Fréttablaðið - 13.08.2001, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.08.2001, Blaðsíða 1
BANASLYS Atján ára stúlka lét lífið bls 2 FÓLK Strigaskór nr. 41 með tónleika bls 16 KURSK Fórnar- lambanna minnst bls 6 0 una.net FRETTABLAÐIÐ 1 77. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 13. ágúst 2001 MÁNUDAGUR • 1 • Kastró 75 ára STIÓRNIVIÁL Fídel Kastró er 75 ára í dag, en hann hefur ráðið lögum og lof- um á Kúbu í 42 ár. Hann skrapp í heimsókn tii Venes- úela um helgina og hélt upp á afmælið sitt þar í gær með Hugo Chavez forseta, en Kastró er væntanlegur aftur heim til Kúbu í dag. Hörmulegt banaslys í Lögbergsbrekku Árni Heiðar með bebopp tónleikar Útgáfutónleikar Árna Heiðars Karlssonar djasspíanóleik- ara verða í Hlaðvarpanum klukkan níu í kvöld. Þar kynnir hann nýút- kominn disk sinn, sem heitir Q, en með honum á disknum leika þeir Jóel Pálsson á saxófón, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. VEÐRIÐ í DAG | REYKJAVÍK Norðaustan 3-8 m/s. Þurrt að kalla. Hiti 10 til 15 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI fsafjörður O 8-10 Þurrt 012 Akureyri ©5-10 Skúrir O" Egilsstaðir 8-10 Rigning O" Vestmannaeyjar (J 3-5 Skýjað O'2 Afmæli Berlínarmúrsins sacnfræði í Berlín minnast menn þess í dag að fyrir réttum f jörutíu árum hófst smíði múrsins illræmda sem skipti borginni í tvennt. Fyrst í stað var lagður gaddavír þar sem múrinn var svo reistur, en hann stóð í tæp þrjátíu ár. Þrír leikir í kvöld fótbolti Þrír leikir verða í Símadeild karla í kvöld. ÍA og Valur mætast á Skaga, Fylkir tekur á móti Breiðablik og í Grindavík taka heimamenn á móti Fram. Leikirnir hef jast klukkan 19. IKVÖLDIÐ í KVÖLD| Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvaða fréttamiðla notar fólk á aldrinum 25 til 59 ára?* 89% 88% Í2 <o 67% £■ 5 «5 J2 C XI O So' 1 S- o S-: s Co2 64% 60% c c ‘55 ,'2LfN 50% QiS * Höfuðborgarbúar sem nota miðlana einhvern tlmann 70.000 eintöK 70% íó'ks les blaðic 2,bu/o ItíUA MUrUUÖUKCiAKSV/tUISINb A ALUKINUM 125 TIL 67 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMT KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRÁ JÚLÍ 2001. Ökumaður fólksbíls lét lífið þegar bíll hans lenti framan á rútu skammt frá Reykjavík í gærkvöldi. Farþegar rútunnar voru fluttir á sjúkrahús þar sem þeir fengu áfallahjálp og gert var að meiðslum þeirra sem höfðu slasast. banaslys Ökumaður fólksbíls lét líf- ið þegar bíll sem hann keyrði lenti framan á rútu í Lögbergsbrekku, rétt utan Reykjavíkur, um sexleyt- ið í gær. Kringumstæður slyssins eru óljósar en bíll mannsins sem var á leið í austurátt fór yfir á rang- an vegarhelming og lenti framan á rútu sem var á leiðinni til Reykja- víkur. Ökumaður bíls sem kom í kjöl- far fólksbílsins náði með snarræði að sveigja til hliðar en rakst samt sem áður á fólksbílinn. Engin meiðsl urðu þó á ökumanni og far- þega sem voru í þeirri bifreið. Fjórði bíllinn sem kom í kjölfarið sveigði út af veginum og tókst þan- nig að koma í veg fyrir að hann lenti á hinum bílunum. í rútunni voru 23 farþegar, allt íslendingar, sem voru að koma heim úr vinnustaðarferð. Flestir þeir sem í rútunni voru notuðu bíl- belti og er talið að það hafi bjargað því að slys á fólki voru færri og minni en ella hefði getað orðið. Bíl- stjóri og farþegar í rútunni voru alíir fluttir á slysadeild Landsspít- alans - Háskólasjúkrahúss í Foss- vogi þar sem fólk fékk áfallahjálp og gert að meiðslum þeirra sem á þurftu að halda. Sjónarvottur að slysinu sagði í sam- tali við Fréttablaðið að mikil mildi væri að rútan skildi hald- ast á réttum kili þegar áreksturinn varð. Fólksbíllinn hafi verið á mikl- um hraða þegar slysið átti sér stað en það talið skipta sköpum að FRÁ SLYSSTAÐ Suðurlandsvegur var lokaður fyrir umferð í á þriðju klukkustund eftir umferðarslysið í gær. Fólksbifreiðin sést hér fjarlægð af vettvangi en eins og sjá má er bifreiðin gjörónýt eftir áreksturinn. rútan var á litlum hraða. Suður- landsvegi var lokað fyrir umferð í um það bil tvær klukkustundir í kjölfar slyssins en aftur var opnað fyrir umferð á níunda tímanum í gærkvöldi. Slysið í gær var annað banaslys helgarinnar í eða við Reykjavík. Aðfaranótt laugardags lést 18 ára stúlka þegar ökumaður bifreiðar sem hún var í missti stjórn á bíln- um sem lenti á ljósastaur. Nánar er fjallað um það mál á síðu 2. binni@frettabladid.is Ólafsfjörður: Tvö innbrot framin LðCRECLURANNSÓKN Lögreglan á Ólafs- firði vinnur að rannsókn innbrots á Hótel Ólafsfjörð - en um helgina var brotist þar inn sem og í verslunina Val- berg. Það var að- faranótt laugar- dags sem brotist var inn í Valberg en aðfaranótt sunnu; dags á Hótelið. í báðum tilfellum voru hurðir spennt- ar upp. Skemmdir voru talsverðar vegna innbrotsins á Hótelið - en óvíst er hvað var tekið - en örygg- ÓLAFSFJÖRÐUR Oftast ber fátt til tíðinda hjá lögregl- unni á Ólafsfirði - en tvö innbrot voru framin í bænum. iskerfi hússins fór ekki í gang. Upp- tökuvélar, sem voru ótengdar, virðast hafa hrætt þjófinn eða þjófana. Lög- reglan vinnur að rannsókn innbrots- ins. Einn maður var handtekinn vegna innbrotsins í Val- berg. Hann hefur játað glæpinn - en hann náði rúmlega 30 þúsund krónum úr afgreiðslukassa verslunarinnar. Ekki er talið að samband sé á milli innbrotanna. ■ 1 ÞETTA HELST[ Sigli Keikó ekki sinn sjó í vik- unni verður hann að öllum líkindum aldrei frjáls. Hæpið að hann fái annað tækifæri næsta sumar. bls. 8 —♦— Allir telja sig vera að gæta hagsmuna almennra hluthafa í Lyfjaverslun íslands. bls. 4 ♦— Eigendur Heiðarf jalls hyggj- ast leita til Mannréttinda- dómstóls Evrópu verði máli þeirra gegn bandarískum stjórnvöldum vísað frá héraðs- dómi. bls. 6 —♦— Greiðendum hátekjuskatts fjölgar um helming. Jaðar- skattaáhrif mikil hjá skuldugu barnafólki. bls. 10 Toskur sem vflja að þér líði vel!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.