Fréttablaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 13
FÖSTUPAGUR 31. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Ási SH-314 strandar:
Tveir menn
björgudust
stranp Tyeir menn björguðust af
bátnum Ása SH-314 eftir að hann
sigldi á brimbrjótinn við Suðureyri
í gærmorgun. Tilkynnt var um
strandið um fimmleytið og fóru
björgunarsveit þegar af stað. Þegar
Fréttablaðið hafði samband við lög-
regluna á ísafirði voru björgunar-
sveitarmenn frá Suðureyri og ísa-
firði búnir að dæla sjó upp úr bátn-
um, en gat kom á hann við strandið,
og voru að vinna við að flytja aflann
sem um borð var í land. Þá sagði
lögreglan að beðið væri eftir há-
flóði til að koma bátnum aftur á flot
en báturinn var nánast á þurru um
10 metra frá landi. ■
Seðlabanki Evrópusambandsins:
Evran afhjúpuð
FRANKFURT. ÞÝSKALANPI. AP Seðla-
banki Evrópusambandsins kynnti
íbúum aðildarríkja sambandsins í
gær nýju evruseðlana sem fara í
umferð á næsta ári og taka við af
gömlu gjaldmiðlunum. Wim
Duisenberg, seðlabankastjóri, segir
að seðlarnir séu fullkomnari að
allri gerð en þekkist nokkurs staðar
annars staðar í heiminum, búnir
fjölmörgum öryggisatriðum til
þess að gera peningafölsurum sem
erfiðast fyrir. Seðlarnir eru með
áritun Duisenbergs og skammstöf-
un bankans, en ólíkt evrumyntinni
eru þeir ekki auðkenndir hverju
ríki fyrir sig. ■
SVONA LÍTUR HÚN ÚT
Vanir fjallamenn voru fengnir til þess að afhjúpa þessar stóru eftirlikingar af evruseðlun-
um utan á húsi Seðlabanka Evrópu í Frankfurt í Þýskalandi í gær.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Lögreglan í Reykjavík hand-
tók tvo menn þar sem þeir
voru að brjótast inn í fyrirtæki
í austurborginni um hálf sex-
leytið í gærmorgun.
......
Naut réðst aftan að manni í
gærmorgun með þeim af-
leiðingum að hann fór úr axlar-
lið. Farið var með manninn í
sjúkrabifreið á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafirði. Slysið
gerðist við bæinn Botn í Súg-
andafirði en verið var að mýla
naut til að fara með í sláturhús
þegar eitt þeirra réðist að
manninum. ■
2001
Aðeins fjórar sýningar!
6. sept. kl. 20:30
7. sept. kl. 20:30
8. sept. kl. 20:30
9. sept. kl. 17:00
Stórkostleg
SÝNING ÞAR SEM
FREMSTU KNAPAR
OG LISTAMENN
LANDSINS
LEIÐA SAMAN
HESTA SÍNA
Sýningarstjóri: Sigurbjörn Bárðarson
Tónlist: Gunnar Þórðarson
Lýsing: Sveinn Benediktsson, Exton
Eldstjórn: Eggert Ketilsson og
Haukur Karlsson
Búningar: Þórunn Sveinsdóttir
Handrit: Kjartan Ragnarsson og
Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Miðasala:
Ferðaskrifstofa íslands,
sími 585 4375
Töltheimar sími 577 7000
Miðasala sýningardaga í
Laugardalshöll og Skautahöll
Miðaverð kr. 2500 í sæti
kr. 1500 í stæði
Draugar
Djákninn frá
Myrká
Miklabæjar-
SÓLVEIG
ISLANDICA 2001
Sigurbjörn Bárðarson
Benedikt Erlingsson
Heigt Bjðmsson
jóhartn Sfóufðs
'rnaf Þórð:>r>Oö
Létt & laggott er viðbit með iitlu
fituinnihaldi og tilvalið á brauðið
í skólann. Nú á
20% afslætti
í næstu verslun.