Fréttablaðið - 17.09.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTABLAÐIÐ
MÁNUDAGUR 17. september 2001
Ríkisstjórnin:
Mikill stuðningur við
yfirlýsingu NATO
RÍKISSTiÓRNflRFUNDUR HalldÓr Ás-
grímsson, utanríkisráðherra lagði
fram á fundi ríkisstjórnar á föstu-
dag upplýsingar um atburði vikunn-
ar í Bandarikjunum. Þetta gerði
hann með sértöku tilliti til yfirlýs-
ingar Atlantshafsbandalagsins
varðandi 5. grein stofnsáttmála
bandalagsins um að árás á eitt ríki
jafngilti árás á þau öll. „Það kom
fram mikill og eindreginn stuðning-
ur í ríkisstjórninni við yfirlýsing-
una. Síðan var utanríkisráðuneytinu
falið, í samstarfi við önnur viðkom-
andi ráðuneyti, að undirbúa hugsan-
lega þátttöku okkar í framhaldinu,"
sagði hann og áréttaði að með yfir-
lýsingu Atlantshafsbandalagsins
væri ljóst að Bandaríkin hafi ákveð-
ið að vinna að málinu í samráði við
bandalagið. „Á þessu stigi er ekki
hægt að segja til um hvernig það
verður gert. Jafnframt átti ég fund
með utanríkismálanefnd og þar var
mikill stuðningur við málið.“ Hall-
dór sagði að næstu skref væru að
standa vaktina og halda áfram að
fara yfir málin. „Við verðum í nánu
sambandi við aðalstöðvar okkar í
Brussel, við fulltrúa varnarliðsins
hér á landi, sem og lögregluna og yf-
irvöld í flugstöðinni,“ sagði hann. ■
RÍKISSTJÓRNIN EINHUGA
Eindreginn stuðningur ríkisstjórnar íslands
við ákvörðun NATO um að árásin á
Ameríku sé árás á öll riki bandalagsins.
Landsvirkjun leggur fram tillögu að matsáætlun:
Norðlingaölduveita í umhverfismat
umhverfismat Skipulagsstofnun hef-
ur borist tillaga Landsvirkjunar að
matsáætlun vegna mats á umhverf-
isáhrifum Norðlingaölduveitu sunn-
an Hofsjökuls. í tillögunni er meðal
annars framkvæmdalýsing, greint
er frá kostum í útfærslu veitunnar
og lýsing á framkvæmdasvæðinu.
Tillagan er 19 síður að lengd.
Skipulagsstofnun hefur leitað
umsagnar Ferðamálaráðs íslands,
Hafrannsóknastofnunar, Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands, iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneytis, Land-
græðslu ríkisins, Náttúruverndar
ríkisins, Orkustofnunar, Samvinnu-
nefndar miðhálendis, veiðimála-
stofnunar, Þjóðhagsstofnunar og
Þjóðminjasafns.
Allir geta kynnt sér tillöguna og
lagt fram athugasemdir. Hægt er
að nálgast hana hjá Skipulagsstofn-
un á Laugavegi 166 og á heimasíðu
Landsvirkjunar www.nordlinga-
alda.is. Athugasemdir eiga að vera
skriflegar og eiga að berast Skipu-
lagsstofnun í síðasta lagi 28. sept-
ember næstkomandi. Þar fást ein-
nig nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum. ■
LOEWE
"Lýtalaus tækni og
hrífandi lögun"
Sjáðu hvað hátæknin getur verið glæsileg,
heillandi útlit, óviðjafnanleg myndgæði
og auðvelt í allri umgengni.
Planus 29"
• Planus 29" 100 hz
Super Black line skjár
• Mynd í mynd
• 2x25W magnari
• 3 skiptir hátalarar
• 2 x scart,
super VHS tengi
• RCA tengi
BRÆÐURNIR
ORMSSON
SJÓNVÖRP
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Skoda Octavia
Jjy j .
Hinn nýi Skoda Octavia er framleiddur (einni fullkomnustu bflaverksmiðju Evrópu og er hlaðinn
staðalbúnaði, sem nú hefur enn verið aukið við í þína þágu. Bíllinn kemur upphækkaður frá
verksmiðjunni með stálhlifðarpönnu undir vél, sem eykur verulega á styrk fyrir Islenskar aðstæður.
Nýr Skoda Octavia er nú með fimm stillanlegum höfuðpúðum, þremur þriggja punkta beltum f
aftursæti auk fjögurra öryggispúða, styrktarbita f hurðum, sem veita þér og þfnum nauðsynlegt
öryggi. Fjarstýrðar samlæsingar, hurðahandföng samlit yfirbyggingu og farangursnet eru
einnig á meðal nýjunga, sem auka enn á gæði Skoda Octavia. Njóttu þess að reyna
einstakan bfl, sem býr yfir afli, styrk, öryggi, rými, þægindum og frábærum aksturseiginleikum.
Nýr Skoda Octavia - þín er ánægjan.
Skoda Octavia 2.0 Ambiente 116 hö, handskiptur, kr.l.610.000,-
Skoda Octavia Combi Ambiente 2.0 116 hö, handskiptur, kr. 1.680.000,-
Skoda Octavia Combi Ambiente 2.0 116 hö, 4x4 handskiptur, kr. 1.880.000,-
HEKLA^
- íforystu á nýrri öld!
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða www.hekla.is • Netfang hekla@hekla.is
-þín er ánægjan