Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 6
6
FRETTABLAÐIÐ
31. október 2001 MIÐVIKUDAGllR
SPURNING DAGSINS
Ertu vinur bílsins?
Já, ég er með bílnum. Þó að hann mengi
svolítið finnst mér hann nauðsynlegur.
Indriði Thoroddsen nemi
Nes-listinn:
Prófkjörslisti
að fæðast
framboðsmál Gert er ráð fyrir að
það skýrist n.k. fimmtudag hverj-
ir gefa kost á sér í prófkjöri Nes -
listans sem ætlunin er að halda 17.
nóvember n.k. Upphaflega var
stefnt að því að prófkjörlistinn
yrði tilbúinn í sl. viku en því var
svo frestað um viku að sögn Þor-
valdar Árnasonar formanns Bæj-
armálafélags Seltjarnarness.
Hann segir að engin sérstök
ástæða hefði verið fyrir þessari
frestun og neitar því að það hafi
verið vegna erfiðleika við að fá
fólk til gefa kost á sér. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins munu
þau Sunneva Hafsteinsdóttir bæj-
arfulltrúi og Guðrún Brynleifs-
dóttir lögfræðingur berjast um
efsta sætið í prófkjörinu. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Tveir menn voru handteknir í
fyrrinótt grunaðir um innbrot
í söluturn við Háaleitisbraut.
Komst upp um mennina þegar
lögreglan stöðvaði bifreið þeirra
um fjögurleytið eða fimmtán
mínútum eftir að innbrotið var
framið. Þar fannst mikið magn af
sælgæti sem að öllum líkindum
tilheyrir söluturninum. Einnig
kom í ljós að bifreiðin reyndist
stolin.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði
um helgina bifreið á Suður-
landsvegi vegna gruns um að þar
leyndust fíkniefni. Fjórir karl-
menn og tveggja ára gamalt barn
voru í bifreiðinni. Kókaín fannst
á einum farþeganna og leifar af
kanabisefni. Við yfirheyrslu bar
maðurinn við að hann ætti sjálfur
fíkniefnin og hinir ættu enga
hlutdeild í málinu. Mennirnir
voru allir yfirheyrði og sleppt að
því loknu. Um var að ræða sam-
starfsverkefni lögreglumanna
sem starfa að fíkniefnamálum
hjá lögreglunni í Kópavogi og
Selfossi.
'Hækkuð afnotagjöld með samdrætti:
Helmingsmunur
á RÚ V og Stöð 2
fjölmidlar Nái sparnaðartillögur
útvarpsstjóra fram að ganga
stefnir í að helmingsmunur verði
á verði hverrar útsendingarstund-
ar Sjónvarpsins og Stöðvar 2.
Samkvæmt lauslegri könnun
Fréttablaðsins sendir Sjónvarpið
út u.þ.b. 250 stundir af dagskrá á
mánuði en þær eru um 550 hjá
samkeppnisaðilanum, Stöð 2. Nái
tillögur útvarpsstjóra fram að
ganga fækkar dagskrárstundum
Sjónvarpsins í 140 á mánuði.B
VERÐ Á HVERRRI ÚTSENDINGA-
STUND SJÓNVARPSSTÖDVANNA
9 kr. I 16 kr. 9 8 kr.
i klst. K á klst. 1 á klst.
RÚV RÚV m/v Stöð 2 Skjár 1
tillögur
útv.stjóra
Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels:
Vill hersveitir frá Gaza
jerúsalem.ap Shimon Peres, utan-
ríkisráðherra ísraels, er að undir-
búa áætlun sem m.a. kveður á um
að hersveitir landsins verði tekn-
ar burt frá öllu Gaza-svæðinu og
að hernámi þar ljúki, að því er
kom fram í ísraelska dagblaðinu
Maariv í gær. Ariel Sharon, for-
sætisráðherra ísraels, hefur áður
lýst sig mótfallinn slíkum hug-
myndum. Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, óskaði í gær eft-
ir því við Sharon að þeir hef ji aft-
ur friðarviðræður. „Reynum að
bjarga friðarferlinu með engum
skilmálum, engum hei’naðarleg-
um þrýstingi,“ sagði Arafat, sem
staddur var í opinberri heimsókn í
Róm á ítalíu. ■
925 LÍKKISTUR
ísraelsmaður, með ísraelska fánann bund-
inn um höfuðið, gengur á milli 925 líkkista
sem komið hefur vetið upp af ísraelskri
friðarhreyfingu á Rabin torginu í Tel Aviv.
Hvítu líkkisturnar merkja þá (sraelsmenn,
og svörtu kisturnar þá Palestínumenn, sem
látist hafa frá því átök brutust út að nýju
fyrir botni IVIiðjarðarhafs fyrir 13 mánuðum
síðan. Á mánudag voru 6 ár liðin frá því
ísraelskir öfgamenn myrtu Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra ísraels.
Aðstaða í bænum og hluta
starfsfólks ekið á Skagann
Landmælingar Islands eru með aðstöðu í bænum þrátt fyrir að aðalstöðvar þess séu á Akranesi.
Hluti starfsfólks enn keyrður á milli en nokkrir yfirmenn fengu bíl á vegum stofnunarinnar við
flutninginn. Flutningarnir hafa orðið til að styrkja stofnunina segir forstjórinn.
5TJÓRN5ÝSLA Landmælingar ís-
lands eru með skrifstofuaðstöðu í
Reykjavík eftir að stofnunin
flutti á Akranes í byrjun árs
1999. Á skrifstofunni er aðstaða
fyrir LÍSA-samtökin, sem eru
samtök um landupplýsingar, auk
þess sem skrifstofan er í ein-
hvei’jum mæli notuð fyrir starf-
semi Landmælinga.
„Við erum með smá aðstöðu í
Síðumúlanum þar sem við getum
farið inn með fundi og komist í
síma, fax og tölvu þegar við erum
í bænum“, segir Magnús Guð-
mundsson, forstjóri Landmæl-
inga íslands. „Við nýtum þá að-
stöðu líka fyrir samtök notenda
landfræðilegra upplýsinga á ís-
landi sem nefnast LISA og reyn-
um að nýta þá aðstöðu sem allra
best.“ Magnús segir að aðstaðan í
Reykjavík sé annars ekki mikið
notuð en að gott sé að hafa hana
þegar á þurfi að halda. „Ég held
að það sé nauðsynlegt að eiga ein-
hvers staðar innskot, hvernig
sem það er gert, þegar menn eru
þó þetta langt í burtu. Það er mis-
jafnt hvernig menn hafa gert
þetta en fleiri hafa komið sér upp
aðstöðu í bænum. Sjálfsagt eru
sumir með innskot hjá öðrum
stofnunum. Ég tel að það hafi
reynst okkur mjög vel að hafa
þessa aðstöðu þegar eitthvað hef-
ur komið upp á.“
Magnús segir reynsluna af
flutningunum upp á Akranes
vei'a góða þrátt fyrir að nokkur
styr hafi risið um þá þegar flutn-
ingur stofnunarinnar var ákveð-
inn. „Flutningurinn hefur orðið
AÐSTAÐA í SlÐUMÚLANUIVI
í Síðumúlanum hafa Landmælingar aðstöðu fyrir LÍSA-samtökin og innskot fyrir starfsmenn stofnunarinnar á ferð í bænum.
til að styrkja stofnunina frekar
en hitt. Það hefur gengið vel að
ráða starfsmenn i stað þeirra
sem hættu og starfsemi stofnun-
innar gengið vel frá því við flutt-
um.“
Um það bil þriðjungur 35
starfsmanna Landmælinga býr á
höfuðborgarsvæðinu og ferðast
daglega á milli í rútu á vegum
stofnunarinnar. Að auki var
gei'ður samningur við nokkra yf-
irmenn stofnunarinnar í tengsl-
um við flutninginn upp á Akra-
nes þess efnis að þeir fengju bíl
til afnota á vegum stofnunarinn-
ar.
binni@frettabladid.is
George Bush:
Þakkar vinar-
hug Islendinga
samstaða í bréfi sínu til Ólafs
Ragnars Gi'ímssonar, foi'seta ís-
lands, þakkar George Bush,
Bandaríkjaforseti,
samúðarkveðjur
íslendinga vegna
hryðjuverkaára-
sanna þann 11.
september sl.
Hann þakkar Ólafi
Ragnari einnig
persónulega fyrir
auðsýnda samúð.
„Hið sameigin-
lega gildismat
þjóða okkar og
staöfesta eru
ómissandi í bar-
áttu okkar gegn
um allan heim.
GEORGE Bl
Hefur sent for-
seta (slands
þakkarbréf vegna
auðsýndrar
samúðar í kjölfar
hryðjuverka-
árásanna 11.
september sl.
hryðjuverkum
Baráttan kann að taka langan tíma
en samstaða yðar og stuðningur
er okkur mikill styrkur.“ ■
Afkoma Islandsbanka:
Hagnaðurinn
nokkru minni
uppgjÖr „Við töldum ekki ástæðu
til þess að gefa út afkomaviðvör-
un vegna lækkaðrar
áætlunar um hagnað á ái'-
inu,“ segir Valur Valsson,
bankastjóri íslands-
banka, en hagnaður bank-
ans á þriðja ársfjórðungi
var 430 milljónir króna
og 2.100 milljónir fyrstu
níu mánuði ársins. Sam-
eiginlegur rekstur ís-
landsbanka og Fjárfest-
ingabanka atvinnulífsins
hófst ekki fyrr en um
mitt árið 2000 og því hef-
ur samanburður við fyi’ra
ár takmarkað gildi.
í hálfsársuppgjöri bankans ýar
áfram gert ráð fyrir 3.500 mjllj-
VALUR VALSSON
Arðsemi eigin fjár (s-
landsbanka var 23,6%.
Hagnaður nokkuð
undir væntingum.
óna hagnaði fyrir árið í heild, en
nú hefur sú tala verið færð niður
um hálfan milljarð
vegna breyttra forsenda
í millitíðinni. Meðal ann-
ars hefur þróun útlána
staðnað, tap orðið á
hlutabréfaeign og vægi
afskriftarreiknings auk-
ist. „Við erum aðeins að
benda á að síðustu þrjá
mánuði var afkoman ívið
lakari heldur á fyrstu
tveimur ársfjórðungun-
um. Miðað við að ekki
verði umtalsverðar
breytingar á rekstrar-
umhverfi teljum við
skynsamlegt að lækka spána um
afkomu ái’sins í heild." ■ >
Afkoma Skeljúngs:
Minna ekið eftir
hryðjuverkin
uppgjör „Það hefur verið mjög
merkjanlega minni sala á bíla-
eldsneyti frá hryðju-
verkunum í september.
Á þessu er ekki önnur
skynsamleg skýring en
að fólk hafi í auknum
mæli haldið sig heima
fyrir,“ segir Kristinn
Björnsson, forstjóri
Skeljungs. Jafnframt
hefur sala á flugvéla-
bensíni dregist veru-
lega saman. Hann seg-
ir að áhrifa vegna
þessa gæti ekki
miklu leyti í níu mán-
aða uppgjöri félagsins
KRISTINN BJÖRNSSON
að Sala á bensíni, bæði fyrir flug-
vélar og bíla, hefur dregist
saman eftir hryðjuverkin.
en verði að líkindum stærri þáttur
í næsta uppgjöri.
Skeljungur hagnaðist um 402
milljónir króna á fyrstu níu mán-
uðum ársins og er
það mikill viðsnún-
ingur frá 40 milljóna
tapi á fyrstu sex
mánuðunum. Krist-
inn segir að tapið á
fyrri hluta ársins
hafi að mestu verið
gengistap dótturfé-
laga, rekstur móður-
félagsins hafi verið
með stöðugra móti.
Einnig færir félagið
til tekna 117 milljóna
lækkaða tekjuskatts-
skuldbindingu í sam-
ræmi við skattbreytingar stjórn-
valdá. ■