Fréttablaðið - 01.08.2001, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 MIDVIKUPACUW
BESTA PLATAN
KORMÁKUR GEIRHARÐSSON
stórkaupmaður
Kwesi í Sigtúni
„Ég var búinn að hugsa um Linton
Kwesi Johnson í tvö ár þegar ég rölti
nýlega inn í búð og fann plötuna
Forces of Victory. Ég sá hann í Sigtúni
'81 þegar Grammið fiutti hann inn, átti
aldrei plötu en hafði heyrt þær hjá vin-
um mínum. Nú er ég búinn að komast
að því að maður þarf ekki að reykja til
að hlusta á hann." ■
BEOYNCE KNOWLES
Destiny’s Chíld var spáð út af topp tíu bres-
ka listans fyrir mánuði síðan. Þær eru ein-
nig ofarlega á listanum í Bandaríkjunum.
Hrókeringar í poppinu:
Örlagafljóð
í skýjunum
tónlist Breytingar urðu á toppi
breska hljómplötulistans í síðustu
viku. Mjúki Kaninn Usher vék
fyrir íðilvöxnum samlöndum sín-
um í Destiny’s Child. Þetta sætti
tíðindum þar sem Örlagafljóðin
komust fyrst á topp listans í byrj-
un maí og eru síðan búnar að lafa
inni á topp tíu. Nýja smáskífan,
Bootylicious, fellur greinilega í
kramið hjá kaupendum. Þær sitja
öruggar á toppnum aðra vikuna í
röð og Usher fellur hratt niður.
Wyclef Jean, sem spilaði eitt
sinn með félögum sínum í Fugees
f Höllinni, kom nýr í tólfta sæti
með plötuna The Ecleftic - Two
Sides to a Book í síðustu viku og
hækkar nú um eitt. Super Furry
Animals og N’Sync mæta báðar
með nýjar plötur þessa vikuna,
Rings Around the World fer beint
í þriðja sætið en Bretar hleypa
bandarísku poppstjörnunum ekki
nema í tólfta sætið með Celebrity.
Rings Around the World er
fimmta plata hinnar velsku Super
Furry Animals. Þegar hún gaf út
sína fyrstu plötu, Fuzzy Logic,
árið 1995 hafði hún safnað stórum
aðdáendahóp í kringum sig og um
leið og hún kom út vakti tónlistin,
sem er blanda af kraftpoppi,
pönki, teknó og framúrstefnulegu
rokki, mikla athygli. ■
ALFABAKKA 8, SIMI S87 tf*U0
www.samfiim.is
m/ensku tali kL 4,6,8 og 10
m/íslensku tali kl. 4 og 6
Sýnd kL 4,6,8 og 10 vit243
Sýnd kl. 4,6,8 og 10 (enskt tal) vit 244
[SHREK (ísltaí)
kl. 4,6,8 og 10[|24^ jPRIVEN
FRÉTTIR AF FÓULI I
o*-o
Shaquille O’Neal ætlar að taka
upp lag með þýsku söngkon-
unni Sabrinu Setlur, fyrrum eig-
inkonu tennisleikarans og Bravó
stjörnunnar Boris Becker. O’Neal
hafði samband við hana eftir að
sjá myndband með henni Honum
finnst hún vera ákaflega
kynæsandi eins og hann orðaði
það sjálfur. Að sögn dagblaðsins
The Bild sagði kappinn: ,Tyrst og
fremst viljum við fara í hljóðver
og taka upp lagið.“
Anna Kournikova sem bæði á
að vera búin að gifta sig- og
ekki- sást með giftingarhring á
tennismóti í Kaliforníu um síð-
ustu helgi. Rússneska stjarnan
tvítuga keppti í tvímenningsleik
með Martinu
Hingis, sem var
einnig með gift-
ingarhring. Haft
var eftir slúður-
tímaritinu The
Sun í síðustu viku
að Kournikova
hefði gifst ís-
hokkíleikaranum
Sergei Federov, í leynilegri at-
höfn en hann er ellefu árum
eldri. Bæði faðir hennar og tals-
maður frá fyrirtækinu sem sér
um markaðsmál hennar neituðu
fréttunum en svo virðist sem The
Sun hafi haft rétt fyrir sér.
UNGMENNAFÉLAGIÐ
Það ríkti sannkölluð ungmennafélagsstemmning í Hvalfirðinum i gær við tökur á myndbandinu og fjöldi sveitunga var mættur til að
styða við bakið á sínu liði
Metnaður fyrir fegurð
frekar en peningum
Stefán Arni Þorgeirsson og Sigurður Kjartansson leikstýra myndbandi
við lagið Viðrar vel til loftárása með Sigur Rós. „Vildum frekar eyða
peningum í tæknihliðina,“ segir Stefán.
Ghris Martin söngvari hljóm-
sveitarinnar Coldplay kom
fram með skosku sveitinni Travis
á tónleikum í
Singapore fyrir
j stuttu. Þar söng
hann lagið The
Band’s The
Weight með Skot-
unum við ágætar
undirtökur. Mart-
in hafði áður troð-
ið þar upp með
Coldplay en var eitthvað illa fyrir
kalllaður. Hann yrti varla á
áhorfendur nema til að segja
þeim að slökkva á kveikjurum
þegar þeir hugðust mynda róm-
antíska stemmningu. „Við erum
ekki Bon Jovi, ef þið vitið hvað
ég á við,“ sagði Martin. Hann
hresstist þó örlítið við þegar líða
fór á tónleikanna og þegar sveitin
spilaði lagið Yellow kastaði hann
sér út í áhorfendaskarann við
mikinn fögnuð.
myndbanp „Þetta er myndband
um tvo stráka í sama fótboltalið-
inu sem er héðan úr Hvalfjarð-
arsveitinni. Og það er eiginlega
það sem gerist. Eg veit eiginlega
ekki hvað ég má segja mikið, það
er Sigur Rósar að ákveða enda er
þetta þeirra myndband," sagði
Stefán Árni Þorgeirsson, leik-
stjóri, þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann í gær, en hann
í félagi við Sigurð Kjartansson
leikstýrir myndbandi við lagið
Viðrar vel til loftárása með
hljómsveitinni Sigur Rós.
„Það vildi svo skemmtilega til
að ég og Siggi vorum búnir að
viðra það okkar á milli að það
væri gaman að gera eitthvað
fyrir Sigur Rós og ætluðum að
tala við þá um litla hugmynd
sem við vorum með,“ sagði Stef-
án Árni um aðdragandann að
samstarfinu. „Síðan hitti ég
Jónsa á veitingastaðnum Á
næstu grösum og spurði hann
hvort við gætum ekki unnið fyr-
ir þá.“
Jón Þór söngvari tók vel í
hugmyndina og sagði Stefáni frá
hugmynd sem hljómsveitarmeð-
limir höfðu sjálfir unnið að.
„Þá var það einmitt svona fót-
boltahugmynd, mjög svipuð hug-
myndinni okkar Sigga. Eini mun-
urinn var aldursmunurinn.”
Myndbandið á að gerast um
miðja öldina og er að sögn Stef-
áns sýnt mjög hægt.
„Myndbandið er allt í gegn
rosa slow motion og með miklum
tilfinningasveiflum, „ segir Stef-
án. „Annars erum við ekki að
hafa of miklar áhyggjur af raun-
verulegri tímasetningu."
Fjöldinn allur af fólki kemur
nálægt myndbandinu, tvö fót-
boltalið, áhorfendur, foreldrar
drengjanna tveggja sem fara
með aðalhlutverk og fleiri. Stef-
án segir þetta frekar lítið verk-
efni, þó það teljist sennilega
stórt miðað við íslensk mynd-
bönd. „Það er svolítið snúið að
gera svona periodumyndir. Það
fer mikill tími og fyrirhöfn í að
gera búninga, greiða fólkinu,
redda leikmyndinni og allt kost-
ar þetta peninga." Stefán segir
þá frekar hafa viljað eyða pen-
ingum í tæknihliðina en þeir
leigðu kvikmyndatökuvél frá
fyrirtæki sem þróar myndavélar
fyrir Bandaríkjaher.
Stefán Árni og Sigurður hafa
unnið að auglýsingagerð erlend-
is s.l. tvö ár og hafa m.a. unnið
fyrir gallabuxnafyrirtækið Lev-
is og nú í apríl unnu þeir fyrir
hársnyrtifyrirtækið Salon Sel-
ective sem er mjög þekkt vöru-
merki í Bandaríkjnum. „Síðan
gerðum við líka auglýsingu fyrir
Ericsson sem fór á Asíumark-
að,“ segir Stefán. Hann segir það
vel borgað starf að gera auglýs-
ingar en sömu sögu sé ekki að
segja af myndbandagerð. „Það