Fréttablaðið - 17.09.2001, Qupperneq 16
í BÍÓ
ÞRÁINN BERTELSSON
kvikmyndagerðarmaður •
Bros lengi, lengi
„f minnsta salnum í Háskólabíói er
skemmtilegusta myndin í bænum, Sam-
an (Tillsammans) eftir Lukas „Fucking
Ámál" Moodysson, ungan leikstjóra
sem er að verða skærasta stjarna Norð-
urlanda á sviði kvikmyndagerðar. Þessi
mynd fylgir manni. Hlátur alla leið út úr
bióinu, bros lengi, lengi..." ■
HEAVIER THAN HEAVEN
Charles R. Cross vann bókina upp úr um
400 viðtölum við vini, vandamenn og
aðra, sem þekktu Kurt Cobain.
Ný bók um ævi Kurt
Cobains:
Gantaðist
um sjálfs-
morð í æsku
TÓNUST „Ég ætla að verða heims-
frægur tónlistarmaður, drepa
mig, og kveðja heiminn í dýrðar-
ljóma.“ Þessi orð á hinn 14 ára
gamli Kurt Cobain að hafa sagt
við vin sinn, samkvæmt bókinni
„Heavier than Heaven". Bókin er
skrifuð af Charles R. Cross og
fjallar um hina stuttu ævi söngv-
ara hljómsveitarinnar Nirvana,
sem framdi sjálfsmorð árið 1997,
þá 27 ára að aldri. Cross er 44 ára
gamall fyrirverandi tónlistar-
blaðamaður fyrir The Rocket
Music Magazine sem gefið er út í
Seattle, heimabæ Nirvana. Sú
mynd sem Cross dregur upp af
söngvaranum er fjarri því að
vera ein lofsdýrkun út í gegn,
heldur leggur hann sig fram við
að draga fram raunsæa og mann-
lega mynd af Cobain. Til þess
vann Cross bókina upp úr um 400
viðtölum við vini, vandamenn og
aðra sem áttu einhver samskipti
af söngvaran. En besta innsýn inn
í hugarheim söngvarans barst
honum svo frá Courtney Love,
eftirlifandi ekkju söngvarans og
barnsmóður, sem veitti honum að-
gang að áður óséðum dagbókum
söngvarans. ■
16
FRETTABLAÐIÐ
17. september 2001 MÁNUDAGUR
HASK0LABIÓ
HACATORCI, SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
£11.1 ”
Towkv.C
NIKY
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 ffÍLL SAMMANS kl. e|
Irugarts in paris M !the VIRGIN SUICIDE kl. 101
BIDGET JONES'S DIARY kl. 8 og ,o| JURASSIC PARKIII kl. 6 og 81
snjtöáiM i s»"dki 6.8og ,0
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT 251 jCATS & DOGS m/ ensku tali kL 8^151^1
PLANET ÖFTHE ÁPES kl. 5.40,8 og löiÖIPl jSHREK m/ íslensku tali ...
|THE EAST&THE FURIÖUS kL5J5,8 og löiölpíl ÍSHREK m/ ensku tali kLÍPSt
|CATS & DOGS m/ íslensku tali kl. 61|yií| IKISSOFTHEDRAGON KLÍoim
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hryöjuverkaárásin á Bandarík-
in virðist ætla hafa töluverð
áhrif á kvikmyndaheiminn. hlú
berast fregnir af
því að í kjölfar
þeirra hafi kvik-
myndaver Sony
ákveðið að breyta
endir á tveimur
stórmyndum sem
væntanlegar eru í
kvikmyndahús á
næsta ári. Þetta
eru myndirnar Men In Black 2 og
Spiderman en í þeim báðum voru
fyrirhugaðar senur sem tengdust
á einhvern hátt World Trade Cent-
er turnunum. Sýninshorn úr
Spiderman myndinni sem þegar
var byrjað að sýna í kvikmynda-
húsum hefur verið afturkallað,
þar sem senan frá turnunum var á
meðal þeirra atriða sem sýnt var
úr.
Tónlistarmenn hafa margir
hverjir verið aó tjá skoðanir
sínar á atburðum síðastliðinna
daga á heimasíð-
um sínum. Moby
var æfareiður og
sakaði FBI og CIA
fyrir að hafa
brugðist skatt-
borgurum með því
að stöðva ekki
árásina við fæð-
ingu. David Bowie
lét aðdáendur sína vita að hann
væri óhultur og sagði hræöilega
þögn og tilfinningardoða svífa
yfir borginni, en hann hefur búið í
borginni um árabil. Hann sagði
New York búa svipaða London
búa að því leiti að fólk hugsaði og
framkvæmdi hluti snöggt en ótt-
aðist að þögnin myndi á næstu
dögum breytast í gífurlega reiði.
Tjöldin risu aftur í leikhúsunum
á Broadway á fimmtudags-
kvöldið eftir að myrkraðir salirnir
höfðu staðið mannalausir í tvo
daga. Leikhúsin vottuðu fórnar-
lömbum árásanna virðingu sína
með misjöfnum hætti, en í mörg-
um þeirra var farið fram á einna
mínútu þögn áður en tjöldin risu.
Á sumum sýningum mættu fram-
leiðendur upp á svið áður en sýn-
ingarnar hófust og bentu á að í
leikhúsi væri sterkt afl sem teng-
di fólk saman, og að hlátur væri
sterkt sameiningarafl og stoð í
sorginni.
m
* V
! mjim
l^rir kaHár • Þrja
FENGU BÓLSTRAÐ UPPTÖKUVER
Eigandi innréttaða bílsins, sem er notaður sem upptökuver Spritz, er hæstánægður með þann heiður að lána bílinn fyrir sjónvarpið.
Hann keyrir í bæinn frá Hvalfjarðarströnd þegar Jón og Hemmi taka upp.
Partýþáttur á Popptíví
Jón Mýrdal og Hemmi feiti taka upp sjónvarpsþáttinn Spritz fyrir
Popptíví í Chevy ‘78. Þeir eru duglegir að sletta úr klaufunum og
reyna að fá áhorfendur með í spilið með því að halda partýleik.
sjónvarp Sjónvarpsþátturinn
Spritz hefur göngu sína á Popp-
tíví á miðvikudagskvöld. Um-
sjónarmenn þáttarins eru þeir
Jón Mýrdal og Hermann Fannar
Valgeirsson, Hemmi feiti, og von-
ast þeir til að halda þættinum út í
allan vetur. Hann er klukkutíma
langur og er þemað litríkt fólk og
partýhöld.
„Spritz gerist að miklu leyti
aftan í innréttuðum sendiferða-
bíl, Chevy ‘78,“ útskýrir Jón Mýr-
dal. „Hann átti fyrst að vera í
hjólhýsi en það var erfitt að finna
almennilegt hjólhýsi með
skömmum fyrirvara. Þá sást
sendiferðabíllinn góði á bensín-
stöð og við vorum látnir vita. Eig-
andi hans er strákur af Hval-
fjarðarströnd, sem er hæstá-
nægóur með þann heiður að lána
bílinn fyrir sjónvarpið. Hann
keyrir í bæinn í hvert skipti sem
við þurfum að nota hann.“
Aftan í bílnum eru gestir tekn-
ir tali. í fyrsta þættinum á mið-
vikudag eru gestirnir meðlimir
rappsveitanna Quarashi og
X Rottweilerhunda. „Við vilj-
um ekki fara hina hefðbundnu
leið með viðmælendur, taka bara
þá inn sem hafa eitthvað að aug-
lýsa. Þrír menn aðstoða okkur til
skiptis, Laddi, Nonni og Tobbi.
Þeir sitja og spjalla með okkur
eða bara þegja.“
í Spritz er í hverri viku valin
ein veisla, sem þeir Jón og
Hemmi fara í og taka upp.
„Partýieikur Spritz virkar þannig
að fólk skráir veisluna sína inn á
heimasíðu Sprite. Síðan mætum
við þangaó hlaðnir gjöfum til að
NABBI
ZrúXTiUtA
lífga upp á mannskapinn og
myndum.“
„Síðan má ekki gleyma Óvita-
leikhúsinu Skrímslareður," segir
Jón. Óvitaleikhúsið samanstend-
ur af nokkrum drengjum, sem
framkvæma alls kyns áhættuat-
riði í anda bandaríska sjónvarps-
þáttarins Jackass. „Þeir eiga það
til að vera mjög súrir, þeir gaur-
ar.“
„Síðan förum við líka á djam-
mið og finnum ljóskur til að koma
í þáttinn og mætast í Spurninga-
keppni ljóskunnar,“ segir Jón.
Það lítur því allt út fyrir það að
þáttastjórnendur séu undir áhrif-
um mest allan þáttinn. „Ekki
alltaf, kannski í partýunum. Við
erum ekki með þennan þátt ein-
ungis til þessa, bara smá.“
haildor@frettabIadid.is