Fréttablaðið - 29.10.2001, Blaðsíða 6
6
29. október til 4. nóvember 2001
Heimilgsblaðið
Eldum góðan mat
°g leggjum fínt á borð
Jóhann Sófusson sjóntækjafræð-
ingur og kona hans Valgerður
Jakobsdóttir búa í rúmgóðri íbúð
við Eiðistorg á Seltjarnarnesi.
íbúðina keyptu þau fyrir tæpum
tiu árum eftir að hafa búið tæp
tuttugu ár í Mosfellsbæ. „Við vor-
um orðin þreytt á að búa svo
fjarri vinnustað auk þess sem við
vorum ein eftir í húsinu. Þegar við
fluttum í Mosfelssbæinn fyrir
þrjátíu árum var ekki vandamál
að komast þangað. Það breyttist
þegar tók að líða á níunda áratug-
inn, einkum með tilkomu byggðar
á Kjalarnesi og í Grafarvogi auk
þess sem mjög hafði fjölgað í
bænum. En við kunnum ákaflega
vel við okkur í Mosfellsbæ og þar
var gott að ala upp börn,“ segir
Valgerður.
Þau hjón hófu búskap 1964 en
þá flutti Valgerður í íbúð Jóhanns
við Garðastrætið í Reykjavík.
Fljótlega varð piparsveinaíbúð
Jóhanns of lítil fyrir þau og uppúr
1970 létu þau byggja fyrir sig hús-
ið í Mosfellsbænum.
„Ég var heimavinnandi með
þrjár telpur í tæp tuttugu ár og
kunni því vel,“ segir Valgerður og
bætir við að hún hafi lagt mikla
áherslu á að hafa reglu á öllum
hlutum. „Ég vann á daginn og kom
síðan heim í kvöldmatinn og kunni
ekki síður vel við að hafa konuna
heima,“ bætir Jóhann við og bros-
ir.
Valgerður segir að þegar hún
hafi verið með stelpurnar litlar
heima hafi hún dundað sér við að
baka og sauma á meðan þær voru
í skólanum. „Stundum bakaði ég
vöfflur eða pönnukökur fyrir þær
og hafði þær rauðar og grænar
JÓHANN LÆTUR FARA VEL UM SIC.
Hann kunni vel við að hafa konuna heima.
w
White-Westinghouse
-amerísk gæða heiinilistæki-
RAFVÖRUR
ÁRMÚLA5
SÍMI 568 6411
rafvorurtg) rafvorur.is
„Það fellur ekki eitt
laugardagskvöld úr ef
við á annað borð
erum á landinu.“
HJÓNIN HEIMA Á EIÐISTORGI.
Ég var lengi heimavinnandi og kunni því
vel. Þá dundaði ég við að baka og sauma
á meðan stelpurnar voru í skólanum. Mér
rann til rifja að vita af börnunum i næstu
húsum sem voru ein heima allan daginn."
Nú eru þau hjónin saman heima og segj-
ast alltaf hafa nóg fyrir stafni."
með matarlit. Það var afar vin-
sælt og ég fann oft til með börn-
um nágrannanna sem enga áttu
mömmuna heimavið. Þau voru
ekki ófá börnin sem sátu við eld-
húsborðið hjá mér í þá tíð,“ segir
Valgerður og Jóhann bætir við að
það hafi lítið breyst því þau sæki í
Valgerði, börnin á Eiðistorginu,
og komi oft til að fá plástur ef þau
meiði sig. „Hún laðar að sér bæði
stóra og smáa,“ segir hann og að-
dáun hans á frúnni leynir sér ekki.
Þau segja heimilislífið hafa
verið ósköp venjulegt. Þau lögðu
alltaf áherslu á að borða saman og
Valgerður segist ekki minnast
þess að máltíð hafi fallið úr í þeir-
ra búskapartíð. „Valgerður eldar
heitan mat á hverju kvöldi og við
setjumst alltaf til borðs og gefum
okkur góðan tíma. Á laugardags-
kvöldum þá legg ég á fínt á borð
og kveiki á kertum. Ilún eldar góð-
an mat og við förum í betri fötin,"
segir Jóhann og Valgerður bætir
við að Jóhann blandi þeim í drykk
fyrir matinn. „Við sitjum síðan
lengi og drekkum rauðvín í róleg-
heitum, spjöllum saman og höfum
það notalegt. Þennan sið höldum
við fast í og reynum jafnan að
koma því þannig fyrir að vera ekki
upptekin þessi kvöld. Við förum
frekar út önnur kvöld vikunnar."
Þau eru sammála um að skemmti-
legt sé að halda í svona hefðir, þær
skapi ákveðna festu.
Jóhann er mörgum kunnur því
í áratugi rak hann gleraugna-
verslun við Kirkjutorg en síðari
árin sérhæfði hann sig í að selja
augnlinsur. Valgerður starfaði
með honum eftir að dæturnar
uxu úr grasi en þau lokuðu
verslun sinni fyrir rúmum
tveimur árum og eru nú sest í
helgan stein. „Mér hefur ekki
leiðst svo mikið sem einn dag
og við höfum nóg að gera. Ég
vakna eldsnemma og bíð eftir
blöðunum. Við gefum okkur
góðan tíma í lesturinn og áður
en maður veit af er komið há-
degi,“ segir Jóhann og Val-
gerður bætir við að þau skrep-
pi oft í heimsóknir og í bæinn á
daginn. „Við lesum líka talsvert
og horfum á sjónvarp en aldrei
fyrr en á kvöldin.“
Heimili þeirra er vel búið hús-
gögnum og það sem vekur athygli
er mikið safn listaverka sem njóta
sín vel í rúmgóðri stofunni. „Við
höfum bæði haft ánægju af mynd-
list og þaö hefur bætst í safnið í
gegnum tíðina," segja þau. Fallegt
útsýni er yfir sjóinn til norðurs og
Jóhann segist hafa gaman af að
fylgjast með skipaferðum í höfn.
„Heimilið hefur verið okkur
báðum afar mikilvægt. Það er
ekki síður Jóhann en ég sem hefur
haft áhrif á útlit þess. Hann er
ELDHÚSIÐ.
Valgerður við eldhúsborðið á Eiðistorginu.
Þessa skemmtilegu mynd fyrir ofan eld-
húsborðið keypti hún í Brasílíu. Jóhann
spurði hvort ég ætlaði virkilega að dröslast
með hana heim í rammanum og það
sagðist ég sannarlega gera með ánægju
og hér er hún.
mikill smekkmaður og talsvert
nýtískulegur í sér. Ég er hins veg-
ar meira fyrir smáhluti og nota-
legheit ef svo má að orði komast.
Við höfum lagt aðaláherslu á að
okkur liði vel heima og við finnum
það vel eftir ferðalög hve dásam-
legt er að vera komin heim aftur,"
segir Valgerður. ■
VALGERÐUR LEGGUR Á BORÐ.
„Það þýðir ekkert að bjóða okkur út á
laugardagskvöldum því við getum ekki
hugsað okkur að missa af þessari vikulegu
upplyftingu. Við skiptum um föt, fáum
okkur drykk fyrir matinn og sitjum lengi
yfir borðum. Þessi siður myndar ákveðna
festu í heimilislífinu og skapar öryggi."