Fréttablaðið - 17.09.2001, Blaðsíða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
17. september 2001 IViÁNUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI FJÁRHAGSAÐSTOÐARMÁLA
FÉLAGSÞJÓNUSTUNNAR í REYKJAVÍK
Hér er samanburður á fjölda fjárhagsað-
stoðarmála Félagsþjónustunnar í Reykjavík
árið 2000 miðað við mismunandi fjöl-
skyldugerðir. Mest er um að einhleypir karl-
ar þurfi á slíkri aðstoð að halda frá borginni.
HEIMILD: FÉLACS-
PJÓNUSTAN 2001
ee
■o
03
s
-j
•o
<7° o,í>°
Samkvæmt skipuriti skólans er skólastjóri
undirmaður framkvæmdastjóra fslensku
menntasamtakanna og gegnir hlutverki
líku hlutverki yfirkennara í öðrum skólum.
Nýr skólastjóri
Áslandsskóla:
Skólastjór-
inn æðsti
stjórnandi
áslandsskóli „Samkvæmt lögum
er skólastjóri alltaf skólastjóri,"
segir Áslaug Brynjólfsdóttir
skólastjóri Áslandsskóla. Sunita
Gandhi sagðist hins vegar i sam-
tali við Fréttablað-
ið í vikunni vera
yfirmaður skóla-
stjóra og að skóla-
stjóri Áslandsskóla
væri á sama stjórn-
unarstigi og rekstr-
arstjóri og for-
eldraráðgjaf i.
„Sunita Gandhi er
framkvæmdastjóri
íslensku mennta-
samtakanna og hún
hefur heimild til að
fylgjast með hér,“
segir Áslaug.
Áslaug gegndi
áður starfi for-
eldraráðgjafa við
skólann sem í skipuriti, og að
sögn Sunitu, var jafnsett starfi
skólastjóra. Sunita hélt fram í
samtali við blaðið að Áslaug væri
sem skólastjóri tæknilega ábyrg
fyrir starfi Áslandsskóla en í
raun væri starfssvið hennar
óbreytt frá því sem var í for-
eldraráðgjafastarfinu. Þessu
hafnar Áslaug sem segist gegna
öllum skyldum skólastjóra sam-
kvæmt lögum.
Áslaug segir liggja ljóst fyrir
að Sunita sé ráðgjafi varðandi
innra starf skólans, að minnsta
kosti í bili. „Hún veitir leiðsögn
en nun er ekKi ynr sKoiastjoran-
um. Hann cr með ábyrgðina á
þessu,“ segir Áslaug og leggur
áherslu á aó verið sé að vinna
með nýja hugmyndafræði og
mikilvægt sé að geta þegið ráð
þegar svo sé. ■
SKÓLASTJÓRI
ÁSLANDS-
SKÓLA
Áslaug Biynjólfs-
dóttir er nú
skólastjóri í Ás-
landsskóla,
æðstráðandi og
ábyrg fyrir skóla-
starfinu þar.
1 STUTT |
Bæjarráð Vestmannaeyja
hefur falið bæjarstjóranum
að halda áfram viðræðum við
fulltrúa sjónvarpsstöðvarinnar
Skjás eins þar sem mikill vilji
sé meðal Eyjamanna fyrir því
að útsendingar stöðvarinnar
náist í Vestmannaeyjum.
Samtök kvenna í Afganistan:
Afganska þjóðin ber enga sök
viðbrögðin Byltingarsamtök
kvenna í Afganistan, sem eftir
bestu getu hafa reynt að veita
ógnarstjórn talibana andspyrnu,
sendu frá sér yfirlýsingu á laug-
ardaginn þar sem þær vilja minna
bandarísk stjórnvöld og banda-
rísku þjóðina á, að gera þurfi
skýran greinarmun á afgönsku
þjóðinni annars vegar og þeim
hryðjuverkamönnum sem þar
dvelja og harðstjórn talibana hins
vegar.
Þær benda einnig á að banda-
rísk stjórnvöld studdu vel við bak-
ið á Zia-ul Haq, einræðisherra í
Pakistan, þegar hann var að koma
upp þúsundum trúarskóla og mót-
aði með því jarðveginn fyrir tali-
banana. U
KONUR OG BÖRN FLÝJA LAND
Þúsundir Afgana hafa flúið til Pakistans
síðustu daga af ótta við hefndaraðgerðir
Bandaríkjamanna.
: ' ' . ' . ,
-
HEIMSMYNDIN HRYNUR
Sjálfsmorðsárásum hefur verið beitt öldum saman, oft með ógnvekjandi afleiðingum.
Ohugnaður
sem tekið er eftir
Sjálfsmorðsárásir þekktar frá 11. öld. Japanir beittu þeim í seinni heims-
styrjöld, einnig tamílar á Sri Lanka og samtök fyrir botni Miðjarðarhafs.
ÁRÁSIRNAR Á BANDARÍKIN Sjálf-
morðsárásir hafa þekkst allt frá
því múslimar á elleftu öld, „hass-
hausarnir“ svonefndu, beittu
þessari aðferð í norðuhluta Pers-
íu. Japönsku sjálfsmorðsflug-
mennirnir í seinni heimsstyrjöld-
inni eru eitt kunnasta dæmið.
Á síðustu áratugum hafa tamíl-
ar á Sri Lanka beitt þessari óhugn-
anlegu aðferð oftar en nokkrir
aðrir, nærri tvö hundruð sinnum,
þótt minna hafi farið fyrir frétt-
um þaðan heldur en frá botni Mið-
jarðarhafs. Eitt áhrifaríkasta
sjálfsmorðshryðjuverk seinni
tíma gerðist í Beirút í Líbanon
þann 23. október 1983 þegar tvær
gríðarmiklar sprengingar urðu í
bækistöðvum bandaríska og fran-
ska hersins þar með þeim afleið-
ingum að 299 hermenn létu lífið.
Aðgerðin markaði tímamót, því
upp frá þessu urðu sjálfms-
orðsárásir æ algengari fyrir botni
Miðjarðarhafs.
Palestínsku samtökin Hamas
byrjuðu að beita sjálfsmorðsárás-
um árið 1992, en í þeim heims-
hluta náðu slíkar árásir ákveðnu
hámarki í Hebron á Vesturbakk-
anum árið 1994 þegar ísraelskur
læknir, Baruch Goldstein, myrti
29 Palestínumenn sem sátu þar að
bænum.
Árið 1995 voru hins vegar frið-
arsamningar komnir það langt á
skrið að sjálfmorðsárásir voru
ekki lengur á dagskrá, en árið
1996 lét Shimon Peres, þáverandi
forsætisráðherra ísraels og nú-
verandi utanríkisráðherra, myrða
„verkfræðinginn" Yehiya Ayash,
sem hafði skipulagt sjálfs-
morðsárásir Hamas samtakanna.
í framhaldi af því hófust sjálfs-
morðsárásir Palestínumanna að
nýju. ■
Hvað eru þeir að hugsa?
Trúarofstæki býr
„1.1.! '-.„1U „ A 1_1-!
CKM ctVctllt dU UdM
árásin Á BANPARÍKIN „ímyndaðu
þér að þú sitjir í gufubaði. Það er
mjög heitt, en þú veist að við hlið-
ina er herbergi með loftræstingu,
þægilegum sætum, klassískri tón-
list og drykkjarföngum. Auðvitað
ferðu beint þangað. Þannig myndi
ég útskýra það sem er að gerast í
huga píslarvotts fyrir Vestur-
landabúum."
Þetta sagði leiðtogi Ilisbolla
skæruliðanna í Líbanon breskum
blaðamanni fyrir nokkru, þegar
hann var spurður um hugarástand
sjálfsmorðsárásarmanns.
ísraelski fræðimaðurinn Ehud
Sprinzak segir það mikinn mis-
skilning að sjálfsmorðsárásar-
menn eigi erfitt með að hugsa
skýrt og hafi engu að tapa. Þeir
séu þvert á móti „kaldrifjaðir og
rökfastir morðingjar sem beita
ofbeldi til þess að ná fram ákveðn-
um pólitískum markmiðum.“
Þá segir hann ekki rétt að trú-
arofstæki ráði alltaf gerðum þeir-
ra. Þeir geti alveg eins látið
stjórnast af stækri föðurlandsást,
gegndarlausu hatri á óvininum
eða djúpstæðri tilfinningu fyrir
því að vera í hópi fórnarlamba
hróplegs ranglætis. ■
IlögreglufréttirI
Alvarlegt umferðarslys varð á
Háaleitsibraut við Austurver
á föstudagsmorgun. Ekið var á
tólf ára gamla stúlku á reiðhjóli
og slasaðist hún mjög alvarlega.
Stúlkan var flutt á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi og liggur
hún þar þungt haldin.
Dyravörður á veitingastað í
Hafnarstræti óskaði eftir að-
stoð lögreglunnar í Reykjavík um
fjögurleytið á laugardagsmorgun.
Var sagt að slagsmál hefðu brot-
ist út og að árásarmanninum
væri haldió en fórnarlambið lægi
meðvitundarlaust. Þegar lögregl-
an kom á staðinn reyndist fórnar-
lambið við góða heilsu með
minniháttar skurð á vör.
ÁRÁSIN Á WORLD TRADE CENTER
Hvað fær menn til þess að stýra flugvél
beint í dauðann?
íslensk-franski
drengurinn:
Ætlar að
hlíta dómi
Hæstaréttar
dómsmál „Það verður auðvitað
farið að dómi Hæstaréttar, það er
ekkert sem komist verður hjá,“
sagði faðir íslensk-franska
drengsins aðspurður um hvort
hann ætlaði að skila syni sínum til
franskrar móður sinnar eins og
kveðið hefur verið á um bæði í
Héraðsdómi og Hæstarétti. Hann
áréttaði þó að verið væri að skoða
vandlega hvort ekki væri hægt að
fá mál þeirra feðga tekið fyrir hjá
Mannréttindadómstóli Evrópu. ■
NORRÆNAR HUGVITSKONUR FUNDA
Uppfinningar kvenna fela ekki í sér jafn
mikla tækni og uppfinningar karla", segir
formaður Landssamtaka hugvitsmanna.
Uppfinningakonur:
Finna upp
hagnýta hluti
fundur Fundur norrænna upp-
finningakvenna var haldinn í
Gerðubergi síðastliðinn föstudag.
í tenglsum við fundinn var haldin
sýning á uppfinningum kvenna.
Að sögn Elínóru Ingu Sigurðar-
dóttur, formanns Landssamtaka
hugvitsmanna er eitt af megin-
markmiðum fundarins að gera
uppfinningakonur sýnilegri. Sér í
lagi gagnvart fjárfestum. Meðal
þess sem konur hafa fundið upp
og verður á sýningunni eru; þeyt-
ari með liðamótum sem liggur
flatur í skúffunni, „button clip“
sem er nál og þráður í sama verk-
færi og veltipúði fyrir börn, sem
er íslensk uppfinning. ■
Ilögreglufrettir
Maður kýldi í gegnum rúðu í
fyrirtæki á Lækjartorgi að-
faranótt sunnudagsins. Hlaut
maðurinn skurð á upphandlegg
auk þess sem blæddi úr slagæð.
Hann var iiuttur í sKynai a
slysadeild. Þá voru framin
nokkur innbrot. Farið var inn í
fyrirtæki í miðborginni um eitt-
leytið og nokkrum munum
stolið og einnig var brotist inn í
fyrirtæki í Breiðholtinu og
stolið tölvubúnaði. Þá var rúða
brotin í bifreið á Hverfisgöt-
unni um fjögurleytið og stolið
þaðan hljómflutningstækjum.
Arekstur varð í austurborg-
inni um eittleytið aðfaranótt
laugardagsins með þeim afleið-
ingum að ökumaður annarrar
bifreiðarinnar ók á grindverk
sem skemmdist töluvert.