Fréttablaðið - 17.09.2001, Síða 2
KJÖRKASSINN
ERFIÐARA FLUG
Þorri kjósenda
býst við erfiðari
flugferðalögum I
kjölfar hertra ör-
yggisráðstafana.
Verður erfiðara að ferðast
með flugi vegna hertra
ðryggisráðstafana?
Niðurstöður gærdagsins
á www.vlsir.is
54%
Spurning dagsins í dag:
Ertu sammála því að líta á árásina
á Ameríku sem árás á fsland?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þlna skoðun
JOSÉ CARRERAS
„Það er mér mikil ánægja að koma hingað
í fyrsta skipti", segir Carreras, sem í gær-
kvöldi hitti forseta Islands.
Laugardalshöll:
Carreras
og Diddú
í kvöld
tónieikar Stórtenórinn, José Car-
reras, kom hingað til landsins í
gær. Carreras mun, í kvöld, syng-
ja á tónleikum í Laugardalshöll
ásamt Diddú, Sinfóníuhljómsveit
íslands og kór íslensku Operunn-
ar. Nokkuð óvenjulegt þykir að
Carreras skuli koma fram með
sinfóníuhljómsveit sem hann
þekkir ekki til. Eftir að hafa hlust-
að á flutning hljómsveitarinnar
sendi hann þau boð að hann myndi
með mikilli ánægju syngja með
hljómsveitinni. Stjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar verður David
Gimenez sem jafnframt er systur-
sonur Carreras. ■
Osama bin Laden segist
saklaus:
Omar
lejdir mér
þaðekki
DUBAÍ, SAMEINUÐU ARABÍSKU FURSTA-
DÆMUNUM. ap „Ég legg áherslu á að
ég hef ekki framið þennan verknað,
sem virðist hafa
verið framinn af
einstaklingum af
eigin hvötum,"
sagði í yfirlýsingu
frá Osama bin
Laden, sem hann
sendi frá sér í gær.
Þar neitar hann því
alfarið að hafa
nokkurn hlut átt að
máli í árásunum á
Bandaríkin í síð-
ustu viku. „Ég hef
svarið hollustueið
[við Mohammad
Omar, leiðtoga
Talibana], sem leyfir mér ekki að
framkvæma svona hluti héðan frá
Afganistan."
Þetta er í annað sinn sem bin
Laden neitar aðild að árásunum á
New York og Washington, en
bandarískir ráðamenn segjast engu
að síður sannfærðir um að hann
hafi skipulagt árásirnar og eru
staðráðnir í að hefna sín. ■
HINN GRUNAÐI
Osama bin Laden
segist vera vanur
því að Bandaríkin
kenni sér um í
hvert sinn sem
„óvinir þeirra gera
árás."
FRÉTTABLAÐIÐ
17. september 2001 W.ÁNUDAGUR
Vélstjórum fækkað í lagafrumvarpi:
Helgi Laxdal segir vélstjóra
aldrei samþykkja 35% fækkun
sjávarútvegsmál „Sú staða er
komin upp núna að sam-
gönguráðuneytið leggur til
sömu fækkun í áhöfnum
fiskiskipa og var upp á borð-
inu síðasta vor. Það er ljóst
að þetta getum við aldrei
sætt okkur við,“ segir Helgi
Laxdal, formaður Vélstjóra-
félags íslands, en margir
töldu að meginforsenda
kjarasamnings þeirra í vor
hafi verið að frumvarp til
laga um áhafnir skipa tæki
þyrfti ekki að koma til
fækkunar hjá vélstjórum.
Þá gengu forystumenn sjó-
manna svo langt að ásaka
Vélstjórafélagið um að hafa
gengið í lið með útgerðar-
mönnum um að fækka há-
setum á fiskiskipum. Helgi
segir svo ekki vera, átt hafi
éftir að semja um fiski-
mannahlutann. Vélstjórar
„.. , hafi hinsvegar vonast eftir
VþLs'sKnd. £ að St-ÍÓrnVÖld SæJU að
HELGI
LAXDAL
Trúi því ekki að
trumvarpið
ekki til áhafna á fiskiskipa og því „Vélstjórum á fiskiskipum gæti
fækkað um allt að 30-35% sam-
kvæmt upplýsingum sem ég fékk í
síðustu viku á fundi Siglingaráðs.
Ég veit ekki hvert framhaldið
verður, við eigum að skila greinar-
gerðum um málið innan skamms
og ég trúi því ekki að litið verði
framhjá okkar sjónarmiðum," seg-
ir Helgi og tekur fram að engar
viðhlítandi skýringar hafi borist
vélstjórum frá ríkinu um nauðsyn
fækkunar. Engin ákveðin dæmi
hafi verið nefnd því til stuðnings
að aukin sjálfvirkni og tækni geri
fækkun nauðsynlega. ■
Kærur vegna fasteigna-
og brunabótamats:
Fimm þús-
und kærur
hafa borist
brunabótamat Um fimm þúsund
kærur höfðu borist Fasteignamati
ríkisins síðastliðinn föstudag.
Fjöldi kæra hefur nær tvöfaldast
frá því á föstudaginn í síðustu viku.
Að sögn Hauks Ingibergssonar, for-
stjóra Fasteingamatsins, var ljóst
að langflestar kærur myndu berast
síðustu dagana áður en að frestur-
inn rynni út. Skila má inn kærum til
Fasteignamatsins í dag, þar sem að
fresturinn rann út um helgi. Það má
því gera ráð fyrir að kærustaflinn
stækki enn frekar. ■
CHENEY, BUSH OG POWELL
George W. Bush Bandaríkjaforseti ásamt Dick Cheney varaforseta og Colin Powell utanríkisráðherra.
Bandaríkin búa
sig undir stríd
Friðarsinnar hjáróma í
Frakkar
ÁRÁS Á amerÍKU Bandarískir ráða-
menn voru herskáir í tali í gær. Ge-
orge W. Bush hét því að Bandaríkin
myndu „losa heiminn við illvirkj-
ana.“ Hann sagði þá sem réðust á
„byggingar fulla af saklausu fólki"
.-♦... í Washington og
. George W. New York hafa
Bushhétþví ..lýst yfir stríð á
að Bandaríkin hendur Bandaríkj-
myndu „losa unum- Þeir hafa
heiminn við §ert hræðileg mis-
illvirkjana." tokf. ,
Dick Cheney,
varaforseti Banda-
ríkjanna, sagði engan vafa leika á
því að Osama bin Laden ætti hlut að
máli í hryðjuverkunum og sagði að
Afganistan væri hugsanlegt skot-
mark í hernaðaraðgerðum.
Colin Powell utanríkisráðherra
sagði talibanastjórninna í Afganist-
an standa frammi fyrir því að fram-
selja bin Laden eða fá makleg mála-
gjöld ella. Bush hafði átt fund með
ríkisstjórn sinni og ráðgjöfum í
Camp David á laugardaginn þar
sem lögð voru á ráðin um viðbrögð
Bandaríkjanna við hryðjuverkun-
um, en hann var kominn aftur til
Washington í gær. Bandaríkjunum
hafa borist loforð um stuðning við
hernaðaraðgerðir frá ýmsum lönd-
Bandaríkjunum. Talibönum settir úrslitakostir.
vara við of hörðum viðbrögðum.
FYRIR TlU ÁRUM
Þessi mynd var tekinn árið 1991 af þeim Dick Cheney, þáverandi varnarmálaráðherra,
George Bush eldri, þáverandi Bandaríkjaforseta, og Colin Powell, þáverandi yfirmanni
bandaríska herráðsins. Persaflóastríðið stóð þá sem hæst
um, jafnt í Evrópu sem Asíu og víð-
ar. Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, lýsti í gær yfir afdráttar-
lausum stuðningi við Bandaríkja-
forseta.
Sendinefnd Pakistana heldur í
dag, mánudag, á fund Talibana í
Afganistan. Sendinefndin ætlar að
gefa þeim þriggja daga frest til að
framselja hryðjuverkamanninn
Osama bin Laden, eða horfast í
augu við árásir á landið að öðrum
kosti. Ýmsir hafa þó orðið til að
vara við því, að brugðist verði við
með vanhugsuðum og hörkulegum
aðgerðum. Alain Richard, varnar-
málaráðherra Frakklands, sagðist
þess fullviss að Bandaríkin myndu
bregðast við af ábyrgð, en varaði
jafnframt við því að valdbeiting ein
dygði ekki til að stöðva starfsemi
hryðjuverkamanna.
Friðarsinnar í Bandaríkjunum
hafa jafnvel hvatt til þess látið
verði kyrrt liggja og allar hernað-
araðgerðir teknar af dagskrá. Þess-
ar raddir hafa þó verið heldur
hjáróma. Meðan mannfjöldinn í
New York söng ættjarðarlög um
helgina mátti heyra stöku friðar-
sinna söngla „Give peace a
chance". Barbara Lee, demókrati
frá Kaliforníu, var eini bandaríski
þingmaðurinn sem greiddi atkvæði
gegn því að veita forsetanum heim-
ild til hernaðargerða sem viðbrögð
við hryðjuverkunum og taldi í því
felast of mikið valdaafsal af hálfu
þingsins.
gudsteinn@frettab!adid.is
ísólfur Gylfi Pálmason:
Fékk atvinnustyrk til skógræktar
SKÓGRÆKT Björn B. Jónsson hjá
Suðurlandsskógum, landgræðslu-
og skógræktarverkefni ríkisins,
staðfesti að ísólfur Gylfi Pálma-
son, alþingismaður, hafi fengið
fjárstyrk nú í ár til plöntukaupa,
en gaf ekki upplýsingar um fjár-
hæð styrksins. Stjórn Suðurlands-
skóga bókaði um mitt síðasta ár að
stjórnaformaður verkefnisins,
ísólfur Gylfi Pálmason, hyggðist
segja af sér formennsku áður en
hann festi kaup á jörð og hæfi
þátttöku í skógræktarverkefninu.
Björn segir landbúnaðarráðuneyt-
inu hafa verið tilkynnt um afsögn
fSÓLFUR GYLFI
Var formaður stjórnar
Suðurlandsskóga árið
2000. Heildarátaks-
fjárhæðin það árið var
63 m.kr. og af henni
runnu 40 m.kr til Suð-
urlandsskóga.
ísólfs Gylfa með bréfi nú í vor.
Með þessu hafi þingmaðurinn
viljað koma í veg fyrir að hann
sæti báðum megin borðsins.
ísólfur Gylfi keypti jörðina
Uppsali í Hvolhreppi um síðustu
áramót af fyrrum ábúendum þar.
Þeir höfðu eignast jörðina með vís-
an í 38. grein jarðalaga sem veitir
leiguliðum kauprétt að ábúðarjörð-
um sínum. Þar eru eftirfarandi
skilyrði sett: „Ákvæði þessarar
greinar taka þó ekki til jarða ...
sem eru líklegar til að verða nýttar
til annars en búrekstrar, svo sem
fólkvangar, sumarbústaðalönd eða
til annarra útilífsnota." Guðni
Ágústsson, landbúnaðarráðherra,
hefur bent á að ísólfur Gylfi, með
skógrækt sinni á Uppsölum, stundi
búrekstur og fullnægi þannig laga-
skilyrðum.
Einnig bls. 8.
Ný lög um fasteigna- og
brunabótamat:
_r
Utkoman
var okkur
ekki ljós
brunabótamat „Enginn í nefnd-
inni gerði sér grein fyrir því að
þetta myndi koma svona út fyrir
heildina," segir Sigurður Helgi
Guðjónsson formaður Húseig-
endafélagsins, sem átti sæti í
nefnd sem samdi reglugerðina
sem byggir á lögum um bruna-
bótamat. Að sögn
Sigurðar Helga
hefði mátt kynna
þessar breyting-
ar á fasteigna- og
brunabótamati
mun betur, og
jafnvel fara hæg-
ar í sakirnar. Á
sigurður sínum tíma hafi
helgi guð- hinsvegar ekki
jónsson þótt ástæða til
Fyrningin leit sak-þess> en(ja hafi
leysislega ut i g^j verið talið að
orðin m ög'flókin um byltingakennd:
í framkvæmd. ar breytingar væri
að ræða. Hann tel-
ur að þingmenn hafi ekki áttað
sig á framkvæmdinni. „Allar
reglur sem varða skatta og
skyldur og íþyngja borgurunum
eiga að vera á hreinu og túlkaðar
þröngt," segir Sigurður Helgi.
„Grunnreglur eiga að vera skýr-
ar.“ Hann segir að nákvæmari
útfærsla á því hvernig fyrningin
ætti að vera, hefði verið mun
ákjósanlegri. „Fyrningin lítur
sakleysislega út í lögunum og
reglugerðinni, en verklagsregl-
urnar gera hana flókna," segir
Sigurður Helgi.
Einnig bls. 13.
STUTT I
Ingvi Hrafn Óskarsson var
kjörinn nýr formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna á
þingi sambandsins á Seltjarnar-
nesi um helgina.
Iályktun þingsins er lögð áher-
sla á að tekjuskattar einstak-
linga og fyrirtækja verði lækk-
aðir verulega og stimpilgjöld af-
lögð. SUS telur krónuna hindrun
fyrir íslenskt efnahagslíf. Ekki
verði hjá því komist að taka upp
sterkan gjaldmiðil í stað hennar.
SUS telur afskipti ríkisvalds-
ins að húsnæðismálum ein-
staklinga óþörf. Umræða vegna
brunabóta- og fasteignamats
sýni að Fasteingamat ríkisins sé
úrelt stofnun.
Þá hvetja ungir sjálfstæðis-
menn til þess að stjórnvöld
undirbúi einkavæðingu vega-
kerfisins þar sem því verði
komið við. Nútímatækni geri
slíka einkavæðingu fýsilegan
kost.