Fréttablaðið - 06.09.2001, Side 8
8
FRETTABLAÐIÐ
1
Ilögreclufrhttir
Brotist var inn í bílageymslu í
Álakvísl í gærmorgun og
unnar skemmdir á þremur bílum.
Einnig voru skemmdarverk til-
kynnt til lögreglu á tveimur bif-
reiðum við Iðnskólann í Reykja-
vik. Engu var stolið úr bifreiðun-
um.
Slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu fékk tilkynningu um
eld í rafmagnstöflu á Hótel Loft-
leiðum um ellefu leytið í gær-
morgun. Taflan var staðsett í úti-
húsi og tilheyrir þvottahúsi hót-
elsins. Þar höfðu brunnið níu ör-
yggi af hundrað og sextíu. Raf-
magnseftirlitið var kallað til og
kannar nú hvað olli eldinum.
Umsátrið á Tómasarahaga:
Hótaði aldrei
íjölskyldu sinni
LÖGREGLUflÐGERÐiR Engar hagla-
byssur voru í fórum mannsins sem
fluttur var af lögreglunni af heim-
ili sínu á Tómasarhaga síðastliðið
mánudagskvöld samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu en þær voru
sagðar vera hluti af vopnaeign
mannsins. Að sögn lögreglu liggur
ekki enn fyrir endanleg niðurstaóa
af því hvort þær byssur sem mað-
urinn afhenti lögreglu umrætt
kvöld væru löglega skráðar.
Maðurinn, sem var laus úr
haldi síðdegis á þriðjudag, hafði
samband við Fréttablaðið og vildi
koma því á framfæri að hann hafi
á engan hátt haft í hótunum við
fjölskyldu sína. Jafnframt vildi
hann koma því á framfæri að þær
byssur sem hann hafi haft í fór-
um sínum væru allar löglega
skráðar og hann hefði af fúsum
og frjálsum vilja afhent lögregl-
unni þær. ■
RÆÐA SAMAIV
Juergen Trittin, umhverfisráðherra Pýska-
lands (til hægri) tekur í hönd Walter
Mueller, fjármálaráðherra Þýskalands, við
upphaf rikisstjórnarfundar um framtíð
kjarnorkuvera í landinu.
Þýska ríkisstjórnin:
Lokun kjarn-
orkuvera sam-
þykkt
berlín.ap Þýska ríkisstjórnin sam-
þykkti í gær frumvarp um lokun
kjarnorkuvera í landinu. Verði
frumvarpið einnig samþykkt af
neðri deild þýska þingsins má bú-
ast við að fyrsta kjarnorkuverinu,
af þeim 19 sem starfandi eru í
landinu, verði lokað árið 2003. Þá
má reikna með því að síðasta ver-
inu verði lokað árið 2021. Líklegt
er talið að frumvarpið verði sam-
þykkt þar sem Sósíal Demókratar
eru í meirihluta í neðri deildinni,
en leiðtogi þeirra og kanslari
Þýskalands, Gerard Schroeder,
gerði í júlí sl. samkomulag við
stærstu orkufyrirtæki landsins um
að loka skyldi kjarnorkuverunum.
Kjarnorkuver í Þýskalandi sjá
íbúum þess fyrir um þriðjungi
rafmagns í landinu. Þýskaland er
stærsta iðnríkið í heiminum sem
hefur lýst sig tilbúið til að hætta
að nota kjarnorku, en þegar hafa
þjóðir eins og Ítalía og Austurríki
hætt því. Umhverfisverndarsinn-
ar hafa gagnrýnt frumvarpið og
segja að allt of langur tími sé tek-
inn í að loka verunum. Auk þess
halda íhaldsmenn í Þýskalandi því
fram að mistök séu að hætta að
nota kjarnorku í landinu. ■
Vaxandi ríkisút-
gjöld vandinn
Innbyggð kerfislæg útgjaldaþörf, segir Guð-
mundur Árni. Sætta sig við minni eða engan
tekjuafgang af ríkissjóði, segir Steingrímur.
ríkisfjármál „Þessi sjálfvirkni í
ríkisútgjöldum hefur verið algjör
og síðustu fjárlög ríkisstjórnar-
innar hafa verið útgjaldafjárlög.
Það hefur öllu verið hleypt lausu
og nú er einfaldlega komið að
skuldadögum. Og því miður hef
ég miklar áhyggjur af því að þessi
kerfislæga útgjaldaþörf hafi
byggt sig mjög ákveðið inn í ríkis-
kerfið og það er þrautin þyngri að
vinda ofan af því,“ segir Guð-
mundur Árni Stefánsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, um af-
komu ríkissjóðs í fyrra.
Ríkisreikningur fyrir árið 2000
var birtur í fyrradag og kom fram
að útgjöld ríkissjóðs jukust um 30
milljarða frá
fyrra ári.
„Þetta er út-
gjaldavandi fyrst
og síðast og hefur
verið að safnast
upp hægt og bít-
andi á þessum
góðæristíma. Þaó
er voðalega létt og
auðvelt að stýra
fjármálum ríkis-
sjóðs þegar pen-
ingar renna inn úr
öllum lækjum og
ám. Við höfum
bent á að á þeim
menn að stíga á
segir Guðmundur.
flatar skattalækkanir frekar en að
hækka persónuafsláttinn, sem
hefði nýst þeim tekjulægstu best.
Þetta var efnahagslega óskyn-
samlegt vegna
þess að þetta var
gert í þenslunni
og núna kemur
hinn bakreikning-
urinn sem er að
tekjugrundvöllur
ríkissjóðs er veik-
ari þegar hag-
sveiflan snýst
við.“
Steingrímur
segir það á hreinu
að ríkissjóður hef-
ur ekki efni á að
skerða tekjur sín-
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON
„RfkissjóðUr og
samneyslan hefur
ekki efni á því að
skerða tekjur sín-
ar frekar"
GUÐMUNDUR
ÁRNI
„Fróðlegt að fylgj-
ast með hvort
þessi ríkisstjórn
verði í stakk búin
til að takast á við
vandann.
tímum verða
bremsurnar,'
,Ég hef varað við því í umræð-
um um tvenn síðustu fjárlög, að
menn yróu að vera vió því búnir,
að þegar hagsveiflan snýst við þá
halda útgjöldin áfram að aukast
en tekjurnar dragast saman. í
uppsveiflunni er þetta öfugt og þá
er voðalega gaman að lifa og vera
fjármálaráðherra. En sá sælutími
er nú á enda,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri-
grænna.
„Tekjugrundvöllur ríkissjóðs
hefur verið veiktur, meðal annars
með skattaívilnunum til aðila sem
alls ekki þurftu á þeim að halda og
ar frekar og fjarstæðukennt að
tala um skattalækkanir nú. Ríkis-
sjóður á að sætta sig við minni eða
jafnvel engan rekstrarafgang og
það eigi að beita honum sem
sveiflujöfnunartæki að einhverju
marki.
„Það sýnir sig að núverandi
ríkisstjórn hefur misst vald á
fjármálum og peningamálum. Það
lýsir sér í þessu
og þó enn skýrar í
gengishrapinu.
Þeir voru margað-
varaðir, að tæki
þeirra til að draga
úr þenslu væru
fjárlög. Þeir héldu
áfram að spenna
þau upp von úr
viti af því að það
mátti ekki líta svo
út að það væri
annað en fullkom-
ið góðæri. For-
sætisráðherra
heimtaði það og
SVERRIR HER-
MANNSSON
„Hér varð allt að
vera á fullu og
stöðugar blekk-
ingar hafðar fram-
mi um öll megin-
atriði"
fékk því ráðið. Ekkert mátti vera
að og í engu mátti taka í tau-
manasegir Sverrir Hermanns-
son, formaður Frjálslynda flokks-
ins.
bjorgvin@frettabladid.is
Ráðstefna gegn kynþáttafordómum:
Alnæmi nærist á fordómum
durban. s-afríku. ap Meðan fulltrú-
ar Belgíu og Suður-Afríku sátu
með sveitt ennið við að reyna að
berja saman málamiðlun um orða-
lagið á gagnrýninni á ísrael í loka-
yfirlýsingu ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna gegn kynþáttafordóm-
um og kynþáttamisrétti, þá tók til
máls á ráðstefnunni dr. Peter Piot,
yfirmaður þeirrar stofnunar S.Þ.
sem sér um að skipuleggja barátt-
una gegn alnæmi, og hvatti full-
trúa ríkjanna á ráðstefnunni til
þess að setja í lög bann við mis-
munun gegn HlV-smituðu fólki.
Hann sagði að fordómar í garð
hinna smituðu eigi stóran þátt í út-
breiðslu smitsins um heim allan.
„Hvers vegna ætti maður að koma
út úr skápnum ef hann gæti glataö
húsi sínu, glatað vinnu sinnu, að
eiginmaður eða eiginkona varpi
honum á dyr eða hann verði grýtt-
ur til bana?“ spurði Piot. Þeir sem
vilja ekki láta ganga úr skugga
um smit eða viðurkenna að þeir
séu með sjúkdóminn, þeir geta
hvorki fengið aðstoð né ráðgjöf og
halda að öllum líkindum áfram að
breiða út sjúkdóminn. ■
MÓTMÆLAAÐGERÐIR I DURBAN
Misrétti tekur á sig ýmsar myndir. Baráttu-
fólk fyrir réttindum samkynhneigðra var
mætt á ráðstefnu gegn kynþáttamisrétti í
Suður-Afríku í gær og vildi fá baráttumál
sín viðurkennd á ráðstefnunni.
2
PlayStation
IVJAXTOB ofubtilboð
HARÐUR DISKUR
5400RPM (snuningar a sek.)
Sóknarhraði 9.5 ms
2048 K8 flýtiminni
ATA100 (styður ATA33/66)
HRAÐVIRKIR diskar
14.999
19.999
7200 RPM (snúningar á sek.)
sóknarhraði 8.5 ms
2048 KB flýtiminni
ATA100 (styður ATA33/66)
PlayStation d