Fréttablaðið - 17.09.2001, Side 8
FRÉTTABLAÐIÐ
Fyrirtæki til sölu, t.d.:
• Oriflame á íslandi. Rótgróið
umboð fyrir þessar heimsþekk-
tu snyrtivörur sem aðeins eru
seldar í heimasölu og á Netinu.
Lítil fjárfesting.
• Verslun, bensínssala og veitin-
garekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Mjög góður rekstur.
• Rótgróið gistihús/hótel á
góðum stað í borginni. 15 her-
bergi. Góð viðskiptasambönd.
Velta 22 MKR á ári.
• Djásn og Grænir Skógar. Pessi
óvenjulega og fallega dekurbúð
við L^ugaveginn er til sölu fyrir
réttan kaupanda. Upplýsingar
aöeins veittar á skrifstofunni.
Vinsamlega pantið tíma.
• Lrtið verktakafyrirtæki í
sérhæfðum byggin-
gaframkvæmdum. Góð verkefni
allt árið. Hentugt fyrir tvo menn,
t.d. smiði. Lítil fjárfesting.
• öflugt verslunarfyrirtæki meö
175 MKR ársveltu. Það þekk-
tasta á sínu sviði.
• Fyrirtæki sem á leikjakassa í
krám og sjoþpum. Góð fram-
legð, auðveld kaup.
• Rótgróin innflutningsverslun
með tæki og vörur fyrir byggin-
gariðnaðinn. Ársvelta 165 MKR.
Góður hagnaður.
• Óvenjulegt fyrirtæki í bílaþrifum
með mikla markaðsmöguleika.
Sérstaklega hentugt fyrir dugle-
ga námsmenn.
• Góð videósjoppa með 4 MKR
veltu á mánuði. Auðveld kaup.
• Sport og dans pub í úthverfi.
Sérstaklega glæsilegur og mjög
vinsæll.
• Mjög falleg blómabúð í
Grafarvogi. Mikil velta og góður
rekstur. Ein sú besta í borginni.
Auðveld kaup.
• Framleiðslufyrirtæki í bílahlutum
með góða hagnað. Hentugt fyrir
tvo menn.
• Sniðugur kjúklingastaður með
um 20 MKR ársveltu.
• Sólbaðsstofa í Breiðholti. 9 sól-
bekkir. Mjög hagstætt verð og
möguleiki á skiptum, t.d. á bíl.
• Gott kaffihús í miðbænum.
• Glæsileg videoleiga og söluturn,
ísbúð og grill í stórum verslu-
narkjarna. 6 MKR mánaðarvelta
og góður hagnaður. Þægilegir
greiðsluskilmálar.
• Stór pub í miðbænum. Mikil
velta.
• Þekkt gjafavöruverslun við
Laugaveg.
• Lítið bílaverkstæði í góðu hús-
næði í Hafnarfirði. Vel tækjum
búið.
• Þekkt sólbaðsstofa, hárgreiðs-
lustofa og snyrtistofa í mjög fal-
legu húsnæði.
• Stór pizzastaður í Hafnarfirði.
Hagstætt verð.
• Sport-pub í góðu hverfi. Velta 2
MKR á mánuði. Hentugt fyrir
kokk.
• Vel þekkt saumastofa með
ágætum tækjabúnaði í
sérhæfðum verkefnum.
Langtímasamningur um
verkefni. Hentar vel til flutnings
út á land.
• Hárgreiðslustofa á góðum stað.
Hagstætt verð,
• Einn af vinsælustu veitin-
gastöðum borgarinnar. Mjög
góð velta og framlegð.
• Lítil videosjoppa í Háleitishverfi.
Auðveld kaup
• Yfir 100 fyrirtœki til sölu í fles-
tum starfsgreinum.
• Láttu drauminn rætast um eigin
atvinnurekstur, það er auðvei-
dara en þú heldur!
| - UUUUI IUHUOUIUUI uu \uiau IIUOIII/
I • Sími 533 4300 • Gsm 895 8248
pf
8
17. september 2001 MÁNUPAGUR
T öl vufy rirtæki:
T ækniframfarir
ganga hægar
TÖLVUFYRIRTÆKI Samdráttur hefur
átt sér stað meðal nokkurra tölvu-
fyrirtækja landsins að undan-
förnu. Holberg Másson, stjórnar-
formaður Netverks plc., segir að
nýlegur niðurskurður hjá þeim,
þar sem töluverðum fjölda starfs-
manna var sagt upp, skýrist af því
að skiptin milli farsímakerfa
gangi hægar fyrir sig en vonast
hafði verið til. Hann segir vera
niðurskurð hjá fyrirtækjum bæði
hér heima og erlendis og þau hafi
gripið til mismunandi aðgerða.
Sum fyrirtæki segir hann að hafi
verið að minnka við sig í húsnæði
og einhver hafi jafnvel samið við
starfsmenn upp á nýtt. Hann seg-
ir það helst vera minni fyrirtæki
sem eru að þróa nýjungar á tölvu-
og fjarskiptasviði sem eru að
draga saman seglin. „Fyrirtæki
með undir hundrað starfsmönn-
um. Þá hafa stærri fyrirtækin líka
verið með einhverjar sparnaðar-
aðgerðir," sagði hann. Holberg
segir óvissu á markaði gera sum-
um fyrirtækjum erfiðara fyrir að
Samdráttur í tölvugeiranum kemur harðast
niður á smærri fyrirtækjum sem vinna að
nýjungum.
fjármagna reksturinn því fjár-
festar haldi að sér höndum á með-
an það ástand varir. „Það er þren-
gra um og í Bandaríkjunum og
Evrópu hafa margir fjárfestar
tekið ákvörðun um að láta hluta
þeirra fyrirtækja sem þeir hafa
verið að fjármagna einfaldlega
eiga sig og sjá hvort þau spjari sig
án peninga," sagði Holberg. ■
Brotist inn í þrjú apótek:
Framinum
svipaö leyti
innbrot Brotist var inn í þrjú ap-
ótek aðfaranótt sunnudagsins
með stuttu millibili. Farið var inn
í apótek í austurborginni um
tvöleytið og voru tveir sautján
ára piltar staðnir að verki og
fluttir til frekari yfirheyrslu.
Átta mínútum síðar var gerð til-
raun til innbrots í apótek í vest-
urbænum. Þar var rúða brotin en
engu stolið. Um hálf þrjú leytið
var tilkynnt um innbrot í apótek í
vesturborginni og töluverðu
magni af ákveðnu lyfi stolið en
ekki fékkst uppgefið af hvaða
tegund. ■
UPPSALIR
Kostaði fjórar milljónir með landi, raektun, húsum og tækjum. Greitt var 20 milljónum meira fyrir dánarbúsjörðina Kvoslæk, sem að sögn kunnugra er sambærileg Uppsölum.
Eins og í hundruðum annarra tilfella
Landbúnaöarráðuneytið gagnrýnt af Ríkisendurskoðun vegna skorts á faglegum vinnubrögðum
við sölu ríkisjarða. Ráðuneyti og Ríkiskaup vísa á hvort annað þegar beðið er um útskýringar á
verklagsreglum.
uppsalir í stjórnsýsluúttekt Ríkis-
endurskoðunar á starfsemi jarða-
deildar landbúnaðarráðuneytis frá
árinu 1998 er að
finna margvíslega
gagnrýni. I niður-
stöðum er það með-
al annars nefnt að
ekki séu til staðar
„verklagsreglur
um hvernig staðið
skuli að jarðasölum
og hvernig verð
skuli ákvaröaö."
Ríkisendurskoðun
sér ástæðu til að
birta sérstaklega
svar ráðuneytisins við þessu: „...
meðhöndlun jarðeigna ríkisins [er]
tiltölulega flókið ferli og erfitt að
koma við algildum reglum.“
Tveggja milljóna króna verð-
mat landbúnaðarráðuneytis og Rík-
iskaupa á rúmlega 100 hektara
landi ríkisjarðarinnar Uppsala í
Hvolhreppi hefur vakið athygli.
Bent hefur verið á að jörðin Kvos-
lækur í Fljótshlíð, sem að sögn
kunnugra er sambærileg hvað
varðar staðsetningu og landgæði
seldist á vordögum fyrir 24 millj-
ónir króna.
Aðspurður um hvernig staðið
var að verðmati Uppsala vísaði Jón
H. Ásbjörnsson, deildarstjóri hjá
Ríkiskaupum, alfarið á landbúnað-
arráðherra. „Okkar verðmat er að-
eins tillaga og það er ráðherra sem
tekur lokaákvörðun. Ráðuneytið er
alls ekki bundið af okkar tillögum,"
sagði Jón.
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, og Sigríður Norðmann
hjá jarðadeildinni vísuðu á Ríkis-
kaup um útskýringu verklags-
reglna í þessu efni. „Sú ákvörðun
hefur verði tekin að fara í öllum til-
fellum eftir úttektum þeirra og svo
var einnig í þessu tilfelli," sagði
Guðni.
Sigríður Normann hjá jarða-
deild ráðuneytisins staðfesti að
fSÓLFUR GYLFl GUÐNI ÁGÚSTS-
pAlmason SON
Keypti í gegnum Hefðbundin fram-
ábúendur sem fluttir kvæmd.
voru af jörðinni.
mat Ríkiskaupa hafi þótt of lágt og
hafi því verið hækkað um helming.
Greiðsluseðill sem sendur var til
kaupendanna í samræmi við það
kom þó aldrei til greiðslu. í stað
þess lækkaði ráðuneytið kaupverð-
ið aftur niður í tvær milljónir.
í þessu tilfelli nýttu þrír aldrað-
ir bræður sem lengi höfðu stundað
búskap á jörðinni, sér ákvæði í
jarðalögum sem heimilar leigulið-
um kaup á ábúðarjörðum sínum. Af
skjölum málsins má sjá að þeir
keyptu jörðina til þess að selja Isól-
fi Gylfa Pálmasyni, þingmanni,
hana aftur nokkrum vikum síðar.
Það má einnig sjá að ísólfur Gylfi,
en ekki ábúendurnir, greiddi ríkinu
fyrir jörðina. Guðni kannaðist ekki
við þessa málavexti. „Málið kemur
ekki á mínar fjörur fyrr en ég skri-
fa undir sölu til bræðranna og svo
aftur um að ríkið neytti ekki for-
kaupsréttar.“
Ekki var talið rétt að neyta for-
kaupsréttar vegna viðskipta ábú-
enda og ísólfs Gylfa Pálmasonar
með jörðina vegna áratuga venju.
Þetta má skilja af viðbrögðum
ráðuneytis og ráðherra. „Síðan
kemur að því, eins og í hundruðum
annarra tilfella, að þeir sem keypt
hafa samkvæmt þessari reglu hafa
fullt frelsi til þess að láta reyna á
sölu aftur, gefa jörðina eða gera
hvað sem þeir vilja,“ sagði Guðni.
■natti@frettabladid.is
„Okkar verð-
mat er aðeins
tillaga og það
er ráðherra
sem tekur
lokaákvörðun.
Ráðuneytið er
alls ekki
bundið af
okkar tillög-
um"
—
Á föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu við Hlíðaskóla. Þegar sú bygging
er risin verða Hlíðaskóli og Vesturhllðarskóli undir sama þaki og allir grunnskólar Reykja-
víkur einsetnir.
Borgaskóli og Hlíðaskóli:
Nýr skóli vígður og
byggt við annan
SKÓlabyggingar Borgaskóli í Graf-
arvogi var vígður og formlega
tekinn í notkun við hátíðlega at-
höfn á föstudag. Þetta er fjórða
starfsár Borgaskóla en byrjað var
að kenna þar í lausum kennslu-
stofum. Skólinn er byggður fyrir
350 til 400 nemendur en í vetur
eru þar tæplega 320 börn í 17
bekkjardeildum í 1. til 8. bekk.
Nýja skólahúsið er tvær bygging-
ar með tengigangi og eru hönnuð-
ir þess Gláma/Kím arkitektar.
Á föstudag var einnig tekin
fyrsta skóflustunga að viðbygg-
ingu við Hlíðaskóla. Þegar sú við-
bygging er risin verða Hlíðaskóli
og Vesturhlíðarskóli, sem er skóli
fyrir heyrnarlausa og heyrnar-
skerta, í samstarfi og í sama hús-
næði. Þá verður Hlíðaskóli einnig
einsetinn og þar með allir grunn-
skólar borgarinnar.
Samvinna skólanna tveggja
hófst árið 1999 og eru þeir nú
Borgaskóli var vígður við hátíðlega athöfn
á föstudag. Að lokinni vígslu var foreldrum
og öðrum gestum boðið að þiggja veiting-
ar foreldrafélagsins og skoða skólahús-
næðið.
meðal annars með sameiginlega
skóladagvist og íþróttakennslu. í
Hlíðaskóla eru nú á sjötta hund-
rað nemendur í 1. til 10. bekk en í
Vesturhlíðarskóla eru 18 nemend-
ur, einnig í 1. til 10 bekk. ■