Fréttablaðið - 21.08.2001, Síða 2
KJÖRKASSINN
2
FRÉTTABLAÐIÐ
21. ágúst 2001 PRIÐJUPAGUR
SKARÐ FYRIR SKILDI
Mikill meirílhluti kjós-
enda á Visi.is telur það
munu skaða Samfylk-
inguna að Ágúst Ein-
arsson lætur af starfi
framkvæmdastjórnar
flokksins.
Er það skaði fyrir Samfylkinguna
að Ágúst Einarsson hætti for-
mennsku í framkvæmdastjórn?
Niðurstöður gærdagsins
á wvw.vísir.is
77%
23%
Spurning dagsins í dag:
Nýtur Flugmálastjórn trausts þins eftir
Skerjafjarðarslysið?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun I
____________________
N áttúruverndarsamtök
Islands:
Vilja rök
frá Davíð
kárahnúkavirkjun Náttúruvernd-
arsamtök Islands lýsa eftir rök-
stuðningi Davíðs Oddsonar vegna
þeirra orða hans í
sjónvarpaviðtali að
úrskurður Skipu-
lagsstofnunar
vegna Kárahnúka-
virkjunar sé ekki
samkvæmt lögum.
„Þetta eru mjög
alvarlegar ásakanir
af hálfu forsætis-
ráðherra og gera
verður þá kröfu til
hans að hann rök-
styðji þessa fullyrð-
ingu sína og feli sig
ekki á bak við væntanlega kæru
Landsvirkjunar í þessu efni,“ seg-
ir í yfirlýsingu frá Náttúruvernd-
arsamtökunum og bæta því við að
forsætisráðherra sé vandi á hönd-
um: „Gangi hann þvert á niður-
stöðu, sem studd er sterkum fag-
Iegum rökum og taki ákvörðun,
sem byggist fyrst og fremst á
pólitískum sjónarmiðum, mun
verða spurt til hvers lögin um mat
á umhverfisáhrifum séu og hvert
markmið Alþingis með setningu
þeirra hafi verið.“ ■
DAVÍÐ
ODDSSON
Mjög alvadegar
ásakanir af
hálfu forsætis-
ráðherra, segja
Náttúruverndar-
samtök (slands.
COÐI
Fyrirtækið heitir nú Kjötumboðið.
Goði - Kjötumboðið:
Lagst gegn
lengri fresti
greiðslustöðvun Héraðsdómur
Reykjavíkur tók ekki afstöðu til
óskar Kjötumboðsins, sem áður hét
Goði, um framlengingu greiðslu-
stöðvunar. Ástæða þess er sú að
réttinum bárust mótmæli frá Jóni
Hjaltasyni, hæstarréttarlögmanni.
Jón andmælti fyrir hönd Þorleifs
Hjaltasonar og Kristínar Eddu
Gunnarsdóttur en þau eru bændur
að Hólum í Hornarfirði og eiga inni
fjármuni hjá Kjötumboðinu.
„Goði er skrifaður fyrir slátur-
húsinu á Hornarfirði, meðal ann-
ars, og verið er að safna öllum slát-
urhúsum á landinu saman undir
einn hatt til þess að geta ráðið af-
urðarverðinu," sagði Jón þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann í gærkvöld: „Þeir eru bara að
þessu til þess að stjórna markaðin-
um og geta lagt á þessar landbúnað-
arafurðir það sem þeim sýnist."
Sökum andmæla bændanna
verður málflutningur fyrir Héraðs-
dómi í dag klukkan 15:00 og mun
Jón flytja mál bændanna en
Brynjólfur Kjartansson mál Kjöt-
umboðsins. ■
breikkun á brú
Brúin yfir Gljúfurá á mótum Húnavatnssýslna verður ekki einbreið mikið lengur. Menn
voru í óðaönn við að slá utan af, ganga frá handriði og Ijúka frágangi við breikkun hennar.
Vegirnir gerðir öruggari:
Færri ein-
breiðar brýr
þjóðvegir Hjá Vegagerðinni eru
unnið að því að fækka einbreiðum
brúrn á Þjóðvegi 1. Nú er verið
ljúka breikkun brúar yfir
Gljúfurá á mótum Húnavatns-
sýslna. Jón Rögnvaldsson aðstoð-
arvegamálastjóri segir að lokinni
breikkun brúarinnar yfir Gljúfuá
séu aðeins tvær brýr eftir á Þjóð-
vegi 1 í Húnavatnssýslu. „í Norð-
urárdal í Skagafirði eru þrjár
brýr eftir og svo ein í Norðurárdal
í Borgarfirði." Jón segir að unnið
sé eftir plani. „Hnausakvísl í
Húnavatnssýslu er á áætlun
næsta sumar og einnig Norðurá í
Borgarfirði."
Jón segir að mismikið mál sé
að breikka þessar einbreiðu brýr
og þar sem brýr eru gamlar þarf
að byggja nýjar. í Norðurárdal í
Skagafirði þarf að færa veginn og
er áætlað að hafist verði handa
við það sumarið 2004.
Merkingar við einbreiðar brýr
haf verið auknar, enda ber að
gæta varúðar þegar ekið er yfir
þær. „Við vonum það að merking-
arnar hafi áhrif. Við erum alla
vega að reyna að vekja athygli á
þeim eins og mögulegt er. ■
Bilun í flugvél Land-
helgisgæslunnar:
Lenti á ein-
um hreyfli
landhelgisgæslan Flugvél landhelg-
isgæslunnar, TF-SÝN, lenti heilu og
höldnu í Keflavík síðdegis í gær eft-
ir að það bilaði annar hreyfill hen-
nar. Hún hafði þá nýlega komið að
bát að meintum ólöglegum veiðum
út af Vestfjörðum. Bilunarinnar
varð vart þegar vélin var stödd
vestur af Látrabjargi um hádegi í
gær. Var þá ákveðið að snúa heim og
slökkt á hreyflinum og lenti vélin
síðan í Keflavík um fjögurleytið.
Þyrla landhelgisgæslunnar var síð-
an send til Keflavíkur með viðgerð-
arfólk og tókst fljótlega að koma
hreyflinum í gangfært ástand. ■
STARFSMENN FLUGMÁLASTJÓRNAR
Flugmálastjóm fær ekki stuðningsyfídýsingu frá flugráði á meðan hlutur hennar vegna Skerjafjarðarslyssins er enn til skoðunar í lögreglurannsókn.
Trausti á Flugmálastjórn
hrundið í klofnu flugráði
Ekki reyndist einhugur í flugráði um að lýsa yfir stuðningi við Flugmálastjórn vegna Skerjafjarð-
arslyssins. Tveir af fimm flugráðsmönnum töldu slíka yfirlýsingu óviðeigandi á meðan lögreglu-
rannsókn stendur yfir og var tillagan dregin til baka eftir að vera ítrekað lögð fram.
flugöryggi Traustsyfirlýsing á
Flugmálastjórn sem ítrekað var
lögð fram í flugráði var dregin til
baka eftir að ljóst
varð að ekki næð-
ist samstaða um
samþykkt hennar.
Pétur K.
Maack, fram-
kvæmdastjóri hjá
Flugmálastjórn,
lýsti vonbrigðum
sínum með þessa
niðurstöðu þegar
hann sat fund flug-
ráðs 21. júní sl.
Bókað var í fund-
Bókað var í
fundargerð
eftir Pétri að
„hann saknaði
þess" að flug-
ráð skyldi ekki
hafa stutt op-
inberlega við
bakið á Flug-
málastjórn .
—♦—
argerð eftir Pétri að „hann sakn-
aði þess“ að flugráð skyldi ekki
hafa stutt opinberlega við bakið á
Flugmálastjórn í umræðunni eftir
að skýrsla Rannsóknarnefndar
flugslysa koma út.
Árni Johnsen, einn flugráðs-
manna, tók undir orð Péturs og
sagði stuðninginn við flugráð
vanta vegna andstöðu tveggja
flugráðsmanna, þeirra Karvels
Pálmasonar og Gunnars Hilmars-
sonar.
Þeir Karvel og Gunnar ítrek-
uðu þá það sem þeir höfðu áður
sagt á fundum flugráðs að þeir
teldu ekki rétt að vera með bókan-
ir í flugráði um mál sem væri í op-
inberri rannsókn samkvæmt
beiðni flugmálayfirvalda. Þar eru
Karvel og Gunnar að vísa í lög-
reglurannsókn á Skerjafjarðar-
slysinu sem sögð hefur verið á
lokastigi nær allt þetta ár en hlut-
ur Flugmálastjórnar í málinu er
meðal þess sem þar er til rann-
sóknar.
Tillagan var fyrst lögð fram af
Hilmari B. Baldurssyni, formanni
flugráðs, 5. apríl sl. en afgreiðslu
hennar frestað eins og þegar hún
var lögð fram í eilítið breyttri
mynd næsta fundi 26. apríl. Á
næsta fundi þar eftir, 10. maí, er
Áburðarverksmiðjan hættir frumvinnslu eftir 30 ár:
Fjörutíu starfsmönnum sagt upp
áburður Tveir þriðju af fimmtíu
og sjö starfsmönnum Áburðar-
verksmiðjunnar fá uppsagnar-
bréf um næstu mánaðamót vegna
þess að frumvinnslu hráefna
verður hætt eftir þrjátíu ár og
áhersla í þess staö lögð á full-
vinnslu innflutts hráefnis. Um
leið verða umtalsverðar breyt-
ingar á eðli starfseminnar þar
sem fyrst og fremst verður fram-
leiddur fjölkornaáburður sem
Áburðarverksmiðjan setti á
markað árið 2000 og hlaut góðar
viðtökur hjá bændum. Verk-
smiðjan hefur á þessu ári um
70% markaðshlutdeild á áburðar-
markaðnum.
haraldur haraldsson
Keppum að því að halda markaðshlutdeild
með fullvinnslu innflutts hráefnis.
Haraldur Haraldsson stjórnar-
formaður félagsins sagði í gær að
með þessu væri Áburðarverk-
smiðjan að laga sig að harðvítugri
verðsamkeppni við innfluttan
áburð. Einnig hefði framleiðsla
fjölkornaáburðar lækkað verð og
dregið úr eftirspurn eftir ein-
kornaáburði sem er dýrari. Hann
kvað ákvörðunina á engan hátt
tengjast áformum í aðalskipulagi
Reykjavíkur um að taka Gufunes,
þar sem verksmiðjan stendur, und-
ir íbúðabyggð. Þrátt fyrir breyt-
ingarnar verður einkornaáburður,
sem og önnur framleiðsla fyrir-
tækisins, boðinn með óbreyttum
hætti á næsta ári. Á fundi með
starfsmönnum í gær kynnti Har-
aldur Haraldsson, breytingarnar
og fækkun starfsfólks í kjölfarið.
Áhersla verður lögð á að aðstoða
starfsfólk við atvinnuleit. ■
bókað eftir Karvel Pálmasyni að
hann muni legja fram sérbókun
verði tillagan samþykkt og Gunn-
ar Hilmarsson sagðist ekki telja
að flugráð ætti að álykta um mál-
ið. ,
í seinni drögum stuðningsyfir-
lýsingarinnar sagði m.a.:
„Það er skoðun Flugráðs að
þær árásir sem Flugmálastjórn
hefur orðið fyrir í kjölfar rann-
sóknar umrædds flugslyss séu
ómaklegar og í mörgum tilfellum
ómálefnalegar og lýsir Flugráð
yfir fullum stuðningi við Flug-
málastjóra og starfsmenn hans.“
gar@frettabladíd.is
Olíufélagið:
Milljarður
í gengistap
viðskipti Tap Olíufélagsins hf. og
dótturfélaga þess varð samtals 304
milljónir króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins 2001 samanborið við
369 milljóna króna hagnað árið
áður. Gengistap Olíufélagsins hf á
fyrstu sex mánuðum ársins nam
1.027 milljónum króna en var 23
milljónir króna árið áður. Hagnað-
ur félagsins fyrir afskriftir og
fjármagnsliði var 697 milljónir
króna á fyrstu 6 mánuðum þessa
árs samanborið við 499 milljónir
árið áður sem er aukning um 198
milljónir króna eða 40%. ■