Fréttablaðið - 13.08.2001, Side 14

Fréttablaðið - 13.08.2001, Side 14
14 FRETTABLAÐIÐ 13. ágúst 2001 MÁNUDAGUR Landsliðshópurinn tilkynntur: Jóhannes Karl og Marel valdir 2. deild á Englandi: Stoke tapaði knattspyrna Stoke City mætti Queens Park Rangers í fyrsta leik þeirra á nýju leiktímabili 2. deildar í Englandi í gær. Rangers sigraði með einu marki gegn engu en liðið féll niður um deild á fyrra tímabili. Það hefur ekki spilað í 2. deild síðan árið 1967. Andy Thomson, leikmaður Rangers, fékk sendingu frá liðs- manni sínum Stuart Wardley, skaut rétt fyrir utan vítateig. Boltinn flaug örugglega í mark og markmaður Stoke, Gavin Ward, kom engum vörnum við. Fjórir leikmenn Stoke fengu að líta gult spjald. Rangers höfðu, að sögn enskra fjölmiðla, tögl og hagld- ir í öllum leiknum og hefðu átt að koma boltanum oftar í mark Stoke. ■ Meistaramót ungmenna: Þrjú KNATT5PYRNA Atli Eðvaldsson til- kynnti í gær hverjir skipa lands- liðshópinn fyrir æfingaleikinn gegn Póllandi. Leikurinn fer fram á miðviku- daginn klukkan 18. Tveir nýliðar eru í hópnum, þeir Jóhannes Karl Guðjónsson, sem leikur með RKC Waalwijk og Marel Baldvinsson, leikmaður Stabæk í Noregi. Helgi Kolviðsson, sem leikur með FC Karnten og Ríkharður Daðason, leikmaður Stoke, eru hins vegar ekki í hópnum. Þá gaf Helgi Sigurðsson, leik- maður Lyn í Noregi, ekki kost á sér vegna meiðsla. ■ NÝR LEIKMAÐUR Marel Baldvinsson hefur staðið sig vel með Stabæk í sumar og hefur nú fengið verðskuldað tækifæri með landsliðinu. [------------------------------------ HÓPURINN GEGN PÓLVERJUM: Markverðir: Árni Gautur Arason, Rosenborg Birkir Kristinsson, IBV Varnarmenn: Eyjólfur Sverrisson, Herthu Berlln Hermann Hreiðarsson, Ipswich Arnar Þór Viðarsson, Lokeren Auðun Helgason, Lokeren Pétur Marteinsson, Stabæk Miðjumenn: Arnar Grétarsson, Lokeren Tryggvi Guðmundsson, Stabæk Brynjar Björn Gunnarsson, Stoke Jóhann B. Guðmundsson, Lyn Jóhannes Karl Guðjónsson, RKC Waalwijk Heiðar Helguson, Watford Sóknarmenn: Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea Andri Sigþórsson, Salzburg Marel Baldvinsson, Stabæk Boltinn rúllar í Bretlandi Islands- met féllu frjálsar ÍÞRÓTTIR Meistaramóti Islands í frjálsum íþróttum ung- menna lauk í gær. Mikill fjöldi tók þátt og voru þrjú íslandsmet slegin. Öll metin voru slegin á Kópavogsvelli, en þar kepptu 15 til 22 ára. FH sigraði í stiga- keppninni með 469 stig. Fannar Gíslason úr FH setti met í sveinaflokki þegar hann kastaði spjóti 54,56 metra. Björgvin Víkingsson, einnig úr FH, setti íslandsmet í 300 metra grindahlaupi drengja. Hann hljóp á 38,27 sekúndum. Loks setti Kristín B. Ólafsdóttir úr Fjölni met í þrístökki meyja. Hún stökk 11,61 metra. Sigurbjörg Ólafsdóttir úr Breiðablik var sigursælust allra keppenda mótsins með sex gull- verðlaun og ein silfurverðlaun. Breiðablik var í öðru sæti stiga- keppninnar með 232 stig og HSK í því þriðja með 196,5 stig. ■ mán Grindavik - Fram Sfmadeildin kl. 18.45 Þri Mótorsport kl. 19.30 >un Man. Utd. - Fulham Enski boltlnn kl. 14.45 US PGA Meistaramótið i gotfi kl. 18.00 mið England - Holland kl. 20.10 mlð kl. 22.30 mán Sfmadeildín kl. 18.45 www.syn.is eðalslma 515 6100 lau US PGA Meistaramótið í golfi kl. 18.00 f6s Hestar 847 kl. 20.00 íþróttir áSvn 13. ágúst - 20. ágúst Enska knattspyrnutímabilið hafið. Fyrsta, önnur og þriðja deild í Englandi byrjuðu á laugardag. Liverpool vann Manchester United í leik um Góðgerðarskjöldinn í gær. knattspyrna Enska úrvalsdeildin hefst næsta laugardag en knatt- spyrnuáhugamenn fengu smjör- þef af því sem koma skal í gær. Liverpool og Manchester United spiluðu um Góðgerðarskjöldinn, þar sem krýndir eru meistarar meistaranna. Miðar á Þúsaldar- leikvanginn í Cardiff seldust upp og voru það því 70 þúsund manns sem fylgdust með risunum tveim- ur takast á í hörðum leik. Liver- pool sigraði með tveimur mörkum gegn einu. Liðið náði snemma tökum á leiknum og fékk vítaspyrnu á fyrstu mínútunum. Michael Owen gaf boltann inn í teig á Danny Murphy, sem var felldur. McAll- ister skoraði úr vítinu. Michael Owen skoraði annað mark Liver- pool á 16. mínútu. Langt útspark markvarðar Liverpool, Sander Westerveld, kom vörn United úr jafnvægi og sókn Liverpool endaði á því að Owen rúllaði boltanum framhjá Fabien Barthez. Sander Westerveld stóð sig vel í marki Liverpool og átti stóran þátt í því að liðið vann. United kom tvíeflt til leiks í seinni hálfleik og Ruud Van Nistelro'oy minnkaði muninn á Islandsmótið í höggleik: Ornog Herborg sigruðu golf íslandsmótið í höggleik hófst á fimmtudag í Grafarholti og end- aði í gær. Örn Ævar Hjartarson GS og Herborg Arnardóttir GR eru íslandsmeistarar. Keppnin í kvennaflokki var mjög jöfn og spennandi. Fyrir síð- asta keppnisdag var Ólöf María Jónsdóttir höggi á undan Kristínu Elsu Erlendsdóttur, sem var höggi á undan Herborgu Arnarsdóttur og Þórdísi Geirsdóttur. í lok dags- ins var það síðan ljóst að úrslitin gætu ráðist á flötinni á 18. holu. Herborg Arnarsdóttir spilaði vel en Ólöf María Jónsdóttir brenndi af þegar hún hefði getað tryggt sér titilinn. Þær voru báðar með 26 högg yfir pari eftir fjóra keppnisdaga. Því beið umspil þeirra og þar var aldrei spurning hvor myndi fara með sigur af hólmi. Herborg spilaði vel en Ólöf, sem varð íslandsmeistari þegar mótið fór síðast fram í Grafarholti 1997, náði sér ekki á strik. Kristín Elsa var í þriðja sæti eftir sigur á Ragnhildi Sig- urðardóttur, tvöföldum íslands- meistara, í umspili. Þær voru jafnar í þriðja sæti á 29 höggum yfir pari. Fyrir síðasta dag var örn Ævar með þriggja högga forskot á Har- ald Heimisson GR. Örn lék vel í gær. Hann spilaði alls á fjórum 51. mínútu. Liðið átti nokkur góð tækifæri það sem eftir var leiks en náði ekki að jafna. Liverpool spilaði án Robbie Fowler, sem var frá vegna meiðsla, og Andy Cole, sem var frá vegna persónulegra ástæðna. Juan Sebastian Veron spilaði ekki með United þar sem hann spilar er í æfingabúðum landsliðs Argentínu þessa dagana. Leiktímabil fyrstu, annarar og þriðju deild- ar hófst á laugardag. Liðin þrjú sem voru send niður úr Úrvals- deildinni, Manchester City, Bradford og Coventry, sigruðu öll í Michael Owen fyrstu deild. Fyrrum landsliðsþjálfari Englands, Kevin Keegan, stjórnar nú Man. City og gerði það vel á móti Watford, rúll- aði yfir það. Man. City skoraði þrjú mörk en Watford, sem er nú undir stjórn Gianluca Vialli, ekki neitt. Heiðari Helgusyni var skipt inn á sem varamanni á 66. mínútu. RÚLLAÐ FRAMHJÁ FABIEN leikmaður Liverpool, skorar annað mark liðsins á Þúsaldarleikvanginum i gær. Jaap Stam, leikmaður Manchester United, stendur álengdar og fær ekki rönd við reist. Bradford vann Barnsley 4-0 og Coventry, sem datt niður úr Úr- valsdeild í fyrsta skipti í 34 ár, vann Stockport 2-0. Aðrir leikir: Gillingham 5, Preston 0; Grimsby 1, Crewe 0; Millwall 4, Norwich 0; Nottingham Forest 1, Sheffield United 1; Rotherham 2, Crystal Palace 3; Walsall 2, West Brom 1; Wimbledon 3, Birmingham 1; Wol- verhampton 2, Portsmouth 2. í þriðju viku skosku deildarinn- ar eru meistararnir í Celtic enn taplausir. Þeir mættu Hearts og unnu leikinn með tveimur mörk- um Henrik Larsson gegn engu. ■ Fótbolti helgarinnar: Ekkert gengur hjá Vesturbæingum VERÐSKULDAÐUR SIGUR Herborg Arnardóttir stóð sig vel á mótinu og átti sigurinn skilinn eftir góðan leik. höggum yfir pari en Haraldur Heimisson var á sjö höggum yfir pari. Björgvin Sigurbergsson GK, Islandsmeistari fyrra árs, var í þriðja sæti á átta höggum yfir pari. Þess má til gamans geta að fyr- ir mótið spáðu valinkunnir kylfingar um úrslitin. Þar var Björgvin Sigurbergsson spáð sigri í karlaflokki og Haraldur Heimisson var í öðru sæti. í kvennaflokki var það Ragnhildur Sigurðardóttir, sem var talin sig- urstranglegust en Ólöf María og Herborg voru einnig taldar líkleg- ar. ■ knattspyrna Tveir leikir fóru fram í Símadeild karla í knatt- spyrnu í gærkvöldi. KR tók á móti Eyjamönnum í Frostaskjól- inu en heimavöllurinn dugði ekki til að knýja fram sigur. ÍBV vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Atli Jóhannsson skor- aði á 43. mínútu og Tómas Ingi Tómasson bætti við öðru marki á 54. mínútu. Eyjamaðurinn Páll Almarsson leit rautt spjald á 74. mínútu. Eftir þessi úrslit er fall- barátta KR-inga staðreynd. Liðið er aðeins einu stigi frá fallsæti og ljóst er að ef ástandið breytist ekki verma meistararnir brátt falls£6ti FH tók á móti Keflavík í Kaplakrika og endaði leikurinn með jafntefli. Þórarinn skoraði fyrir Keflavík á sjöttu mínútu og Guðmundur bætti öðru við á 27. mínútu. í hálfleik sneri leikurinn SÍMAPEILPIN Lið Leikir U J T Mörk Stig Fylkir 12 7 4 1 23:8 25 lA 12 7 2 3 18:9 23 IBV 13 7 2 4 11:11 23 FH 13 6 4 3 15:12 22 Grindavík 11 6 0 5 18:17 18 Valur 12 5 2 5 15:17 17 Keflavik 13 4 4 5 18:20 16 KR 12 3 2 7 9:16 11 Fram 12 3 1 8 15:20 10 Breiðablik 12 2 1 9 11:23 7 við og heimamenn svöruðu fyrir sig. Jóhann Möller skoraði fyrra mark FH á 57. mínútu og Jón Þor- grímur Stefánsson jafnaði á 70. mínútu. Þór/KA/KS tók á móti Breiða- blik á Þórsvelli í gær. Líkt og hjá KR dugði heimavöllurinn ekki til og Blikastúlkur unnu leikinn með þremur mörkum gegn engu. Bryndís Bjarnadóttir, Erna Björk Sigurðardóttir og Eyrún Odds- dóttir skoruðu fyrir Breiðablik. í fyrstu deild karla lauk 13. umferð um helgina. Dalvík tók á móti ÍR á föstudaginn á Dalvík- urvelli. Heimamenn sigruðu með einu marki gegn engu. Samdæg- urs vann Stjarnan Víking með fjórum mörkum gegn einu á Stjörnuvelli í Garðabæ. Á laugar- dag vann Þróttur Þór með tveim- ur mörkum gegn einu á Valbjarn- arvelli. ■ I. PEILP KARLA Lið Leikir u J T Mörk Stig KA 13 9 3 1 33:11 30 Þór A. 13 8 2 3 37:15 26 Stjaman 13 7 5 1 27:13 26 Þróttur R. 13 6 4 3 20:16 22 Víkingur R. 13 4 4 5 22:19 16 Dalvík 13 5 1 7 18:29 16 IR 13 2 8 3 23:28 14 Leiftur 13 4 2 7 16:22 14 Tindastóll 13 3 3 7 19:31 12 KS 13 0 2 11 8:39 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.