Fréttablaðið - 13.08.2001, Síða 15
MÁNUPAGUR 15. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Olga Yegorova vann 5000 metra hlaupið:
Ahorfendur bauluðu
friálsar Íþróttir Allir voru á móti
Rússanum Olgu Yegorova þegar
hún mætti Gabrielu Szabo og öðr-
um í úrslitum 5000 metra hlaups-
ins í Edmonton á laugardag. Mikla
athygli vakti að hún féll á lyfja-
prófi í París fyrir mánuði en það
var gert ógilt vegna formgalla,
mörgum til mikillar óánægju.
Áhorfendur bauluðu á hana
fyrir hlaupið á laugardag en hún
lét það ekki á sig fá heldur sigraði
örugglega. Gabriela Szabo dróst
aftur úr Yegorova og öðrum þegar
tveir hringir voru eftir og endaði
ekki í verðlaunasæti. Þetta kom á
óvart þar sem Szabo er tvöfaldur
heimsmeistari í 5000 metrunum
og vann 1500 metra hlaupið í síð-
ustu viku. Hún kallaði suma hlau-
parana, sem voru á undan henni í
mark, vélmenni. „Yegorova er
ekki meistarinn hér,“ sagði hún.
Margir tóku undir þetta með
henni og skiptust hlauparar brátt í
tvo hópa, þeim sem fannst
Yegorova ekki hafa unnið og þeim
sem fannst þetta allt í lagi.
„Lyfjaprófið í París voru mis-
tök. Það er ekki hægt að ásaka
einhvern fyrir eitthvað sem hann
gerði ekki,“ sagði Yegorova. Þeg-
ar hún kom í mark var fátt um
fagnaðarlæti tæplega 50 þúsund
áhorfenda, sem eru venjulega
mikil. Yegorova kveið þó ekki fyr-
ÓVÆNT ÚRSLIT
Olga Yegorova sigraði örugglega á laugar-
dag. Gabriela Szabo kallaði hana og fleiri
hlaupara vélmenni.
ir verðlaunaafhendingunni, sem
var í gær. „Hvað? Átti ég að vera í
öðru eða þriðja sæti til að þóknast
áhorfendunum. Nei, ég er á toppn-
um og ánægð með það.“ ■
--------------------\
Varmárskóli í Mosfellsbæ
Við auglýsum síðustu kennarastöð-
una við skólann á þessu skólaári.
• Okkur vantar kennara á yngsta stigið.
• Hlutastarf kemur til greina.
FYRSTI AF HUNDRAÐ
Marion Jones hafði unnið 42 100 metra úrslitahlaup í röð og hefði unnið heimsmeistaratitilinn í þriðja skipti í röð, hefði Pintusevich-
Block ekki nælt í sigur.
Marion Jones undir pressu:
„Get ekki unnið öll hlaup“
frjálsar íþróttir Undir venjulegum
kringumstæðum væri íþróttamað-
ur hæstánægður með það að snúa
heim af Heimsmeistaramótinu í
Edmonton með tvö gull og eitt silf-
ur. Ekki Marion Jones. Hún er 25
ára og ein sigursælasta hlaupakona
sögunnar. „Eg kom hingað til að
vinna þrjú gull og það klikkaði,11
sagði Jones eftir sigur kvennasveit-
ar Bandaríkjanna í 4x100 metra
boðhlaupi. „Eg verð að kyngja því.“
Jones vann 200 metra hlaupið á
föstudag og annað gull vannst í
4x100 metra boðhlaupi á laugar-
dag. Þar kom hún í mark með fimm
metra forskot. Bandaríska sveitin
hljóp á 41,71 sekúndu, sem er það
besta á árinu.
Skugga var varpað á mótið hjá
Marion þegar Zhanna Pintusevich-
Block sigraði hana í 100 metra
spretthlaupi á mánudaginn fyrir
viku. Það þýddi að hún mátti ekki
tapa hinum greinunum til að mótið
væri ekki algjört klúður. Ástæðan
fyrir þessarri gífurlegu pressu er
að Jones gekk frábærlega á Ólymp-
íuleikunum í Sidney, vann fimm
verðlaun, þar af þrjú gull.
„Ég get ekki unnið öll hlaup sem
ég keppi í. Aðdáendur mínir virð-
ast halda það og þannig væntingar
eru ekki af hinu góða. Alltaf þegar
ég er á brautinni fylgjast allir með
mér.“ ■
• Góð vinnuskilyrði og starfskjör.
• Kannið málið.
Upplýsingar gefa Viktor A. Guðlaugsson
skólastjóri í s. 5666186 eða 8950701 og
Þórhildur Elfarsdóttir aðstoðarskólastjóri,
Arna B. Arnardóttir og Guðrún Markúsdóttir
stigstjórar í síma 5250701.
__________________________________________/
AK Menntaskólinn við Hamrahlíð
%f!Q} 105 Reykjavík
sími 595-5200 • fax 595-5250
Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins verða
haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð í ágúst
2001 sem hér segir:
IVIiðvikudaginn 15. ágúst
Kl. 17:00 Norðurlandamál og franska.
Kl. 19:00 ítalska, spænska og þýska.
Fimmtudaginn 16. ágúst
Kl. 17:00 Stærðfræði skv. nýrri námskrá STÆ103, STÆ203 og STÆ263.
Kl. 19:00 Enska.
Tekið verður á móti skráningu í stöðupróf á skrifstofu skólans í síma
595-5200 frá kl. 8:30 til 15:30 dagana 9. -14. ágúst.
Prófgjald, kr. 3500 á hvert próf, greiðist hálftíma fyrir prófið.
í Aðalnámskrá framhaldsskóla ef tekið fram að þessi próf séu ætluð þeim sem
búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur veriö aflað með hefðbundnum
hætti í skóla. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrir liggur álit menntamála-
ráðuneytisins um að stöðupróf skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nemend-
ur sem fallið hafa á annar eða bekkjarprófi. www.mh.is D ..
nGktor.
Ivan Pedroso sigraði í langstökki:
Algjörir yfirburðir
FRJALSAR
ÍÞRÓTTIR
Kúbverjinn Ivan
Pedroso vann fjórða
heimsmeistaratitil
sinn í röð í langstökki
á laugardag. Banda-
ríkjamaðurinn
Savante Stringfellow
var í öðru sæti og
Portúgalinn Carlos
Calado í því þriðja.
Pedroso stökk 8.40
metra, sem er hans
langbesta stökk á
mótatímabilinu, sem
nú er í fullum gangi.
Hann stökk 16 senti-
metrum lengra en
Stringfellow. „Þetta
er fyrsta góða niður-
staða tímabilsins.
Hún kom á réttum
tíma,“ sagði Pedroso.
Calado stökk 8.21,
sem er einnig hans
besta stökk á tímabil-
inu.
Þó að Pedroso,
sem er 28 ára, hafi
ekki stokkið vel að
undanförnu sannaði hann að hann
er góður í keppni. Hann var 14. á
lista inn á mótið. Strax í annarri
tilraun sýndi hann hvert stefndi,
stökk 8.23, og hélt áfram í þriðju,
stökk 8.35. Lengsta stökkið var í
fimmtu tilraun og enginn átti
8.40 METRA SVIF
Pedroso stökk lengst í fimmtu tilraun. Hann var 16 senti-
metrum á undan næsta manni, þrátt fyrir að vera meiddur á
hægra fæti.
möguleika á að komast með tærn-
ar þar sem hann var með hælana.
„Samt var þetta erfið keppni, ég
er meiddur á hægri fæti,“ sagði
Pedroso. Á Ólympíuleikunum í
fyrra vann hann gullið út á sitt
síðasta stökk, það var 8.55. ■
ÖRYGGISKERFI: Stöð og hnappaborð-Hreyfiskynjari
Hurðaseglar-r
Kr. 65.000 ei
Hurðaseglar-Fjarstýring-Bjalla og uppsetning.
ida 5.417 x 12 mánuðir.
I
ISDN tenging: NT box ásamt stofngjaldi símans ISDN
simi með tvo analog útganga uppsetning á NT boxi
og sima.
Kr. 29.000 eða 4.833 x 6 mánuðir.
RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf.
VERSLUN - HEILDSALA
Hamarshöfða 1-110 Reykjavík - Sími 511 1122 - Fax 511 1123
Verkstæði og vörulager: 511 1124 - ris@simnet.is - www.simnet.is/ris