
hans Guðmunda H Þórisdóttir
greiða einnig níu og hálfa milljón
í sérstakan tekjuskatt.
lig áberandi
Greiðendur hæstu gjalda eru
flestir búsettir á Suð-vesturhorn-
inu, en í fimmta sæti á landslist-
anum er Kristjana Ólafsdóttir á
ísafirði. Kristjana er 84 ára göm-
ul og langhæsti skattgreiðandi á
Vestfjörðum. Skattar hennar eru
einkum vegna sölu rækjubáts á
síðasta ári. Fyrir utan kaupsýslu-
fólk og eigendur fasteigna er
fólk sem tengist útgerð ofarlega
á listum skattstjóranna. Næst
hæsti skattgreiðandi landsins er
Benóný Þórhallsson í Grindavík
sem gerir út tvo báta en greiðsla
hans í opinbera sjóði nemur 53
milljónum. Einkum er um að
ræða söluhagnað vegna sölu báts
og kvóta. í fjórða sæti á landinu
er rúmlega fertug kona í Hafnar-
firði Sólveig Edda Bjarnadóttir
en hún tengist útgerð á Höfn í
Hornafirði. Hún greiðir um 30
milljónir í opinber gjöld.
í áttunda sæti á Reykjanesi er
Steindór Haarde, verkfræðingur,
en hann greiði bróður sínum
Geir Haarde fjármálaráðherra
tæpar 12 milljónir til vörslu í
sameiginlegum sjóðum lands-
manna. ■
Hæstir á Reykjanesi:
20m
30m
40m
50m
70m
90m 100m
BrAifl* SistPísíwi faatOTurmii
8onq NtUknA anrafat*
Eiríkur Sigurðsson, kaupmaður
Hann er fyrrverandi eigandi 10-11 búðanna
og greiðir langhæstu opinberu gjöldin þetta
áriö.
Sólveig Blda Bjarnadótdr, Halnardröi
Hafstelnn E. Ingólfsson, Reyhjanesbæ
Steinunn Pétursdóttir, Képavegi
Jén Pálmason, Garöabæ
Sigríöur H, Magnúsdéttir, Garðabæ
Stelndór Haarde, Seltjarnarnesl
Sigvaldi G. Jénsson, Reykj
Guömundur Ragnarsson.Seltjarnarnesi
Hæstir í Reykjaík:
Ericsson, R320 Wap
• Wap vatri
• Ending rafhlöðu.
allt að 160 klst. í bið.
allt að 7 klst. í tali.
INIOKIA
• Þyngd 133 grömm
• 100 númera minni í stmaskrá.
• Raddstýring, titrari, klukka.
• Wap 1.1, SMS chat.
• Allt aö 3x lengri SMS texti ofl.
Ericsson T28
• 900 & 1800 Mhz sem gengur í US
• Þyngd 83 gr. 97 x 50 x 15 cm
• 50 klst í biö & 2 klst í tali
• Styöur VIT
• Klukka, vekjari, skeiðklukka.
SIEMENS
Siemens S35
• Wap
• Titrari
• Dual band
• Lithium rafhlaöa
111
[GERIfí
NÝJAN