Fréttablaðið - 17.09.2001, Side 13
MÁNUDAGUR 17. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
MARKAÐIR í KÍNA OPNAST
Kínverskur maður virðir fyrir sér gjaldmiðla frá ýmsum löndum á sýningu sem haldin var í
Peking á tækni og tólum til nota í bankaviðskiptum.
flutningur til Kína mun stór-
aukast og að breytinga muni gæta
í heimsviðskiptum.
Erlendir viðskiptamenn hafa
lengi beðið eftir aðild Kina að
WTO og séð hana sem inngöngu-
leið að nýjum og ómettuðum
markaði fyrir vörur sínar. Með
aðildinni gefst einnig kínverskri
alþýðu nú kostur á að nálgast vör-
ur sem áður voru ófáanlegar, allt
frá bifreiðum til tískufatnaðar.
Aðildin hefur einnig í för með sér
að slakað verður á reglugerðum
varðandi öll bankaviðskipti og
margmiðlun. ■
Bandaríkjaforseti gaf hernum fyrirmæli:
Skjóta mátti niður
farþegaflugvélar
ÁRÁSIN Á BANPARÍKIN
Eftir að tvær flugvél-
ar höfðu flogið á turna
World Trade Center í
New York síðastliðinn
þriðjudag, gaf George
W. Bush, forseti
Bandaríkjanna,
bandarískum herflug-
mönnum fyrirmæli
um að skjóta niður all-
ar farþegaflugvélar
sem ekki yrðu við til-
mælum um að halda
VARAFORSETINN
Dick Cheney I sjónvarpsviðtali
í gær.
sig fjarri Washington.
Frá þessu skýrði
Dick Cheney, vara-
forseti Bandaríkj-
anna, í sjónvarps-
þætti í gær.
„Veistu, núna segir
fólk að þetta sé
hræðileg ákvörðun,“
sagði Cheney. „Og
vissulega er hún það.
En svo fór að við
þurftum ekki að
framkvæma hana.“ ■
gÉS
NAR I PENTAGON
bandaríska varnarmálaráðuneytisins I Washington.
eiri handtökum
andaríkjunum. 25 manns eru nú í haldi vegna málsins
viðbótar er leitað.
Meðal þeirra 25, sem í haldi
eru, eru tveir menn sem teknir
voru fastir á járnbrautarstöð í
Fort Worth í Texas. Mennirnir
tveir, Mohammed Jaweed
Azmath og Ayub Ali Khan, báðir
um fimmtugt, voru yfirheyrðir
og síðan var flogið með þá til
New York. Þeir höfðu farið um
borð í flugvél á þriðjudagsmorg-
un í Newark í New Jersey, á svip-
uðum tíma og fjórum flugvélum
var rænt. Flugvélin, sem þeir
voru í, fór aldrei á loft vegna
þess að öll flugumferð var bönn-
uð.
Mennirnir tveir voru hand-
teknir á miðvikudagskvöld og
fundust á þeim hnífar, svipaðir
þeim sem talið er að flugræningj-
arnir hafi notað.
Bandaríska alríkislögreglan
FBI leitar nú að meira en hund-
rað manns, sem talið er að hafi
upplýsingar um hryðjuverkin
síðastliðinn þriðjudag.
Rannsóknin fer einkum fram í
New Jersey, Texas, Florida, New
York og Massachusetts í Banda-
ríkjunum, en einnig hafa þræðir
hennar legið til Evrópu, ekki síst
Þýskalands þar sem þrír flug-
ræningjanna bjuggu um hríð.
Ýmis sönnunargögn hafa fundist
þar sem virðist mega tengja til
Bandaríkjanna. ■
Ný lög um fasteigna- og brunabótamat:
Þingmenn gerðu sér ekki
grein fyrir afleiðingunum
BRUNABÓTAMAT „Allir þingmenn
greiddu frumvarpinu atkvæði, en
engar umræður urðu um það á
þingi“, segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir. „Þetta voru mistök og þing-
menn gerðu sér ekki grein fyrir
því hvað fólst í þessu.“ Að sögn
Jóhönnu má sjá á nefndaráliti
efnahags-og viðskiptanefndar og
umræðum sem fóru fram um
þetta mál, að þingmenn hafi ekki
gert sér grein fyrir áhrifum eða
afleiðingum breytinganna. Þess
vegna þurfi að taka málið upp aft-
ur. Jóhanna segir að frumvarpinu
hafi verið greitt atkvæði án þess
að umræða hafi farið fram um
megin afleiðingar þess. Hvorki
hafi verið rædd áhrifin varðandi
veðhæfni eigna eða hvaða áhrif
lögin gætu haft varðandi vátrygg-
ingaverðmæti. „Það er eins og
þeir sem sitji í efnahags- og við-
skiptanefnd hafi ekki gert sér
grein fyrir þeim breytingum sem
þarna urðu,“ segir Jóhanna. Hún
segir að nokkur samstaða sé um
það innan efnahags- og viðskipta-
nefndar að brunabótamat sé ónot-
hæfur grundvöllur undir veð-
hæfni eigna. Einnig sé hún með í
undirbúningi frumvarp að breyt-
ingum sem hún muni kynna fyrir
nefndinni. ■
Breytingar á reglum um fasteigna- og brunabótamat:
Engar umræður áttu
sér stað
brunabótamat Að sögn Ögmundar
Jónassonar, formanns þingflokks
Vinstri-grænna áttu engar umræð-
ur sér stað á þingi á sínum tíma um
breytingar á fasteignamatinu.
„Nýjar reglur um brunabótamat
eru nú til skoðunar í efnahags - og
viðskiptanefnd þingsins og óskað
hefur verið eftir nánari úttekt á því
máli í heild sinni“, segir Ögmundur.
„Það þarf að grípa til gagnráðstaf-
ana varðandi þessi mál og ég er að
hvetja til þess að það verði gert",
segir Ögmundur. Ljóst er að breyt-
áþingi
ingin á fasteignamatinu hækkar
skattstofna ríkis og sveitarfélaga
og veldur almenningi verulegum
búsifjum. Að sögn Ögmundar er
ástæðuna fyrir því að finna í stjórn-
arráðinu og þeim breytingum sem
ríkisstjórnin hefur ráðist í á liðnum
misserum. „Það þarf að taka hús-
næðismálin og skattalöggjöfina
sem snýr að þessu til gagngerar
endurskoðunar", segir Ögmundur.
„Það er verið að kanna þessi mál til
hlítar og ekki eru öll kurl komin til
grafar enn“. ■
Heildarlausnir
fyrir fyrirtækið
Trygg gæði - Gott verð!
1000kg.
2500 kg.
LaE®RnS
1000 kg.
Isoldehf.
Umboðs- og heildverslun
Nethyl3-3a -1 WReykjavík
Sími 5353600- Fax 5673609
Sparaðu bakið
réttri vinnuhæð
Netverslun - www.isold.is
Bónstöðin
Birta
Tökum að okkur að:
• Bóna
• Massa
• Djúphreinsa
• Teflonhúða
BÓNSTÖÐIN BIRTA
Skipholti 11-13
Sími 533 2828
Straumur
Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík, s. 560 8900
Mánudaginn 15. október 2001 verða hlutabréf í Fjárfest-
ingarfélaginu Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá
Veróbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvöróun stjórn-
ar Fjárfestingarfélagsins Straums hf. þar að lútandi. Þar af
leiðandi veróa engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann
dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrir-
tækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um raf-
ræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Fjárfestingarfélaginu
Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar. Þau eru gefin út á
nafn hluthafa og útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa í félaginu
sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé rétti-
lega fært í hlutaskrá Fjárfestingarfélagsins Straums hf. að
staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Fjár-
festingarfélagsins Straums hf., Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
eða í s(ma 560 8900. Komi í Ijós við slíka könnun að eig-
endaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönn-
ur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð rétt-
indi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma
þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildar-
samning við Verðbréfaskráningu íslands hf., fyrir skrán-
ingardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf
félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila
þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á aó ferli raf-
rænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til
að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikn-
ingsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að
geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikn-
ingsstofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni við-
komandi hluthafa.
Stjórn Fjárfestingarfélagsins Straums hf.