Fréttablaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 18
18 FRÉTTABLAÐIÐ 31. ági)St 2001 FÖSTUDAGUR HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA UIVl HELGINA? Páll V. Bjarnason, arkitekt og formaður Torfusamtak- anna Ég verð í Kaupmannahöfn að mála og gera í stand íbúð fyrir dóttur mína. Það er vissulega tilbreyting í því, en mig myndi langa til að fara á Þjóðminjasafn Dana, en ég efast um að ég hafi tíma til þess. DANSINN DUNAR Dansdagur Dansráðs íslands verður haldinn á Ingólfstorgi á morgun. Dagskráin verður að vanda fjölbreytt og skemmtileg. I tilefni af dansdeginum er kynntur dans ársins sem er af- rakstur keppni milli danskennara. Dans ársins í ár er saminn af Irmu Gunnarsdóttur og gefst fólki kostur á að kynnast honum og stíga nokkur lauflétt spor á Ingólfstorgi klukkan 14:30 á morgun. Tónleikar í Salnum: Skálholtsmessa Hróðmars tónleikar Skálholtsmessa Hróð- mars I. Sigurbjörnssonar verður flutt í Salnum í Kópavogi sunnu- dagskvöldið 2. sept kl. 20.00. Flytjendur eru Marta G. Hall- dórsdóttir.sópran, Finnur Bjarnason, tenór, Benedikt Ing- ólfsson, bassi og Caput undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Skálholtsmessa var saminn að tilstuðlan Sumartónleika í Skál- holti og frumflutt þar í júlí árið 2000. Messan er í átta köflum, í fjórum þeirra er notast við hina hefðbundnu latnesku messutexta þ.e.a.s. í Kyrie, Gloria, Sanctus og Agnus dei en í hinum fjórum eru textarnir fengnir úr gömlum íslenskum handritum. Nú standa MESSUTÓN- SKÁLD Skálholtsmessa Hróðmars Inga Sigurbjörns- sonar verður flutt í Salnum í Kópavogi á sunnudags- kvöld. yfir upptökur á Skálholtsmessu Hróðmars og er fyrirhuguð út- gáfa hennar á vegum Smekk- leysu vorið 2002. Messan tekur um 40 mínútur í flutningi. ■ Óperan Z-ástarsaga í Keflavík: Gestir verða að mæta í lopapeysu LEIKSTJÓRINN Helga Vala Helgadóttir er leikstjóri óperunnar Z-ástarsaga. Æfingar hafa staðið með hléum í sumar en aðeins eru áætlaðar tvær sýningar, annað kvöld og á sunnudags- kvöld, í Dráttarbrautinni í Keflavík. ópera Um helgina verður frum- flutt ný ópera, Z-ástarsaga, eftir Sigurð Sævarsson. Óperan er samin upp úr samnefndri bók Vig- dísar Grímsdóttur og verður frumsýnd annað kvöld í Dráttar- brautinni í Keflavík á menning- arnótt í Reykjanesbæ, svokallaðri ljósanótt. Norðuróp, félag um óperu- flutning, sem hefur það að mark- miði að kynna óperur fyrir al- menningi stendur að sýningunni. Norðuróp var stofnað á Akureyri í fyrra og fyrsta verkefnið var barnaóperan Sæmi Sirkusslanga sem var sett upp þar í samvinnu við Leikfélag Akureyrar. í sumar stóð félagið fyrir óperuhátíð í Reykjanesbæ þar sem fluttur var óperueinþáttungurinn Gianni Schicci eftir Puccini og Sálu- messa eftir Sigurð Sævarsson. Sigurður stjórnar sjálfur tón- listinni í uppfærslunni en leik- stjóri sýningarinnar er Helga Vala Helgadóttir. Burðarhlutverkin, Önnu og Zetu, syngja þær Jóhanna Linnet og Ingveldur Yr Jónsdóttir og Bryndís Jónsdóttir syngur hlut- verk systurinnar Arnþrúðar. „Val- geir, maður Arnþrúðar, var lengi inni en svo reyndist ekki vera grundvöllur fyrir því svo hann var skrifaður út áður en æfingar hófust,“ segir Helga Vala og hlær. Að sögn Helgu Völu er Sigurð- ur Sævarsson afar hrifinn af verkum Vigdísar Grímsdóttur og las hann bókina Z með það í huga að búa til óperu. „Hann er búinn að vera að vinna í óperunni síðan bókin kom og var enn að breyta henni í gær,“ segir Helga Vala. Saga Vigdísar er afar dramatisk og velta má fyrir sér hvort ekki sé mikið svartnætti í óperunni. „Siggi er lunkinn við að gera þetta bjart þrátt fyrir dramatíkina." Hins vegar segir Helga Vala að vetrinum sé komið vel til skila í Dráttarbrautinni því þar sé ansi kalt. „Fólk verður að mæta í lopa- peysunni og alls ekki í galakjól." Einungis er búið að fastsetja tvær sýningar á Z-ástarsögu og aðspurð um framhaldið segir Ilelga Vala: „Hver veit? Framtíð- in verður að segja til um það hvort verða heimsyfirráð eftir þessar tvær sýningar?" Sýningarnar í Dráttarbraut- inni í Keflavík á morgun og á sunnudaginn hefjast kl. 19 bæði kvöldin. steinunn@frettabladid.is Raflína rafteiknistofa Hólmaslóð 4 S: 562 3010 S: 694 7705 Flugslysið Skerjafirði. Söfnunarsímar Ef hringt er í eftirtalin númer gjaldfærist af reikningi símans, sem hringt er úr, sem hér segir: Sími 907 2007-1.000,- kr Sími 907 2008 - 2.500,- kr Sími 907 2009 - 5.000,- kr Bankar. er no. 1175-05-409940 FÖSTUDAGURINN 31. AGUST LEIKHÚS_____________________________ 20.00 Leikritið Diskópakk eftir írska leikskáldið Enda Walsh er sýnt í hinu nýja leikhúsi Vesturport við Vesturgötu. Karl Ágúst Úlfsson þýðir verkið, leikstjóri er Egill Heiðar Anton Pálsson og leikarar eru Nanna Kristín Magnúsdóttir og Víkingur Kristjánsson. SKEMIVITANIR________________________ 22.00 Geir Ólafsson og Furstarnir halda sýningu á Broadway í kvöld, Nights on Broadway. Hljómsveitina skipar landslið ís- lenskra tónlistarmanna og gesta- hljóðfæraleikarar koma einnig fram. Meðal gestasöngvara má nefna Önnu Siggu og Ruth Regin- alds. Húsið opnar kl. 21. 11.30 í kvöld leikur Batterí á Vídalín ásamt trompetleikaranum Snorra Sigurðarsyni og tenórsaxófónleik- aranum Steinari Sigurðarsyni. Sessionin stendur tíl 3 í nótt og verður sviðið opið fyrir gesti. Batt- eri verður einnig á Vídalín annað kvöld. Fyririestrar________________________ 12.00 Skyndikynni við Erró í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Flutt er stutt kynning um yfirlits- sýninguna og verk listamannsins en sjónum sérstaklega beint að einstökum verkum með það fyrir augum að gestir fái lykil að allri sýningunni. Miðað er við að skyndikynnin standi í um tuttugu mínútur. Kaffistofa Listasafnsins verður með sérstakt tilboð í há- deginu. Sl'ÐUSTU FORVÖÐ_____________________ Á Sjóminjasafni fslands i Hafnarfirði stendur nú sýning grænlenska lista- mannsins Johannesar Kreutzmann. Hann sýnir málaðar tréskurðarmyndir. Sýningin er opin milli kl. 13 og 17 og lýkur á sunnudaginn. fslenskar þjóðsögur og ævintýri er þema sumarsýningar Safns Ásgríms Jónssonar við Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Á sýningunni eru margar af frægustu þjóðsagnamyndum lista- mannsins og þar má sjá vinnustofu, heimili og innbú hans. Sýningunni lýkur á morgun og er opin kl. 13.30 til 16.00. í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum er sýning sem ber nafnið Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi Eiríksson myndlistar- maður og prófessor við Listaháskóla fslands. Sýningin er opin alla daga kl. 10 til 17 og lýkur á sunnudaginn. Sumarsýning Listasafns fslands nefnist Andspænis náttúrunni. Á henni eru verk eftir Islendinga í eigu safnsins og fjallar hún um náttúruna sem við- fangsefni Islenskra listamanna á 20. öld. Opið er frá kl. 11 til 17. Sýningunni lýkur á sunnudaginn. WIYNDLIST____________________________ I Listasafni Kópavogs stendur sýning- in Ars Baltica - List frá Eystrasaltslönd- unum. Á sýningunni eru tæplega 50 listaverk frá ríkislistasöfnum í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Málverkin gefa all- góða mynd af listþróuninni í löndum þremur á síðustu öld. Sýningin stendur til 9. september og hún er opin alla daga nema mánudag frá 11-15. Björg Örvar sýnir náttúrulífsmyndir í sýningarsal verslunarinnar Álafoss, Ála- fosshvos í Mosfellsbæ. Opið er virka daga kl. 9 til 18 og laugardaga kl. 9 til 16 og stendur sýningin til 27. október. f miðrými Listasafns Reykjavíkur Kjar- valsstöðum stendur sýning kanadíska listmálarans Louise Jonasson. Sýningin ber yfirskriftina Minningar um ey eða Island Souvenir. Myndir Louise eru sterk sjálfstæð listaverk og fer hún ótroðnar slóðir við gerð verka sinna. Sýningin stendur til 9. september. Kjar- valsstaðir eru opnir alla daga kl. 10 til 17 en á miðvikudögum er opið til kl. 19 Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýningin er opin alla daga kl. 10 til 17 en til kl. 19 á miðvikudögum. Hún sten- dur til 7. október. hausttónleikar 2001 íslenska óperan klukkan 21.00 fimmtudagskvöld 6.september föstudagskvöld 7. september miðasala í verslunum máls og menningar laugavegi 18 og sidumúla 7-9

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.