Fréttablaðið - 17.09.2001, Qupperneq 15
MÁNUPAGUR 17. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Fyrsti sigur Montoya í Monza:
Barrichello mjög óánægður
formúla i Kólumbíski nýliðinn Juan
Pablo Montoya vann sinn fyrsta
Formúla 1 kappakstur í Monza á
Ítalíu í gær. Montoya, sem er 25 ára
og ekur fyrir Williams BMW, náði
ráspól á laugardaginn og kom í
mark 5,1 sekúndu á undan Brasilíu-
búanum Rubens Barrichello. Þetta
kemur ekki á óvart, Montoya hefur
bæði náð ráspólnum og lent í öðru
sæti tvisvar áður.
Liðsmaður Montoya, Ralf
Schumacher, kom þriðji í mark og
bróðir hans Michael fjórði. Spán-
verjinn Pedro De La Rosa hjá Jagú-
ar var fimmti, sem er glæsilegur
árangur, og Kanadabúinn Jacques
Villeneuve hjá BAR Honda sjötti.
Barrichello var mjög óánægður
að sigra ekki í sitt annað skipti á
heimabraut Ferrari. Þar vóg þungt
að Williams liðið tók eitt viðgerðahlé
en Ferrari tvö. Annað hlé hans tók
16 sekúndur vegna vandræða með
bensíndælu. Báðir ökumenn McL-
aren Mercedes, David Coulthard og
Mika Hakkinen, féllu úr keppni.
Með öðru sæti er Barrichello þrem-
ur stigum á eftir Coulthard, sem er
með 57 stig í heimsmeistarakeppni
ökumanna. Michael Schumacher er
með 107 stig. Barrichello segist ætla
að ná sætinu af Coulthard til að tryg-
gja Ferrari fyrstu tvö sætin.
Fyrir kappaksturinn minntust
ökumenn og áhorfendur fórnar-
lamba hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum með mínútu þögn. Jacques
Villeneuve var sá eini sem tók illa í
þá hugmynd ökumanna um að taka
ekki fram úr í fyrstu beygju
brautarinnar til minningar um
fórnarlömbin og starfsmanns sem
lést í árekstri þar í fyrra. „Ég er
hingað kominn til að taka þátt í kap-
pakstri,11 sagði hann. Monza er ein
hraðskreiðasta brautin, í Formúla
1. Meðalhraði Montoya var 239.103
km/klst en Ralf Schumacher fór
hraðasta hringinn á meðalhraðan-
um 245,140. Næsti kappakstur er í
Indianapolis í Bandaríkjunum 30.
september og sá síðasti í Japan 14.
október. ■
FYRSTA BEYGJAN
Montoya leiðir kappaksturinn á Williams BMW bíl í fyrstu beygju kappakstursins í Monza í
gær. Honum fylgir fast á hæla Barrichello á Ferrari. Michael Schumacher neyðist til að
sneiða beygjuna þar sem Jarno Trulli missir stjórn á Jordan bíl sínum. Ferrari bílarnir eru
með svart nef til minningar um fórnarlömb hryðjuverkanna í Bandaríkjum, líkt og Jagúar
og Jordan.
Enska tirvalsdeildin:
Leeds á toppnum
knattspyrna Tíu leikir fói'u fram í
ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Leeds komst á toppinn með 2-0 sigri
á Charlton í gær. Robbie Keane
skoraði fyrsta mark sitt á tímabil-
inu og Danny Mills skoraði á móti
fyrrum ljðsmönnum sínum hjá
Charlton. í gær sigraði einnig Chel-
sea Tottenham með þremur mörk-
um gegn tveimur. Marcel Desailly
skoraði sigurmarkið á lokasekúnd-
unum en Eiður Smári Guðjohnsen
kom inn á sem varamaður á 88. mín-
útu. Hermann Hreiðarsson og fé-
lagar hans hjá Ipswich gerðu jafn-
tefli við Blackburn, 1-1. Þá gerðu
Aston Villa og Sunderland marka-
laust jafntefli.
Á laugardag bar hæst leikur
Manchester United og Newcastle,
sem endaði með 4-3 sigri
Newcastle. Leikurinn var æsispenn-
andi. Newcastle komst 3-1 yfir en
Manchester náði að jafna. Fyrrum
fyrirliði enska landsliðsins, Alan
Shearer, skoraði síðan sigurmarkið
stuttu fyrir leikslok. Mikill hiti
komst í leikmenn Manchester eftir
það og var Roy Keane rekinn af
leikvelli fyrir að henda boltanum í
höfuðið á Shearer. Þurftu liðsmenn
hans að teyma hann út af til að hann
myndi ekki æða í Shearer. Þetta er í
níunda skipti sem Keane, sem er
fyrirliði Manchester, fær rautt
spjald á jafn mörgum árum með fé-
laginu.
Á laugardag sigraði Arsenal Ful-
ham með þremur mörkum gegn
einu. Liverpool sigraði Everton, ein-
nig með þremur mörkum gegn einu
og Leicester sigraði Derby með
þremur mörkum gegn tveimur.
Ósætti voru nokkuð áberandi um
helgina, fyrir utan Keane og Shear-
er lenti leikmönnum Chelsea og
Tottenham og Leicester og Derby
saman. ■
FÓRNARLAMBANNA MINNST
Fyrir alla knattspyrnuleiki á Stóra-Bretlandi um helgina minntust leikmenn og áhorfendur,
líkt og annars staðar, fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum sl. þriðjudag með
einnar mínútu þögn.
HAÍIDNIVIBHATOKAH
m FASTVEROINI
Vandaðri víbrun
Minni skil í steypu
wwwTheoJs
ÞJ
&CO
Ármúla 29 /108 Reykjavík
Símar: 553-8640 / 568-6100
Bréfasími: 588-8755
1. deild karla:
Þór og EiA
upp
knattspyrna Á laugardaginn fór
fram síðasta umferð í 1. deild karla
í knattspyrnu. KA tryggði sér sæti í
Símadeild karla að ári þegar liðið
gerði jafntefli við
Þrótt, 2-2. Leikur-
inn fór fram á Val-
bjarnarvelli og var
hreinn úrslitaleik-
ur um hvort liðið
kæmist upp um
deild. Það virtist
liggja í loftinu
hvort liðið átti að
fá sæti í Símadeild
þar sem Þróttarar
skoruðu öll mörk leiksins.
Á Akureyri fékk Þór, sem var
búið að tryggja sér sæti, Víkinga í
heimsókn. Heimamenn fóru létt
með leikinn, sigruðu með þremur
mörkum gegn engu, og var afhentur
1. deildarbikarinn eftir leikinn. ÍR
náði að bjarga sér frá falli niður í 2.
deild með því að sigra Leiftur með
þremur mörkum gegn einu. Tinda-
stóll þarf hinsvegar að fylgja ná-
grönnum sínum í KS niður eftir að
liðin gerðu jafntefli á Siglufirði. Þá
fékk Dalvík Stjörnuna í heimsókn
norðui’. Garðbæingarnir sigruðu
auðveldlega, með fjórum mörkum
gegn engu.
Orri Hjaltalín, leikmaður Þórs,
og Hreinn Hringsson, leikmaður
KA, urðu markahæstir í deildinni.
Þeir skoruðu báðir 16 mörk, Orri í
17 leikjum og Hreinn í 16. Garðar
Jóhannsson er þriðji markahæsti,
með 15 mörk og Jóhann Þórhalls-
son, leikmaður Þórs, fjórði með 13 ■
1- DEILD KARLA
Lið Leikir U ) T Mörk Stig
Þór Ak. 18 13 2 3 53:19 41
KA 18 11 4 3 43:21 37
Próttur 18 10 5 3 32:19 35
Stjarnan 18 9 5 4 41:23 32
Leiftur 18 7 2 9 27:30 23
Víkingur 18 6 4 8 32:31 22
Dalvík 18 7 1 10 30:42 22
ÍR 18 4 8 6 31:41 20
Tindastóli 18 4 4 10 25:44 16
KS 18 O 3 15 14:58 3
AÍH#*ÍH
Engifcrvörur
fra Eurovita
Mafeciii já
Staölaö engiferextrakt
engiferextrakt og
glukósamín súlfat
engiferextrakt og
omega-3 fitusýrur
græðandi og
mýkjandi krem
ZINAXIN
ZINGLUSIN
MARECGR
EXIMIN
Fótakrem frá
Eurovita
wvtíiv
HIRUDERM viö minniháttar mar-
blettum á fótum.
REVENA viö þreytu og pirringi í fótum.
Lyfja Lágmúla mán. 17/9 kl. 13-17
Lyfja Setbergi þri. 18/9 kl. 13-17
Lylja Smáratorgi mið. 19/9 kl. 13-17
LYFJA
fyrir heilsuna
Ráögjöf fyrir EIJROVITA
vörurnar veröa í:
ÞÍN VERSLUN
ÉT
Utsalan er hafin
ÞINN LEIKUR