Fréttablaðið - 17.09.2001, Side 22
hRAO’SOÐIÖ lT
ti . s : - > ■: \ ; >’ ■
rRETTABLAÐIÐ •
-•
■ i7.'sep,térobén2001 MÁNUÐACUR • I
LÁRA BJÖRNSDÓTTIR .
Félagsmálastjóri í Reykjavík
Biðlistar eftir
félagslegu hús-
næði aukast
HAFA biðlistar eftir félagslegu
næði aukist?
hús-
„Já, og komst biðlistinn í sögulegt
hámark í byrjun ágúst þegar fjöld-
inn var kominn upp í 601. Staðan
lagaðist síðan aftur í enda mánaðar-
ins þegar við fengum tuttugu íbúðir
til úthlutunar og var fjöldinn í lok
mánaðarins komin í 592. Þróunin
hefur verið sú að í árslok 1999 voru
337 á biðlista og í árslok 2000 var
fjöldinn kominn í 480.
HVER er ástæðan fyrir auknum fjöida
fólks á biðlistum?
„Aukningin er samverkandi. Fyrst
er um að ræða breyttar forsendur á
lánum til kaupa á íbúðum, aukin
þensla í þjóðfélaginu og gríðarlega
hátt verð á leigumarkaði. Þegar
svokölluðu 100% lánin féllu niður
svo og kaupleiguíbúðirnar fór sá
hópur fólks, sem annars hefði sótt í
þá leið, að sækja til okkar.“
HVAÐAlausnir eru fyrirsjáanlegar?
„Við hjá Félagsþjónustunni, erum
sjálf að ráða ráðum okkar þessa
dagana og erum að kortleggja
ástandið vandlega. Við vonumst eft-
ir því að geta lagt eitthvað til mál-
anna og þá við samstarfsaðila á
vegum ríkisins, verkalýðsfélag-
anna, vonandi lífeyrissjóðina og
hagsmunarsamtök."
HVERS vegna hafa úthlutunum
íbúða fækkað milli áranna 1999 og 2000
eins og kom fram í árlegri skýrslu Félags-
þjónustunnar?
„Það er tilviljunarkennt hvernig
ástandið á þeim málum væri háttað.
Ástandið lagaðist þegar keyptar
voru eitt hundrað íbúðir en þar fyr-
ir utan eru engar aðrar íbúðir til
ráðstöfunar. Þeir hópar sem hljóta
úthlutun eru oft í varanlegri stöðu
og geta fáir komið sér út úr þeim
aðstæðum. Þessi hópar, sem eru ör-
yrkjar, einstæðar mæður, ellilífeyr-
isþegar og einstæðingar, eru í
langvarandi leigu og íbúðir því ekki
að losna.“
Lára Björnsdóttir hefur gengt starfi félagsmála-
stjóra í Reykjavík síðan árið 1994.
Sérfræðingur FBI í hryðjuverkum lést í árásinni:
Sneri aftur til hjálpar
TURNINN HRYNUR
John O'Neill var þekktur fyrir harðfylgni sína f rannsóknum á hryðjuverkum.
árás Á AMERÍKU John O’Neill
barðist gegn hryðjuverkum í þrjá
áratugi. Hann var einn helsti sér-
fræðingur Bandaríkjanna á því
sviði, en nú er talið að hann hafi
látið lífið í árás hryðjuverka-
manna á Bandaríkin í síðustu viku.
O’Neill lét af störfum hjá banda-
ríski alríkislögreglunni, FBI, fyrir
tveimur vikum. Þar hafði hann
gegnt starfi yfirmanns þjóðarör-
yggisdeildar FBI í New York. Nýja
starfið hans var að vera yfirmaður
öryggismála í World Trade Center.
Vinir nans og fjölskylda telja að
hann hafi verið á 34. hæð í skrif-
stofu sinni í nyrðri turni World
Trade Center þegar flugvélin
flaug á hann. O’Neill var komin út
úr byggingunni skömmu síðar og
hringdi í fjölskyldu og vini. Hann
hringdi einnig í gömlu vinnufélaga
sína hjá FBI áður en hann hélt aft-
ur inn í byggingunni til að aðstoða
við rýmingu hennar.
Ekkert hefur spurst til hans síð-
an.
O’Neill var einn helsti sér-
fræðingur Bandaríkjanna í
hryðjuverkum. Hann stýrði með-
al annars rannsókn á sprengjutil-
ræðinu á USS Cole, bandaríska
tundurspillinn, og sprengjutil-
ræðum á sendiráð Bandaríkjanna
í Kenya og Tanzaníu. Höfuðóvin-
ur hans var Osama bin Laden,
sem er grunaður um að vera höf-
uðpaur rannsóknarinnar.
„Það er kaldhæðnislegt að
einn af okkur skyldi enda með að
vera drepinn af þessum náunga,"
sagði Robert Blitzer, fyrrum yfir-
maður hryðjuverka innanlands
hjá FBI. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ungir Sjálfstæðismenn þinguðu
um helgina. Á vefritinu Deigl-
unni var birt viðtal við Ingva
Hrafn Óskarsson
fyrir helgi, í tilefni
væntanlegrar
„rússneskrar
kosningar" Ingva í
embættið, eins og
greinarhöfundur
hefur eftir ónafn-
greindum Sjálf-
stæðismanni.
Greinarhöfundur er ritstjóri
Deiglunnar, Borgar Þór Einarsson.
Hann spyr Ingva hvort hann telji
að kjör hans verði sögulegt, í ljósi
þeirrar samstöðu sem ríki um
hann, enda sú ekki alltaf verið
raunin innan raða SUS. Ingvi þorir
nú ekki að fullyrða það í ljósi slæ-
legrar sögukunnáttu, (a.m.k. í sögu
SUS). Hann viti hins vegar að mik-
il samstaða hafi ríkt þegar núver-
andi varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins var kosinn í embætti for-
manns SUS árið 1981. Ingvi Hrafn
hefur kannski fengið þennan sögu-
mola frá Borgari því svo vill til að
Geir Haarde er stjúpfaðir Borg-
ars.
Keikó dúkkar öðru hvoru upp í
fréttum og umræðum. Ágúst
Flygering, einn penna á Frels-
isvefnum, skrifar í nýlegum pistli
grein um Keikó í tilefni þess að
brátt eru þrjú ár liðin síðan Keikó
var fluttur til Vestmannaeyja með
ærinni fyrirhöfn. Ágúst segir efa-
semdamenn um flutning Keikós
hingað til lands hafi haft rétt fyrir
sér. „Eftir allt fjáraustrið og fyrir-
höfnina við að koma hvalnum í ís-
lensk úthaf, mun hann enda ævina
í íslenskri vík með fríu fæði,“ seg-
ir Ágúst og bendir á að Keikó sé
hreint ekki ódýr í rekstri. „Vit-
firrtum Ameríkönum," sé hins
vegar velkomið að borga brúsann
og Húsvíkingum, sem sýnt hafa
hvalnum áhuga, sömuleiðis, segir
Ágúst sem segir það athugunar-
efni hvað verið sé að vandræðast
með Keikó á sama tíma og vís-
indarök styðji endurupptöku hval-
veiða.
Vestmannaeyingar saekja í sí-
auknum mæli í öldungadeild
Framhaldsskólans í Vestmannaeyj-
um. Haft er eftir Ólafi H. Sigur-
jónssyni skólastjóra á fréttavef
Frétta að mikil fjölgun sé fyrst og
fremst að þakka ákvörðun verka-
lýðsfélaganna „að taka þátt í
kostnaði fyrir sitt fólk og viku sí-
menntunar." Ólafur segir vanalega
hafi 25-30 manns skráð sig í Öld-
ungadeild en í ár búist hann við
helmingi fleiri. Vinsælustu áfang-
arnir eru að sögn Ólafs tölvuá-
fangar og spænskunám.
Strandamenn eru duglegir við
hátíðahöld um þessar mundir.
Skemmst er að minnast Strandahá-
tíðar sem haldin var í ágústbyrjun.
Nýverið var síðan haldin bænda-
hátíð í Sævangi í Kirkjubólshreppi
á Ströndum. Frá þessu greinir á
fréttavef Bæjarins besta. Þar seg-
ir og að slíkar skemmtanir hafi
verið árviss viðburður í sýslunni
þar til fyrir tæpum áratug, en þá
hafi þær lagst af. 150 Stranda-
menn mættu á hátíðina „og
Sorg og reiði mega ekki
bera skynsemi ofurliði
Árás hryðjuverkamanna á Bandaríkin í síðustu viku hlýtur að hafa
varanleg áhrif á okkur segir sendiherra Bandaríkjanna á Islandi.
Vikan reyndist starfsfólki sendiráðsins erfið.
ÁRÁS A amerÍku „Þetta hefur ver-
ið mjög erfið vika,“ segir Bar-
bara Griffiths, _ sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi. „Hún
hefur tekið á okkur hérna í
sendiráðinu eins og ég held á
fólk sem annt er um frelsi og
virðingu um heim allan. Ég held
að allir hefðu kosið að þessir at-
burðir hefðu ekki gerst.“
Barbara segir það hafa verið
erfitt að horfa á atburðina í
sjónvarpinu. „Við höfðum öll
áhyggjur af vinum og ættingum
og starfsfélögum í Pentagon,"
segir Barbara sem sjálf vann
einnig um tíma í World Trade
Center og þekkti fólk sem fórst
er turninn hrundi.
„Þetta var harmleikur sem á
eftir að hafa mikil áhrif á okkur
öll. Við höfum haft hugann hjá
fólki sem missti ástvini í
árásinni og þeim sem starfa við
björgunartilraunir," segir Bar-
bara sem er mjög þakklát þeim
fjölmörgu íslendingum sem
vottuðu Bandaríkjamönnum
samúð sína í sérstakri minn-
ingabók.
„Við bjuggumst ekki við
svona mörgum, sem var kanns-
ki rangt af okkur," segir Bar-
bara. „Islendingar eru yndisleg
þjóð sem deila mörgum sömu
gildum og Bandaríkjamenn."
Barbara segir árásina eiga
eftir að hafa varanleg áhrif á
Bandaríkjamenn. Mikilvægt sé
hins vegar að rannsaka vel hver
orsakaði harmleikinn. „Við
megum ekki láta sorg og reiði
bera skynsemi ofurliði. Við
megum ekki hefja aðgerðir
fyrr en staðreyndir liggja fyr-
ir,“ segir Barbara.
Spurð hvort að bandarískur
almenningur hljóti ekki að kalla
á hefnd segist ekki viss um að
hefnd sé rétta orðið.
„Eins og eftir harmleiki þá
blandast margar tilfinningar
hjá fólki, sorg og reiði. Leiðtog-
ar okkar verða hins vegar að
beita skynseminni. Þetta er
öðruvísi vandi en við höfum
þurft að kljást við hingað til og
við megum ekki bregðast við
með sama hætti og þeir sem
BARBARA GRIFFITHS
Svo margir íslendingar vottuðu Banda-
ríkjamönnum samúð sína sl. föstudag að
Wlinningarbók um þá sem létust í árás
hryðjuverkamanna mun einnig liggja
frammi í dag frá kl. 10-13.
báru ábyrgð á verkinu. Við vilj-
um ekki sýna mannslífum jafn
mikla lítilsvirðingu og þeir.“
sigridur@frettabladid.is
skemmtu sér vel við veislumat,
gamanmál og dans. Að sjálfsögðu
snæddu menn dilkakjöt í aðalrétt
en Leikfélag Hólmavíkur sá um
skemmtiatriði ásamt ræðumannin-
um Bjarna Guðmundssyni á
Hvanneyri sem fór á kostum.“
að var Félag áhugamanna um
Sauðfjársetur á Ströndum sem
stóð fyrir gleðinni. Forsvarsmenn
þess eru þeir Jón
Jónsson þjóðfræð-
ingur á Kirkjubóli,
Sverrir Guð-
brandsson frá
Bassastöðum og
Matthías Lýðsson
bóndi í Húsavík.
Þeir félagar ætla
einnig að setja upp
sýningu um sauðfjárrækt og hafa
falast eftir ljósmyndum tengdum
sauðfjárbúskap.
£{