Fréttablaðið - 31.08.2001, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
31. ágúst 2001 FÖSTUPAGUR
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans:
Vextir eru ekki að sliga atvinnulífið
Marta Leósdóttir og dóttir hennar Sanna eru húsnæðislausar. Marta finnur ekki þolanlega íbúð
sem hún hefur efni á að leigja. Kemur að lokuðum dyrum hjá Félagsþjónustunni. Endar ná ekki
saman þrátt fyrir tíu tíma vinnudag.
neyð „Ég hef verið að leita að leigu-
íbúð en það gengur ekkert að finna
neitt á viðráðanlegu verði. Ég og
dóttir mín erum því á götunni frá
og með morgundeginum [í dag],“
segir Marta Leósdóttir. Mörtu var
sagt upp leiguíbúð í júlí. Hún grei-
ddi rúmlega 50.000 á mánuði fyrir
íbúðina sem hún leigði, en þokka-
legar íbúðir sem hún hefur skoðað
eru allar leigðar á hærra verði, og
það ræður hún ekki við.
„Ég fæ um 110.000 útborgaðar
fyrir meira en tíu tíma vinnudag.
Þrátt fyrir mikla sparsemi tekst
okkur varla að láta enda ná sam-
an,“ segir Marta sem vinnur sem
leiðbeinandi á leikskólanum Nóa-
borg. Að venjulegum vinnudegi
loknum skúrar hún leikskólann
sem tekur um tvo til þrjá tíma á
dag. Þessi langi vinnudagur bitnar
að mati Mörtu á velferð dótturinn-
ar og ætlar hún að hætta skúring-
unum eftir mánuð, þrátt fyrir
tekjutap. „Ég treysti mér ekki til að
vinna tvöfalda vinnu áfram. Ég vil
hafa tima til að sinna dóttur
rninni."
Marta hefur verið á biðlista eft-
ir leiguíbúðum hjá Félagsþjónust-
unni síðan í árslok 1999. Hún leitaði
aftur þangað í sumar eftir að ljóst
varð að hún væri að missa íbúðina.
„Þar var mér sagt að það væru
margir í sömu sporum og ég. Ég
þyrfti að bíða í nokkra mánuði til
viðbótar, hvað sem það þýðir,“ seg-
ir Marta, sem bætir við að henni
þyki hrikalegt ef rétt sé að margir
séu í hennar sporum. „Ég myndi
vilja sjá hvaða stefna hefur verið
mörkuð hjá Félagsþjónustunni. Það
vantar greinilega úrræði."
Marta segir sporin til Félags-
þjónustunnar ekki hafa verið létt
og erfitt að upplifa höfnunina þar.
„Eg þurfti að sigrast á eigin for-
dómum, maður trúir því nefnilega
varla sjálfur að það sé ekki hægt að
lifa á laununum." Marta hefur
skorið allt niður sem hægt er, hún
er ekki með síma, drekkur hvorki
né reykir, og notar peninga ein-
N EYÐ ARÁSTAN D
Marta og Sanna, sem er níu ára, í garðinum á leikskólanum Nóaborg þar sem Marta vinnur. Sanna kemur til hennar eftir að heilsdags-
skóla lýkur.
göngu í algerar nauðsynjar. „Dóttir
mín hefur talað um að hún vilji
stunda einhverjar tómstundir en
ég hef ekki efni á því.“
Húsnæði telst til grunnþarfa og
segir Marta það skipta miklu máli
fyrir þær mæðgur að húsnæðis-
vandinn leysist. „Ég gæti svosem
látið bjóða mér ýmislegt en býð
dóttur minni ekki hvað sem er.
Margar íbúðir á leigumarkaðnum
eru alger hreysi. Ég vil búa dóttur
minni gott heimili, það skiptir mjög
miklu máli.“
sigridur@frettabladid.ís
efnahagsmál Tryggvi Þór Her-
bertsson, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar Háskóla íslands,
segir lækkun stýrivaxta Seðla-
bankans óráðlega að svo stöddu.
Ef næstu verðbólgutölur, sem
birtar verða 10. september, sýni
að verðbólgan fari lækkandi megi
hins vegar huga að vaxtalækkun.
„Atvinnulífið segir að vextir sé
að sliga þá en það eru engin merki
í hagtölum um það. Það væri erfitt
fyrir Seðlabankann að stjórna
peningamálaaðgerðum eftir sögu-
sögnum og yfirlýsingum aðila
sem hafa kannski ekki nákvæm-
lega sömu hagsmuni og verð-
bólgumarkmið Seðlabankans
segja til um,“ segir Tryggvi Þór.
Tryggvi Þór segir Ara Edwald,
framkvæmdastjóra Samtaka at-
vinnulífsins, hafa sagt í sjónvarps-
viðtali að ekki skipti miklu máli þó
verðbólgan færi af stað, aðalatrið-
ið væri velgengni fyrirtækja og
áframhaldandi hagvöxtur. „Þessu
sjónarmiði er ég algerlega ósam-
mála. Verðbólga er eins og fita:
Það er mjög auðvelt að fitna en
afar erfitt að megra sig aftur. ís-
lendingar voru í áratugi að berjast
við að losna við verbólguna og
eiga að gera allt til að fá hana ekki
aftur,“ segir Tryggvi Þór.
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
Ekki hægt að stjór-
na peningamála-
aðgerðum eftir
sögusögnum og
yfirlýsingum aðila
sem hafa aðra
hagsmuni en verð-
bólgumarkmið
Seðlabankans
segja til um, segir
forstöðumaður
Hagfræðistofnunar
Háskólans.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir háa
raunvexti til lengri tíma geta
verið skaðlega fyrir efnahagslíf-
ið og því sé mjög mikilvægt að
skapa forsendur fyrir lækkun
vaxta sem fyrst. En Þórður telur
að bíða eigi með ákvörðun um
vaxtalækkun þar til fjárlaga-
frumvarpið hefur verið lagt fram
í byrjun október.
„Það er samhengi milli pen-
ingastefnunar og ríkisfjármál-
anna að því er varðar aðhald að
efnahagslífinu. Því er erfitt að
taka ákvörðun um lækkun vaxta
fyrr en fyrir liggur í aðalatriðum
hvaða stefnu verður fylgt í ríkis-
fjármálunum á næsta ári,“ segir
Þórður. ■
OFBELDI f
GRUNNSKÓLUM
Býsna hátt hlutfall, eða
nærri fjörutíu prósent
þeirra sem greiddu at-
kvæði segjast óttast of-
beldi i grunnskólum hér á
landi, en rúm sextíu pró-
sent telja sig ekki þurfa
að hafa áhyggjur af því.
Óttast þú ofbeldi í grunn-
skólum hér á landi?
Niðurstöður gærdagsins
á wvwv.vísir.is
39%
Spurning dagsins í dag:
Á fiskeldi eftir að verða stór
atvinnugrein á íslandi?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Vopnasöfnun NATO
í Makedóníu:
Þriðjungi
safnað
SKOPJE.MAKEDÓNÍU.AP Meira en
þriðjungi vopna hefur verið
safnað saman af hersveitum
NATO frá albönskum uppreisn-
armönnum í Makedóníu að sögn
Gunnars Lange, hershöfðingja
NATO. Sagðist hann hafa afhent
Boris Trajkovski, forseta
Makedóníu, bréf þar sem þetta
fyrsta stig vopnasöfnunarinnar
er staðfest. Vonast er til að sú
staðreynd verði til þess að þing
landsins hefji viðræður um setn-
ingu laga sem veita eiga Albön-
um aukin réttindi í Makedóníu.
Búist er við að viðræðurnar hefj-
ist í dag, en engin lög verða sam-
þykkt vegna málsins fyrr en
vopnasöfnuninni lýkur.
Þrátt fyrir að vopnasöfnunin
hafi gengið vel er töluverð
spenna enn til staðar í Makedón-
íu. Sprengja sprakk í gær á
svæði Albana í Skopje og er
þetta fjórða sprengjan sem
springur í borginni á jafnmörg-
um dögum. Engan sakaði. ■
Grunur um lestur
tölvupósts:
Málsaðilar
yfírheyrðir
rannsókn Búið er að kalla hlut-
aðeigandi aðila til yfirheyrslu í
rannsókn lögreglunnar á meint-
um lestri starfsmanns Símans á
tölvupósti viðskiptavinar fyrir-
tækisins. Ekki er reiknað með
niðurstöðu í málið strax þar sem
rannsóknir af þessu tagi taka
nokkurn tíma.
Rannsókn lögreglunnar er
tvíþætt. Annars vegar hvort
fjarskiptalögin hafi verið brotin
með því að brjótast inn í sam-
skipti með þessu hætti og hins
vegar hvort starfsmaður Símans
hafi verið borinn röngum
sökum. ■
Mæðgur á götunni
Morðinginn í Sacramento:
Fannst í bakgarði
móður sinnar
CITRUS HEIGHTS. KALIFORNÍU. AP
Nikolay Soltys, sem lögreglan í
Kaliforníu hefur leitað í tíu daga
fyrir morð á sex ættingjum hans
í Sacramento, fannst í gær þar
sem hann faldi sig í bakgarðin-
um heima hjá móður sinni.
Hann var berfættur, óhreinn
og ósnyrtilega klæddur, að sögn
Lou Blanas, lögreglustjóra í
Sacramento. Hann faldi sig und-
ir borði og sýndi enga mót-
spyrnu þegar hann var hand-
tekinn.
Spltys er 27 ára innflytjandi
frá Úkraínu. Hann er talinn hafa
myrt barnshafandi eiginkonu
sína, þriggja ára son þeirra og
fjóra aðra ættingja og var kom-
inn á lista bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI yfir þá tíu glæpa-
menn sem lögreglan vildi helst
koma höndum yfir.
Á annan tug ættingja Soltys
hefur verið undir vernd lögregl-
unnar undanfarna viku þar sem
óttast var að hann léti aftur til
skarar skríða. ■
HANDTEKINN
Nikolay Soltys var á flótta undan réttvísinni
í tíu daga.