Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 8
v’í'dA.lflAVf M' FRÉTTABLAÐIÐ Browning fatnaðurí miklu úrvali Browning og Winchester j haglabyssur Ájá F • Veiðivörur 1 • Goifvörur • Verkfæri • Byggingavörur LAGER ÚTSALA til 14.nóv. Browning hnífar Browning vasaljós ÍOL'5 v'i'6txo V.. í-ciwvrv. 31. október 2001 MIÐVIKUDAGUR Rannsókn Samkeppnisstofnunar: Asakanir um óheilbrigða viðskiptahætti neytendamál Samkeppnisstofnun hefur fá úrræði til að bregðast við verðhækkunum vegna fá- keppni nema að samkeppnislög séu brotin, að sögn Guðmundar Sigurðssonar, forstöðumanns samkeppnissviðs Samkeppnis- stofnunar. Fram hefur komið að verð á matvælum og drykkjarvörum hefur hækkað mikið frá árinu 1997 og mun meira en árin þar á undan. „Það er þá ekki nema að fyrirtæki misbeiti sinni aðstöðu, ef hún er markaðsráðandi, eða að þau séu að hafa með sér samráð, sem við getum gripið inn í. En það hafa svo sem ekki komið fram neinar vísbendingar um síðara atriðið," sagði hann, en til- tók að í gangi væri rannsókn á einstökum viðskiptaháttum fyr- irtækja. Rannsóknina segir hann hafa komið til vegna vísbendinga og ásakana frá einstökum birgj- um, bæði framleiðendum og inn- flytjendum, um að heilbrigðir viðskiptahættir væru ekki að öllu leyti viðhafðir í smásölu- versluninni. „Þ.e.a.s. að kaup- endastyrkur smásölunnar væri notaður til knýja fram óeðlileg viðskiptakjör. Það eru m.a. þeir þættir sem okkur þótti ástæða til að rannsaka frekar og fara í stjórnsýslulega rannsókn á þeim.“ Guðmundur segir að ekki sjái enn fyrir endann á rannsókn- inni. ■ GUÐMUNDUR SIGURÐSSON Guðmundur segir að niðurstaða Sam- keppnisstofnunar frá því í vor um að mat- vara hafi hækkað umfram aðra vöru stan- di. Hækkunin hafi komið til vegna aukinn- ar álagningar. FRETTASKYRING I sögulegu lág- marki hálfum mán- uði fyrir flokksþing Samfylking í kreppu. Ljóst að við verðum að skerpa áherslurnar segir for- maðurinn. Ekki óeðlilegt að litið sé til forystunnar í þeirri foringjapólitík sem er við lýði segir Guðmundur Arni. Orðinn einn flokkur fyrr en vara- formaðurinn hefði gert sér vonir um. Vilji fyrir því að hrista upp í forystu- sveit Samfylkingar meðal sumra. STJÓRNMÁL Fylgi við Samfylkinguna er í sögulegu lágmarki ef marka má skoðanakönnun DV í síðustu viku sem sýnir 13,5% fylgi við flokkinn, eða rétt um helming þess fylgis sem flokkurinn naut í síð- ustu kosningum. Þremur árum eft- ir að samkomulag náðist um sam- eiginlegt framboð sem átti að mynda annan burðarstólpann í ís- lenskum stjórnmálum virðist Sam- fylkingin nær því að verða annar minnsti flokkurinn á þingi en að halda stöðu sinni sem sá næst stærsti. Össur Skarphéðinsson segir niðurstöður könnun- arinnar koma á óvart enda hafi menn metið það sem svo að Samfylkingin hafi komið sterkt út úr hinni pólitísku baráttu haustsins og menn talið sig merkja meðbyr. Hann sagði að þrátt fyrir að mönnum beri MARCRÉT Hugmyndir almenn- ings um stefnuleysi Samfylkingar ekki til marks um að forystan hafi brugðist. að taka vísbendingar úr skoðana- flokki. Við erum enn að berjast fyr könnunum alvarlega megi menn ir þeim markmiðum. í bili blæs á ekki láta þær skelfa sig um of. „Eigi að síður er ljóst að við þurf- um að skerpa áherslurnar og það höfum við verið að gera. Við höfum verið að ryðja braut fyrir nýjar hugmyndir, td. í lýðræðis- málum, sjávarútvegsmál- um þar sem fleiri virðast vera að snúast til fylgis við þá leið sem við höfum kynnt og í Evr- ópumálum höfum við verið frum- kvöðull." Össur hafnar því að skoðana- kannanir að undanförnu séu til marks um að Sam- fylkingin þurfi að endur- skoða markmið sín. „Markmiðin voru aldrei að ná ákveðnu fylgi held- ur að gera Samfylkinguna að áhrifamiklum fjölda- ÖSSUR Vandamál í upphafi hafa efalítið vakið hughrif um stefnu- leysi sem lifa enn þrátt fyrir eindregna stefnu. móti og stundum hefur mörgum þótt nóg um þann andbyr sem skút- an hefur mætt. Það þýðir ekki að menn geti leyft sér að gefa frá sér drauminn um sameiningu vinstri- manna.“ Guðmundur Árni Stef- ánsson segir að það kunni að vera ein af meginástæð- um vanda Samfylkingar að flokkurinn hafi verið of upptekinn við að leita málamiðlana innan eigin raða og þess vegna ekki getað komið fram með skýra valkosti. „Samfylk- ingin þarf að þora að vera það sem hún er og þora að taka afstöðu til mála.“ „Samfylkingin er orðinn einn flokkur miklu fyrr en ég hefði gert mér vonir um“, segir Margrét Frí- mannsdóttlr. „Hins vegar hefur verið látlaus áróður af hálfu Sjálf- stæðisflokksins og virðist hafa ver- ið gefin út dagsskipun um að menn opni ekki munninn án þess að segja eitthvað um það að Samfylkingin hafi ekki stefnu.“ Margrét segir að þessu hafi ekki verið svarað sem skyldi en neitar því að það sé til marks um að forystan hafi brugð- ist hlutverki sínu. Eitt af því sem hefur verið gagnrýnt er að aðildarfélög flokk- anna sem stóðu að Samfylkingunni hafa ekki verið lögð niður eins og Guðmundur Oddsson benti á í Fréttablaðinu fyrir skemmstu. Þessu hafnar Birgir Dýrfjörð sem var löngum í forystusveit Alþýðu- flokks og vann að sameiningunni. Hann segir að þó gömlu félögin hafi ekki verið lögð niður hafi starfsemi þeirra verið lögð niður. Félögin eru sjálfstæðar einingar með fjárhagsskuldbindingar svo ekki hafi verið hægt að leggja þær niður. Hins vegar mætti velta því fyrir sér hvort það hefði ekki verið betra að félögin hefðu starfað áfram og þannig veitt þeim vett- vang sem komu inn í Samfylking- una úr gömlu flokkunum og vildu halda þeirri tengingu. Birgir segir að ef menn ætli að horfa til þess hversu illa Samfylk- Verð landbúnaðarafurða: Sjálfum sér nægir landbÚNAÐUR „Það er búið að gera samkomulag um þetta við bændur til nokkurra ára“, segir Guðjón A. Kristjánsson og við það verður að standa. Guðjón segir eðlilegt að bændur fái ein- hverja hækkun á sínum vörum til að halda launa- grundvelli sínum. „Ég tel að verð- lagning til bænda sé yfirleitt ekki á undan þróuninni. Hún er iðulega á undan í stórmörk- uðum á hinum og þessum vörum, langt á undan því að bændur fá sinn hlut. Svo geta menn velt því fyrir sér hvort það eigi að taka kerfið til sköðunái', hv'órt það eigi að vera rrieiri' Sámkeppni. Ég er ekki hrifinn af því að.hleypa of miklum innffutningi lándbúnaðarafurða inn í landið. Ég tel að við eigum að vera sjálfum okkur nægir.“ ■ Verð landbúnaðarvara: Bóndinn fær oflítið landbúnaður „Mitt álit er að bónd- inn fái alltof lítið fyrir sína vöru“, segir Drífa Hjartardóttir formað- ur landbúnaðarnefndar Alþingis um hækkun mjólkurafurða sem samþykkt var í gær. „Mér renn- ur oft til rifja hvað það er lítið sem fólkið fær í sinn hlut. Það hef- ur verið skárra í mjólkinni en í kjötinu en bónd- inn fær minna í sinn hlut fyrir nautakjöt nú en í fyrra þrátt fyrir að kjötið sé dýr- ara út úr búð.“ Drífa segir ekki hægt að reka landbúnað á íslandi án styrkja líkt og gert sé víðast hvar. Hún segir að þegar sé heilmikil samkeppni frá útlöndum og hafnar því. að opna fyrir meiri samkeppni. Sjúk- dómar í Evrópu að undanförnu sýni líka kosti einangraðs kerfis. ■ Verð landbúnaðarvara: Nýtist neytendum landbÚnaður Kristinn H. Gunn- arsson segist styðja núverandi landbúnaðarkerfi þó ekki eigi endilega allt að vera óbreytt frá því sem er í dag. Hann segir inn- flutningstakmark- anir skynsamleg- ar frá heilbrigðis- sjónarmiði því hætt væri við því að ýmislegt hefði farið úrskeiðis ef innflutningur landbúnaðaraf- urða hefði verið frjáls og vísar þar til sjúkdóma. „í sjálfu sér hefur kerfið ekki bitnað á neytendum. Kannski hefði verðið orðið enn lægra í öðru kerfi en menn hafa viljað reka stefnu þar sem meirihluti afurða er framleiddur þérlendis.“ Hins vegar vilji hann ekki vera kominn upp á innflutning á mikilvægum afurðum. ■ Verð landbúnaðarafurða: Ekki heljarstökk landbÚnaður „Landbúnaðarkerfið hefur verið að taka breytingum þannig að við stöndum síður en svo í stað“, segir Ögmundur Jón- asson. Hann segir kerfið halda verði á landbúnaðar- vöru stöðugu. Verðlag mætti lækka með inn- flutningi en þá vöknuðu : spurn- ingar um gæði vörunnar og af- komu íslensks landbúnaðar. „Við höfum komið okk- ur upp kerfi sem tekur mið að þess- um þáttum öllum. Ég er ekki fylgj- andi heljarstökkum í þessum efn- um. Ég held að þau væru ekki til þess fallin að bæta hag neytenda, með tilliti til verðs og gæða, eða afkomu bænda. Ég held því að við eigum að aðlaga þessi kerfi hægt og staðfastlega en ekki hlaupa í heljarstökkum." ■ DRÍFA Verðum að styðja landbúnaðinn ef við ætlum að geta brauðfætt okkur. ÖGMUNDUR Aðlaga kerfin hægt og stað- fastlega en ekki I heliarstökkum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.