Fréttablaðið - 01.08.2001, Page 18
18
FRETTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 IVHÐVIKUDAGUR
Jóhanna Björg Hansen
staðgengill forstjóra Framkvæmda-
sýslu ríkisins.
Við Hfum á tfmum stöðugra breytinga.
METSÖLULISTI |
MEST SELDU ÁSTARSÖGURNAR
A AMAZON.COM
OLinda Howard
OPEN SEASON
OLinda Howard
MR. PERFECT
ODiana Gabaldon
OUTLANDER
OJulia Quinn
AN OFFER FROM A
GENTLEMAN
OJane Dawkins
LETTERS FROM PEM-
BERLEY, THE FIRST YEAR
©Barbara Delinsky
THE VINEYARD
OBertrice Small
THE DUCHESS
ODee Davis
JUST BREATHE
ONora Roberts
REFLECTIONS AND
DREAMS
Anna Maxted
GETTING OVER IT
EITT VERKA LÓU
Myndirnar eru teknar ofanfrá, eins og úr
flugi farfugla yfir framandi slóðír sem
endalaust taka breytingum.
Hafnarhúsið:
Tekur hluti úr
sínu vanalega
samhengi
uósmynpir í sal félagsins íslensk
grafík í Hafnarhúsinu, hafnar-
megin stendur ljósmyndasýning
Ólafar Bjarkar Bragadóttur, Lóu,
Á sýningunni eru ijósmyndir
teknar á flóamarkaðnum í borg-
inni Montpellier í Suður-Frakk-
landi. Á myndunum má finna hluti
sem teknir eru úr sínu vanalega
samhengi og eru að sögn höfundar
komnir á nýjan stað þar sem þeir
segja hver öðrum sína sögu og
hafa þannig um stund stofnað
nýja fjölskyldu, nýtt landslag.
Lóa nam kvikmyndafræði við
Université Paul Valery í Frakk-
landi frá 1991-93. í framhaldi af
því nam hún myndlist í École des
Beaux-Arts í sömu borg og lauk
þaðan mastersgráðu í júní á síð-
asta ári. Lóa hefur haldið nokkrar
sýningar í Frakklandi og á íslandi,
síðast á Skriðuklaustri í Fljótsdal.
Hún er nú kennari í myndlist við
Menntaskólann á Egilsstöðum
ásamt því sem hún vinnru að eig-
in myndlist. ■
Gallerí Gorgeir:
Ut úr turni
Skálholtskirkju
mynplist Þorgerður Sigurðardóttir
sýnir nú stafrænt þrykk í Gallerí
Gorgeir á Korpúlfsstöðum.
Þrykkið er unnið úr einni af Guð-
brandsbiblíunum sem geymdar
eru í turni Skálholtskirkju. Verkið
er úr myndröð Þorgerðar sem
nefnist Ur turni Skálholtskirkju
og er nú sýnd í Skálholtsskóla. Það
sýnir áritun Guðbrands á biblíu
sem hann hefur gefið Þorkeli
frænda sínum.
Guðbrandur Þorláksson Hóla-
biskup lét prenta veglega Biblíu-
útgáfu 1584 með þróuðustu tækni
síns tíma. Hann er sjálfur talinn
hafa skorið hluta prentmótanna
og gæti þannig talist fyrsti ís-
lenski grafíklistamaðurinn.
Myndröðina vann Þorgerður
eftir heimsókn í bókasafnið í
turni Skálholtskirkju. Þar er
geymt gott safn elsta prents á ís-
landi. Safnið er að stofni til safn
Þorsteins Þorsteinssonar sýslu-
manns Dalamanna. Kári Helga-
son keypti safnið, jók það nokkuð
og endurbætti og beitti Sigur-
björn Einarsson biskup sér fyrir
því að Þjóðkirkjan keypti safnið
EITT VERKA ÞORGERÐAR
Verklð sýnir áritun Guðbrands biskups á Biblfu til frænda slns.
af Kára 1965 eftir almenna fjár-
söfnun meðal þjóðarinnar og var
því þá fundinn staður til bráða-
birgða í turni kirkjunnar þar sem
það er enn varðveitt í eldtraust-
um hirslum. Safnið er ekki opið
almenningi.
Gallerí Gorgeir er opið á mið-
vikudögum frá kl. 12 - 18 en á
þeim tíma eru einnig vinnustofur
myndlistarmanna á Korpúlfsstöð-
um opnar og geta gestir hitt
myndlistarmennina og skoðað
vinnustofur þeirra og verk. ■
OFURSVALUR KUREKI
Jonah Hex var ekki að grínast eins og Lukku Láki, var meira í anda Blástakks," segir Ragnar Emilsson um fyrirmynd hljómsveitarinn-
ar. Hana skipa einnig Jóhann Asmundsson, Róbert Reynisson og Helgi Svavar Helgason.
Kántrídjass á Vídalín:
Skemmtilegur kántrílitur
tónleikar í kvöld kl. 22.30 hefjast
tónleikar hljómsveitarinnar
Jonah Hex á Vídalín (gamla Fó-
getanum). Hljómsveitin sam-
anstendur af fjórum tónlistar-
mönnum úr smiðju FÍH, Ragnari
Emilssyni gítarleikara, Jóhanni
Ásmundssyni bassaleikara,
Helga Svavari Helgasyni
trommuleikara og Róberti Reyn-
issyni gítarleikara. Tónleikarnir
í kvöld eru haldnir vegna þess að
Róbert heldur brátt til Svíþjóðar
í eins árs nám. „Við eigum eftir
að sakna Róberts," segir Ragnar.
„Hljómsveitin heitir Jonah
I-Iex í höfuðið á kúrekateikni-
myndablöðum sem ég og bróðir
minn lásum á okkar yngri
árum,“ segir Ragnar. „Jonah
Hex var ekki að grínast eins og
Lukku Láki, var meira í anda
Blástakks. Þetta voru forláta
blöð, við vorum þeir einu sem
lásum þau. Ég sagði Róberti frá
þessu þegar við gengum framhjá
búðinni í Bankastræti sem seldi
blöðin. Hann hreifst af sögunni,
samdi kántrílag og við stofnuð-
um hljómsveitina í kjölfarið á
því.“
Jonah Hex spilar kántrídjass
og aðra gítarvæna tónlist. Strák-
arnir eru allir vanir menn, Ragn-
ar spilar einnig með hljómsveit-
inni Þrír, Róbert með 200.000
naglbítum, Jóhann með Mezzof-
orte og Helgi með Funkmaster
2000.
„Tónleikarnir verða með
húmorundirtón. Það eru vissir
eiginleikar í kántrítónlistinni
sem henta vel fyrir gítar og blan-
da skemmtilegum lit inn í djass-
inn,“ segir Ragnar. Jonah Hex
spilar í tvo tíma í kvöld. Gamli
Fógetinn fékk nýlega nafnið
Vídalín og síðan þá hafa nokkrir
tónleikar verið haldnir þar.
Ragnari lýst vel á staðinn og lof-
ar laufléttri stemmningu. ■
MIÐVIKUDAGURINN
I. AGÚST
FYRIRLESTRAR
20.00 Karl Guðmundsson leikari og
þýðandi les upp úr sagnaskáld-
skap Vestur-íslendinga á vegum
Vináttufélags fslands og
Kanada. Lesturinn er í stofu 201 í
Lögbergi, Háskóla íslands.
TÓNLEIKAR
21.00 Jasssöngkonan Kristjana Stef-
ánsdóttir verður með tónleika á
Múlanum í kvöld. Tilefnið er að
hún er nú að hljóðrita fyrsta sóló-
disk sinn.
Djassgítarhljómsveitin Jhonha Hex spil-
ar gítarorgíu með kántrí djass ívafi.
Skemmtun sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara. Meðlimir hljómsveitar-
innar eru þeir Jóhann Ásmundsson, Ró-
bert Reynisson, Ragnar Örn Emilsson og
Helgi Svavar.
SÝNINGAR
Handritasýning f Stofnun Ama Magn-
ússonar stendur í Ámagarði við Suður-
götu. Sýningunni er ætlað að minna á
þann hlut sem sagnalist og bókagerð
fyrri alda á i vitneskju okkar um helstu
mérkisatburði þjóðarsögunnar og beina
athygli sérstaklega að handritum og
sögúm um fólk og viðburði serri fyrir
rúmum þúsund árum ollu aldahvörfum,
þ.e. kristnitökunni og landafundunum.
Sýningin er opin kl. 11 til 16 mánudaga
til laugardaga og stendur til 25. ágúst
Sýning á lækningamunum í Nesstofu.
Þar er meðal annars endurgert apótek
frá 18. öld, fæðingaráhöld, aflimunar-
tæki, augnlækningatæki og fleira frá fyrri
tíð. Safnið er opið á sunnudögum,
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 13 til 17.
Á efri hæð Hafnarborgar stendur sýning á
Ijósmyndum eftir Hans Malmberg frá því
um 1950. Sýningin nefnist fsland 1951 og
er í samvinnu við Þjóðminjasafn ís-
lands. Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga og henni lýkur 27. ágúst
í Sverrissal Hafnarborgar stendur sýn-
ing á skotskífum úr fórum Det Kong-
elige Kjobenhavnske Skydeselskab og
Danske Broderskab. Sýndar eru um 15
skotskífur frá árunum 1787-1928 með
íslensku myndefni eða frá íslenskum fé-
lögum skotfélagsins. Sýningin er I sam-
vinnu við Þjóðminjasafn íslands og er
opin alla daga nema þriðjudaga. Henni
lýkur 6. ágúst
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. I Lækjargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavikur - frá býli til borgar. í Kjöt-
húsi er sýningin Saga byggingatækn-
innar. í Líkn er sýningin Minningar úr
myndlist í dag klukkan 13 opnar
listakonan Magnea Ásmundsdótt-
ir sýningu á verkum sínum í Þjóð-
arbókhlöðunni. Þetta er önnur
sýningin í sýningaröðinni Felling-
ar sem er samstarfsverkefni
Kvennasögusafnsins, Landsbóka-
safns íslands - Háskólabókasafns
og 13 starfandi myndlistarkvenna.
Hver sýning stendur í einn
mánuð og er tvískipt. Annars veg-
ar á Kvennasögusafninu sem er til
húsa á fjórðu hæð í Þjóðarbókhlöð-
unni og hins vegar í anddyri Þjóð-
arbókhlöðunnar. Auk þess eru þar
upplýsingar um þá listakonu sem
sýnir hverju sinni, upplýsingar um
Kvennasögusafnið og einnig tölu-
húsí. Sýníngin í Suðurgötu 7 ber yfir-
skriftina: Til fegurðarauka. Sýning á út-
saumi og hannyrðum. ÍEfstabæ má sjá
hvernig tvær fjölskyldur bjuggu í húsinu
um 1930.
I Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn-
Sýningaröðin Fellingar:
VETTVANGUR SÝNINGARINNAR
Kvennasögusafnið er til húsa I Þjóðarbók-
hlöðunni og er sýning Magneu Asmunds-
dóttur bæði í húsnæði safnsins og I and-
dyri bókhlöðunnar.
legar staðreyndir sem er ætlað að
varpa ljósi á hlut kvenna í íslenskri
listasögu.
Listakonurnar sem taka þátt í
Fellingum afhenda Kvennasögu-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
sem I vetur hafa unnið undir hand-
leiðslu Marteins Sigurgeirssonar
stendur yfir í Gerðubergi. Opnunartími
sýningarinnar er virka daga frá 12 til 17
og stendur sýningin til 17. ágúst.
safninu gögn um listferil sinn. Með
því vilja þær hvetja konur til að
safna gögnum um eigin sögu.
Magnea Ásmundsdóttir lauk
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands áriðl993. Hún var í
Kunstakademiet í Trondheim í
Noregi til 1995 og þar af 6 mánuði
í Statliche Academy Der Kunste í
Karlsruhe í Þýskalandi sem
skiptinemi. Árið 1996 lauk hún
námi í uppeldis og kennslufræði
frá Háskóla íslands. Magnea hefur
starfað að myndlist sinni og við
kennslu.
Opnunartími Kvennasögusafns-
ins er milli klukkan 9 og 17 virka
daga og eru allir velkomnir. ■
MYNDLIST
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
I Listasafni Reykjavíkur -
Kjarvalsstöðum er sýning sem ber
nafnið Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri
er Einar Garibaldi Eiríksson myndlistar-
maður og prófessor við Listaháskóla
íslands. A sýningunni getur að líta mis-
munandi myndir Heklu sem sýndar eru
hlið við hlið. Sýningin stendur til 2. sep-
tember.
Fjórir listamenn sýna í Nýlistasafninu.
Þeir eru Daniel Þorkell Magnússon í
Gryfju, Ómar Smári Kristinsson á palli,
Karen Kirstein í forsal ogPhilip von
Knorring í SÚM-sal.
Birtan í rökkrinu nefnist sýning Huldu
Vílhjálmsdóttur I Gallerí Horninu í
Hafnarstræti. Sýningin stendur til 9.
september.
Sýning franska myndlistarmannsins
Paul-Armand Gette Mind the volcano!
- What volcano? stendur nú í Ljósaklifi
vestast í Hafnarfirði. Aðkoma að
Ljósaklifi er frá Herjólfsbraut. Sýningin
stendur til 6. ágúst og er opin daglega
frá kl. 14.00 til 18.00.
Guðný Rósa Ingimarsdóttir sýnir nú á
galleri@hlemmur.is.
Opnunartimi galleri@hlemmur.is er frá
fimmtudegi til sunnudags, kl. 14-18.
Sýningunni lýkur 12. ágúst.
Hlutur kvenna dreginn fram