Fréttablaðið - 06.09.2001, Page 14
FRÉTTABLAÐIÐ
14
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari:
Þurfum að geta staðið
undir jákvæðri pressu
Þriðji riðill
í undan-
keppni HM
ua L U J T Mörk Stig
Danmörk 9 5 4 0 16:6 19
Búlgarla 9 5 2 2 14:9 17
Tékkland 9 5 2 2 14:8 17
fsland 8 4 1 3 14:11 13
N-lrland 8 1 2 5 7:12 5
Malta 9 0 1 8 4:23 1
ÚRSLIT CÆRDACSINNS
Tékkland - Malta 3-2
Búlgaría - Danmörk 2-0
N-frland - fsland 3-0
I OKAI.FIKIW
Danmörk-fsland 6. okt.
Tékkland-Búlgaría 6. okt.
Malta-N-frland 6. okt.
knattspyrna Hvað fannst þér
helst fara úrskeiðis hjá íslenska
liðinu í leiknum?
Við vorum að spila ágætlega í
fyrri hálfleik og virtumst hafa
fulla stjórn á leiknum en síðan
kemur þetta áfall á um 10 mín-
útna kafla í síðari hálfleik þegar
þeir skora nánast úr fyrsta færi
sínu í leiknum og bæta síðan
tveimur við strax á eftir. Það
gerði nánast út um leikinn og
menn virtust vera í hálfgerðu
sjokki eftir það og tók það menn
langan tíma að jafna sig. Við
hefðum getað skorað þegar líða
fór á leikinn og við fengum mjög
góð færi til þess en vorum
óheppnir upp við markið í þetta
sinn.
Var liðið ekki komið niður á
jörðina efti{: leikinn við Tékk-
land?
Jú, það held ég, en við verðum
að taka með í reikninginn að í
liðið vantaði reynda burðarása
sem slæmt er að missa eins og
Rúnar Kristinsson og Brynjar
Gunnarsson sem geta haldið
leiknum niðri undir erfiðum
kringumstæðum og töluverðri
pressu. Liðið þarf að geta staðið
undir bæði jákvæðri pressu, þar
sem í fjölmiðlum var m.a. velt
vöngum yfir möguleikum liðsins
í leiknum gegn Dönum ef allt
gengi að óskum í þessum leik, og
neikvæðri pressu eins og t.d.
gerðist fyrir síðasta leik. ■
6. september 2001 FIIWMTUPACUR
ATLI EÐVALDSSON
Var ánægður með leik liðsins í fyrri hálfieik
en áfallið sem liðið varð fyrir i byrjun þess
síðari virtist gera út um vonir liðsins.
Hvernig var leikurinn?
Átti ekki að
þurfa að gerast
Einbeitingarleysi í Belfast
LfFIÐ ER ÖLDUDALUR
„Lifið er öldudalur.
Einn daginn ertu á
toppinum á öldunni
en svo óhjákvæmilega
þarf maður að skríða
niður til að komast
upp á þá næstu,"
sagði Bubbi Wlorthens,
tónlistarmaður um
leikinn í gær. „Mér
varð hugsað um
hnefaleikana því þetta
er eins og boxari sem er sleginn niður I
fyrstu lotu. Oftar en ekki jafnar hann sig
ekki á því og þó hann standi 12 lotur þá
tapar hann. Þetta fyrsta mark setti okkur
rækilega úr jafnvægi, síðan voru menn
bara ennþá I sjokki þegar annað markið
kemur. Að mínu mati átti þetta ekki að
þurfa að gerast. Það er erfitt að fara með
stórsigur eins og á móti Tékkum á bak-
inu. Þetta voru mikil vonbrigði en ég
bjóst við að leikurinn færi 0-0 eða 1-1."
ísland tapaði 3-0 fyrir N-írum á Windsor Park í Belfast í gærkvöldi. Pétur Ormslev sagði að ósig-
urinn hefði verið óþarflega stór. Islendingarnir hefðu verið of ákafir eftir að hafa lent 1-0 undir
og þeim hefði verið refsað fyrir það.
AUÐVELDARA AÐ SECJA EN GERA
„Það hefur kannski
sannast best á þessu
leik hvað andlega
hliðin skiptir miklu
máli," sagði Vanda
Sigurgeirsdóttir, þjálf-
ari en hún fylgdist
með leiknum í föð-
urhúsum. „Þeir voru
sjálfir búnir að segja
alla réttu hlutina fyrir
þennan leik, að Tékka
sigurinn myndi minnka ef þeir myndu
tapa þessum leik o.s.frv. Allt þetta voru
þeir búnir að segja en það er bara auð-
veldara að segja hlutina en að gera þá."
Grunnskóla-
nemendur
Námsaðstoð í
íslensku, dönsku
og ensku á
unglingastigi.
Reyndur kennari.
Sanngjarnt verð.
Sími 557-1161
T
ÚR LEIK
Andri Sigþórsson fór illa með dauðafæri i slðar hálfleik þegar hann skaut á markið af markteig en Maik Taylor, markvörður N-lrlands, sló
boltann í slána. Island tapaði 3-0 og er úr leik I baráttunni um sæti I úrslitum HM.
högg. Það er erfitt að segja hvað
gerðist en líklega var þetta eitt-
hvað einbeitingarleysi."
Pétur sagði að þegar liðið hefði
verið komið 3-0 undir hefði leikur-
inn í raun verið búinn og lítið
hægt að gera. Hann sagðist ekki
getað bent á einhverja eina orsök
fyrir tapinu. Hann sagði að vissu-
lega hefðu verið miklar vænting-
ar fyrir leikinn en að leikmenn ís-
lenska liðsins væru flestir mjög
reyndir og hefðu ekki átt að láta
þær hafa áhrif á sig. Þessir strák-
ar væru ekkert að gera þetta í
fyrsta skiptið.
Að sögn Péturs hafa N-írar á
að skipa ágætis liði og væru sterk-
ir á heimavelli, t.d. hefðu Tékkar,
Búlgarar og Danir allir lent í
vandræðum í Belfast. Mikil hefð
væri fyrir knattspyrnu í landinu
og að flestir leikmannanna væru
að leika með góðum liðum á
Englandi.
Pétur sagði að N-írarnir hefðu
greinilega lagt megináhersluna á
að sækja upp hægri kantinn á
móti íslendingum og að það hefði
gengið ágætlega hjá þeim.
„Annars var ég ekkert óánægð-
ur með íslenska liðið. Ég er sér-
staklega ánægður með þann stíg-
anda sem hefur verið í liðinu und-
anfarið, en það er greinilega á
mikilli uppleið. Atli er að gera
góða hluti og þessir strákar eiga
án efa framtíðina fyrir sér. Næsta
skref hjá okkur er hins vegar að
læra að halda boltanum og refsa
öðrum liðum þegar við erum með
boltann.“ ■
knattspyrna íslenska landsliðið
tapaði illa fyrir N-írum á Windsor
Park í Belfast í gærkvöld. Leikn-
um lauk með 3-0 sigri N-írlands
og voru öll mörkin skoruð á 12
mínútna kafla í byrjun síðari hálf-
leiks. Eftir tapið á ísland ekki
lengur möguleika á því að ná 2.
sæti í 3. riðlinum í undankeppni
Heimsmeistarakeppninnar.
Fréttablaðið fékk Pétur Ormslev
til að segja sitt álit á leiknum og
sagði hann að þetta hefði bara ein-
faldlega ekki verið dagur íslenska
liðsins.
„Þetta var óþarflega stór ósig-
ur,“ sagði Pétur. „En auðvitað var
það alltaf í spilinum að geta tapað
þessu.“
Pétur sagðist hafa verið mjög
ánægður með fyrri hálfleikinn og
hvernig hann hefði þróast.
„Við vorum að spila ágætlega
og það var svona jafnræði í þessu
og ég var tiltölulega ánægður með
stöðuna í hálfleik. Seinni hálfleik-
urinn fer hins vegar mjög illa af
stað fyrir okkur. Við fengum
mark á okkur fljótlega og það var
eitthvað sem gat alltaf gerst. En
eftir markið þá bara hrynur liðið
og það var eins og menn hefðu
tapað áttum.“
Að sögn Péturs var eins og ís-
lensku leikmennirnir hefðu gerst
of ákafir eftir að hafa fengið á sig
markið og ætlað að jafna leikinn
strax í stað þess að sýna smá þol-
inmæði.
„Vinnslan á miðjunni breyttist
eitthvað og við fengum á okkur
annað mark sem var hálfgert rot-
NORDUR-lRLAND - ÍSLAND________
Staður: Windsor Park Belfast
Dómari: Hanacsek frá Ungverjalandi
Úrslit: N-írland - ísland 3-0
Mörk: David Healy 47. mínúta. Michael
Hughes 58. mínúta. George McCartney
60. mín.
Gult spjald: enginn
Rautt spjald: enginn
Lyftarar ehf
Hryðjarhöfða 9 símí 585 2500
Hvernig var leikurinn?
Oraunsæið sveif yfir
HEFÐI VILJAÐ SJÁ
fSLAND-ÞÝSKA-
LAND
„Maður er alveg sáttur.
Litlu Islendingamir eru
þó komnir þetta langt
og við eigum bara
ógeðslega góða knatt-
Skólaliðar
Skólaliöa vantar til ýmiss konar starfa.
Heil og hálf störf.
Borgaskóli
sími 577-2900
spyrnumenn, það hefur sýnt sig. Það er
bara ekki alltaf hægt að vinnasagði Stef-
án Karl Stefánsson, leikari og fyrrverandi
knattspyrnudómari. „En miðað við þennan
árangur megum við bara vel við una þótt
ég sé svekktur með tapið. Ég hefði viljað
sjá (sland-Þýskaland í lokakeppninni."
ÓRAUNSÆI SVÍF-
ANDI YFIR VÖTNUM
„Það var bara eins og
þeir misstu stjórn á
leiknum og kæmust
aldrei inní hann aftur.
Maður kann svo sem
engar skýringar á því,"
sagði Steingrímur J.
Sigfússon, alþingismaður sem horfði á leik-
inn heima í stofu. „Menn ættu að varast að
halda að það séu auðsótt stig hjá Norður-
Irum þvl þeir eru knattspyrnuþjóð og eiga
marga góða knattspyrnumenn uppá meg-
inlandinu. Það er kannski svolítið óraunsæi
svífandi yfir vötnum eftir sigufinn á Tékk-
um, að þetta yrði eitthvað auðveld ferð til
Belfast en það kom annað á daginn."
Byrjunarlið íslands
og N-írlands
BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS
Árni Gautur Arason Rosenborg
Auðun Helgason Lokeren
Arnar Þór Viðarsson Lokeren
Eyjólfur Sverrisson Hertho Berlin
Hermann Hreiðarsson Ipswich Town
Arnar Grétarsson Lokeren
Jóhannes K. Guðjónsson Pétur H. Marteinsson RKC Waalwijk Stabæk
Helgi Sigurðsson Eiður Smári Guðjohnsen Lyn Chelsea
Andri Sigþórsson Molde
Varamenn
Birkir Kristinsson IBV
Jóhann B. Guðmundss. Lyn
Tryggvi Guðmundsson Stabæk
Marel Baldvinsson Stabæk
Ólafur ö. Bjarnason Grindavik
Heiðar Helguson Watford
Lárus Orri Sigurðsson WBA
Þjálfari Atli Eðvaldsson
BYRJUNARLIÐ N-ÍRA
Maik Taylor Fulham
Aaron Hughes Newcastle
Peter Kennedy Wigan
George McCartney Sunderland
Danny Griffin Dundee Utd.
Jim Magilton Ipswich
Kevin Horlock Man. City
Keith Gillespie Blackburn
Michael Hughes Wimbledon
Philip Mulryne Norwich
David Healy Preston
Varamenn
Roy Carroll Man Utd.
Damien Johnson Blackburn
Paul McVeigh Norwich
Stuart Elliott Motherwell
Andrew Kirk Heart
Glenn Ferguson Linfield
lames Quinn WBA
Þjálfari: Samuel Baxter Mdlroy