Fréttablaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 IVIIÐVIKUPAGUR
Arsenal á æfingaferðalagi á Ítalíu:
Campbell til í slaginn
Philadelpliia Gharge:
Rakel lék
allan leikinn
KNflTTSPYRNA Lið
Rakelar Ögmunds-
dóttur og Margrét-
ar Ólafsdóttur,
Philadelphia
Charge, sigraði í
fyrrinótt New York
Power með tveimur
mörkum gegn einu.
Rakel spilaði allan leikinn en á 74.
mínútu kom Margréti inn á völl-
inn sem varamaður. Sigurinn var
tæpur hjá Charge, seinna markið
kom á lokamínútu leiksins.
Charge er nú í þriðja sæti WUSA-
deildarinnar með 27 stig. ■
knattspyrna Sol Campbell varnar-
maður Arsenal segist vera til í
slaginn fyrir komandi átök í ensku
úrvalsdeildinni eftir að hafa leikið
sinn fyrsta leik fyrir Lundúnarliðið
í æfingaleik gegn Real Mallorca.
Campbell, sem spilaði áður með
Tottenham, kom inná í stað Igors
Stepanovs þegar tíu mínútur voru
eftir og sagðist vera að ná fyrra
formi.
„Ég hlakka til að spila aftur í
þessari viku (gegn Roma). Ég hef
jafnað mig á ökklameiðslum sem
hafa hrjáð mig en ég þarf aðeins
meiri tíma til að aðlagast nýjum
samherjum mínum,“ sagði Camp-
bell eftir leikinn sem enska liðið
vann með tveimur mörkum gegn
engu. „Það er mikill titringur í
kringum Meistaradeild Evrópu og
ég hlakka til að takast á við nýjar
áskoranir."
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
sagði að Campbell myndi spila
gegn ítölsku meisturnum í vikunni
og undirstrikaði það hvers vegna
varnarmaðurinn snjalli hefði valið
Arsenal.
„Sol er mjög metnaðarfullur
leikmaður sem gekk til liðs við okk-
ur vegna knattspyrnunnar. Það var
mikill léttir fyrir hann að spila loks
með okkur,“ sagði Wenger sem var
mjög ánægður með sigur sinna
manna. Fatith Akyel varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark en það
var svo Giovanni van Bronckhorst
sem innsiglaði sigurinn með sínu
fyrsta marki fyrir liðið.
Arsenal mætir Middlesbrough
þann 18. ágúst á Riverside leik-
vanginum. ■
CÓÐIR
Sol Campbell og Thierry Henry leikmenn
Arsenal í æfingabúðum á Italíu. Það mun
mikið mæða á þeim þegar enska ún/als-
deildin hefst.
Real Madrid:
Um 200
m.kr. hurfu
knattspyrna Endurskoðandaskrif-
stofa, sem grandskoðaði skulda-
stöðu spænska knattspyrnuliðs-
ins Real Madrid, komst að því að í
stjórnartíð Lorenzo Sanz hurfu
um 200 milljónir króna. Flor-
entino Perez formaður sagði að
hvergi væri að finna kvittanir eða
útskýringar á eyðslu þessarar
upphæðar.
„Ég vil ekki segja að þessir
peningar hafi verið misnotaðir en
við viljum komast að því í hvað
þessir peningar voru notaðir,"
sagði Perez. Fjórðungur þessarar
upphæðar er gróði vegna leikja
árið 1998, þegar Real vann Meist-
aradeild Evrópu í áttunda skipti.
Spænska dagblaðið E1 Pais sagði í
gær að félagið hefði stórskaddast
í stjórnartíð Sanz og hefði nánast
riðað til falls. Sanz vill ekki tjá sig
um málið fyrr en hann er búinn
að skoða skýrslu endurskoðand-
ans. ■
Inger Steínson, Ólafur Ö. Pétursson
ut jiifdtst jöii, ftífanitsijóri
S. 691 0919 s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
s. 551 7080
ijvönduð og persónuleg þjonusta
Jón Amar er að
toppa á réttum tíma
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum hefst í Edmonton á föstudaginn. Jón Arnar hefur
ekki góða reynslu af heimsmeistaramótum en sagðist nú vera laus við öll meiðsli og að hann
væri í góðu formi.
frjálsar Tugþrautamaðurinn Jón
Arnar Magnússon hélt í gær af
stað til Edmonton í Kanada þar
sem heimsmeistaramótið í frjáls-
um íþróttum fer fram, en mótið
hefst á föstudaginn. í samtali við
Fréttablaðið sagðist hann vera
laus við öll meiðsli og í nokkuð
góðu formi. Reyndar liti allt út
fyrir að hann væri jafnvel að
toppa á réttum tíma, en keppni í
tugþraut hefst á mánudaginn.
Jón Arnar sagðist hafa tekið
þátt í litlu móti á Kópavogsvellin-
um á fimmtudaginn, þar sem hann
hefði náð sínum bestu tímum á ár-
inu í 100 metra hlaupi og 110
metra grindahlaupi. Hann hefði
hlaupið 100 metrana á 10,77 sek-
úndum og grindahlaupið á 14,30
sekúndum.
„Þetta er töluvert mikið betra
en ég hef verið að gera undanfar-
ið, ég átti ekki nema 14,99 best í
grindinni á þessu ári og 11,00 í 100
metrunum," sagði Jón Arnar. „Þá
átti ég mína bestu langstökkseríu
frá upphafi á Landsmótinu á Eg-
ilsstöðum, þannig að það er eitt-
hvað að gerast."
Annars sagðist Jón Arnar legg-
ja megináhersluna á að komast
klakklaust í gegnum þrautina.
„Ég hef ekki mjög góða reynslu
af heimsmeistaramótum. Ég hef
aldrei komist í gegn. Ég hef ann-
aðhvort dottið úr leik eða meiðst.
í Sevilla tognaði ég í nára, í Grikk-
landi tognaði ég á ökkla og í Sví-
þjóð var ég dæmdur úr leik.“
Jón Arnar sagðist ekki vita bet-
[ GÓÐU FORMI
Jón Arnar Magnússon náði sínum bestu tímum i 100 metra hlaupi og 110 metra grindahlaupi á fimmtudaginn. Hann er ómeiddur og virð-
ist vera I góðu formi fyrir átökin á mánudaginn, en þá hefst tugþrautarkeppnin á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Edmonton.
ur en að allir bestu tugþrauta-
kappar heims yrðu með á mótinu í
Edmonton fyrir utan Chris
Huffins sem væri hættur keppni.
íslandsmet Jóns Arnar í greininni
er 8.573 stig, en Jón Arnar sagði
að allt í kringum 8.400 stig væri
viðunandi árangur, ef hann yrði
vel stemmdur ætti hann að geta
hoggið nærri metinu. Þá mætti
hann hins vegar ekki verða óhepp-
inn og ekki lenda í miklum sveifl-
um á milli greina.
„Það hefur stundum gerst að
maður hefur klúðrað greinum
eins og kringlukasti, sem maður á
ekkert að vera að gera. Samanber
Evrópumeistaramótið 1998, þegar
ég henti gullverðlaununum í
burtu í kringlukastinu."
trausti@frettabladid.is
Toppslagur
Valur Fylkir Hlíðarenda miðvikudaginn 1 .ágúst kl
20.00
Snæðið kvöldverð fyrir leik beint af grillinu á
Hlíðarenda undir harmoníkuleik Ólafs B Ólafssonar.
Ameríkukeppnin:
Portúgal vill vera með
knattspyrna Forseti knattspyrnu-
sambands Portúgal, Gilberto
Madail, játar því að landið hafi
áhuga á að taka þátt í Ameríkubik-
arkeppninni en því var boðið að
taka þátt fyrir skömmu.
Gilberto sagði það vera heiður
fyrir Portúgal að taka þátt í þes-
sari virtu keppni en dagsetningar
mættu ekki stangast á við aðrar
áætlanir.
„Þessi möguleiki er ekki nýr af
nálinni Nicolas Leoz, forseti
keppninnar, talaði við mig um
þetta árið 1998,“ sagði Gilberto.
„Það er fínt ef þetta er á tímabil-
inu 2002 til 2004. Þá eigum við
tíma aflögu en síðan skipuleggj-
um við Evrópukeppnina árið
2004.“
Talið er að Spánn og Ítalía hafi
einnig áhuga á að taka þátt en
engar viðræður hafa verið milli
þeirra og aðstandenda keppninn-
ar ennþá. ■
RUI COSTA
Svo gæti farið að Rui Costa og félagar
hans í portúgalska landsliðinu verði með í
næstu Amerikukeppni.