Fréttablaðið - 29.10.2001, Blaðsíða 9
29. október tii 4. nóvember 2001
9
Heimilisblaðið
Kakan hennar Pavlovu
Anna Pavlova fæddist í Rúss-
landi 1881. Hún var átta ára göm-
ul þegar hún fór fyrst með móðir
sinni á balletsýningu og heillaðist
gjörsamlega. Eftir sýninguna var
hún ákveðin að dansinum ætlaði
hún að helga líf sitt. Hún kom
fyrst fram sem sólódansari
skömmu eftir aldamót og 1907
dansaði hún í fyrsta sinn utan
Rússlands. Hvar sem hún kom
fram heillaði hún áhorfendur og
sagt var að list hennar næði langt
umfram dansinn sjálfan svo vel
túlkaði hún hlutverk sín.
Anna Pavlova lést í Haag í
Hollandi árið 1930. Hún var þar
Kakan á sér sögu
sem kennd er við
Onnu Pavlova.
stödd í jólafríi og skammt frá
heimili hennar varð lestarslys.
Anna gekk út í nóttina, aðeins
klædd þunnum silkináttfötum
innan undir kápu. Daginn eftir
fékk hún svæsna lungnabólgu.
Rétt áður en hún lést bað hún um
að búningur hennar sem hún
hafði dansað svaninn í yrði
færður til hennar. Aðeins dauð-
inn gat aðskilið hana frá dansin-
um.
Uppskriftin af Pavlova kök-
unni sem hér fer á eftir á sér
skemmtilega sögu. Anna Pavlova
mun hafa komið til Ástarlíu til að
dansa og meðal þess sem boðið
var uppá í veislu eftir dansinn var
þessi kaka. En sagan segir að mar-
ensin hafi fallið og og menn fórn-
að höndum. Einhverjum datt það
ráð í hug til að bjarga málum að
fylla hana að ofan með miklu af
suðrænum ávöxtum svo ekki sæ-
ist hve djúp hún var í miðjunni.
Hún þótti afbrgaðs góð og síðan
ber hún nafn Önnu Pavlova. ■
11/4 bolli sykur
3 tsk. kartöflumjöl
3-4 eggjahvítur
1/2 tsk. vanilludropar
3 msk. kalt vatn
1 /4 tsk. cream of tartar
1 msk edik
smá salt.
Hitið ofn í 150°. Leggið bökun-
arpappír á bökunarplötu. Þeytið
eggjahvítur þangað til þær
verða stífar. Bætið vatninu í og
þeytið aftur. Bætið smám sam-
an sykri í, og þeytið vel eftir
hvern skammt. Bætið í ediki,
kartöflumjöli, vaniiiudropum,
salti og cream of tartar. Þeytið í
5 mínútur með rafmagnsþeyt-
ara og formið síðan á bökun-
arplötuna. Bakið í 1 klst. - og
ekki opna ofninn. Kælið í lokuð
um ofninum. Takið kökuna af
bökunarpappírnum, þekið með
þeyttum rjóma og ávöxtum, t.d.
bláberjum, jarðaberjum, kiwi
o.þ.h.
■ l'll íl IC tfícil I
við skápinn góða sem hann
fékk að gjöf ungur maður.
Nú geymir hann helsta
stáss fjöskyldunnar
■■■KralföÉ
dó árið 1926. Það væri gaman að
fá sérfræðing til að segja manni
eitthvað um stílinn og aldurinn.“
Júlíus segist hafa frætt börn sín
um uppruna skápsins og að hann
vilji gjarnan að þau haldi honum
í búi sínu þegar fram líði stundir
og vonandi finnist þeim jafn
mikið til um sögu hans og sér. ■
MYNDARAMMAR
Fjölskyldan samankomin.
Rammar frá
Egilsstöðum
Húsmóðirin í þessari fjölskyldu
rakst á þessa litlu sætu ramma í
verslun á Egilsstöðum fyrir mörg-
um árum. Hver þeirra er ekki hær-
rri en nokkrir cm á hæð og þeir
kostuðu ekki mikið.Hún keypti einn
af hverri tegund og þegar heim
kom stakk hún myndum af þeim
öllum í rammana. Sjá má hve langt
er síðan hún keypti þá að á fremstu
myndinni er ungur piltur sem nú er
orðin fjögurra barna faðir og
minnst tuttugu árum eldri. ■
Vetrai
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Komdu og gerðu frábær kaup!
Heildarlausnir fyrir eldhúsið
Verð miðast við staðgreiðslu