Fréttablaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 15
MIÐVIKUPAGUR 1. ágúst 2001
Leikmannakaup:
Geremi ekki
til Chelsea
knattspyrna Real Madrid hefur
hafnað um 7 milljóna punda til-
boði Chelsea í varnarmanninn
Geremi. Jorge Valdano, stjórnar-
maður hjá Real Madrid, sagði að
liðið hefði ákveðið að hætta við að
selja varnarmanninn, sem getur
bæði leikið sem hægri bakvörður
og miðvörður.
Talið er að miðjumaðurinn
Santiago Solari verði frekar seld-
ur til Real Zaragoza, en Madridar-
liðið þarf nauðsynlega að selja
einhverja leikmenn eftir að hafa
eytt duglega í nýja leikmenn á
undirbúningstímabilinu. ■
EKKI Á FÖRUM
Real Madrid hefur ákveðið að selja ekki
varnarmanninn Geremi til Chelsea.
KYNÞOKKAFYLLSTUR
David Beckham er ekki bara vinsæll hjá stuðningsmönnum og forrðáðamönnum
Manchester United. Hann var valinn kynþokkafyllsti leikmaðurinn í vali samkynhneigðra
knattspyrnuáhugamanna á Englandi.
Þegar bíltæki skipta máii
Hvemig hljómar uppáhalds tónlistin þín?
Verð frá24.900,- ísetning fylg/r
/^iorteer
TS-E1695- 220w - 16cm - þrískiptur
NVTT
Aoneer
TS-E6995 - 300w - 6"x9" - þrískiptur
NÝTT
E-motion hátalararnir eru bylting hvað
varðar glæsilegt útlit og framúr-
stefnulega hönnun. Nýjasta tækni er
notuð í hátölurunum sem leiðir
til skarps tónflutnings með lítilli bjögun.
Þessi nýja lína bryddar upp á nýjungum
eins og 30 Magnesium Hybrid keiluna,
sem hefur einstaklega tæran hljóm
samfara lítilli bjögun, og hinn svokallaða
Titanum Dome hátíðnihátalara, sem
býður upp á sérlega tæran hljómburð.
Framtíð landsliðsfyrirliðans ráðin:
Beckham áfram
hjá Man. Utd.
knattspyrna Framtíð knatt-
spyrnumannsins David Beck-
hams virðist loks vera ráðin.
Ensku meistararnir í Manchester
United eru vissir um að Beck-
ham, sem er 26 ára, skrifi undir
nýjan samning við liðið en svo
getur farið að það verði ekki fyrr
en um næstu jól.
„Við höfum átt nokkra fundi
með umboðsmönnum Davids og
þeir eru mjög jákvæðir," sagði
Peter Kenyon stjórnarformaður
Man. Utd. í samtali við breska
fjölmiðla.
„Við höfum ekki farið leynt
með það að við viljum halda í
David og við vitum að hann vill
vera hjá okkur.“
Kenyon segist vilja ganga frá
samningnum áður en tímabilið
hefst en ef það gengur ekki upp
vilja þeir gera það eins fljótt og
mögulegt er. Ensku meistararnir
vilja gera langtímasamning við
Beckham, sem er fyrirliði enska
landsliðsins, en hann á aðeins tvö
ár eftir af núgildandi samningi.
David Beckham nýtur gríðar-
legra vinsælda hjá stuðnings-
mönnum liðsins en samkvæmt
The Guardian er hann líka mjög
vinsæll hjá samkynhneigðu fólki.
Hann var a.m.k. kjörinn kyn-
þokkafyllsti knattspyrnumaður-
inn, ásamt Alan Smith hjá Leeds,
í kjöri félags samkynhneigðra
knattspyrnuáhugamanna á
Englandi. Rúmlega 500 félagar
völdu þá kynþokkafyllstu en í
þriðja sæti varð James Beattie,
leikmaður Sunderlands, og í því
fjórða varð Michael Owen leik-
maður Liverpool. Leikmenn
Arsenal virðast ekki jafn losta-
fullir því liðið er talið það ljótasta
og fremstur meðal jafningja er
miðjumaðurinn Ray Parlour. ■
AC Milan:
Ekki fleiri
Brasilíumenn
knattspyrna Italska knatt-
spyrnuliðið AC Milan mun
ekki kaupa brasilískann
leikmann á næstunni
nema um nýjan „Pele“
verði að ræða. Adriano
Galliani, varaforseti fé-
lagsins, sagði að góðir
brasilískir leikmenn væru
alltof uppteknir með
landsliðinu og að það
kæmu niður á þeim félags-
liðum sem þeir léku með.
„Það er ósanngjarnt að
brasilískir leikmenn geti
leikið 21 leik á ári með
landsliðinu," sagði Galli-
ani. „Liðið hefur leikið
fjölda æfingaleikja undan-
ROQUE
JUNIOR
Varaforseti Mil-
an segir að
Roque Junior
og Dida hafi
verið alltof upp-
teknir með
landsliðinu und-
anfarið.
undankeppni Heimsmeist-
arakeppninnar og í Amer-
íkukeppninni."
Þrír brasilískir leikmenn
leika með Milan, miðjuleik-
maðurinn Serginho, varnar-
maðurinn Roque Junior og
markvörðurinn Dida. Þeir
tveir síðarnefndu hafa báðir
leikið mikið með landsliðinu
undanfarið og vegna þessa
samdi Milan í gær við dans-
ka varnarmanninn Martin
Laursen, en hann á að vera
varamaður fyrir Junior.
Dida varð hins vegar uppvís
að vegabréfafalsi og ef
hann fær árs bann gæti
hann verið á leiðinni frá
farið auk þess sem það keppir í Milan til Alaves á Spáni. I
Komdu við og hiustaðu!
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
T RBO
C O M P A C T
MHG söluaðilar á íslandi
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656 Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is