Fréttablaðið - 16.10.2001, Page 22

Fréttablaðið - 16.10.2001, Page 22
H RAÐSOÐIÐ ÞORVALDUR ÞORLÁKSSON markaðsstjóri Smáralindar Fólk skoðaði og verslaði HVERNIG hefur opnunarhátíðin gengið? Opnunarhátíðin hefur gengið al- mennt mjög vel. Það komu um 260 þúsund manns þessa fimm daga sem hátíðin stóð yfir. Við vorum með mjög öflugt lið í umferðargæslu og að leiðbeina viðskiptavinum inn á svæðið. Miðað við allan þennan fjöl- da þá gekk þetta tiltölulega vel og við erum mjög sáttir. Við vonum að viðskiptavinirnir séu sömu skoðunar og líkað það sem þeir sáu. HVAÐ dró að sér mestu athyglina? Fólk var mikið að koma til að skoða húsið og það sem það hefur upp á að bjóða og verslanir sem þarna eru. Við vorum með talsverða dagskrá, bæði hljómsveitir og skemmtikrafta, sem flæddu um húsið. HVAÐ máttí betur fara? Við erum að fara yfir þau mál. Það er í þessu eins og öllum stórum verkefnum að einhverjir hlutir koma upp. Þeir eru bara til að læra af og hvetja okkur til að gera betur. Við erum að fara yfir þá hluti og ábendingar sem við höfum fengið. VAR fólk að versla eða bara skoða? Það var talsvert mikil verslun í hús- inu og ég heyri á kaupmönnum að það hafi verið mikið verslað. Að sjálfsögðu var fólk bæði að koma til að skoða og einhverjir að versla. Sumir komu aftur og versluðu þá eftir að hafa komið og séð það úrval sem býðst í Smáralind. HVAÐ voru margir þegar mest var? Laugardagurinn var stærstur og rúmlega 60 þúsund manns sem komu yfir daginn. Við erum með fullkomið tölvukerfi sem reyndist vel og getum séð fjölda viðskipta- vina sem koma í húsið yfir daginn. Heildartala fólks þessa hátíðisdaga okkar var í kringum 256 þúsund. Það var tiltölulega gott flæði á fólki inn í húsið og nokkuð jafnt eftir dögum. Það voru 50 til 60 þúsund á hverjum degi. Við erum mjög sáttir og fjöldinn inn í húsið er meiri en við gerðum ráð fyrir. Engu að síður gengu hlutirnir vel og afkastageta bílastæðanna kom í ljós og er góð. Það skiptir miklu máli. Þorvaldur Þorláksson er markaðsstjóri Smáralindar og hefur unnið að þvf að kynna starfsemi verslunarmiðstöðvarinnar frá því hafist var handa við byggingu henna'r, .* • 22 FRETTABLAÐIÐ 16. október 2001 ÞRIÐJUDACUR Nóbelsverðlaunahafi í efnafræði: „Ég er alltaf að þefau san diego. ap „Efnafræði er svo tengd skynfærunum," segir Barry Sharpless, nýbakaður Nóbelsverð- launahafi í efnafræði. Hann hefur lengi verið með þefskynið á heilan- um og áhugi hans á efnafræði vaknaði beinlínis vegna áhugans á lykt. Hann segist fyrst og fremst vera að reyna að skilja hvernig sameindirnar í efnunum hafa áhrif á fólk. „Ég er eins konar blætisdýrk- andi á lykt. Ég er alltaf að þefa,“ segir Sharpless. „Ég bragða ennþá á mörgum efnanna sem ég bý til. Það er ekki eðlilegt. En ég þefa af næstum því öllu, jafnvel þótt það sé hættulegt." FRÉTTIR AF FÓLKI Árið 1980 gerði Sharpless upp- götvun, sem átti eftir að breyta lífi hans. Hann tók eftir því að flestar sameindir eru til í tveimur útgáf- um, sem eru spegilmyndir hvor annarrar, líkt og hægri og vinstri hönd á fólki. Áður en þessi uppgötvun var gerð höfðu vísindamenn búið til sameindir, sem notaðar voru til dæmis í lyf, en ekki gætt þess að einungis önnur spegilmyndin geg- ndi hlutverki sínu. Hin var oft á tíðum hættuleg, líkt og gerðist með lyfið thalídómíd, sem barns- hafandi konur tóku á sjöunda ára- tugnum til þess að draga úr ógleði. Önnur spegilmynd sameindarinn- ÁSTRÍÐUFULLUR EFNAFRÆÐINCUR Brian Sharpless segist vera eins konar blætisdýrkandi á lykt. ar gerði sitt gagn, en hin olli fæð- ingargöllum. Uppgötvun Sharpless varð til þess að vísindamenn gátu stjórnað því hvor spegilmynd sam- eindarinnar var framleidd. Sharpless og starfsfélagar hans áttuðu sig fljótlega á því hversu mikilvæg þessi uppgötvun var. Þeir sem til þekkja segja að lengi hafa legið í loftinu að hann fengi Nóbelsverðlaun fyrir, spurningin væri bara hvenær. ■ Það vakti athygli margra þegar Árni Johnsen mætti á landsfund Sjálfstæðisflokks hversu fáir gáfu sig á tal við hann og hversu vina- fár hann virtist. Einn þeirra sem sá þingmanninn fyrrverandi ganga í salinn hafði orð á að nú væri Snorrabúð stekkur, en sú var tíðin að um Árna flykktist fólk. Nú er ekki annað sjá en hann gangi vinafár. Stjórnarandstæðingur sem Fréttablaðið hitti á götu sagði að ljóst sé að Davíð Odds- son hafi með orðum sínum á landsfundi Sjálf- stæðisflokks skerpt línurnar í stjórnmálum og umræðan verði ekki söm eftir. Hann sagði að andstæðingar Sjálfstæðisflokks verði að safna liði og berjast á svipuðum nót- um og Davíð virðist reiðubúinn að gera. Bók Pálma Jónassonar, um ís- lenska milljarðamæringa, var í fréttum í síðustu viku. Þar voru feðgarnir Björgólfur og Björgólfur sagðir ríkastir allra. Pálmi taldi upp eignir þeirra til að sýna fram á hversu ríkir þeir feðgar eru. Eitt þeirra fyrirtækja sem Björgólfur eldri á nokkurn hlut í er Nýja Bókafélagið. Það er ekki stórt fyrirtæki en var talið með í veldistalningu feð- ganna. Það sem er sérstakt er að bókaforlagið hans Björgólfs er að gefa út bók um sama efni og bók Pálma. Það er úttekt á ríkustu íslendingunum. Það er Sigurður Már Jónsson, blaða- maður á Viðskiptablaðinu, sem skrifar bókina fyri1' Nýja Bóka- félagið. Það verður gaman að sjá hvort ríkidæmi feðganna telst svipað að stærð í þeirra bók og bók Pálma. Innan knattspyrnuhreyfing- arinnar er mikil óánægja með flotthátt forystumanna Knatt- spyrnusambandsins. Margir munu argir sökum þess hvernig farið er með peninga hreyfing- arinnar. Ekki nóg með að farið sé með fjölda fólks til að horfa á leiki í útlönd- um, heldur þykir mönnum hitt verra að óhóf Eggerts Magnús- sonar og félaga virðist nokkuð. Þeir sem standa j í að reka knattspyrnudeildir í sjálfboðavinnu og sumir ganga • svo langt að taka á sig persónu- j legar ábyrgðir svo starfið gangi | Ætlar ekki að leggja árar í bát Markús Möller sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum á landsfundinum um helgina. Hann segist þó hvergi nærri vera hættur í pólitík og er ákveðinn í að láta til sín taka í næstu kosningum til Alþingis, spurningin er bara á hvaða vettvangi. STJórnmál „Ég var ekki að ganga úr Sjálfstæðisflokki Jóns Þor- lákssonar, Ólafs Thors, Bjarna Benediktssonar eða Geirs Hall- grímssonar en ég er steinhættur í Sjálfstæðisflokki Davíðs Odds- sonar,“ segir + Markús Möller „Ég sagði mig hagfræðingur í úr vist hjá Seðlabankanum Davíð Odds- sem sagði sig úr syni vegna Sjálfstæðis- þess að ég flokknum á ætla að slást landsfundi hans áfram en ekki um helgina. vegna þess að Markús segir ég sé að legg- ekki úr vegi að jaáraríbát." rifja upp mark- + miðin sem Sjálf- stæðismenn settu sér í öndverðu en í stofnyf- irlýsingu flokksins segir að markmið hans sé: „Að vinna að því og undirbúa það að ísland taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina jafn- skjótt og 25 ára samningstímabil sambandslaganna er á enda,“ og: „Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbóta- stefnu á grundvelli einstaklings- frelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir aug- um.“ „Þetta er enn mín stefnuskrá," segir Markús en hans skoðun er sú að á landsfundinum hafi for- maðurinn fengið ótvírætt umboð til að fylgja fram stefnu sem byggð sé á þröngsýni og sérhags- munum og gangi þvert gegn at- vinnufrelsi og hagsmunum al- Á SIC SJÁLFUR Markús Möller endaði úrsagnarræðu sína á að þakka fyrir samveruna og lýsa því yfir að nú ætti hann sig sjálfur. mennings í landinu. „Ég sagði mig úr vist hjá Dav- íð Oddssyni vegna þess að ég ætla að slást áfram en ekki vegna þess að ég sé að leggja árar í bát,“ segir Markús en að svo stöddu hefur hann ekki hugmynd um á hvaða vettvapgi hann muni láta til sín taka. ,,Ég er algerlega tvær persónur. Ég er friðsöm skrif- stofublók og svo er ég svona „háadrenalíngæi11 sem fer í ham og verður voðalega reiður," segir Markús Möller sem ætlar að verða sýnilegur í komandi kosn- ingabaráttu til Alþingis. „Ég ætla fram drengilega og stóryrðalaust en ég ætla að taka upp í mig um málefni og min málefni verða að vinna í innanlandsmálum að víð- sýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum og ekki að ná gæðum landsins til afnota fyrir landsmenn eina, heldur fyr- ir landsmenn alla.“ steinunn@frettabladid.is þykir helst til langt gengið þeg- ar háum fjárhæðum er sólundað í flotthátt í erlendum borgum. Meira um KSÍ. Rök forystu- manna sambandsins um að verið sé að gera gott fyrir hel- stu stuðningsfyrirtækin hafa orðið til að herða enn á gagn- rýninni. En þannig er að fót- boltafélögunum þykir ekki gott að KSÍ hafi gert samning við öll stærstu fyrirtæki landsins í nafni fótboltans. Þar með var skrúfað fyrir möguleika félag- anna til að sækja á sömu mið. Nú er svo komið að KSÍ vill byggja glæsihús fyrir umfram peninga á meðan félögin sem mynda sambandið berjast harðri baráttu til að halda starfi sínu gangandi.vFullyrt að mikið fjör verði á næsta þingi KSÍ vegna fjármála og sérstaklega meðferð peninga.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.