Fréttablaðið - 31.08.2001, Page 14
14
FRETTABLAÐIÐ
31. ágúst 2001 FÖSTUPACUR
Landsleikur Englands og Þýskalands:
Gerrard lykilinn að sigri?
Leikmannakaup:
Blanc skrif-
aði undir
knattspyrna Laurent Blanc,
franski varnarmaðurinn, hefur
skrifað undir
eins árs samning
við Manchester
United. Blanc,
sem á að fylla
skarð hollenska
varnarmannsins
Jaap Stam sem
var seldur til
Lazio, gekkst
undir læknis-
skoðun í gær og í kjölfarið var
samningurinn kynntur. Hann verð-
ur því löglegur með ensku meist-
urunum í Meistaradeildinni. ■
knattspyrna Margir af lykil-
mönnum enska landsliðsins eiga
við meiðsl að stríða en Sven Gör-
an Eriksson þarf ekki að leita
langt yfir skammt ef hann vill
sigra í leiknum við Þjóðverja á
laugardaginn kemur í riðla-
keppni fyrir HM 2002. Steven
Gerrard, hinn 21 árs gamli leik-
maður Liverpool, hefur spilað
fimm landsleiki og í öllum leikj-
unum hefur liðið farið með sigur
úr býtum, þar með talið 1-0 sigur
á Þjóðverjum á Evrópumótinu í
fyrra.
í þeim tólf leikjum sem Gerr-
ard hefur misst af, vegna meiðs-
la, hefur England aðeins sigrað
þrisvar sinnum.
Gerrard er byrjaður að spila
aftur en eftir leikinn gegn
Bolton, s.l. mánudag, þurfti hann
tvo daga til að jafna sig þar sem
vöðvar í líkama hans eiga það til
að stífna upp.
Hann telur sigurmöguleika
Englands mikla á laugardaginn
kemur.
„Þjóðverjar eru sigurvissir
eftir sigurinn í síðasta leik, en
þetta snýst um framtíðina ekki
fortíðina," sagði Gerrard, en
Englendingar verða að sigra í
leiknum ef þeir ætla að komast
upp úr riðlinum. „Ef þeir líta
raunsætt á málið sjá þeir að við
erum mun sterkari en þegar við
mættum þeim á Wembley og við
spilum mun betur en þá. Ég held
að þeir séu svolítið hræddir við
okkur enda sá Rudi Völler [lands-
liðsþjálfari Þýskalands] Liver-
pool sigra Bayern um daginn.“ ■
STEVEN CERRARD
Gerrard er byrjaður að spila knattspyrnu á
ný en hann hefur ekki jafnað sig að fullu.
Hér sést hann í leik gegn Bolton Wanderes
sl. mánudag. Bolton vann leikinn 2-1.
Stoichkov:
Léleg kaup
á Zidane?
KNATTSPYRNA HrÍStO StOÍChkoV,
fyrrum leikmaður Barcelona, fer
harkalegum orðum um kaup Real
Madrid Zinedine Zidane. Hann lík-
ir kaupunum við kaupin á Anelka
„Kaupin á Zidane voru gerð til að
þóknast aðdáendunum," sagði
Stoichkov. „Zidane er ekki rétti
maðurinn fyrir Madrid. Hann mun
gjalda fyrir öfundina sem fyllti
hina leikmennina þegar hann vann
heimsmeista- og Evrópumeistara-
titilinn, var kjörinn besti leikmað-
ur heims og Evrópu. Hann fær
aldrei frið.“
Stoichkov var valinn besti mað-
urinn í sögu búlgaskrar knatt-
spyrnu." ■
’ÉWIaiífiilaWii!
RAUÐA HVERFIÐ
opnar
OPNUNARTILBOD
á öllum vörum ástarlífsins
Opið 12 -20 • Laugardaga 12-18
Sími: 5112109 • Grettisgata 3
„ Verðum að vinna til
að eiga möguleika“
Hermann Hreiðarsson segir að Tékkarnir séu með heimsklassalið en íslenska liðið eigi vel mögu-
leika á sigri, sérstaklega ef það fái ekki mark á sig snemma í leiknum. Þá segir hann að þó Jan
Koller sé góður leikmaður sé hann engan veginn erfiðasti mótherji sem hann hafi leikið gegn.
knattspyrna Mikið mun mæða á
Hermanni Hreiðarssyni og félög-
um hans í vörn íslenska liðsins,
sem tekur á móti Tékkum á morg-
un klukkan 14 á Laugardalsvelli í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu. Tékk-
arnir eru með mjög öflugt lið með
hinn stóra og stæðilega Jan Koller,
leikmann Dortmund, í fararbroddi
í framlínunni, en hann skapaði oft
mikinn usla í vörn íslenska liðsins í
fyrri leik liðanna í Teplice i Tékk-
landi í fyrra, sem Tékkarnir unnu
4-0. Hermann sagði að honum litist
vel á leikinn.
„Þetta er náttúrlega erfiðasti
leikurinn í riðlinum," sagði Her-
mann. „Við töpuðum stórt fyrir
þeim úti en við ætlum að reyna að
bæta upp fyrir það á Laugardals-
vellinum. Við verðum að vinna til
að eiga einhvern möguleika í riðlin-
um.“
Hermann sagði að Tékkarnir
væru með heimsklassalið.
„Það er valinn maður í hverju
rúmi og svo eru þeir náttúrlega
með þennan stóra mann þarna
frammi (Koller).“
Að sögn Hermanns munu ís-
lensku varnarmennirmr þurfa að
hafa góðar gætur á Koller í föstum
leikatriðum, því hann væri hættu-
ÁTÖK
Helgi Sigurðsson og Hermann Hreiðarsson berjast um boltann á landsliðsæfingu í Laugar-
dalnum i gær. Á morgun mun Hermann hins vegar þurfa að kljást við Jan Koller, hinn
stóra og stæðilega Tékka.
legastur í þeim. Hermann sagði að
þó Koller væri góður væri hann
engan veginn erfiðasti mótherji
sem hann hefði leikið gegn.
„Hann er góður knattspyrnu-
maður, en maður reynir bara að
finna einhverja veikleika hjá hon-
um. Hann er t.d. ekki mjög íljótur."
Hermann sagðist telja líklegt að
íslenska liðið myndi byrja á að lig-
gja dálítið aftarlega á vellinum og
verjast.
„Við höfum verið að gera það
gegn þessum sterkari þjóðum, en í
síðustu leikjum höfum við verið að
halda boltanum betur innan liðsins
og það er mjög jákvætt. Við sýnd-
um það á móti Búlgörum að við get-
um vel gert það og það er bara von-
andi að við náum líka að gera það
gegn Tékkunum."
Hermann sagði að gegn jafn-
sterkum þjóðum og Tékkum væri
mikilvægt að fá ekki á sig mark
snemma í leiknum. íslenska liðið
hefði flaskað á því í fyrri leiknum
og því hefðu Tékkarnir gengið á
lagið og unnið leikinn örugglega.
Hann sagði að nú væri öll pressan á
Tékkunum og að ef þeir skoruðu
ekki snemma í leiknum myndi
skapast spenna og óþolinmæði í lið-
inu, sem íslenska liðið ætti að geta
nýtt sér.
Hermann sagðist vera nokkuð
sáttur með gengi íslenska liðsins í
undankeppninni fram að þessu, en
að ákveðin óheppni hefði elt liðið,
t.d. hefði það verið að missa leik-
menn útaf að óþörfu. Hann sagði að
það hefðu verið ákveðin vonbrigði
að ná ekki stigi út úr leiknum gegn
Dönum, en þeir unnu þann leik 2-1.
Þá hefði liðið átt að sigra heima-
leikinn gegn Búlgörum og jafnvel
ná stigi í Búlgaríu. ■
. ^
BHS
Ræstingar í Borgarholtsskóla
Ræstingafólk óskast í Borgarholtsskóla
eftir kl. 16.00 virka daga.
Upplýsingar hjá ræstingarstjóra,
Ásgerði Kristjánsdóttur, á staðnum
eðaísíma 535-1700 kl. 8-16.
Skólameistari
\___________________________________________V
VIIRiKIRl
Ernest & Julio Gallo
QALLO.VlKA
30.ASUST-5.SEPT.
Draumalið þjálfara:
Báðir völdu
Guðna Bergs
knattspyrna Þjálfarar efstu liða
Símadeildar karla voru fengnir til
að stilla upp draumaliðum fyrir
landsleikinn gegn Tékkum á morg-
un. Þeir voru ekki bundnir þeim
hópi sem Atli Eðvaldsson valdi._
Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV,
ákvað að láta lið sitt leika leikskipu-
lagið 4-3-3.
„Öll efstu liðin í íslenska boltan-
um spila þessa taktík svo ég læt lið-
ið mitt gera það,“ sagði Njáll, en
hann valdi tvo Eyjamenn í liðið, auk
þess sem hann lætur nýliða á miðj-
una. Aðspurður hvemig leikurinn
færi sagði Njáll. „Með þessu liði
myndum við vinna leikinn 2-0 því
Birkir fær að sjálfsögðu ekki mark
á sig.“
Olafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
ákvað einnig að nota liðsuppstilling-
una 4-3-3. Hann valdi Þórð Guðjóns-
son og Gylfa Einarsson í lið sitt, auk
Rúnars Kristinssonar, sem er að
vísu meiddur.
„Ég tel það bara hentugra fyrir
okkur að vera með öfluga rniðju,"
sagði Ólafur um uppstillinguna.
„Það er samt aldrei að vita hvernig
leikurinn færi með þessu liði." ■
Lið Njáls: ' Birkir Kristinsson
Hlynur Eyjólfur Guðni Hermann
Stefánsson Sverrisson Bergsson Hreiðarsson
Arnar Crétarsson Jóhannes Karl Cuðjónsson Arnar Þór Viðarsson
Helgi Sigurðsson Eiður Smári Cuðjohnsen Tryggvi Guðmundsson
Tryggvi Cuðmundsson Eiður Smári Guðjohnsen Þórður Cuðjónsson
Gylfi Einarsson Rúnar Kristinsson Arnar Grétarsson
Hermann Cuðni Eyjólfur Lárus Orri
Hreiðarsson Bergsson Sverrisson Sigurðsson
JJQ ÓlafS' Árni Gautur Arason