Fréttablaðið - 13.08.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
SVARTSÝNIR A FRIÐ
Einungis þriðjungur
netverja sem kusu á
Visi.is telur að ísraelar
og Palestínumenn eigi
eftir að komast að frið-
samlegri lausn.
Heldur þú að þú munir lifa
það að sjá ísraelsmenn og
Palestínumenn semja og
halda frið?
Niðurstöður gærdagsins
á www.yfeir.i?
34%
Nei
66%
Spurning dagsins í dag:
Eru atkvæðagreiðslur á Netinu
marklausar?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þlna skoðun I
____________
Bardagar í grennd
Skopje:
Ríkisstjórn
lýsir yfir
vopnahléi
SKQPJE,__MAKEDÓNÍA. AP.
Makedónísk stjórnvöld lýstu
yfir vopnahléi síðdegis í gær eft-
ir að bardagar höfðu brotist út á
milli þeirra og albanskra skæru-
liða snemma i gærmorgun. Emb-
ættismaður Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, sagði ríkisstjórn-
ina hafa samþykkt vopnahléið og
að NATO væri að tala við upp-
reisnarsveitirnar til að tryggja
að þær virtu einnig vopnahléið.
Boris Trajkovski fyrirskipaði
liðssveitum sínum að hætta skot-
hríðinni kl. hálf sex i gær. Búist
er við því að friðarsamkomulag
á milli Makedóníumanna og al-
bana verði undirritað í dag en
um tíma var talið að það væri í
hættu í gær.
Makedónskir hermenn réðust
í gærmorgun inn þorpið Ljubot-
en, sem staðsett er um 5 kíló-
metrum frá Skopje, höfuðborg
Makedóníu, með skriðdreka og
sprengjuvörpur og hófu skothríð
að albönskum uppreisnarmönn-
um. Talið er að um hefndarað-
gerð hafi verið að ræða, en á
föstudag létust átta makedónsk-
ir hermenn eftir að bíll þeirra ók
á jarðsprengju. Að minnsta kosti
19 madedónskir hermenn og
svipaður fjöldi albanskra upp-
reisnarmanna hafa látist undan-
farna daga eftir að drög að frið-
arsamningi voru samþykkt í síð-
ustu viku. ■
Mannijöldi á Siglufirði:
Vel
heppnað
pæjumót
siglufjörður Nærri eitt þúsund
stúlkur tóku þátt í Pæjumótinu á
Siglufirði sem lauk í gær. Mótið
fór vel fram að sögn lögreglu og
mótshaldara. Auk keppenda
voru um hundrað fararstjórar og
þjálfarar auk foreldra þannig að
gera má ráð fyrir að á Siglufirði
hafi fjölgað vel á annað þúsund
manns um helgina.
Einn var tekinn fyirr
hraðakstur og bakkað var á
kyrrstæðan bíl á bílastæði, en
annars var ljóst að ábyrgir for-
eldrar með börn voru þarna á
ferð. ■
LÖGREGLUFRÉTTIRj
Lögreglan í Vestmannaeyjum
hefur strangt eftirlit með
þeim sem aka um götur bæjar-
ins þessa dagana, sérstaklega
með radarmælingum, en mikið
er um að börn séu á ferli á
kvöldin um þessar mundir þar
sem nú er lundapysjutími.B
2
15. ágúst 2001 IVIÁNLIPAGUR
18 ára stúlka lætur lífið í umferðarslysi:
Framúrkeyrslan end-
aði með banaslysi
banaslys Stúlka á nítjánda ári lét
lífið aðfaranótt laugardags þegar
ökumaður missti stjórn á bíl sem
hún var farþegi í með þeim afleið-
ingum að bíllinn snerist og lenti á
ljósastaur.
Ökumaður bílsins sem stúlkan
var í ók á miklum hraða eftir Sæ-
braut og rakst á annan bíl þegar
hann reyndi að smeygja sér á
milli bíla til að komast fram úr
þeim. Þegar bílarnir rákust sam-
an missti ökumaðurinn stjórn á bíl
sínum sem rakst á ljósastaur og
kastaðist áfram nokkurra metra
leið. Við það kom eldur upp í bif-
reiðinni en lögreglumenn sem
komu á vettvang náðu að slökkva
eldinn. Stúlkan sem lést var í aft-
ursæti bifreiðarinnar og er talið
að hún hafi látist samstundis. Far-
þegi í framsæti skarst nokkuð í
andliti en ökumaður bifreiðarinn-
ar slapp við meiðsl.
Ökumaðurinn, 27 ára karlmað-
ur, er grunaður um að hafa verið
ölvaður við akstur og var í haldi
lögreglu fram yfir hádegi á laug-
ardag en þá var honum sleppt eft-
ir skýrslutöku. ■
látinnar vinkonu minnst
Vinkonur Söru Abdelazíz sem lést í umferðarslysinu á Sæbraut aðfaranótt laugardags
komu saman á slysstað á laugardag til að minnast vinkonu sinnar.
Gagnrýnar raddir
fá ekki að heyrast
Stjórnvöld virðast ekki vilja að aðrir en jábræður núverandi kerfis ræði við sendinefndina, segir
forseti FFSI. Einhliða málflutningur stjórnvalda minnir einna helst á málflutning hagsmuna-
samtaka, segir formaður Landsambands smábátaeigenda. Ekki ráðuneytisins að kynna gagnrýni
sem það er ósammála segir sjávarútvegsráðherra.
auðlindir „Það er bersýnilega
ásetningur stjórnvalda að láta
ekki raddir okkar sem höfum
verið að gagnrýna auðlindastefn-
una og forsendurnar í sjávarút-
vegi heyrast", segir Grétar Mar
Jónsson, forseti Farmanna- og
fiskimannasambandsins um
komu bandarískrar sendinefndar
um auðlindamál hingað til lands.
„Okkur hefur ekki verið boðið að
koma okkar skoðunum á fram-
færi við sendinefndina og stjórn-
völd virðast ekki vilja hafa aðra
en jábræður núverandi kerfis í
þeim hópi sem nefndarmenn fá
tækifæri til að ræða við.“
Sendinefnd þingmanna sem
sitja í auðlindanefnd bandarísku
fulltrúadeildarinnar er stödd hér
á landi og mun funda með sjávar-
útvegsráðherra, embættismönn-
um í sjávarútvegskerfinu og full-
trúum Hafrannsóknarstofnunar
um fyrirkomulag auðlindamála.
Grétar Mar segir að eins og dag-
skráin sé byggð upp fari lítið fyr-
ir þeirri gagnrýni sem hefur ver-
ið sett fram á núverandi kerfi og
því sé hætt við að einungis kost-
ir kerfisins séu kynntir án þess
að bandarísku þingmennirnir fái
tækifæri til að kynna sér rök
þeirra sem hafa barist gegn nú-
verandi kerfi.
Undir þetta tekur Arthúr
Bogason, formaður Landsam-
bands smábátaeigenda. „Alla
gagnrýni sem erlendir aðilar fá á
þetta kerfi frá íslenskum aðilum
þurfa þeir að útvega sér með
talsverðri fyrirhöfn. Stjórnvöld
hafa verið með mjög einhliða
málflutning í þessum málum og
stöðu mála i
nokkrum löndum
og meðlimir hen-
nar séu þess
væntanlega full-
færir að vega og
meta þær upplýs-
ingar sem þeir fá
og óska eftir frekari upplýsing-
um telji þeir þörf á. Þá muni
nefndin ræða við þingmenn sem
hafi ýmsar skoðanir í þessum
málum.
binní@freltabladíd.is
GRETAR MAR
JÓNSSON
Okkur er ekki
boðið að koma
okkar sjónar-
miðum að
enga ástæðu til að
kynna gagnrýni
sem ég tel að eigi
ekki við rök að
styðjast. Þeir sem
hafa verið að
gagnrýna kerfið
geta sjálfsagt séð
um það sjálfir að
sjónarmiðum á
ÁRNI M.
MATHIESEN
Kynni bæði kost
aog galla kerfis-
ins.
koma sínum
framfæri." Þá
segir Árni litla ástæðu til að ætla
að ráðuneytið mati sendinefnd-
ina á einhliða upplýsingum.
Nefndin hafi verið að kynna sér
ARTHUR
BOGASON
Stjórnvöld eru
með eonhliða
málflutning.
það mætti í raun
halda að þau væru
hagsmunasamtök
en ekki stjórnvöld
sem er ætlað að
leita bestu leiða
við stjórn mála.“
Árni Mathie-
sen, sjávarútvegsráðherra, vísar
því á bug að verið sé að reyna að
halda fram einhverri glansmynd
af fiskveiðistjórnarkerfinu. „Við
kynnum kerfið með þeim kostum
og löstum sem við sjáum en ég sé
Önnur sjálfsmorðsárás í ísrael:
Tuttugu særðir
jerúsalem, ap. Tuttugu manns
særðust þegar palestínskur mað-
ur sprengdi sjálfan sig í loft upp
fyrir utan veitingahús í ísraelsku
hafnarborginni Haifa í gær. Flest-
ir hlutu minniháttar meiðsl að
sögn lögreglu og björgunarsveita-
fólks sem kom á slysstað í Kiryat
Motzkin, sem er úthverfi norður
af Haifa. Samtökin Heilagt stríð
lýstu ábyrgð á tilræðinu á hendur
sér.
En eins og við fyrri sjálfs-
morðsárásir vörpuðu ísraelsk
stjórnvöld ábyrgðinni á hendur
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna vegna þess að hann hefur
neitað því að handtaka meðlimi
herskárra hópa Palestínumanna.
Sprengjuárásin í Haifa átti sér
stað aðeins þremur dögum eftir
að fimmtán manns létust í sjálfs-
morðsárás á veitingahúsi í Jer-
úsalem. Þá sprengdi tilræðismað-
ur sig innandyra en í árásinni í
gær var hann staddur fyrir utan
veitingastaðinn sem skipti sköp-
um.
ísraelsk stjórnvöld brugðust
við sprengjuárásinni sl. fimmtu-
dag með því að hertaka höfuð-
stöðvar og lögreglustöðvar palest-
ínsku heimastjórnarinnar í og við
Jerúsalem. Við Austurlandahúsið
í Jerúsalem kom til mótmæla í
gær, þriðja daginn i röð. ■
SJÁLFSMORÐSÁRÁS
Lögregla og björgunarsveitarfólk fyrir utan veitingastaðinn Wall Street Cafe í gær.