Fréttablaðið - 13.08.2001, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
13. ágúst 2001 MÁNUPAGUR
| SPURNING PACSINS
Heldurðu að KR falli?
Nei, ég er alveg harður á því að þeir falli
ekki. Ég hef trú að því að mannskapurinn
rífi sig upp og klári þetta. ■
Níels Hafsteinsson veitingastjóri og KR-ingur
Minnismerki við Höfða fjarlægt eftir að
bent var á nafnarugl:
Otrúleg handvömm
nafnarucl Minnismerkið við
Höfða þar sem Mikhail Gorba-
stjov er rangnefndur Nikolaj var
tekið niður sl. föstudag, í kjölfar
fréttar Fréttablaðsins. Hildur
Kjartandóttir, móttökustjóri
Höfða, segir með ólíkindum að
þessi villa skyldi eiga sér stað.
„Textinn var sendur Árna Berg-
mann til þýðingar og síðan send-
ur í prófarkalestur til Ingibjarg-
ar Haraldsdóttur," segir Hildur.
„Maður er algerlega háður sér-
fræðingunum þegar rússneska er
annars vegar og þessi handvömm
hjá þeim er með ólíkindum."
Gerður verður nýr steinn og
segir Hildur það vera huggun
harmi gegn að það sé ekki dýr að-
gerð. „Það vill líka svo heppilega
til að steinsmiðjan á rússneskt
granít til.“ Hildur segist búast
við því að steinninn verði kominn
á sinn stað innan tíðar en segir
erfitt að segja til um nákvæm-
lega hvenær.
Minnismerkið var afhjúpað í
árslok 2000 og hafði enginn bent
á villuna fyrr en Stanislav
Smirnov hafði samband við
Fréttablaðið og eftir það hafa
hlutirnir gengið hratt fyrir sig. ■
SORG
Rússneskur sjóliðsmaður huggar móður
eins fórnarlambanna sem létust í slysinu
þann 12. ágúst fyrir ári siðan.
Ar liðið frá því Kúrsk
sökk í Barentshaf:
Fórnalamba
Kúrsk minnst
MURMANSK, RÚSSLANPI, AP. Fjöl-
skyldur þeirra 118 fórnarlamba
sem fórust með rússneska kjarn-
orkukafbátnum Kúrsk, söfnuðust
í gær saman til að minnast þess að
eitt ár er liðið síðan atburðurinn
átti sér stað. í bænum Vidayevo
þar sem áhöfn Kúrsk hafði aðset-
ur sitt lögðu hermenn blómsveiga
við minnismerki sem sett hefur
verið upp um þá sem létust. Um
þessar mundir vinna menn að því
að hífa kafbátinn upp úr Barents-
hafi en sú vinna hefur gengið
heldur hægar en til var ætlast. ■
—♦—
Ölfunarakstur:
Slasaðist
í bílveltu
UMFERÐARSLYS Maður sem er grun-
aður um ölvun við akstur velti bíl
sínum skammt frá Dalvík á að-
faranótt sunnudags. Ökumaður-
inn var einn í bílnum og var hann
fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Hann mun ekki vera alvarlega
slasaður. Lögreglan á Akureyri
segir vont til þess að vita að öku-
menn láti sér ekki segjast og séu
að aka undir áhrifum áfengis -
þrátt fyrir sláandi fordæmi og
mikinn áróður.
Lögreglan á Akureyri tók fimm
ölvaða ökumenn um helgina. ■
Eigendur HeiðarQalls hyggjast leita til Mannréttindadómstóls Evrópu verði máli þeirra gegn
bandarískum stjórnvöldum vísað frá héraðsdómi. Eigendurnir vilja að Bandaríkjaher hreinsi
Qallið af úrgangi frá ratsjárstöðinni sem þeir yfirgáfu árið 1970. Halldór Asgrímsson segir
HeiðarQall hafa verið hreinsað í samræmi við kröfur þess tíma.
pómsmál Að sögn Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra
ræddu þeir Colin Powell utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna ekki á
fundi sínum í síðustu viku úrgang-
inn sem Bandaríkjaher skildi eftir
sig á Heiðarfjalli á Langanesi árið
1970. Þá yfirgaf herinn fjallið eft-
ir að hafa rekið þar fjölmenna rat-
sjárstöð frá árinu 1954.
Eigendur Heiðarfjalls stefndu í
sumar Powell ásamt George Bush
Bandaríkjaforseta og Donald
Rumsfeld varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna fyrir héraðdóm
Reykjavíkur og kröfðust þess að
þeir fjarlægðu úrganginn. Banda-
rísk stjórnvöld sendu ekki fulltrúa
sinn fyrir dóminn og í haust má
því búast við því að dómur verði
felldur í málinu á grundvelli þeir-
ra gagna sem landeigendurnir
hafa lagt fram nema að málinu
verði einfaldlega vísað frá.
„Landinu var skilað á sínum
tíma. fslenska ríkið tók við því.
Það voru allt aðrar kröfur þá en í
dag,“ segir Hallór Ásgrímsson.
Hann lítur ekki á það sem skyldu
íslenskra stjórnvalda að hreinsa
til á Heiðarfjalli: „Það eru banda-
rísk stjórnvöld sem höfðu þær
skyldur og það var gert í samræmi
við þær kröfur sem þá voru. Það
voru allt aðrar kröfur á þeim tíma
en eru í dag. Þetta á við víðar eins
og við Straumnesfjall. Það var
ekki hreinsað til þar af því marki
sem gert er i dag.“
Björn Erlendsson, einn fimm
eigenda Heiðarfjalls, segist telja
afar góðar líkur á að Mannrétt-
indadómstóll Evrópu taki málið
fyrir verði því vísað frá héraðs-
dómi í haust. „Mannréttindómstól-
inn hefur áður fengið málið til um-
fjöllunar en sagði þá að leita bæri
frekari úrlausna í heimalandinu.
Ef það tekst ekki virðist sem dóm-
urinn sé tilbúinn að líta á málið
áfram,“ segir hann.
Björn segir Bandaríkjaher hafa
gert samning við embættismenn
íslenska utanríkisráðuneytisins
sem afsalaði öllum skaðabótarétt-
indum íslenskra þegna vegna veru
hersins á Heiðarfjalli og banda-
rísk stjórnvöld hafi síðan vísað til
þess. „Lögfræðilegt álit segir hins
vegar að embættismennirnir hafi
ekki haft rétt til að afsala réttind-
um íslenskra borgara á þennan
hátt. Bandaríkjamenn eiga úr-
ganginn sem er í heimildarleysi á
landi okkar og þeir eiga að fjar-
lægja hann,“ segir hann.
MENCUN Á HEIÐARFJALLI
Alls kyns rusl frá veru Bandarlkjahers á
Langanesi er á Heiðarfjalli en langstærsti
hlutinn er falinn undir yfirborði fjallsins.
Björn segir gríðarlegt magn
margs kyns hættulegra spillefna
hafa fallið til á starfstíma ratsjár-
stöðvarinnar. Úrgangurinn hafi
verið grafinn leynilega og án
heimildar landeigenda á fjögurra
til fimm metra dýpi á tveggja
hektara svæði.
gar@frettabladid.is
Ráðherrar ræddu ekki
mengun á Heiðarfjalli
LAURA ASHLEY
Síðustu dagar útsölunnar.
*
20% aukaafsláttur af
útsölufatnaði þessa viku.
*
LAURA ASHLEY
Bæjarlind 14-16, Kópavogi.
___________s. 551 6646_______
Opið mán - föst. 10-18, lau 11-15
Framkvæmdastjóri Goða hættir:
Forsendur eru brostnar
starfslok „Forsendur fyrir veru
minni hérna eru brostnar. Ég hef
klárað það sem ég tel að þurfi að
klára og koma öllu í þann farveg að
ég sé fyrir endann á því og á þeim
tímapunkti tel ég að ég geti farið
frá fyrirtækinu,“
sagði Kristinn Þór
Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Goða,
sem nú hefur gert
starfslokasamning
við eigendur fyrir-
tækisins og væntir
þess að hverfa frá
Goða fyrir árslok.
Kristinn Þór hefur
starfað fyrir Goða
frá nóvember 2000.
í starfsloka-
samningi Kristins
er gert ráð fyrir því
að Kristinn fylgi
FARINN
Kristinn Þór seg-
ir að hann hafi
fengið rangar
upplýsingar um
stöðu Goða
þegar hann tók
við stjórnar-
taumunum.
JAFNVÆCI f CREININNI
Kristinn Þór Geirsson, framkvæmdarstjóri Goða, telur að hann hafi vakið fólk til umhugs-
unar um stöðu sauðfjárræktunar á islandi.
greiðslustöðvun Goða, og því er úr
henni kemur, til enda og hætti svo.
Aðspurður segir Kristinn að hann
gerir ekki ráð fyrir því að fyrir-
tækið endi í gjaldþroti. Kristinn
segir að þær upplýsingar sem hann
fékk um stöðu fyrirtækisins við
ráðningu hafi „klárlega verið rang-
ar.“
„Menn gerðu ráð fyrir því að á
seinni helmingi ársins 2000 næðist
jafnvægi í rekstrinum en félagið var
keyrt á sama tíma upp í 430 milljón
króna tap,“ sagði Kristinn Þór. ■