Fréttablaðið - 16.10.2001, Page 8

Fréttablaðið - 16.10.2001, Page 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 16. október 2001 ÞRIOJUDAGUR |lögreglufréttir[ Kona hafði samband við lög- regluna í Reykjavík aðfara- nótt sunnudagsins og sagði farir sínar ekki sléttar þar sem hún var læst inni í veitingaskipinu Þór í Reykjavíkurhöfn ásamt fjórum öðrum konum. Reynt var að hafa samband við umráða- menn skipsins en gekk erfiðlega. Lögreglan fór því á staðinn og var lásasmiður með í ferð. Um svipað leyti náðist í umráðamann skipsins og leysti hann konurnar úr prísundinni. Lögreglan í Reykjavík stóð ölv- aðan ferðamann að því að kasta af sér vatni í blómabeð á Lækjartorgi. Honum var komið í gistingu þar sem hann mun vera þar til að hann heldur heim til sín. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogsbæjar: Tugmilljóna tekjuauki vegna Smáralindar SMÁRAUND „Tekjur okkar Smáralind eru nokkrir tugir milljóna og það eyk- ur tekjur bæjars tölu- vert,“ segir Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogsbæjar. „Stærsti hlutinn eru fasteigna- skattar, en það er eini skatturinn sem rennur til sveitarfélagsins, annað rennur til ríkisins." Að sögn Sigurðar er hluti Smáralindar í tekjuaukn- ingu sveitarfélagsins dá- SIGURÐUR GEIRDAL Óbein áhrif Smára- lindar skipta mestu máli, svo sem aukin velta fyrirtækjanna í kring og bætt þjón- usta við bæjarbúa. Við það megi bæta, að mik- ið sé um byggingafram- kvæmdir í Kópavogsbæ og það sé einnig tekju- aukning fyrir sveitarfé- lagið. „Áætlanir okkar gera ráð fyrir tekjum af Smáralind að fullu á næsta ári. Lítill hluti þeir- ra kemur, hinsvegar, inn á þessu ári, þar sem að hús- ið er fullklárað í lok árs- ins,“ segir Sigurður. Hann segir að óbein áhrif af verslunarmiðstöðinni skipti mestu máli. Gott sé að fá aukna og bætta þjónustu fyrir bæjarbúa. „Smáralind er segull sem að dregur fólk, í stórum hóp- um, í Kópavoginn,“ segir Sigurð- ur. „Það eykur einnig veltuna hjá fyrirtækjunum í kring.“ ■ | INNLENT Frystitogarinn Snorri Sturluson RE-219 fékk á sig brotsjó á Vestfjörðum í fyrrakvöld. Litlar skemmdir urðu á tækjum en sjór hafði komist inn um glugga á brú bakborðsmegin. Skipið hélt áfram veiðum um leið og veðri slotaði en það lá í vari í Isafjarð- ardjúpi. —♦— Maður fannst sofandi milli tveggja bifreiða á Njálsgötu. Við nánari eftirgrennslan lög- reglunnar í Reykjavík kom í ljós að maðurinn, sem reyndist franskur ferðamaður, var með kúlu á höfði. Hann var orðinn mjög kaldur og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Fyrirtæki í iðnaði: Ætla að fækka um 300 starfs- menn iðnaður Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins, segir verkefnastaða stærri fyrirtækja í iðnaði svipuð og í fyrra nema hjá fyrirtækjum sem eru í jarðvinnu. í nýlegri könnun, sem SI lét gera meðal tæplega 90 fyrirtækja á inn- lendum markaði, kemur fram að velta fyrirtækja hefur aukist um 10% á milli ára, sem er ekki mikið ef tekið er tillit til 8,5% verðbólgu. Sveinn segir aukningu í veltu fyrirtækja mesta hjá hugbúnaðar- og tölvufyrirtækjum. Þetta eigi við stór fyrirtæki en þau smærri finni fyrir greinilegum samdrætti þar sem þau þurfi að sækja tekjur sínar á hlutabréfamarkaðinn í formi áhættufjármagns. Sveinn segir að fyrirtækin ætli að fækka hjá sér starfsfólki um tæp 4%. Frá því í september í fyrra hafi fyrirtækin fækkað starfsfólki um 230 manns og sam- kvæmt könnuninni ætli þau að fækka um rúmlega 300 starfs- menn í viðbót. Það eru því veru- legar þrengingar hjá fyrirtækjum í iðnaði framundan. ■ |lögreglufréttir[ Leigubifreiðarstjóri kom á lög- reglustöðina við Hverfisgötu síðdegis á sunnudag með byssu sem hann hafði fundið í aftursæti bifreiðarinnar. Þetta reyndist vera startbyssa og er hún í vörslu lögreglunnar. Sprengjur misstu marks og hittu íbúðir Afdrifarík mistök í árásunum á Afganistan.Sprengja féll 1,6 kílómetra frá skotmarki og sprakk í íbúðahverfi. Bandaríkjamenn harma mann- fall meðal óbreyttra borgara. washington. ap Nákvæmnis- sprengjur og flugskeyti með flóknum miðunarbúnaði eru ná- kvæmlega jafn skeikul og menn- irnir sem búa þau til og forrita þau. Miðunarstýrð sprengja féll á Afganistan á laugardaginn var. —-4— Hún lenti um það bil 1,6 kílómetra frá því skotmarki, sem búið var að stilla hana á. Landvarnaráðu- neyti Bandaríkj- anna hefur viður- kennt að röng mið- unarhnit hafi ver- ið slegin inn í gervihnattarkerf- ið, sem stjórnaði „Við hörmum það Bandaríkja- menn viður- kenna að átta hafi látist, en talibanar segja að á þriðja hundrað óbreyttra borgara séu fallnir. —♦— sprengjunm. mannfall sem kann að hafa orðið meðal óbreyttra borgara," sagði í yfirlýsingu frá ráðuneytinu. Sprengjan átti að lenda á þyrlu á flugvellinum í Kabúl. Þess í stað lenti hún á íbúðarhverfi í Kabúl. Fréttir frá Afganistan hermdu að fjórir hafi látist og átta slasast. Bandarísk stjórnvöld sögðust ekki geta staðfest þær tölur. „Yfirleitt eru þessar sprengjur sem við notum mjög nákvæmar," sagði Donald H. Rumsfeld, land- varnaráðherra Bandaríkjanna. „Nákvæmnin er þó ekki hundrað prósent." Bandarísk stjórnvöld hafa lagt UNDIRBÚIN Bandarískir hermenn koma flugskeyti fyrir um borð 1 herskipinu USS Carl Vinson. mikla áherslu á að ekki verði ráð- ist á borgaraleg skotmörk, enda gera þeir sér grein fyrir að stuðn- ingur við árásirnar færi snar- minnkandi ef mikið mannfall verður meðal óbreyttra borgara. Bæði gætu íbúar í araba- og múslimaríkjum snúist gegn Bandaríkjunum, og svo gæti stuðningur almennings í Banda- ríkjunum við árásirnar minnkað snarlega ef myndir fara að berast af mannfalli óbreyttra borgara. Engu að síður berast æ fleiri fréttir af mannfalli meðal óbreyt- tra borgara í árásunum á Afganistan. Bandaríkjamenn við- urkenna að átta hafi látist, en tali- banar segja að á þriðja hundrað óbreyttra borgara séu fallnir. Þann áttunda október síðastlið- inn féll flugskeyti eða sprengja á byggingu í Kabúl og varð fjórum starfsmönnum Sameinuðu þjóð- anna að bana. Byggingin var ekki langt frá fjarskiptaturni talibana, og ekki er ólíklegt að hann hafi verið hið raunverulega skotmark. Þá segja talibanar að a.m.k. 200 manns hafi látist síðasta miðviku- dag þegar flugskeyti féllu á þorp- ið Karam. Hvorki Bandaríkja- menn né Bretar hafa staðfest þetta. HELSTU MISTÖK SÍÐASTA ÁRATUG 12. mars 2001______________ Sex létust og þrír slösuðust þegar bandarisk herþota fékk fyrirmæli um að varpa sprengju á Kúveit. 16. febrúar 2001 __ Bandarískar herþotur varpa sprengjum á skotmörk í nágrenni Bagdad. Um það bil helmingur sprengjanna missti marks. 13. maí 1999 __________ NATO viðurkennir árás á þorp í Kosovo, Korisa. Júgóslavar segja 87 manns hafa látist og meira en 100 slasast. 7. maf 1999 Bandarískar þotur gerðu árás á kín- verska sendiráðið í Belgrad. Þrír frétta- menn létust og 20 manns slösuðust. 7. maí 1999____________ Sprengja frá NATO missti marks í Júgóslavíu. Serbar segja a.m.k. 15 manns hafa látist á markaðstorgi og sjúkrahúslóð í Nis. ___________1. maí 1999 Flugskeyti frá NATO lenti á langferðabif- reið á brú fyrir norðan Pristina. 47 manns létust. 28. aprfl 1999 Flugskeyti frá NATO lenti á íbúðarhúsi í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu. Engin meiðsl urðu á fólki. 14. apríl 1999 NATO varpaði sprengjum á flóttamanna- lest nálægt Djakovica i Kosovo. 75 manns létust og á þriðja tug særðust. 12. april 1999 - NATO staðfestir að járnbrautarbrú hafi orðið fyrir árás og að lest hafi verið ná- lægt. Júgóslavar segja flugskeyti hafa lent á lestinni og orðið 17 manns að bana. Apríl 1994 Tvær barndarískar herþotur skjóta niður tvær bandariskar þyrlur yfir (rak. 26 létust. 13. febrúar 1991 Meira en 300 létust þegar árás var gerð á neyðarskýli í Bagdad í Persaflóastríð- inu. Janúar1991 Sjö bandarískir hermenn létust þegar bandarískt flugskeyti lenti á bandarískri herbifreið í Persaflóastríðinu. WASHINGTON. AP Nígeríumenn í haldi grunaðir um fjársvik: Búsettir hér á landi um all langt skeið fjársvik Nígeríumennirnir sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikilla fjársvika hafa verið búsettir hér á landi um all langt skeið að sögn Jóns H. Snorrasonar, saksóknara og yfir- manns efnhagsbrotadeildar Ríkis- lögreglustjórans, en eins og Fréttablaðið skýrði frá í gær hef- ur símafyrirtækinu Tali verið skylt samkvæmt úrskurði Hæsta- réttar að afhenda Ríkislögreglu- stjóra upplýsingar um farsíma- notkun eins aðilans sem tengist málinu en tveir eru í haldi grunað- ir um svikin. Jón sagði um skipulagða starf- semi að íæða og næði umfangs þess til nokkurra landa og marga koma að málinu. Sagði hann mál þetta dæmigert fjársvikamál sem þekkt væri víða um heim og herj- aði alls staðar. Rúmlega tvær vik- ur eru síðan málið komst upp og aðspurður um hvað hafi orðið til þess sagði Jón ýmsar ástæður lig- ,• .-n_29 GRUNAÐIR UM FJÁRSVIK Talið er að heildarumfang fjársvikanna skipti tugum milljóna en brotin hérlendis nái aðeins til hluta þeirrar upphæðar. gja þar að baki. Starfseminni hefði verið þannig háttað að mennirnir seldu verðlaus eða verðlitla pappíra til bankastofn- ana og einkaaðila og einnig hefðu verið um að ræða innistæðalausar ávísanir. Jón sagði mennina hafa komið ágóðanum úr landi í þeim tilgangi að hylja slóðina. Talið er að heildarumfang fjársvikanna skipti tugum milljóna en brotin hérlendis nái aðeins til hluta þeirrar upphæðar. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.