Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍf-ÍS Fyrstur með fréttirnar JfítcMcwb í Aáde^cTuc Kr. 1090 Grensásvegur10 Sími 553 88 33 lizza HÚSIÐ COMPAOL Ný lína Compaq Evo AcoTæknival Þráins Bertelssonar 36 hektarar af tyggjóklessum Lengi vel höfðu íslendingar það fyrir satt að þrennt væri óteljandi hér á landi: Eyjarnar á Breiðafirði, hólarnir í Vatnsdalnum og vötnin á Arnarvatnsheiði. Og nú hafa tyggjó- klessurnar á götum og gólfum bæst við þessa upptalningu en tala þeirra er legíó. Án þess að ég viti það ímyn- da ég mér að þessi munaðarvara hafi borist til landsins í seinna stríði þeg- ar bandaríski herinn hélt hér innreið sína með Wrigleystuggur og nælon- sokka og alsnægtir en fram að því hafði þjóðin ekki haft efni á að skyr- pa út úr sér matvælum. —♦— ÍSLENSKUM ÍHALDSMÖNN- UM á þeirri tíð (og það voru sko al- vöruíhaldsmenn) blöskraði sú nýmóð- ins afþreying að japla gúm og spýta því síðan út úr sér. Tyggjónotkun var þegar í stað stranglega bönnuð í skól- um og skólamenn fluttu innblásnar ræður um að það væru eingöngu sauðkindur og nautgripir sem sefuðu hugann með jórtri en hin æðri spen- dýr eins og skólabörn ættu ekki að hugsa um tyggigúmmí, taka heldur með sér hollt nesti í skólann, helst rúgbrauð og magarín. ■—♦— í ÞANN TÍMA var lítið um gang- stéttir en þeim mun meira um malar- götur svo að það gerði í sjálfu sér ekki mikið til þótt ein og ein persóna missti út úr sér jórtrið. En nú er öld- in önnur. Nú jórtra allir eins og þeir eigi lífið að leysa og hrækja tuggunni á fortó eða marmaragólf, og tyggja jafnvel sér til heilsubótar til að losna við hina lífsjiættulegu reykingafíkn og vilja hætta að vaða reyk og jórta í staðinn. En nú eru komnar gangstétt- ir út um allt og ef 50 þúsund manns á landinu tyggja 1 tuggu á dag til að hrækja út úr sér (varlega áætlað) og hver tugga þekur 2 fersentimetra þá hverfa 100 þúsund fersentimetrar á dag undir tyggjóklessur eða 36 hekt- arar á ári, það er dálagleg spilda á einni öld - og umtalsverð mengun. —♦— VONANDI hverfur landið ekki á næstunni undir eitt alsherjar tyg- gjóteppi því að íslendingar hljóta senn að fara að tileinka sér snyrti- mennsku og uppgötva til hvers rusla- fötur á almennafæri eru ætlaðar. Þá getur verslunarstjórinn í Pétursbúð vestur á Ægisgötu tekið niður skiltið góða fyrir utan búðina sem á stendur: Vil ekki tyggjó! - Stéttin. ■ Ekki láta þetta verða þinn næsta tvísmell... Fæstir vilja vera álitnir lögbrjótar. Þrátt fyrir það nota margir hugbúnað án þess að hafa til þess leyfi. Annað hvort vegna vanþekkingar á því að slíkt er refsivert eða fólk trúir þvi að ekki komist upp um það. Þetta ástand er óviðunandi. Nú hefur BSA ákveðið að ráðast gegn heimildarlausri notkun á hugbúnaði á íslandi. BSA skorar á einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir að afla strax tilskilinna notkunarleyfa hjá viðurkenndum söluaðilum. Ef þú veist um ólöglega notkun hugbúnaðar, láttu okkur vita af því í síma 533 33 33 eða í tölvupósti bsa@amp.is. Nánari upplýsingar um BSA og hugbúnaðarnotkun má fá á www.amp.is/bsa Business Software Alliance Business Software Alliance (BSA) eru alheimssamtök hugbúnaðarframleiðenda sem vinna gegn notkun á hugbúnaði án tilskilinna leyfa, í atvinnulifinu, hjá hinu oþinbera og hjá einstaklingum. BSA beitir sér með fræðslustarfi og í gegnum réttarkerfið. Halló Suðurnes! Suðumesjamenn! Fréttablaðið ykkar liggur nú frammi á völdum stöðum á Suðurnesjum. Grípið eintak um leið og þið kaupið inn eða setjið bensín á bílinn. • Sandgerði Sparkaup Shell • Garður Sparkaup Esso • Keflavík Sparkaup Olís Aðalstöðin Miðbær Kaskó • Njarðvík Hagkaup Shell Olís Samkaup • Grindavík § Vogar Esso Esso Olís Shell Samkaup FRÉTTABLAÐIÐ V I Ð SEGJ U M FRÉTTI R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.